Tíminn - 05.06.1956, Qupperneq 8

Tíminn - 05.06.1956, Qupperneq 8
B D aOaöoaoOaOaDaOaQaQanaQiIlaDDQoOonaQoDaODOcDQDaQ D □ Þ P IS g I slendingajpættir □ □ □ □ □ □ □ |-jaoaoaaoaaQaaaQ QoQaaaoaQoaoQa j-j Sextugur: Sigurgrímur Jónsson, oddviti f Sigurgrímur Jónsson bóndi og oddviti í Holti í Stokkseyrar- Jireppi er sextugur í dag. Hann er fæddur í Holti 5. júní 1896, sonur Jóns Jónssonar bónda í Holti og konu hans Ingibjargar Grímsdóttur. Sigurgrímur lauk liúfræðinámi frá Hvanneyri 1915. Tók hann við búi af föður sín- um vorið 1921. Kona hans er, XJnnur Jónsdóttir frá Jarlsstöðum ' 3 Bárðardal. Þau hjón tóku ung •við búsforráðum í Holti, fátæk af ■veraldlegum auði, en auðug af hjargfastri trú á landið og með samstilltum vilja hófu þau búskap í Hoiti. Sigurgrímur er mesti fyrirmynd arbóndi. Hann hefir reist mikið «g veglegt íbúðarhús og útihús- hyggingar, hefir brot'ið til ræktun- ar stórflæmi og komið upp miklu. búi. Sigurgrímur hefir gegnt ýmsum trúnaðarstörfum fyrir sveit sína «g hérað. Hann hefir átt sæti í hreppsnefnd sem fulltrúi Fram- sóknarflokksins í fjölda mörg ár. Hann var hreppsnefndar-oddviti 1934—1938 og tók við því starfi aftur 1946 og hefir haft það á hendi síðan. Hefir hann átt sæti í stjórn Mjólkurbús Flóamanna frá stofnun þess og formaður fast- cignamatsnefndar Árnessýslu frá 1918. Þeir, sem koma að Holti og ekki Jækkja Sigurgrím, eru undrandi yf ir hinum mikla glæsibrag, sem þar er yfir byggingum, ræktun og heimilisbrag. Við, sem þekkjum Sigurgrim bezt, erum ekki undr- andi yfir þessu. Sigurgrímur er gæddur góðum gáfum en prúð- menni mikið og gætinn en þó stór- huga og traustur til ráða og fram- kvæmda. Slíkir menn hljóta ævin- lega að komast áfram í lífinu og vera kvaddir til forustu í félags- málum í sveit sinni og héraði. ÍÞeim hjónum hefir orðið níu bárna auðið, sem öll eru hin mannvænlegustu. Þau eru Jón, HÖrður og Vernharður, sem nú erú farnir að búa í Holti. Ingibjörg kdna Sveinbjarnar Guðmundsson- ar; bifreiðarstjóra á Stokkseyri, Á^laug forstöðukona á Gamla stúd eritagarðinum, Skúli, útibússtjóri hjá Kaupfélagi Árnesinga á Stokks eyri, jRagnheiður, Hákon og Grím- ur hjá foreldrum sínum. Öll hafa l>au börn verið sett til mennta. "fCæri vinur. Þessar fáu línur eiga ekki að vera neinar tæmandi upptalningar á ævistarfi þínu, heldur til að þakka þér fyrir góða viðkynningu og einfæga vin- áttu. Við kynnumst á þeim árum, þegar ég starfaði á Stokkseyri, okkar samstarf var mjög náið. Ég tel að ég hafi vaxið af þeirri við- kynningu. Auðvitað hefir þú verið um- deildur, þegar k osningabaráttan hefir staðið yfir, en að loknum kosningum hafa pólitískir andstæð- ingar kosið þig til forustu í mörg ár. Þú hefir verið í hópi hrepps- nefndarmanna, sjálfkjörinn oddviti þeirra. En mestu hamingju þína í lífinu tel ég vera þitt góða heim ili. Ég hef aldrei kynnzt börn- um, sem hafa verið eins heima- kær og börnin þín. Og það er vegna þess að á heimili ykkar hjónanna hefir ríkt sú eining og góður skilningur á að sameina vinnu, menntun og tóm til að njóta lifsins. Ennfremur álít ég að bú eigir stóran þátt í á að móta þann sér- kennilega og um leið fyrirmynd- ar anda, sem er ríkjandi meðal forústúmarina í Stokkseyrarhreppi. En- það er ,ykj:ar góðá reigla að halda alltaf vináttu og tryggð. Leggja dægurmálin til hliðar, gl'eðjást í vinahópi og sameinast í áð njótá ’fe'gUrðair óg gleði lífs- ins. Ég óska þér og þinni fjölskyldu gæfu og gengis á ókomnum ævi- árum. Ég vona að sveit þín og hérað megi sem lengst njóta starfs krafta þinna. Lifðu heill. Helgi Ólafsson. Sexfugur: Þorsfeinp Jónsson Það er nú á tímum orðin venja að minnast í blöðum eða á ar.nan hátt tímamóta eða afmæla í ævi manna og má kalla það góðan sið. Þó hefir nú svo farið, að gleymst hefir — að því er ég bezt veit — að minnast þess manns, sem í all- an máta er þess verðugur. — _Er það Þorsteinn Jónsson bóndi á Úlf- stöðum í Hálsasveit, í Borgarfjarð- arsýslu, er varð sextugur 5. apríl síðastl. Réttilega má segja, að hann sé með allra mikilhæfustu manna á landi hér 1 bændastétt. Er þess þá fyrst að geta að hann er dugandi bóndi, sem í fremstu röð er landnámsmaður hins nýja tíma. Hann hefir ræktað og húsað vel jörð sína við erfið skilyrði, sem fáir í hans stétt hafa átt við að stríða, sem betur fer. Er þess skemmst að minnast að á nýárinu 1952 brann íbúðarhús hans, svo að kalla nýuppkomið með öllum inn- anstokksmunum, til kaldra kola. Missti hann þar allstórt og fágætt bókasafn og handritasafn hans sjálfs, ásamt píanói. Og ómeidd- ur slapp hann og sumt af fjöl- skyldu hans, ekki út úr eldinum. — En Þorsteinn gafst ekki upp. Strax næsta vor byggir hann stórt og vandað íbúðarhús ásamt nokk- uð af útihúsum á jörð sinni, legg- ur hitaveitu í bæinn frá laug þar niærri. Þettá, s'em talið var, er nú pðeins einn þáttur í starfi Þor- steins, sem af mörgum væri talið nægilegt til afreka. Jafnhliða bú- störfunum hefir hann gerst einn af fremstu rithöfundum þjóðarinn- ar og það eigi einungis fyrir sér- stæðan persónulegan stíl og mik- ið vald yfir málinu, heldur og fyr- ir stórfellt málefni, sem enn því miður, á af formælendum fáa. í bókum sínum „Samtöl um íslenzka heimspeki“, sem kom út 1940 og „Tunglsgeisla“, sem komu út 1953, hefir hann fært rök fyrir sann- leiksgildi kenninga dr. Helga Pjet- urss, og reyndar meira en það, því að í seinni bókinni hefir hann á ýmsum sviðum fært þær kenning- ar út. Þorsteinn er einn af þeim fáu íslendingum, sem hafa samið snjöll spakmæli. Eru þau frumleg og býsna vel gjörð. En fátt mun enn hafa komið af þeim fyrir sjón- ir almennings. Aðeins nokkur sýn- ishorn í tímaritum. Ljóðagerð hef- ir Þorsteinn fengist við, sem mörg um mun kunnugt vera. Hefir hann í þeim efnum margt mjög vel gjört Manni kemur í hug að nokkurt misrétti sé í því að skáld og rit- höfundur eins og Þorsteinn skuli ekki fá styrk eins og aðrir fyrir andleg störf. Það er því ekki úr vegi að minna á, að þjóðfélagið veitti Þorsteini frá þessum tíma- mótum í ævi hans, fyrir þessi störf há'hs; ViðUrkenningu, því dagsanna er, sem sagt hefir verið, að þjóð- T í MIN N, þriðjudaginn 5. júrií 195S Getraunirnar Aðalfundur Árnesingafélagsins Hér liggur fyrir 23. og síðasti getraunaseðill íslenzkra getrauna. Á honum eru 8 íslenzkir leikir og fjórir erlendir landsleikir. Eftir styrjöldina hafa Finnar aðeins einu sinni unnið Svía, en tvisvar gert jafntefli. Nýlega gerðu Svíar jafntefli við Englendinga, 0—0, en Finnar töpuðu 1—5. 30. maí gerðu Norðmenn jafntefli við Pólverja 0—0. Nýlega gerðu V-Þjóðverjar jafntefli við Frakka, 3—3, en töp- uðu fyrir Englendingum 1—3. Und anfarið hafa sézt þess nokkur merki, að Ungverjar væru ekki jafn sterkir og áður. Nýlega töp- uðu þeir fyrsta heimaleiknum, gegn Tékkum með 2—4. Af ís- lenzku leikjunum eru þrír úr 1. deild, þrír úr Reykjavíkurmóti 1. flokks og tveir úr sama móti 2. flokks. Og svo að síðustu Lands- liðið-Pressuliðið, en sá leikur á að fara fram 19. júní. Finnland—Svíþjóð 2 Portúgal—Ungverjaland 2 Noregur—V.-Þýzkaland 2 Rúmenía—Svíþjóð x Fram—Akureyri (I. d.) x2 Víkingur—Akranes (I. d.) 2 Valur—Akureyri (I. d) 1x2 Fram—Þróttur (1. fl.) 1 K.R.—Valur (1. fl.) 12 Valur—K.R. (2. fl.) lx Fram—Valur (2. fl.) 1 2 Landsliðið—Pressan 1 Kerfi 48 raðir. Bandarískir bændur heimsækja síarfs- bræður sína í Rússl. New York, 2. júní. — Hópur banda rískra bænda er nýkominn til Bandaríkjanna úr 20 daga ferða- lagi um Ráðstjórnarríkin. Róma þeir mjög hjartanlegar viðtökur rússnesku bændanna hvar sem þeir komu, en þeir ferðuðust um 5000 km. vegalengd um Rússland. Segja bændurnir, a'ð skortur sé á vél- um og vinnuafl hái mjög landbún- aði í Rússlandi og standi honum mjög fyrir þrifum. Segja þeir, að geysistór samyrkjubú allt upp í 8 þúsund hektara hafi mjög oft mun minni vélakost en 400 hektara bóndabýli í Oklahoma, en bændurn ir eru þaðan. Dagblað í Oklahoma kom þessum ferðum af stað en bændurnir greiddu sjálfir allan kostnað af ferðalaginu. Vestmannaeyjabréf (Framnald af 5. síðu.) * •" að yfir 500 lestir hver, eða samtals um 15000 smálestir. Segja má, að undanfarna viku hafi ekki gefið á sjó hér. Ríkt hef- ir látlaus suðvestan og sunnanátt þessa daga. Sjómenn hér hyggja nægan afla, ef gæftir gæfust, a. m. k. ufsa á færi. Það þykir hér tíðindum sæta, að Byggðasafn Vestmannaeyja hefir keypt fyrsta orgel, sem keypt var í Landakirkju. Það var keypt í kirkjuna árið 1877. Orgelið hafði kona nokkur suður á Grímsstaða- holti í Reykjavík átt í 48 ár og seldi hún það Byggðasafninu. í guðs friði. Hallur. félag getur vart þrifist án þess að menn séu rétt metnir. Um Þor- stein á Úlfstöðum er margt fleira að segja, sem staðfestir hversu merkilegur maður hann er. Ég hygg, að hann hafi í drjúgum mæli fengið í arf það bezta, sem var í fari forföður hans, séra Snorra Bjarnasonar á Húsafelli. Hann er í allan máta traustur og .sannur maður og stefnufastur svo að af ber og gæti þar orðið öðrum til fyrirmyndar og eftirbreytni. Að endingu óska ég svo Þor- steini og hans skylduliði öllu, allr ar hamingju og blessunar á kom- andi árum og um leið að hann fái nú enn betri tíma til hugðarefna sinna en áður, því hvað aldur snertir, má vænta, að enn gefist langur dagur til starfs. Brekku I Hornafirði, 7. maí 1956, Bjarni Bjarnason. Aðalfundur Árnesingafélagsins í Reykjavík var haldinn í Tjarn- arkaffi laugardaginn 26. maí s.l.’ Formaður félagsins, Hróbjartur Bjarnason, flutti skýrslu um starf semi félagsins, sem var margþætt á liðnu ári. Gjaldkeri las upp reikninga lið- ins ár og var fjárhagur félagsins hagstæður. Félagið hefir fengið til umráða land í Þjóðgarðinum á Þingvöll- um og hefir nú þegar gróðursett þar um 6500 trjáplöntur. Á árinu gaf félagið út nokkur sönglög eftir Sigurð Ágústsson í Birtingaholti, og eru þau til sölu í bókabúðum í Reykjavík og einn ig austan fjalls. Eins og venjulega hélt félagið samkomu á Þingvöllum á Jóns- messu og var hún fjölsótt af Ár- nesingum austan fjalls og vestan. Félagið tók m.s. Esju á leigu til Breiðafjarðar. Var sú för fjöl- menn, og þátttakendum til á- nægju. Þá var haldið hið hefðbundna Árnesingamót í Sjálfstæðishúsinu 25. febrúar s. 1. M. a. flutti Sig- urður Óli Ólafsson, alþm. ágæta ræðu. Árni Jónsson, bóndi í Al- viðru, heiðursgestur félagsins að þessu sinni, flutti snjallt ávarp. — Þuríður Pálsdóttir og Kristinn Hallsson sungu. Á árinu var gerður að heiðurs- félaga Kolbeinn Guðmundsson, fyrrum bóndi og sýslunefndarmað- ur að Úlfljótsvatni. Magnús Vigfússon, Þóroddur E. Jónsson og Haraldur B. Bjarna- son. Stjórnin var öll endurkjörin, en hana skipa: Hróbjartur Bjarnason, form., og meðstjórnendur, dr. Guðni Jóns- son, Þorlákur Jónsson, Guðjón Vig fússon og Helga Gissurardóttir. Vorþing uradæmis- stúkramar nr. 1 Vorþing Umdæmisstúkunnar nr. 1 var háð dagana 26. og 27. maí s. 1. í Templarahöllinni í Reykja- vík. Fulltrúar voru mættir frá 2 þing stúkum, 15 undirstúkum, 1 ung- mennastúku og 3, barnastúkum. Sunnudaginn 27. var gengið til kirkju ‘og hlýtt messu hjá séra Jóni Auðuns dómprófasti. Ræða hans var snjöll og áhrifarík. Kl; 3,30 sama dag flutti Jónas Guðmundsson forstjóri erindi um starfsemi .A- A,-félagsins og Bláa bandsins hér á landi. Erindi hans vakti mikla athygli, var mjög ýt- arlégt og fróðlegt um þessa kær- leiksríku og merku menningar- starfsemi. Meðal gestá á fundinum voru konur úr áfengisvarnanefnd kvenna í Reykjavík og Hafnar- firði. Meðal samþykkta þingsins var eftirfarandi ályktun: „Umdæmisstúkuþingið, haldið í Reykjavik 26. og 27. maí 1956, telur ástandið í áfengismálum svo ískyggilegt, að ekki verði við un- að. Skorar þingið því á forráða- menn þjóðarinnar, í bæjum og sveitum, að beita sér fyrir ráð- stöfunum, er draga megi úr áfeng- isnautn, og veki almenning til al- varlegrar umhugsunar og andúð- ar á þeirri skefjalausu nautn á- fengra drykkja, sem nú á sér stað, og veldur sívaxandi s'pillingu, slys- um, og margs konar Vandræðum í þjóðfélaginu.“ Framkvæmdanefnd Umdæmis- stúkunnar fyrir komandi starfsár, var endurkjörin. Hana skipa: Umdæmistemplar Þorsteinn J. Sigurðsson, umdæmiskanslari Þórður Steindórsson, umdæmis- varatemplar Svanlaug Einarsdótt- ir, umdæmisritari Maríus Ólafs- son, umdæmisgjaldkeri fáll Kol- beins, umdæmisgæzlumaður ung- lingastarfs Jón Kr. Jóhannesson, umdæmisgæzlumaður löggjafar- starfs Karl Karlsson, umdæmis- fræðslustjóri Bjarni Halldórsson, umdæmisfregnritári Jón Hjörtur Jónsson. Iþróttir j (Framhald af 4. síðu.) á þarf að halda, þótt sumir þeirra sýndu þó of grófan leik. Aðeins ein breyting var á liðinu frá Fram- leiknum, en það var miðvörðurinn Schuler, sem er ágætur leikmað- ur. Markmaðurinn Wollf var bezti maður liðsins. Akurnesingum tókst ekki vel upp í þessum leik, lítið sást af góð um samleik, en mest var um til- gangslaus hlaup einstakra leik- manna með knöttinn. Vörnin er af- ar léleg, sem einkum kom greini- legast í ljós eftir að Sveinn varð að yfirgefa völlinn, og gat ekki fyllt í þau op, sem mynduðust. Varnarleikmennirnir eru sterkir líkamlega, og beita skrokknum full mikið, einkum Jón Leósson. Góðar staðsetningar sjást varla hjá vörn- inni. Mikið tjón er fyrir liðið að hafa misst Ólaf Vilhjálmsson og Svein Benediktsson. Guðjón Finn- bogason vann vel allan leikinn og Sveinn Teitsson átti ágætan leik meðan hans naut við. í framlín- unni var Þórður Jónsson beztur og átti ágætan leik, einnig var Þórð- ur Þórðarson betri en áður í sum- ar. Ríkarður fékk ekki að leika laus og var hans gætt mjög vel, og það svo, að mörgum fannst nóg um. Halldór Sigurbjörnsson féklc litlu til leiðar komið gegn hinum frábæra bakverði Þjóðverja, Rud- olph. Annað kvöld verður síðasti leik- ur þýzka liðsins við úrvalslið suð- vesurlands (landsliðs) og má bú- ast við fjörugum og skemmtileg- um leik. Ánægjuleg ferd (Framhald af 4. síðu.) einn Fólksvagn og bættist í hóp- inn. Sá hafði misst af lestinni og farið aðra leið. „Hefir þú nokk- urn tíma ekið í bílnum þínum upp Kamba?“ spurði gömul kona, um það bil er við lögðurri í neðstu brekkuna. Hún hafði heyrt að það væri heldur lítil vél í Fólksvagn- inum: Smá kríli afturí bg að fara upp Kamba hlaut að reyna á þolrif in. En hrifni hennar jókst eftir þvi sem á ferðalagið leið og í efstu brekkunni gat hún ekki lengur orða bundist og sagði með þunga: „Og hver segir svo áð þessir bílar vinni ekki vel?“ Végurinn var góð ur á fjallinu og eftir örstund vor- um við kominn að Skíðaskálanum. Þar hafði Fólksvagnaumboðið á ís- landi, Heildverzlunin Hekla h. f., boð inni fyrir ferðafólkið. Þarna var veitt af rausn. Smurt brauð og drykkir. Ferðafólkið var kátt og það var glatt á hjalla þarna í Skíðaskálanum, ekki’ síður en í Hveragerði. Að endirigu stóð farar stjórinn upp og þakkaði veiting- arnar fyrir hönd FólksvagnaklúbbS ins. Á eftir var stillt upp til mynda töku á tröppunum fyrir utan. > Nú var aðeins siðasti áfanginri eftir og lestin hlykkjaðist niður Svínahraun. En allt í einu sprakk hjá fararstjóranum. Bílarnir stönz uðu og margir fóru út til hjálpar. Þetta gekk líka eins og í lygasögu. Það komu minnst 10 til að hjálpa Viggó að skipta um hjól. Það var tjakkað upp, boltarnir skrúfaðir lausir, sprungna hjólið tekið af og varahjólið sett undir, en hvar eru boltarnir? Jú, þe?r komu í leitirn- ar og eftir augablik var haldið a£ stað. ■ Það var ánægður hópur, semi ók niður Hringbrautina á laugar- dagskvöldið og stanzaði fyrir framan Elliheimilið Grund. Dag- urinn liafði verið skemmtilegur og mörg gamanyrði fokið, enda fólkið verið í skínandi skapi. —< Þarna var kvaðst og blessunarorö gamla fólksins fylgdu ökumönn- um er þeir stigu upp í bíla sína, En þótt allir væru glaðir vorui þeir ökumenn, sem buðu gamla fólkinu í ferðalagið kannské glað- astir, því þeir nutu þeirrar gleði, sem það véitir að gleðja aðra. i Sv. S. 1

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.