Tíminn - 22.08.1956, Blaðsíða 1

Tíminn - 22.08.1956, Blaðsíða 1
Sflgist með tímanam og IesiB TÍMANN. Áskriítarsímar 2323 og 81300. Tíminn flytur mest og fjöl- breyttast almennt lesefni. f blaðinu í dag: „Nýr republikanismi“ og forseta kjör, bls. 4. Þegar stórvatn er brúað, er hindr un mannlegra samskipta rutt úr vegi, bls. 5. 40. árgangur Reykjavík, miðvikudaginn 22. ágúst 1956. 188. blað. Bráðabírgðalög um bann við að nota arhúsnæði til aimars en íbúðar Gildir uííi aiit núverandi íbúSarhúsnæði og húsnæði. sem samkvæmt teikningum nusnæoi Ríkis'stjórnin gaf í gær út tilkynningu um að sett hefðu verið bráðabirgðalög, sem leggja bann við að nota íbúðarhús- næði til annars en íbúðar, og gildir bannið einnig um húsnæði, sem heitir íbúðarhúsnæði á teikningum. Er með þessum að- gerðum verið að fyrirbyggja, að svindlað sé á fjárfestingar- ákvæðum. Er alkunna að ýmsir aðilar hafa reist stórhýsi á þeim forsendum, að þeir væru að byggja íbúðir, enda þótt ætlunin sé og hafi ætíð verið að leggja húsnæðið undir skrif- stofur og aðra starfrækslu. í fréttatilkynningu segir á þessa leið: ísfirðingar unrcu KR í kvennaflokki líandknattleiksir, ': íslands hélt áfram í Haínarfiröi í fyrrakvöld og fóru þá fram tveir leikir. í kvennaflokki sigruðu ísfiröingar Knattspyrnufélag Reykjavíkur með 5 mörkum gegn 2 og í karla • flokki sigraði Ármann Fram meö . 21 marki gegn 13. — Mótið heid- ur áfram i Engidal við Hafnar- fjörð öll kvöM vikunnar. 4000 mál af ufsa hafa borizt til Krossanes- verksmiöjunnar Akureyri í gœr: Á mánudag höfðu 4000 mál af ufsa borizt til Krossa nesverksmiðjunnar. Þessi 4 skip lögðu þennan afla upp: Snæfell rúmelga 2000 mál, Súlan 860, Huk ur I 890 og Jörundur með 230. E.D. „Að tilhlutan félagsmálaráðu- neytisins hefur forseti íslands í ! dag gefið út bráðabirgðalög um af- not íbúðarhúsnæðis. í þessum bráðabirgðalögum er lagt bann við því að nota íbúðar húsnæði í kaupstöðum til annars en íbúðar, en íbúðarhúsnæði telst það húsnæði, sem við gildistöku laganna er notað til íbúðar og er íbúðarhæft án verulegra endur- bóta, svo og húsnæði, sem ætlað er til íbúðar samkvæmt teikningu hlutaðeigandi húss og hefur ekki verið tekið til annarra afnota við gildistöku laganna. Þá leggja lög in einnig bann við því að halda ónotuðu íbúðarhúsnæði, sem kostur er á að leigja.“ Sektarákvæði. En segir: „Brot gegn íraman- greindum ákvæðum varða 10.00.00 til 1.000.000.00 króna sektum, er renna í varasjóð hins almenna veð lánakerfis til aðstoðar við hús- byggingar samkvæmt lögum nr. 55 20. maí 1955, en eftirlit með því að ákvæðum laganna sé fylgt, er í höndum húsnæðismálastjórnar. Félagsmálaráðherra er heimilt að veita einstökum kaupstöðum undanþágu frá ákvæðum laga þess ara enda liggi fyrir umsókn um það frá hlutaðeigandi bæjarstjóra og ekki sé þar um að ræða skort á íbúðarhúsnæði. Félagsmálaráðuneytið, 21. ágúst 1956. Urslitastimdm nálgast á Súez-ráístefnunni leiri hlnti ríkja styöja vesturveidin London, 21. ágúst. — í dag gerðist það helzt á Súez-ráð- stefnunni, að fulltrúar Pakistan, Persíu, Tyrklands og Etiópíu féllust á tillögur Dulles, sem hann setti fram í gær um al- þjóðlega yfirstjórn á Súez-skurðinum. Áðurnefnd ríki gerðu jió nokkrar breytingartillögur um orðalag, þannig, að form- lega er meira tillit tekið til sjálfstæðis Egyptalands og yfir- ráða yfir skurðinum, sem allir virðast nú viðurkenna að beri lögum samkvæmt. Þessi afstaða fyrrnefndra Asíu- og Afríku- ríkja merkir að ekki mun myndast klofningur sá, sem margir óttuðust að verða myndi milli vestrænu ríkjanna og ríkja í Asíu og Afríku. Asío- m Aíríi Fjögur ríki standa svo að þeim tillögum, sem Krisna Menon bar fram fyrir hönd Indverja, en sam- kvæmt þeim er viðurkenndur ó- skoraður réttur Egypta til að reka skurðinn, en hins vegar ætlast til að alþjóðleg ráðgjafanefnd sé þeim við hönd og þá einkum til að tryggja frjálsar og öruggar sigling ar um skurðinn. Ríki þessi eru auk Indlands: Ráðstjórriarríkin, Indó- nesía og Spánn. áíurinn með franska fjallgöngufólkið í írviðri @g hrakningi á leið fi! GrænlandS Skspverjar á Andvara sinna fiskvesðum og merk- ingum og leita at5 gömlum íiskimiöum, meðan þeir frönsku glíma viö fjallstinda Nálgast lokastigið. Fréttaritari brezka útvarpsins sagði í dag, að rástefnan nálgaðist nú úrslitastigið. Hefði stórum þok ast nær því í dag, er Pakistan og þau ríki, er því fylgdu, féllust í megin atriðum á tillögur Dulles. Er þetta skoðaður, sem mikill sig- ur fyrir vesturveldin og fyrir Dull- es persónulega. Hvað gerir Nasser. Málio horfir því þannig við, að vesturveldin muni fara með sigur af hólmi á ráðstefnunni, að vísu er enn eftir að vita hver verða end anleg viðbrögð Rússa og Indverja við málinu eins og það horfir nú. En hvernig sem fer mun yfirgnæf- andi meiri hluti styðja sjónarmið vesturveldanna. Þá er spurningin: Verður Nasser reiðubúinn að fall- ast á þá tilhögun málsins eða að minnsta kosti taka upp samninga á þeim grundvelli? Ef ekki til hvaða ráða taka Bretar og Frakkar þá? Frönsku fjallgöngugarparnir tólf, sem fóru til Grænlands með vélbátnum Andvara um síðustu niánaðaniót, eru nú senn vænt- anlegir hingað aftur nieð sama báti, sem beðið hefir þeirra við Grænlandsströnd og stundað fiskveiðar og merkingar, meðan þeir frönsku glímdu við fjöll og tinda við Grænlandsströnd. Sjóferðin vestur til Grænlands gekk miklu verr en upphaflega var búizt við. Var reiknað með að báturinn yrði rúma tva sól- arhringa á leiðinni, en varð sex þegar til kor.i. Hreppti skipið ill viðri og náði ekki landi í Græn- landi fyrr cn þetta. í Grænlandi fóru Frakkarnir á Iand og munu síðan liafa reynt að kiífa þau fjöll, sem ætluniu var að sigra, en fjöll á þessum slóðum hafa aldrei áður verið klifin. Leiðangursmenn, en í þeim hóp er kona, sem tekið liefir þátt í Ilimalajaleiðangri og komiz't hæst allra kvenna, munu reyna að komast upp á nokkra erfiða fjallatinda. Höfðu þeir með sér Ijósmyndir af nakkrum fjöllum, en ókunnugt var um ýmsar að- stöður, þar sem fjallgöngumenn hafa aldrei áður reynt við fjall- göngur á þessum slóðum. Það eru fjalitindar rétt austan við Hvarf á Grænlandi, sem leið- angurinn liafði aðallega í huga. Á meðan Frakkarnir sinna fjall göngum, verður báturinn við fisk veiðar og rannsóknir við Græn- landsströnd. Var meðal annars ætlunin að leita að fiskimiðum, sem ekki hafa verið stunduð af íslendingum í mörg ár, en Bjarni Olafsson frá Akranesi komst á á sínum tíma á línuveiðara sínum og fiskaði þar vel. Síðan hafa ís- leiidingar ekki sinnt þessum mið um, en vel má vera að þar sé nú fiskilegt, og gott af þeim að vita á ný, þegar fiskislóðir íslendinga liggja til Grænlands í vaxandi mæli. í gær fékk blaðið sendar þessar myndir frá háfiðahöldunum að Hólum á 850 ára afmæli Hólastóls. Á efstu myndinni sjást prestar ganga í skrúð- göngu fil dómkirkjunnar. Á næstu mynd eru fyrrverandi kirkjumálaráð- herra, Steingrímur Steinþórsson og dómkirkjupresturinn, séra Björn Björns son. Á neðstu myndinni er Hermann Jónasson, kirkjumálaráðherra, að flytja ræðu. Eins og skýrt var frá í blaðinu í gær, þá var þetta fjölmenn og fögur hátíð og eftirminnileg þeim er hana sóttu. Ljósm.: Adolf Bjömss. Ringeyingar f jölmenniu a5 Laugum á Bændadagimt á sunnudaginn var Á sunnudaginn var haldinn Bændadagur Þingeyinga að Laug um. Ilúsfyllir var í samkomusaln um og mikið fjölmenni víðsvegar að. Sungið var undir stjórn Sigfús- ar Hallgrímssonar frá Vogum. Ein söng sungu Jóhann Konráðsson frá Akureyri og Stefán Þengill Jóns- son frá Öndólfsstöðum. Áskell Jóns son frá Akureyri lék undir. Hlaut söngurinn hinar beztu undirtekt ir. Aðalræðu dagsins flutti Jón bóndi Sigurðsson að Yztafelli. Kcppt í starfsíþróttum. Að henni lokinni var keppt í (Framhald á 2 síðu).

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.