Tíminn - 18.10.1956, Qupperneq 7
TÍMINN, fimmtudaginn 18. október 1956.
7
Sjálf stæðism. gáfu fordæmi með bandalagi við Bændaflokkinn
Við framhaldsumræðuna
um kæruþref Sjálfstæðis-
manna á Alþingi út af kjör-
bréfi nokkurra þingmanna,
átti Bernharð Stefánsson 1.
þ. m. Eyfirðinga skörulega og
rökfasta ræðu og hrakti þær
fullyrðingar sumra Sjálfstæð-
ismanna að eðlismunur hefði
Verið á bandalagi því, sem var
í milli umbótaflokkanna í sum
ar og á breiðfylkingunni 1937
í kosningunum. Rakti Bern-
harð á mjög eftirminnilegan
hátt afskipti sumra núverandi i ar MutfaUskosningar, og menn
málsvara Sjálfstæðisflokksins
af breiðfylkingunni og sýndi
fram á að þar er um methafa
að ræða. Bernharð mælti á
þessa leið:
ÞaS heyrir til metum í óheiSarleik,
þegar sömu mennirnir, sem stóðu aS
kosningahandalaginu 1937, heimta nú
að ógilt séu k jörbréf nokkurra þingm.
Ræða Rernharðs Stefánssonar l.-þm. EyfirS-
inga á hingfundi 12. októher
þó a'ð þeir hefðu báðir frambjóð-
endur í kjöri. Þá voru ekki komn-
Þetta er nú þriðji dagurinn, sem
þessi þingsetningarfundur stendur
yfir, og er það að verða nokkuð
óvenjulegt og yrði þó enn óvenju-
legra, ef enn þyrfti í dag að fresta
þessum fundi, kannske fram yfir
helgi. Það er því fullkomin á-
stæða, bæði fyrir mig og aðra, að
stytta roál sitt, enda mun ég gera
það. Það vill líka svo vel til, að ég
þarf ekki miklu að svara af því
Sem fram hefir komið síðan ég tal-
aði hér í gær. Ég get ekki fundið
að neitt af því sem ég sagði og
þeir, sem voru mér sammála, hafi
verið hrakið með neinum rökum,
enda mun nú verða svo, að héðan
af verður aðeins sagt klippt eða
skorið í þessu máli. Atkvæðin
verða að skera úr og langar ræður
hafa ekki mikið að þýða hér eftir.
Auk þessa get ég á margan hátt og
að miklu leyti vísað til ræðu hv.
þingmanns Akureyrar, Friðjóns
Skarphéðinssonar, sem hann hélt í
gær.og gerði mjög ljósa grein fyr-
ir þeim málstað, sem við höldum
fram hér, en þrátt fyrir þetta get
ég ekki með öllu gengið fram hjá
ræðu hv. þingmanns A.-Húnv.,
sem hann hélt hér í gær, bæði
vegna þess að hann var framsögu-
maður þess hluta 2. kjörbréfa-
deildar, sem var andstæður mér og
einkum þó sökum þess að í ræðu
sinni í gær bar hann bæði á mig
og ýmsa aðra þingmenn sakir, sem
hann taldi áð mundu jafnvel varða
refsingu.
Ég skal að vísu játa, að slík
fjarstæða er ekki svaraverð í sjálfu
sér, en ég tel þó rétt að sýna hon-
um, hans sjálfs vegna, hvar hann
stendur í slíkum fullyrðingum sem
þessum.
GLEYMNIR Á LIÐNA DAGA.
Hv. Sjálfstæðismenn tala hér
mikið um eitthvert hræðslubanda-
lag eins og það sé einhver stjórn-
málaflokkur. Þeir eiga víst við
bandalag Framsóknarflokksins og
Alþýðuflokksins í kosningunum
síðustu. Hv. þm. A-hún. sagði að
þetta væri einstætt fyrirbrigði í ís-
lenzkum stjórnmálum, þetta
bandálag, og hann vildi algerlega
neita því að Breiðfj’lkingin sáluga
frá 1937 væri hliðstæð þessu banda
lagi.
Ég býst við að bæði hann og hv.
þingm. Gullbringu- og Kjósarsýslu,
form. Sjálfstæðisflokksins, íreysti
á það að það séu æði margir, sem
hafa ryðgað í því sem gerðist fyrir
19 árum, þess vegna tali þeir eins
og þeir tala. Að vísu skal það ját-
að að hv. þingm. A-Húnv., Jón
Pálmason, . er að því leyti sam-
kvæmur sjálfum sér, að hann hafði
ekkert betra álit á Breiðfylking-
unni heldur en hann hefir nú á
þessu svokallaða Hræðslubanda-
lagi. Þetta var alkunnugt, bæði i
hans kjördæmi og víðar. Þau rök,
Sem hann þó færði nú, þrátt fyrir
fyrri andstyggð hans á Breiðfylk-
ingunni, fyrir því að þetta tvennt,
Breiðfylkingin og Hræðslubanda-
lagið, sem liann kallaði, væri ekki
hliðstætt, voru fyrst og fremst þau,
að Sjálfstæðisflokkurinn og Bænda
flokk-urinn hefðu boðið fram hvor
gegn öðrum í sjö kjördæmum.
Þetta er algerlega rangt. í tví-
menningskjördæmunum buðu þeir
alls ekki fram hvor gegn öðrum,
tvímenningskjördæmum kusu tvo;!
frambjóðendur, og yfirleitt kusu ;
kjósendur Sj.álfstæðisflokkinn, því
að þá reyndist nú svo, að það var
varla að ræða um kjósendur
Bændaflokksins, kusu sinn eigin
frambjóðanda og frambjóðanda
Bændaflokksins. Til dæmis í mínu
kjördæmi, Eyjafjarðarsýslu, það
kjördæmi var mikið fjölmennara
heldur en það. er nú, því að þá til-
heyrði því bæði Siglufjörður og
Glerárþorp, sem nú er búið að
sneiða af því. Þess vegna var *það,
að allir frambjóðendur fengu yfir-
leitt fleiri atkv. heldur en nú er.
Þá fór það svó, að bæði frambjóð-
andi Sjálfstæðisflokksins og
Bændaflokksins urðu uppbótar-
menn sinna flokka á sömu atkvæð-
unum, nákvæmlega sömu atkvæð-
unum, því að þeir voru yfirleitt
kosnir saman af kjósendum Sjálf-
stæðisflokksins.
„SVINDLIÐ" 1937.
Þá eru eftir fjögur kjördæmi.
Háttv. þingm. A-Hún. er nú vel
kunnugt um það, hvers vegna það
lukkaðist ekki að fá hann til þess
að fallast á að það yrði einn fram-
bjóðandi fyrir þessa flokka í Aust-
ur-Húnavatnssýslu. Það er kunn-
ugt, að hann neitaði því sjálfur og
beitti sínum áhrifum í sínu héraði
til þess að koma í veg fyrir það.
BernharSur Stefánsson
ég sagði í gær, þá sannaðist það
þar, að kjósendur eru alls ekki
skyldir til þess að kjósa eins og
einhverjir forustumenn flokkanna
kve'ða á um.
Ég man eftir því að frambjóð-
andi Sjálfstæðisfl. í Eyjafirði sagði
við mig daginn eftir talninguna:
Hvar eru Bændaflokksmennirnir
hérna? Hann varð ekki var við þá
í kosningunni.
FRAMBJÓÐANDI
ER FYRIR EINN FLOKK.
Háttv. þingm. talaði mikið um
það, að menn hefðu boðið sig fram
fyrir tvo flokka, yfirleitt allir fram
Það var ætluh flokksins. Þá eru bjóðendur Framsóknarfl. og Alþfl.
eftir þrjú, og við vitum það, sem
munum þessa tíma, að framboð
Bændaflokksins í þeim kjördæm-
um var aðeins til málamynda, enda
sama og ekkert atkvæðamagn þar.
Háttv. þingm. sagði að þá hefði
engin tilraun verið gerð til að
svindla. Ég véit ekki vel hvað hann
kallar svindl í þessu sambandi, en
ég geri ráð fyrir því og þá jafn-
framt með hliðsjón af því, sem
háttv. þingm. Gullbr.- og Kjósars.
sagði, að það sem hann kallar
svindl, sé það að hann telji að með
þessu hafi verið reynt til að þess-
ir tveir flokkar fengju fleiri þing-
menn kosna heldur en þeir hefðu
annars hlotið og eftir höfðatölu
kjósenda. Ég bara segi jú. Hafi
þetta verið svindl í vor, þá var al-
veg sama svindlið 1937. Þetta
bandalag, sem kallað var Breið-
fylkingin af þeim sjálfum, sem
tóku þátt í því, það var heinlínis
stofnað til þess að reyna að fá
fleiri þingm. með því móti heldur
en ella og reyna að fá fleiri þingm.
heldur en kjóisendatalan sagði til
um. Mér er alveg fullkunnugt um
þetta.
REIKNIN GSLÍSTIN 1937.
Ráðagerðin var sú að þetta
bandalag gæti orðið til þess að
fella a. m. k. 8 Framsóknarþing-
menn í kjördæmum, þ. á. m. okkur
báða, þingm. Eyf., síðan var ein-
um Bændaflokksmanni tryggt kjör
dæmi, sem sé Þorsteini heitnum
Briem var trýggð Dalasýsla, og
hann kosinn þar þingmaður með
atkv. Sjálfstæðismanna fyrst og
fremst, og hann átti svo að koma
með nokkrar J,doríur“ með sér.
Þannig átti að fá meirihluta á Al-
þingi án þess að hafa meirihluta
þjóðarinnar, ograllt var þetta reikn
að og talið sjálfsagt að þetta gæti
lánast. Það var reiknað .eftir tölum
næstu kosningá á undan, alveg eins
og háttv. þingm. A-Húnv., Jón
Pálmas., reikííaði í gær í ræðu
sinni. Það var eins og hann áliti
a'ð enginn kjós'ándi gæti skipt um
flokk eða skipt-um skoðun, en það
sem skeði var . aðeins það, að út-
reikningurinn þrást. Kjósendurnir
hlýddu ekkí þessu kalli, og eins og
Þetta er vitanlega alrangt. Það er
bannað að bjóða sig fram fyrir tvo
flokka. Ég veit það vel, en það
gerði enginn þessara manna. Eng-
inn þeirra bauð sig fram fyrir tvo
flokka. Samkvæmt stjórnarskrá og
kosningálögum, þá er það fram-
bjóðandans og hans meðmælenda
að segja til um það, fyrir hvaða
flokk maðurinn býður sig fram.
Það skiptir engu máli hvaða skoð-
un maðurinn kann að hafa eða
hvaða skoðun hann hefir haft, og
það hefir komið fyrir að menn
hafa boðið sig fram, beinlínis í
trássi við flokk undir hans nafni.
Ég fullyrði það, að allir frambjóð-
endur Framsóknarflokksins og Al-
þýðuflokksins tóku það skýrt fram
í sínum framboðum og meðmæl-
endur þeirra líka, fyrir hvaða flokk
þeir byðu sig fram. Enginn þeirra
bauð sig fram fyrir tvo flokka. Hitt
er svo annað mál, þótt þeir fengju
atkv. frá tveimur flokkum. Aftur á
móti 1937, þá má segja a'ð í tví-
menningskjördæmunum gerðu
menn þetta beinlínis.
Ef menn eiga að þola refsingu
fyrir að hafa boðið sig fram fyrir
tvo flokka, samkv. kenningu háttv.
þingm. A-Húnv., hvers vegna kærði
hann þá ekki Þorstein Briem 1937,
fyrir að hafa boðið sig fram fyrir
tvo flokka, því ef sú kenning hans
er rétt, að ég og aðrir Framsókn-
armenn höfum boðið okkur fram
fyrir tvo flokka og Alþýðuflokks-
menn gert það sama, þá er það
ekki síður rétt a. m. k., að Þor-
steinn Briem hafi boðið sig fram
fyrir tvo flokka. Háttv. þingm. A-
Húnv. átti sæti á Alþingi þá.
Hann hreyfði engum mótmælum
gegn kosningu Þorsteins Briem,
og hann hreyfði engum mótmæl-
um gegn kosningu Stefáns heitins
í Fagraskógi, sem var nú eini upp-
bótarmaöur Bændaflokksins, þó að
hugmyndin væri að þeir yrðu
fleiri, a. m. k. þrír eða fjórir.
ERT ÞÚ í FRAMSÓKN?
Undirsta'ða undir miklum hluta
af kcnningum háttv. þingm. var
sú, þar sem hann byggði alltaf á
tölum frá undanförnum kosning-
um, að menn hlytu alltaf að vera
í sama flokki, það væri sjálfsagt,
ef ekki kæmi einhver fyrirskipun
önnur,. þá kysu menn alltaf sama
flokkirin, og væru í sama flokkn-
um. Ja, er þá háttv. þingm. hara
löglegur þingmaður Sjálfstæðis-
flokksins, ef þessi kenning er rétt?
Það er vitað, að hann var einu
sinni góður og gildur Framsóknar-
maður. Hafði hann nokkurn rétt
til þess að vera að ganga úr Fram-
sóknarflokknum og ganga í Sjálf-
stæðisflokkinn?
Hann talaði um það, að mönn-
um hefði verið skipað að kjósa.
Ég þverneita því, enda er ekki
hægt að skipa kjósendum að kjósa.
Þeir hafa sinn rétt til að kjósa
eins og þeim sýnist og meira að
segja, þeir geta, ef þeim er ógnað,
gert það á þann veg,
að enginn viti um hvernig þeir
kjósa. Hann sagði ennfremur, að
kjósendur þessara tveggja flokka
hefðu ekki átt um neitt að velja,
nema annað hvort að skila auðu,
sitja heima, kjósa eins og þeim
var sagt, eða þá að kjósa Sjálfstæð
isflokkinn.
Þetta er vitanlega alrangt, eins
og ég vék reyndar að í gær. í öll-
um kjördæmum voru landslistar
þessara flokka, og það var hverj
um kjósanda í sjálfsvald sett að
kjósa landslista síns flokks, og það
gerðu margir. Nú, auk þess gátu
þeir vitanlega, eins og háttv. þing-
maður sagði, kosið Sjálfstæðisfl.,
Alþfl. og s. frv., og vitanlega gerðu
það sumir.
Ég get því ekki séð, að þetta
sé sama aðferð eins og sagt er að
Rússar hafi, þó að háttv. þingm.
héldi því fram. Þar er sagt, að það
sé ekki nema einn listi eða einn
frambjóðandi í kjöri, og menn geti
ekki annað en annað hvort kosið
hann, sem í kjöri er, eða skilað
auðu, og það sé jafnvel hættulegt
að skila auðu. Ekki veit ég hvort
nokkuð af þessu er satt, því að ég
hefi ekki verið í Rússlandi, og það
er áreiðanlega mörgu logið þaðan,
en það var nú ekki langt frá því
að mér virtist háttv. þingm. A-
Ilúnv. kannske ekki vera frá því,
að taka upp að sumu leyti svipaða
aðferð, eins og sagt er að Rússar
hafi, sem sé þá að setja jafnvel
andstæðínga sína í tukthúsið eða
þá a. m. k. að setja þá undir ein-
hverjar þungar kárínur aðrar, þar
sem liann taldi hér um refsivert
atriði að ræða.
IIVAR ER NU SKRAFIÐ
UM BYGGÐARJAFNVÆGIÐ?
Það hefir mjög borið á góma i
þessum umræðum, þó að það komi
ekki málinu við, eins og ég sýndi
fram á í gær, að það komi fram
misrétti í kosningunum, þannig,
að það séu færri kjósendur á bak
við hvern Framsóknarþingmann
heldur en á bak við þingmenn ann
arra flokka. Að vísu er nú þetta
misrétti ekki eins mikið eins og
höfðatalan sýnir. Ef nokkuð er
meint með því, sem allir flokkar
hafa nú á vörunum um jafnvægi
í byggð landsins, þá mundi mega
ætla, að allir væru sammála um
það. Heil héruð þyrftu að hafa full
trúa á sjálfu Alþingi, jafnvel þótt
þau séu fámenn.
En skyldi nú sjálfur Sjálfstæð-
isflokkurinn vera eins saklaus í
þessu efni, eins og hann viil vera
láta. Ég man eftir því glögglega
eftir næst síðustu kosningar,
nefnilega kosningarnar 1953, þá
var Morgunblaðið og fleiri blöð
Sjálfstæðisflokksins, en einkum
Morgunblaðið, með bollalegging-
ar um það, að ef Sjálfstæðisfl.
hefði fengið fáeinum hundruðum
fleiri atkvæði í sex kjördæmum,
tilteknum, og þannig skipt, að
þau hefðu komið honum að sem
beztum notum, þá hefði hann
fengið meirihluta á Alþingi og
blöðin hörmuðu það mjög að
þetta skyldi ekki takast. Sjálf-
stæðisflokkurinn fékk í þessum
kosningum rúmlega 37% atkvæða
og þó að þessi hundruð hefðu
bætzt við, hefði það aldrei hækkað
prósenttöluna um einn heilan.
ÞEIR ÁKVÁÐU
KJÖRDÆMASKIPAN.
Það var ekki annað hægt að sjá,
en að Sjálfstæðlsfl. mundi grípa
við því fegins hendi, að fá hreinan
meirihluta á Alþingi, þó hann
fengi ekki meirihluta kjósenda í
landinu. Það kom beinlínis opin-
berlega fram í blöðunum. En þetta
kemur ekki málinu við. Það á að
úrskurða um þetta mál samkvæmt
lögunum og ef að kjördæmaskip-
un þarf breytinga við, þá á að gera
það með lögum en ekki með því
að reka heim löglega kosna þing-
menn. Og að deila á Framsóknar-
flokkinn í þessu sambandi, er nátt
úrlega fásinna sökum þess, að
Framsóknarflokkurinn hefir nú
engu ráðið um þá kjördæmaskipun
sem nú er í landinu. Það voru all-
ir hinir, andstæðingaflokkar hans,
sem réðu því máli til lykta og köll
uðu þá réttlætismál. Einmitt eftir
þeim kosningalögum, sem þessir
flokkar kölluðu réttlætismálið, var
kosið síðast og það er ekki annað
að gera, að mér sýnist, en að sætta
sig við úrslit þeirra kosninga.
RITNIN GARSTAÐIR
ÓLAFS THORS.
Háttv. þingm. Gullbr,- og Kjós-
arsýslu, Ólafur Thors, deildi hér á
Alþb. og vitnaði mjög í Þjóðvilj-
ann, svona svipað eins og mjög
trúaðir prestar vitna í Biblíuna. Ég
lasta þetta ekki og mér kemur það
ekki við. En hvað sem um Alþb.
er að segja í sambandi við þetta
mál, þá vil ég nú taka það fram,
að afstaða þess, eins og hún kom
fram í ræðu háttv. 3. þingm. Reyk
víkinga, Einars Olgeirssonar, í gær,
er nákvæmlega sú sama eins og
kommúnistaflokkurinn, sem a. m.
k. er ennþá hluti af Alþb., hafði
1937. Ekki man ég eftir því, að það
kæmi nein rödd fram hjá komm-
únistum 1937 um það að ógilda
kosningu Stefáns ,sál. í Fagraslcógi
eða Þorsteins Briem. Háttv. þingm.
Reykvíkinga sat þá á Alþingi, og
ef hann núna greiðir atkvæði með
að taka gild þessi kjörbréf, sem
um er deilt, þá hefir hann nákvæm
lega sömu afstöðu í þessu máli eins
og 1937
ÞEIR GÖMLU SLÁ METIN.
Háttv. þingm. Gullbr.- og KjóS'
arsýslu las upp orð úr Þjóðviljan
um, sem beint var til Sjálfstæðisfl
að ekki yrði lengra komist í ó
heiðarleik. Ég verð að segja það
að hvað sem Iíður um yngri menn
sem hafa komið á Alþingi eftir
1937, að þá finnst mér það vera
eins konar met í óheiðarleik ef
hinir eldri þingmenn Sjálfstæ'ðis-
flokksins, sem þá sátu á Alþingi,
og ekkert höfðu við kosningu Ste-
fáns í Fagraskógi að athuga, eða
Þorsteins Briem, sérstaklega Ste-
fáns, greiða nú atkvæði á móti því,
að taka gild kjörbréf þessara fjög-
urra Alþýðuflokksmanna, því að
það, sem þeir reyna að klóra í
bakkan um það, að þetta sé ann-
ars eðlis, það bandalag, sem var í
kosningunum í vor, heldur en
bandalagið frá 1937, það er hláber
vitleysa og það er eins greindum
og gegnum mönnum eins og háttv.
þingmanni Gullbr,- og Kjósarsýslu
og háttv. þm. A-Húnv., algerlega
ósæmandi að taka sér slíkt í munn.
Heilahimnubólga og
mænuveiki í Svíþjóð
Stokkhólmi, 16. okt. — Óþekkt
veira er talin orsök að heilahimnu
bólgu, sem mjög hefir gert vart
við sig í Svíþjóð í haust. Sjálf
veikin leggst ekki þungt á menn.
í Svíþjóð hefir í haust einnig verið
mikil aukning á lömunarveikitil-
felluni, en þó án lömunar. í seinni
helmingi september mánaðar löm-
uðust 27 manns og er það 9 fleira
en á sama tíma í fyrra. Mænuveiki
tilfelli án lömunar voru á sama
tíma 52, en 24 á sama tíma í fyrra.