Tíminn - 18.10.1956, Side 8
Maccaroni og spaghetti
Úr maccaroni og spaghetti má
búa til marga ljúffenga rétti. Píp-
urnar eru alltaf fyrst soðnar í salt-
vatni og ber að gæta þess, að
vatnið sé nægilega mikið til þess,
ai sæmilega fljóti yfir pípurnar.
A3 jafnaði er hæfilegt að sjóða
maccaroni í hálftíma og spaghetti
í 20 mínútur. Eftir suðuna á að
láta pípurnar í sigti, svo að renni
af þeim, og skola þær snöggvast
n eð köldu vatni, svo að þær loði
e'-ki saman. Hér fara á eftir upp-
skriftir af tveimur réttum.
7<raccaroni með osti og eggjum.
2 egg, 2 tómatar,
100 gr. maccaroni, 30 gr. smjör
eða smjörlíki,
1 peli mjólk, salt og pipar, 30
gr. hveiti,
100 gr. rifinn ostur.
Eggin harðsoðin, yzta hýðið tek-
ið af tómötunum og þeir sneiddir.
álaccaroni-pípurnar soðnar.
Smjörið brætt í potti, hveitið
hrært útí og bakað upp með mjólk
inni. Pipar og salt eftir smekk.
Tekið af eldinum og ostinum hrært
saman við. Maecaroni-pípurnar látn
ar í eldfast mót, skurnin tekið af
eggjunum og þau lögð ofan á
maccaroníið, jafningnum hellt yf-
ir, tómatsneiðunum raðað efst og
örlitlu af osti stráð yfir. Stungið
í heitan ofn og látið aðeins brún-
ast að ofan. Þessi skammtur er ætl
aður iveimur.
Spaghetti með kjöti.
1 laukur, 1 gulrót, 1 matsk. mat
arolía, 30 gr. smjörlíki eða
smjör, 1 lárviðarlauf, y4 kg.
tómatar, % peli kjötsoð, 1 tesk.
kjötkraftur, salt og pipar, 400
gr. spaghetti, 100 gr. rifinn
ostur.
Laukur og gulrót skorin smátt,
olia og smjör hitað saman á pönnu,
skorið grænmetið og lárviðarlauf-
ið látið útí og brúnað nokkrar mín-
útur. Sneiddir tómatarnir, kjöt-
Hús framtlSariiiear
Á húsbúnaðarsýningu í London
í sumar, var sýnt hús og húsbún-
aður, eins og byggingameistararnir
þ?,r álíta, að það muni verða undir
næstu' aldamót. Karl og kona
gengu um húsið og voru klædd í
ramræmi við framtíðarhugmynd-
ina, hann í orlon prjónafötum,
te.n féllu þétt að líkamanum, hún
í einni flík, sem minnti á sundbol.
Sumir segja, að þetta hús hafi
ri 'nnt mest á spádóm Orwells í
bók hans „1984“ og hafi raunar
c-kkert skort annað en hið alltsjá-
andi auga í hvert herbergi.
Þetta framtíðarhús er byggt úr
plastikklæddri steinsteypu og hit-
ao með rafmagns geislahitun. Iler-
bergin eru óregluleg í lagi og
hvergi hvöss horn né brúnir, svo
ao ryk safnist hvergi. Bygginga-
fræðingurinn segir að hellarnir,
hinir fyrstu bústaðir mannanna,
séu fyrirmyndin. Húsgögn í setu-
stofu eru aðeins misháir nylon-
koddar og plastikstólar, sem helzt
líkjast kramarhúsum. Ef setjast á
til borðs^þá er þrýst á hnapp og
hluti af gólfinu lyftist og verður
að borði. í eldhúsinu er margt
haglegra hluta, en í svefnherberg-
inu er aðeins svampgúmmídínur
og skorin í þær laut fyrir höfuðið.
Sængurfatnaðurinn er eitt rautt
nylonlak, annað þarf ekki, því að
hitinn er alltaf sá sami. Ryksafn-
ari sogar allt ryk til sín. Sumir,
sem sáu þessa sýningu sögðu, að
það versta væri, að hugsanlegt
væri, að þróunin gengi í þessa átt,
að svipta heimilin öllum sérein-
kennum.
krafturinn og soðið, ásamt krydd-
inu, látið úti. Blandað vel saman,
síðan er kjötið hrært útí. Loks
sett á pönnuna og soðið við hæg-
an eld í tæpa klukkustund.
Spaghetti soðið, skolað og látið
renna vel af því, þá er það látið á
heitt fat og kjötsósunni hellt yfir.
Rifinn ostur er borinn með þessu.
Skammtur handa 4. Þetta er mjög
góður matur.
— o —
Reykt ýsa með sósu.
1 kg. reykt ýsa,
3 egg,
2 meöalstórir laukar,
3 tómatar,
30 gr. smjör,
Vz peli rjómi,
1 íesk. íómatsósa,
salt og pipar.
Fiskurinn soðinn. Laukurinn sax
aður og brúnaður Ijós í smjörinu.
Sneiddir tómatarnir og tómatsós-
an látin á pönnuna með lauknum
og látið sjóða í 10 mín. við lítinn
hita. Rjómanum hellt útí og soðið
þar til hæfilega þykkt. Kryddað
eftir smekk. Fiskinum raðað á
fat, eggin hleypt (blæjuegg), sós-
unni hellt yfir fiskinn, skreytt með
eggjunum, tómatsneiðum og stein-
selju.
Ræðið af alvöru
við börnin
Oft særir fullorðið fólk börn
með því að taka ekki þeirra vanda-
mál nógu alvarlega, en íil þess,
að fullur trúnaður skapist verða
hinir fullorðnu að reyna að setja
sig inn í hugmyndaheim barnanna
og skilja vandamál þeirra út frá
þeim sjónarhóli.
Svarið börnunum í alvöru, er
þau bera upp vandamál sín, en
reynið ekki að blekkja þau og kom
ast hjá skýringum með því að
segja, að þetta fái þau að vita þeg
ar þau verði stór. Það er mikið á-
fall fyrir þekkingarleit barnsins,
ef það kemst að þeirri niðurstöðu,
að það sé tilgangslaust að spyrja
nokkurs, þau fái aldrei sönn svör.
Það er miklu betra að segja
barninu hreinskilnislega, að mað-
ur viti ekki það, sem um er spurt,
heldur en að svara út í hött.
Segjum sem svo, að börn eigi
erfitt með að tala. Þá er illa gert
að herma eftir þeim og skemmta
sér á þeirra kostnað. Ef þau eiga
t. d. erfitt með að móta viss hljóð,
er bezta hjálpin að þeir, sem börn
in umgangast, tali skýrt og greini-
lega og falli aldrei í þá freistni
að tala barnamál.
Reynið að taka leiki barnsins al-
varlega og lofið þeim að sinna
þeim í friði. Fyrir þeim er leikur-
inn það, sem vinnan er hinum full
orðnu. Truflið þau ekki að ástæðu-
lausu í spennandi leik, ekki einu
sinni til að sýna þeim hvernig
T í 1V11 N N, fimmtudaginn 18. október 1956.
Slátrun lokiS hjá S. S. á Selíossi
Frá fréttaritara Tímans á Selfossi.
Nýlokið er nú slátrun í sláturhúsi Sláturfélags Suðurlands
á Selfossi. Féð er það vænsta, sem komið hefir til sláturhúss-
ins síðan það tók til starfa.
Alls var slátrað 18800 fjár, sex-
tíu nautgripum og 20—30 folöld-
um. Þyngsti dilkur var frá Jó-
hannesi Helgasyni í Hvammi, vóg
hann 26, 5kg. Auk þess voru dilkar
Erlent yfirlít
(Framhald af 6. síðu)
þeirri skipan, að þeir menn, sem
frá Miklaholti í Biskupstungum j tryggja sig af eigin ramleik, fá til-
og Skógum í Laugardal með 25,5 svarandi framlag frá ríkinu og
kg. fallþunga. Markir dilkar voru þeir, sem eru skyldutryggðir.
með 24 kg. fall.
í frystihúsið á Selfossi var lagt
á sjöunda þúsund dilka og var
meðalvigt þeirra 15,47 kg. ÁG.
Nemendagarður
(Framhald af 5. síðo/.)
utanbæjarnemendur, þar sem þeir
geta fengið fæði og húsnæði fyrir
sannvirði. Auk þess þarf að sjá
fyrir aðstöðu til margvíslegs tóm-
stundastarfs. Reynsla sú, sem þeg-
ar er fengin af stúdentagörðunum
tekur af öll tvímæli um, að þessi
tilhögun á fullan rétt á sér og er
nemendum til stórfelldra hagsbóta.
Hér er um að ræða stórfellt verk-
efni sem skóla og uppeldisfröm-
uðir 'ættu að gefa meiri gaum en
raun er á. Það er fyllilega tíma-
bært að stofna til samtaka um að
hrinda þessu aðkallandi hagsmuna
máli utanbæjarskólafólks í fram-
kvæmd. Er það mesta furða, hve
mikil lognmolla hefur ríkt um
þetta mál: Ekki er til mikils ætlazt
að menntamálaráðh. skipi nefnd,
skólamanna til að gera tillögur
um þetta efni.
Uppeldishlið málsins er ekki síð
ur veigamikil. Eflaust leiðast marg
ir, og ekki sízt unglingar, sem að
öllu eru ókunnar hættur bæjar-
lífsins, út í óholt skemmtanalíf og
svall. Góður nemendagarður með
sjálfsögðum heimavistaraga er því
aðkallandi, og ekki sízt af upp-
eldisástæðum. Hér er því alvöru-
mál á ferð, sem snertir þjóðfélagið
í heild og krefst opinberra af-
skipta. Og þess vegna er málið
reifað hér.
Á. E.
Annars er samið um, að stjórn-
arstefnan verði í meginatriðum
hin sama og að undanförnu. Utan-
ríkisstefnan verður óbreytt, en
aukin áherzla skal þó lögð á nor-
rænt samstarf, einkum þó hina
efnahagslegu hlið þess.
Eftir þessa samninga er það tal-
ið víst, að stjórnarsamstarf Alþýðu
flokksins og Bændaflokksins muni
haldast a. m. k. þangað til að af-
loknum kosningum til efri deildar
þingsins, er fara fram haustið 1958.
— Þ. Þ.
Brotið blað.
leika megi leikinn betur, eða til
þess að gæla við þau.
Börn verða að geta treyst því,
að hinir fullorðnu misbjóði ekki
trúnaði þeirra og ræði ekki van-
kanta þeirra við utanaðkomandi
fólk. Það er talið til einföldustu
mannasiða, að ræða ekki ávirðing-
ar manns og ágæti í áheyrn hans
sjálfs og þessa ætti ávallt að gæta
að því er börn snertir. Reynum að
vera þeim tillitssöm og samúðar-
rík.
^V.^V.V.V.V.V.’.V.V.V.SV.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V
Hjartanlega þakka ég börnum mínum, tengdabörn-
um og öllum þeim mörgu, skyldum og vandalausum,
£ sem sýndu mér hlýhug og heiðruðu mig með gjöfum
og heillaskeytum á 80 ára afmæli mínu, 11. sept. s. 1.
£ Guð blessi ykkur öll.
í ELÍS GUÐJÓNSSON,
;! Seyðisfirði.
NV.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.’.V.V.V.V
(Framhald ar 5. slðu)
bárust á banaspjót, hafa nú
hafið eitt þý.ðingarmesta viðreisn-
arstarf í efnahagsmálum þjóðarinn
ar. Nú í fyrsta skipti í mörg ár
hefur reynzt mögulegt að leggja
fjötur á íhaldsöflin, og setja þau
utangarðs. Þetta er milclu merkari
viðburður en flesta grunar. Sjálf-
stæðisflokkurinn hefur fyllilega
skilið hvert málimr hans horfir, og
eyðimerkurganga íhaldsins er haf
in. Standi wínstfi i öflrrn fast sam
an.'um.'hina nýju stjórn, stjórn
vinnustéttanna, mun íhaldið ekki
eiga afturkvæmt úr eyðimörkinni.
Við hinni nýju stjórn blasa fjall
háir örðugleikar, sem eigi verða
leystir nema með samstilltu átaki
vinnustéttanna. Það verður megin-
verkefni hinnar nýju stjórnar að
skapa heilbrigt efnahagslíf og
tryggja réttláta slciptingu þjóðar-
teknanna. Þetta verkefni er próf-
steinn á, hve traust samstaða
vinstri aflanna er þegar á hólmina
kemur.
Öll teikn benda til þess að gifta
vinstri aflanna er, þegar á hólminn
stéttunum takizt að sigla þjóðar-
skútunni gegnum gerningaveður,
sem nú er skollið á í framleiðslu
og fjármálakerfi þjóðarinnar. —«
Framundan blasa við á öllum svið-
um stórkostleg átök í uppbygg-
ingu framleiðslunnar. Við þjóðinni
blasir sú staðreynd á næsta* leiti
að framleiðslutekjur þjóðarinnar
veröa að duga fyrir þurftum henn-
ar. Tekjur af erlendu varnarliði
verða engri þjóð giftudrjúg tekju-
lind. Þjóðin má ekki byggja af-
komu sína á öðru en eigin fram-
leiðslutekjum, ef hún vill halda
þjóðhagslegu sjálfstæði óskertu. —i
Blað er brotið í stjórnmálasögu
íslenzku þjóðarinnar, og á næstu
spjöldum sögunnar blasir við
saga stjórnar vinnustéttanna. Sií
saga er enn óskráð, en upphafið
er komið. Það er undir okkur öll-
um vinstri mönnum komið, hva
glæsileg sú saga verður. Vonandi
er nú þegar hafið eitt glæsilegasta
tímabil í íslenzkri pólitík, stjórnar-
saga hinna vinnandi stétta.
Á. E. |
'’iiiiHumiDiiiiuiOiuiiiiiiiniiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiuiiiiiiiiniiMiiiniiumimiiiimiuimRiEiaaBaiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiniiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiHiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiii
VERÐLÆKKU
sendingu af
Höfum fengií nýja
SVESKJUM
_stæröir 70—80, 40—50 og pakka^ar.
MJOO VERULEG VERÐLÆKKUN
EGGERT KRISTJÁNSSON & CO. H.F.
'3
li.uiiiiiitiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiuuiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiuiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiniiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiua