Tíminn - 25.10.1956, Side 8

Tíminn - 25.10.1956, Side 8
3 T í M I N N, fimmtudaginn 25. október 1956. Fimmtiigur: Erlendur Árnason, oddviti, Skíðbakka f gær var merkisbóndinn Erlend ur Árnason oddviti að Skíðbakka í Austur-Landeyjum 50 ára. Erlend ur er fæddur að Skíðbakka 26. okt 3 906, sonur merkishjónanna Sigríð ar Ólafsdóttur og Árna Erlendsson- cr, er þar bjuggu myndar- og rausn crbúi. Hann ólst upp með foreldr um sínum og hefir dvalið á Skíð- bakka síðan að undanteknum hluta af 2 vertíðum, sem hann var í Vest mannaeyjum. Árið 1934 kvæntist harn konu s'nni Guðbjörgu Jónasdóttur frá Iíólmahjáleigu og tók við búi for c!dra sinna en þau dvöldu áfram hjá honum til æviloka, en þau önd- i: iust snemma á þessu óri. Árn: faðir Erlendar var þjóðhagasmið Éir' og hefir Erlendur erft þann hæfileika af föður sínum í ríkum mæli, og er mér sem þessar lín- ur rita kunnugt um það að liugur hans hneigðist mest að smíðum á yngri árum. En Erlendur er heill að hverju sem hann tekur að sér og hefir því búskapurinn farið hon um vel úr hendi. Snemma kom í Ijós að Erlendur var dugmikill mað ur og félagsþroskaður. Á yngri ár um tók hann mjög þátt í ungmenna félagshreyfingunni og var lengi í stjórn Umf. Dagsbrúnar. Þegar Austur-Landeyingar reistu sam- komu og skólahús 1930 tók ung- mennafélagið tvo fimmtu bygging crkostnaðar á sig. Þótti það í mik- ið ráðist á þeim tíma, og var Er- lendur þá formaður félagsins. Áttu þar margir góðan hluta að, en ekki kvað sízt Erlendur. Strax á fyrsta fári búskapar síns réðst hann í að 'byggjá íbúðarhús úr stéinstéyþú. Má það telja mikla bjartsýni, að byrja á slíku verki eins og sam- göngur voru þá. Allt efni varð að flytja á klökkum og hestvögnum þegar bezt lét, mölina allt að 3 klst. ferð hvora leið. Sama árið sem hann hóf búskap stóð svo á að verið var að endurbæta Kross- Kirkju, að formaður sóknarnefnd- ar fluttist úr hreppnum, var Er- Iendur þá kosinn í hans stað og hef ir gegnt því starfi síðan. Síðan hafa opinberu störfin verið falin honum hvert af öðru og það rúm þótt vel skipað þar sem hann hefir setið. 1942 er hann kosinn i hrepps nefnd Austur-Landeyjar og oddviti 1946 og síðan. Þegar sjúkrasamlag- ið var stofnað 1944 var hann skip- aður formaður þess og er Ræktun- arsamband Landeyinga var stofnað 1946 var hann kosinn í stjórn þess. Þegar stéttarsamband bænda var í.tofnað var hann kosinn sýslufull- t: úi fyrir Rangárvallasýslu og hefir gegnt því starfi síðan. í stjórn Lúnaðarfélags Austur-Landeyir.ga hefir hann átt sæti lengi og for- maður þess mörg síðustu árin. Á þessu má sjá að Erlendur hefir ekki verið ótafinn við búskapinn því öll störf sem honum hafa verið falin hefir hann rækt af kostgæíni, fyrirhyggju og dugnaði, enda hefir hann vaxið með hverju starfi og skapað sér því meira traust og vin sældir. Erlendur er að eðlisfari heldur hlédrægur maður en greindur og fylginn sér, ræðumaður góður. — Eins og áður er getið var það í mikið ráðist að byggja steinhús í míðjum Austur-Landeyjum þegar Erlendur gjörði það og það var sannarlegt þrekvirki. Síðan hefir margt breytzt til batnaðar, nú með- an samgöngur heita góðar, mýrarn ar óðum að þorna með skurðagerð, þar sem áður voru fúafen eru nú fagrir töðuvellir og meir en helm- ingur bænda tekur sinn heyskap á ræktuðu landi. í þessu starfi hef ir Erlendur verið virkur þáttakandi Þeir voru samtaka feðgarnir að slétta túnin á Skíðbakka og eftir að Erlendur hætti að dreyma um smíðar mun ræktunarstarfið vera honum hugstæðast. Um leið og óska Erlendi hjartan lega til hamingju með aímælið vil ég þakka þeim hjónum liðnar stundir og þótt það sé í tíma tekið vil ég einnig óska Guðbjörgu til hamingju með sitt fimmtugsafmæli en hún verður fimmtug 3. apríl n. k. Þau hafa verið samtaka og sam hent og alltaf gott til þeirra að leita. Það er mikilsvert fyrir hvert hreppsfélag að hafa góða forustu. Það er happ fyrir okkur A. L. að eiga Erlend á Skíðbakka ekki eldri en 50 ára. Finnbogi Magnússon Héraðsfimdi Kjalamessprófasis- dæmis er nýlega loSciS Fundurinn vildi efla kirkjubyggingasjóð Héraðsfundur Kjalarnesprófasts- dæmis var haldinn í Hafnarfjarðar kirkju fimmtudaginn 18. þ. m. Héraðsprófasturinn, séra Garðar Þorsteinsson, setti fundinn og stjórnaði honum. Allir prestar og safnaðarfulltrúar prófastsdæmisins sátu fundinn, nema Vestmannaeyja prestar. Prófastur og fundarmenn fógnuðu sérstaklega safnaðarfull- trúanum frá Vestmannaeyjum, er sat héraðsfund prófastsdæmisins fyrsta sinni, en Vestmannaeyjar tilheyra nú Kjalarnesprófasts- dæmi. í yfirlitsskýrslu sinni taldi pró- fastur það markverðast frá því hér- aðsfundur var síðast haldinn, að séra Jóhann Hlíðar var skipaður sóknarprestur í Vestmannaeyjum 1. júní s. I. að undangenginni lög- mætri kosningu, en síðasta Alþingi samþykkti lög um tvo presta í Vest •nannaeyjum. Endurbætur á kirkjum. Þá gat prófastur þess, að víða væri unnið af kappi að viðhaldi og r ndurbótum á kirkjuhúsum í pró- fistsd'Mminu. Samanlagður kostín- aður við þessar framkvæmdii- nam hálfri milljón króna s. 1. ár, og væru allar horfur á, að sú upphæð yrði ekki lægri á þessu ári. Auk þess hefðu sóknarmenn lagt mikla vinnu af mörkum endurgjaldslaust. Fór prófastur viðurkenningarorð- um um þetta mikla og fórnfúsa starf, er að langmestu leyti væri greitt fyrir með gjafafé í sölnuð- unum. Mestar umbætur voru gerð- ar á Lágafellskirkju og Landa- kirkju í Vestmannaeyjum. í sam- bandi við þetta mál, samþykkti fundurinn einróma eftirfarandi tillögu: „Héraðsfundur Kjalarnespró- fastsdæmis skorar á hið háa Al- þingi, að hækka verulega fram- lag ríkisins til kirkjubyggingar- sjóðs“. Söngmálin. Á fundinum flutti Sigurður Birkis söngmálastjóri, erindi itm kirkjusöng og söngkennslu í barna skólum. Hvatti hann til meira sam- starfs kirkju og skóla í söng- kennslumálum. Var góður rómur gerður að erindi hans. Páll Kr. Pálsson, órganleikari, kom éinnig á fundinn, lék íyrir sálmasöng og að auki kirkjutón- verk eftir Bách. ÞaS vakti v©nbrigSi?a§ hætt skyldi aS átvarpa íæreysko messnnEÍ Þúsundir raanna, sera ekki eru tengdir þeim söín- u$i, er fyrir útvarpinu stóíJ, hlýddi á messurnar Ég sé í ,,DAGBLAÐINU“, að orðaskipti hafa farið fram í íslenzkum blöðum vegna færeysku guðsþjónustanna, sem um nokkurra mánaða skeið var útvarpað í ríkisútvarpinu íslenzka, og þá einkanlega vegna þess, að því útvarpi hefir nú verið hætt. arey höfum við haft fregnir af, að hlustunarskilyrði þar hafi verið góð. Enn er eitt, sem sízt var búizt við, nefnilega hinn mikli á- hugi, sem fólk hér í Færeyjum hefir fengið á að hlusta á færeysku messurnar í íslenzka útvarpinu. Þúsundir fólks, sem ekkert er tengt Bræðrunum að neinu leyti, hefir opnað fyrir útvarpstæki sín, og aldrei hefir verið hlustað hér meira á Útvarp Reykjavík í sögu þess. Fyrir tilstuðlan guðsþjónust- anna er íslenzka útvarpsstöðin nú orðin sú stöð, sem einna mest er hlustað á í Færeyjum. Herra A. W. Sloan, sem hefir umsjón með Evangelísku útvarps- þjónustunni, hefir verið erlendis síðan hætt var að útvarpa guðs- þjónustum, og þar sem ég hefi gegnt ritarastörfum í sömu þjón- ustu, finnst mér viðeigandi — ef blaðið getur ljáð mér rúm á síðum sínum — að bera fram nokkrar skýringar varðandi þetta mál. Úfvarpi fagnað OKKUR VAR það hið mesta gleðiefni, er við fengum fregnir um það á síðastliðnu vori, að Ríkis- útvarpið hefði orðið við þeirri bón herra A. W. Sloan, að veita 20 mín- útur af sunnudagsdagskrá sinni til umrædds messuflutnings. Herra Sloan, sem starfar á vegum Bræðr- anna svonefndu (stærsta frjálsa kirkjusafnaðar Færeyja), er há- menntaður prédikari, andríkur og auðmjúkur þjónn Guðs. Eg mun eftirláta það meiri stærðfræðing- um en ég er, að komast að því, hve margir af hundraði heyra til söfnuði Bræðranna, eða koma á samkomur þeirra, miðað við fjöld- ann, sem sækir þjóðkirkjuna, en ég veit, að næstum allir Færey- ingar viðurkenna herra Sloan og fellur vel við þann hátt, sem hann hefir á um prédikun guðsorðs. Það er ein ástæða fyrir því, að þessar messur, sem Ríkisútvarpið sendi út af rausn sinni, áttu slíkum vin- sældum að fagna alls staðar, þar sem Færeyingar dvöldu. Þakklæti okkar í garð Ríkisút- varpsins fyrir góðvild þess og rausn í þessu máli, hefir oft verið borið fram við stjórn þess, og ég geri það hér enn einu sinni í þeirri vissu, að hér var ekki aðeins um að ræða góðvild yfirmanna útvarps ins í garð nokkurra trúaðra Fær- eyinga, heldur einnig innilegt hand tak tveggja bræðraþjóða, sem sag- an hefir tengt saman í þúsund ár. Ætti aS ná til fiskimanna UPPRUNALEGUR tilgangur þessa útvarps var að ná til fær- eyskra fiskimarina á miðunum kringum ísland, og færeyskra verkamanna á íslandi, sem mánuð- um saman eiga þess ekki kost að hlýða messur á móðurmáli sínu. Mér hefir skilizt, að áhugi þeirra fyrir útvarpinu hafi verið almenn- ur. Meira að segja hefir ekki reynzt mögulegt, að ná sambandi við hvalveiðibátana þær tuttugu mínútur, sem messurnar hafa stað- ið yfir, enda þótt þeir hafi annars ávallt móttökustöðvar sínar reiðu- búnar til að veita viðtöku orðsend- ingum frá öðrum bátum. Og það eru ekki aðeins fiskimennirnir í kring um ísland, sem hafa hlust- að. Frá vesturströnd Grænlands. og jafnvel frá hinni fjarlægu Bjarn Fundurinn samþykkti að héraðs- fund skyldi framvegis halda í prestaköllum prófastsdæmisins á víxl og bauð séra Kristján Bjarna- son að næsta ár yrði fundurinn haldinn að Reynivöllum og var boð hans þakksamlega :þegið af fund- armönnum. ■ : t(á2ÍV nírH Að fundt loknum .$átu fundsr- menn boð heima hjá prófastshjón- unum. VonbrigSi hlustenda HIN GÍFURLEGU vonbrlgði, sem þúsundir færeyskra hlustenda, er sátu við tæki sín, urðu fyrir, er þeir í stað þess að heyra einkenn- issálminn „Frelsa frí“, heyrðu stöð- ina hætta útsendingu. mega ekki skiljast sem ásökun á Ríkisútvarp- ið. Þvert á. móti var það sönnun þess, að stjórn útvarpsins hafði gert viturlega ráðstöfun, er það hóf útvarp guðsþjóustanna, og um leið var þetta uppörvandi tákn þess, að útvarpinu hafði verið hagað á þann hátt, sem fólki féll vel. Enginn áfellist Ríkisútvarpið. Eg mun ekki ræða færeysk blaðaskrif. Sumar athugasemdir í þeim hafa verið réttar, aðrar rangar. Þar til nýlega hafði ekkert blað nema „14. september“ minnzt á, að útvarpi guðsþjónustanna yrði hætt. Og þetta blað hefir, eftir því, sem ég kemst næst, ekki ásakað Ríkisút- varpið. En þó hefir mátt lesa á milli línanna andúð á þeirri ímynd- un, að það hafi verið fyrir færeysk áhrif, sem útvarpinu hafi verið hætt fyrr, en yfirvöld Ríkisútvarps ins höfðu ætlað. En við kærum okk ur ekki um slíkan grun. Það, sem skiptir okkur höfuð- máli, er að láta koma skýrt fram, að við stöndum í þakklætisskuld við Ríkisútvarp íslands, og að við bíðum þess með óþreyju, að þess- um vkisæla hætti á boðun guðs- orðs megi verða haldið áfram. Þórshöfn, 21. september Petur Háberg Rússneskl met Rússnesku þátttakendurnir á Olympíuleikunum, sem nú æfa í Tashkent, hafa náð mjög góðum árangri á móti þar, eins og t. d. hið nýja heimsmet í sleggjukasti gefur til kynna. Hástökkvarinn Ivan Kashkarov setti sama dag nýtt rússneskt met í hástökki, stökk 2.10 metra. Langstökkvarinn Fedos ejev bætti einnig rússneska metið í langstökki, stökk 7.76 metra. Ályktanir (Framhald af 5. síðu.) 8. Dánarbætur slysatrygging- anna almennt verði hinar sömu og dánarbætur lögskráðra sjómanna. 9. Hjónum séu greiddir sjúkra- peningar eftir sömu reglu og öðr- um einstaklingum, og gildi það um gifta konu, hvort sem hún vinnur utan heimilis eða eigi. (Sjá sein- ustu málsgr. 53. gr.). 10. Heimilað verði, ef sérstakar ástæður eru fyrir hendi, að greiða mæðralaun einstæðum mæðrum, er hafa eitt barn á framfæri sínu. 11. Tekinn verði aftur inn í lög in kafli um heilsugæzlu, sem kæmi í stað þess er felldur var niður við endurskoðun laganna. 12. Fundurinn telur aðkallandi nauðsyn að koma upp fyrir öryrkja vinnuheimilum, vinnumiðlu og verkþjálfun, ásamt leiðbeiningum um nám og starfsval. Allra ráða sé leitað til að fyrirbyggja örorku. Jafnframt lýsir fundurinn ánægju sinni yfir að hafist hefir verið handa um þessi mál. 13. Fundurinn vekur athyglí á nauðsyn þess að lagaákvæði um inheimtu barnsmeðlaga verði færð í það horf, að þau verði innheimt mánaðarlega af launum á sama hátt og útsvör, og skorar á ríkis- stjórn og Alþingi að taka þetta at- riði til meðférðar og úrlausnar þegar á þessu ári. Eríent yfirlit (Framhald af 6. síSu) * 1 ' ■! Stalíns var honum sleppt úr haldii en hann fékk hvergi að koma fram opinberlega. NÚ HEFUR Gomulka hafist tU valda á ný. Flokksbræður hans sáu ekki annað ráð vænna til að koma í veg fyrir, að flokkur þeirra missti ekki alveg tökin. And- staða Gomulka gegn Rússum hefur gert það að verkum, að hann er nú eini pólski kpmmúnistaleiðtog inn, er nýtur trausts þjóðarinnar. Það starf, er bíður hans er erfitt. Hann þarf að verða við kröfum, al- mennings um bætt lífskjör og auk ið frelsi og hann þarf að koma þjóðinni undan yfirráðum Rússa. Þetta eru kröfurnar, sem til hans eru gerðar, og vinsældir hans geta brátt minkað, ef honum tekst ekki að fullnægja þeim. Sambúðin við Rússa getur reynst honum mesta vandamálið. Að sjálf sögðu lýsir hann yfir, að hann vilji halda vinfengi þeirra. Allt annað væri óhyggilegt, eins og að- staða Póllands er. En takmark hans verður, að sambúðin verði hér eft* ir á jafnréttisgrundvelli. Eftir er að sjá, hvernig Rússar bregðast við því. Margir leiðtogar þeirra vilja að sjálfsögðu láta honum misheppn ast og steypa honum úr stóli. Aðr- ir munu óttast, að aðeins taki við enn verra, ef Gomulka fellur. Samskipti Gomulka og valdhaf ana í Mskvu, verður meðal þess sem ástæða er til að gefa hvað mest an gaum í náinni framtíð. Af því mun mikið méga ráða um fram« vindu alþjóðamála yfirleitt. Þ.Þ, Að norðan (Framhald ar 5. síðu) fjárfesting. Menn segja, að þjóðar« búið eigi ekki fé til að ljúka verk« inu, sem kostar ámóta mikið og nokkrar villur í Laugarásnum í Reykjavík. Víst er fjárskortur, en sanni nær er, að þjóðin hafi ekki efni á að eiga hálfgerð manr.virki víðs vegar um land. Fullgerð mann virki og starfandi að framleiðsl- unni er það takmark, sem keppa verður að, og það hið bráðasta. Norðlendingur. Maðurinn minn og faðir okkar, Pétur Hansson, verkstjóri, andaðist í Landspítaianum aðfaranótt 24. þ. m. Jarðarförin ákveðin síðar. 1 ■ ■ ■ '■■ 'ÚSvl 'JiiS9llÞ."3a?i Uls-1 ! Qii&tiður Jóris'dótfiH;og börnini:'

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.