Tíminn - 30.10.1956, Side 2
2
TÍMINN, þri'ðjudaginn 30. október 1956,
Ungverska síjóraarblaðið ræðst heiptarSega á Pravda
Hugsjónir föðurlandsástar og lýðræð
is sigruðu í ungversku uppreisninni
Blaðið hrekur fullyrðingar Rússa að aftur-
haldsseggir og erlendir heimsvaídasinnar
hafi staðið að baki uppreisnarinnar
Búdapestútvarpið, 29. okt. — Höfuðmálgagn ungverska
kommúnistaflokksins, Szabad Nep, svarar í dag í leiðara
grein, sem birtist í rússneska blaðinu Pravda á sunnudag um
ungversku uppreisnina. Þar er henni lýst sem byltingartilraun
afla, er séu fjandsamleg alþýðu landsins og lúti stjórn aftur-
haldsseggja, heimsveldissinna og gagnbyltingarmanna erlend-
is. Szabad Nep mótmælir þessari ritstjórnargrein Pravda
kröftuglega og hrekur hana lið fyrir lið.
Petoofis, segir að lokum í grein
Szabad Nep.
Skjaldarmerki Kossuths
á forsiðu
Á fyrstu síðu Szabad Nep í dag
er skjaldarmerki ungversku þjó'ð'-
hetjunnar Kossuths. Þetta merki
var einnig skjaldarmerki Ungverja
lands þar til 1949, er kommúnistar
tóku völdin í landinu algerlega í
sínar hendur. Uppreisnarmenn
gerðu þetta merki að sínu undan-
farna daga og ríkisstjórnin hefir
einnig tekið það upp, segir í grein-
argerð blaðsins fyrir þessari breyt-
íngu á forsíðunni.
nauðstöddum
í Ungverjafandi
Rauði kross íslands hefir ákveð
ið að gangast fyrir peningasöfn
un til hjálpar nauðstöddum í
Ungverjalandi. Verður peninga-
gjöfum veitt móttaka á öllum dag
blöðum bæjarins næstu tíu daga,
og eiimig veitir skrifstofa Rauða
krossins gjöfum viðtöku, en hún
er til húsa í Thorvaldsensstræti
1, Reykjavík.
Allgóð síldveiði
Akranesbáta
Akranesi í gær. — Hér voru 19
síldveiðibátar á sjó í gær og fengtr
þeir alls 1400 tunnur. Aflinn var
mjög misjafn. Aflahæstur var.Keil-
ir, skipstjóri Ingimundur Ingimund
arson, með 220 tunnur, en ein-
staka bátur hafði því sem nær ekk
ert. Skipstjórinn á Keili sagði að
hann hefði sjaldan eða aldrei lóðað
eins mikla síld og í nótt. Háhyrn
ingar létu lítið á sér kræla. Bátarn
ir voru í Miðnessjó. Hér stundar
einn 22 lesta bátur og nokkrar trill
ur línuveiðar, afli er sæmilegur
þegar á sjó gefur. Hvassafell kom
hingað í gær með farm af timbri
og Vatnajökull með salt. GB.
í Pravdagreininni var talað um
uppreisnina sem ævintýri þjóð-
fénda, er nú væri hrunið til
grunna.
Hugsjónir lý'ðræ'ðisins
sigruðu
Það, sem gerðist í Búdapest,
segir í grein Szabad Nep, var ekk-
ert ævintýri og það hefir heldur
ekki hrunið í rúst. í fimm daga
dundi sprengjugnýrinn og vél-
byssuliríðin, sem stráði dauða og
eyðileggingu.
í fimm daga hafa hinir ógæfu-
sömu íbúar þessarar borgar
þjáðst og úthellt blóði sínu. Það
voru hinar sönnu hugsjónir föð'-
urlandsástar og lýðræðis, sem
sigruðu í þessari baráttu en ekki
áform afturhaldsseggja og gagn-
byltingarmanna. Byltingarmenn-
irnir í bæjunum Pest og ítuda
óska eftir frelsi. Frelsi fyrir fólk-
ið, líf laust við harðstjórn og ógn-
anir, meira brauð og sjálfstæði
þjóðarinnar, er þetta hið þjóð-
fjandsamlega ævintýr, sem
Pravda talar um? spyr blaðið
Szabad Nep.
Ekki af erlendum foga
Nei, þeir biðu ósigur og sem í
sannleika mega kallast þjóðfénd-
ur voru Rakosi-Gerö-klíkan, segir
blaðið ennfremur. Þá er algerlega
hafnað þeirri fullyrðingu Pravda,
að uppreisnin hafi veri'ð runnin
undan rifjum brezkra og amerískra
undirróðursmanna. Við getum með
fullu öryggi og ró slegið því föstu,
að þessi fullyrðing Pravda er bein
móðgun við Búdapestborg og þá
hálfa milljón manna, sem þar búa.
Frelsisloginn var að slokkna
Til allrar hamingju hófst upp-
reisnin, sem geisaöi í fimm blóð-
uga, hörmulega, en Iíka sigursæla
daga, vegna okkar eigin mistaka
og glæpa. Meðal þeirra má fyrst
nefna, að við létum undir höfuð
leggjast að halda lifandi kyndli
föðurlandsástar og sjálfstæðis,
sem fcður okkar liöfðu fengið
okkur til varðveizlu.
Þetta var fyrsta krafan á frelsis-
skrá byltingarséskunnar ungversku
1848. Æskan heimtar sjálfstæði
fyrir land sitt, var fyrsta alriðið
af 12 í kröfum frelsishetjunnar
voða í KefSavík
Á sunnudaginn varð mikið tjón
af eldsvoða í Keflavík. Þrann þar
að mestu stór vöruskáli skammt
frá bænum. f skálanum var
geymt mikið af veiðarfærum og
þar var til húsa rörsteypa Kefla
víkurkaupstaðar.
Um kl. 10 á sunnudagsmorgun
urðu menn þess varir, að eldur
var laus í skálanum og magnað-
ist hann fljótt. Slökkvilið frá
Keflavík og flugvellinum kom
fljótt til hjálpar, en erfitt var
um slökkvistarfa, þar sem langt
var í vatn.
Barðist slökkviliðið við eldinn
lengi dags og tókst ekki að
slökkva að fullu fyrr en komið
var undir kvöld. Mátti þá heita að
skáiinn væri eyðilegaður og stóðu
grindur einar eftir, en veiðar-
færi og eignir rörsteypunnar var
að mestu brunnið, eða skemmt í
eldinum.
.2600 íusiuur tiS
Keflavikur i gær
Keflavík í gær. 29. okt. — Allir
bátar voru á sjó í íyrrinótt,*og í
gær lönduðu 36 bátar 2600 tunn-
um síldar. Var Vonon II. úr Kefla-
vík aflahæst me'ð 201 tunnu en
Sæljón úr Reykjavík næst með 171
tunnu. Næstir þrír eða fjórir bát-
arnir voru með 160—165 tunnur
hver. Bátarnir réru allir aftur í
gærkvöldi.
Hátíð Norræna
félagsins í kvöld
Norræna félagið heldur hátíð í
kvöld í tilefni Norræna dagsins,
sem er í dag, 30. okt. Er hann liald
inn hátíðegur á öllum Norðurlönd
um, og var Norrænn dagur síðast
haldinn 1951.
Hátíðin I kvöld verður í Sjálf-
stæðishúsinu og hefst kl. 20,30. Er
mjög til dagskrárinnar vandað, og
hún höfð alnorræn að sjálfsögðu.
Hefst hún með ávarpi formanns fé
lagsins, Gunnars Thoroddsen, borg
arstjóra. Síðan verður upplestur,
Ellen Malberg, leikkona les. Þá er
danssýning, nokkrir Færeyingar
sýna færeyska dansa. Frú Britta
Gíslason syngur einsöng. Barbro
Skovberg les upp. Ivar Orgland,
sendikennari, syngur einsöng. Þá
verður sýnd kvikmynd: Noget om
Norden, og loks syngur Karlakór
Reykjavíkur og Guðmundur Jóns-
son syngur einsöng með kórnum.
Að lokum verður dans stiginn.
Aðgöngumiðar eru seldir í bóka-
verzlun Sigfúsar Eymundssonar og
við innganginn, ef eitthvað verður
óselt eftir kl. 3.
Happdræfti Hissbyggingarsjéðs Framséknarfl.:
Úrslit I keppni SKT
söludagur eftir
Hver vill ekki eignast nýja 3ja herbergja íbúð 90
m2 að stœrð?
Hver lætur hjá líða að freista gæfunnar fyrir 10
kr., þegar 300 þús. kr. íbúð er í boði?
Hver hreppir íbúðina í happdrætti húsbyggingar-
sjóðs Framsóknarflokksins 1. nóv. n. k.?
Miðar eru seldir úr bíl í Bankastræti daglega kl.
2—7.
íbúðin (Bogahlíð 26) er opin virka daga kl. 5—7
og á laugardögum og sunnudögum kl. 2—7 e. h.
Umboðsm.enn hafið samband við skrifstofuna og
látið vita hvérnig salan gengun w- öíflglíxl
Umboðsmenn í Reykjavík og Kcpavogi, síminn er
um heSgiua
Danslagakeppni SKT hélt áfram
í Góðtemplarahúsinu um síðast-
liðna helgi. Þessi lög komust í úr-
slit:
f gömlu dönsunum:
1. „Á gömlu dönsunum", fékk
171 atkv. 2. Sonarkveðja, fékk 157
atkv. 3. Nóttin og þú, fékk 127
atkv.
í nýju dönsunum:
1. maí, féklc 118 atkv. 2. Bláu
augun, fékk 108 atkv. 3. Viltu
koma, fékk 100 atkv.
Um næstu helgi lýkur keppninni
í Góðtempiarahúsinu en eftir það
vcrða lögin leikin í útvarp óg géfst
þó öllum útvarpshlustendum tæki-
færi á að greiða atkvæði í úrslita-
keppni.
Ekið á hest á
Eyrarbakkavegi
Selfossi í gær. — Síðastliðinn
laugardag var eki'ð á liest á veg-
inum milli Eyrarbakka og Sel-
foss. Enginn veit, hver þarna hef
ir verið að verki því að hestur-
inn fannst aðeins lemstraður á
veginum og varð að skjóta hann
til þess að stytta þjáningar hans.
Bílstjórin eða bíllinn sát hins veg
ar hvergi og hafði enginn gefið
sig fram í gær. Er þetta hið
mesta níðingsverk að hlaupa
þannig frá linilestum skepnmn
án þess að gera aðvart um slys-
ið. * ÁG.
Bátamir urðu að flýja
úr Akrasieshöfn
Akranesi í gær. — Síðastliðinn
laugardag gerði hér svo illt veð-
ur af suðvestri svo að bátunum
var ekki vært í höfninni. Gekk sjór
inn yfir hafnargarðinn, og tók tvo
menn út af honum. Annar náði í
kaðal sem hékk út af bryggjunni
og var dreginn upp á honum. Hinn
synti og var bjargað upp á bát. Bát
arnir lögðu frá bryggju og héldu
til Reykjavíkur eða Keflavíkur. —
Varð síðast að flytja áhafnir út í
bátana á trillu, því að ófært var
frarn hafnargarðinn. GB.
Þriggja ára drengur
varð fyrir bíl
á Seífossi
Selfossi í gær. — í dag varð
þriggja ára drengur fyrir vörubif-
reið hér á Selfossi og var mikil
mildi, að hann slapp lífs. Drengur
inn var á þríhjóli þarna á götunni,
en vörubifreiðinni var ekið hægt
aftur á bak. Fór annað afurhjól bif
reiðarinnar yfir þríhjólið og eyði-
lagðist það, en drengurinn lenti ut
an í hjólinu og kastaði frá. Maður
sá, hvað verða vildi og lcallaði til
bílstjórans, svo að framlijól bifreið
arinnar fór ekki yfir barnið. —
Drengurinn var nokkuð marinn og
skrámaður. AG.
Námskeið í bridge
Bridgesamband íslands hefir á-
kveðið að gangast fyrir námsskeiði
í bridge fyrir byrjendur og hefst
það miðvikudaginn 31. október
næstkomandi og verður í Edduhús-
inu við Lindargötu. Kennari á nám
skeiðinu verður Agnar Jörgensson,
en þátttökutilkyningar þurfa að
berast sem fyrst og er tekið á móti
þeim í síma 8 29 60. — Bridgesam-
bandið gekkst fyrir slíku námskeiði
sem þessu í vor og þótti það takast
með ágætum, og hefir því verið á-
kveðið að halda slíkum námskeið-
um áfram.
Dönsk vísindastofn-
un rannsakar áhrif
kjarnorku
Einkaskeyti frá Kaupmannah.
Lífeðlisfræðistofnun Kaupmanna
hafnarháskóla hefir gefið út til-
kynningu, þar sem segir, að stofn-
uninni mun verða falið að gera
ýmsar athyglisverðar rannsóknir
varðandi áhrif kjarnorkusprengja á
heilsu manna og öryggi. Mun stofn
uninni fengið þetta verkefni að
nokkru fyrir tilstilli danska ríkis-
ins og að nokkru á vegum Alþjóða
heilbrigðisstofnunarinnar.
Frá
Hðppdrættinu
Skrifstofa Happdrættis
Húsby ggingars j ófts
Framsóknarflokksins
ver(Sur opin fram til
kl. 10 öll kvöld til
mánaöamóta.
Komið og geriS skil
Dregið 1. nóvember.
Rússar kléra í bakkann
(Framh. af 1. síðu.)
fram að gagnbyltingarmenn og
heimsveldissinnar hafi náð tökum
á Ungverjalandi. Er talað um að
hér sé hin mesta hætta á ferðum -
Ríkisstjórnir þessara leppríkja eru
enn þá undir áhrifavaldi leiðtog-
anna í Kreml. Er því sennilegt að
þeir endurómi afstöðu Sovétleið-
toganna.
álger sigur
(Framh. af 1. síðu.)
gilti hrottflutningi þeirra frá
borginni.
Nagy styður kæru vesfur-
veldanna
Nagy lofaði í gær, að hersveitir
Rússa skyldu verða látnar hverfa
brott úr höfuðborginni og jafn-
framt hafnir samningar við Rússa
um brottflutning þess úr landinu.
Þá segir í kvöld, að ríkisstjórn
Nagys hafi lýst yfir, að hún styðji
í einu og öllu ályktun þá, sem lief-
ir verið lögð fram í öryggisráði
S.Þ., þar sem vítt er vopnuð íhlut-
un Rússa í Ungverjalandi. — Var
frá þessu skýrt í fréttastofufregn-
um NTB í gærkveldi.
Öryggislögreglan leyst upp
Ríkisstjórnin hefir þegar staðið
við það loforð sitt að leysa öryggis-
lögregluna upp. Hafa meðlimir
hennar í hópum flúið til Austur-
ríkis. Tala flóttamanna, sem komn
ir eru til Austurríkis er orðin
mjög há. Hafa verið settar upp
sérstakar búðir fyrir þá. Hafa ver-
ið sett flögg á landamæralínuna á
stóru svæði til að gera flóttamönn-
um auðveldara að átta sig. í kvöld
var landamærunum skyndilega
lokað, en þau hafa verið algerlega
opin undanfarna daga.
Hjálp sterymir a8
Matvörur, lyf og nauðsynjar
streyma nú til Ungverjalands frá
Rauðakrossdeildum margra landa.
Sérstaklega eru Austurríkismenn
stórtækir. Bretar hafa sent feikna
birgðir frá bækistöðvum í V-Þýzka-
landi. Er flogið með þær til Vínar,
en þar taka bifreiðar, lestir og
flugvélar við. Á Norðurlöndum
hefir safnazt feikna mikið. Mikið
magn af sjúkravörum fór frá Kaup
mannahöfn í kvöld, svo og efni í
bráðabirgða sjúkrahús. Læknir fór
einnig til að annast úthlutun og
annað í sam’oandi við sendingarnar.
| TÍMANN 1
Vantar ungling eða eldri mann til blaðburðar í |
VOGAHVERFI |
Afgreiðsla TÍMANS. |
i iiiiiiiuiiiiiuiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiuiiiiiuiiiiiiimiiuiuiiiuiiiiiiuiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiinimiimiiiimiuiiiiiiil