Tíminn - 11.11.1956, Qupperneq 1

Tíminn - 11.11.1956, Qupperneq 1
Fylgizt með tímanum og lesið TÍMANN. Áskriftarsímar 2323 og 81300. Tíminn flytur mest og fjöl- breyttast almennt lesefni. j S 3.; 40. árgagnur. Reykjavík, sunnudaginn 11. nóvember 1956 12 síður Munir og minjar, bls. 4. : ’j Mál og menning, bls. 4. Lífið í kringum okkur, bls. 4. Erlent yfirlit, bls. 6. 5 Skrifað og skrafað, bls. 7. 257. blað Rússar hóta sendingu sjálfboðaliða, ef herir fari ekki skjótt frá Sáez Stöðugur orðrómur að russueskar flugvéi- ar og ftugm. séu komnir til Arabaríkjanna Moskvu og London, 10. nóv. — Tass-fréttastofan rúss- neska birti í dag tilkynningu frá hinu opinbera og segir þar, að Sovétríkin fagni vopnahléi í löndunum fyrir botni Mið- jarðarhafs, en harmi jafnframt að ísraelsmenn, Bretar og Frakkar skuli ekki hafa hörfað með her sinn á brott. Margir rússneskir fiugmenn og hermenn, sem börðust í seinustu heimsstyrjöld, en nú eru í varaliðinu, hafi farið þess á leit að fá leyfi til að fara sem sjálfboðaliðar til Egyptalands. Seg- ist Sovétstjórnin ekki muni meina þessum mönnum að gera svo, ef í ljós komi að Bretar og Frakkar þverskallist við að fara brott með lið sitt. Sfiepifov í KefSavik í gærmorgun í gærmorgun lenti flugvél frá SAS flugfélaginu á Keflavíkur- flugvelli. Hafði hún orðið að snua við vegna mótvinds á leið sinni vestur um haf. Klukkustund áður en vélin lenti, var starfsfólki á veilinum tilkynnt, að meðal far- þega í vélinni væri Shepilov, utanríkisráðherra ráðstjórnarríkj anna, og er vélin lenti voru mætt ir flugvallarstjóri, Pétur Guðm- undsson og Magnús Guðjónsson, fulítrúi lögreglustjórans á Kefla- víkurvelli til að taka á móti ráð- herranum. Kom hann með miklu föruneyti, 22 manna nefnd, og mun það vera sendinefnd Ráð- stjórnarríkjanna á Allsherjar- þingi S.þ. Flugvélin stóð við í liálfa aðra klukkustund, og gekk ráðherrann ásamt föruneyti sínu til flugvallarhótelsins á meðan, og fékk sér þar morgunverð. Sýning Finns Jóns- sonar fjölsóít Málverkasýning Finns Jónssonar listmálara að Kvisthaga 6, hefir verið fjölsótt, og hafa nú um 700 manns séð hana. Forsetahjónin voru meðal gesta s.l. fösudag. Mörg málverk hafa selzt. Sýningin opin á virkum dögum frá kl. 2- en sunnudögum kl. 10—10. Fréttaritari brezka útsvarsins við austanvert Miðjarðarhaf segir um þessa tilkynningu, að hún sé gerð í því skyni að láta líta svo út sem það séu Rússar, sem raunverulega hafi komíð til leiðar vopnahléinu og þannig reynt að ræna S. Þ. heiðrinum af því. Hann telur og að yfirlýsingin muni ekki gera annað en valda enn meiri glund- roða og vandræðum þar eystra. Rússneskar flugvélar í Bagdad? Fréttaritarar skýra frá orðrómi, sem sé á kreiki í Bagdad um að rússneskar herflugvélar séu komn ar þangað ásamt rússneskum flug- mönnum. Þetta er borið íil baka af hálfu stjórnarvaldanna. Þá hef ir stjórn Jórdaníu neitað því, að hún hafi beðið Rússa um aðstoð eða hún hyggist gera það. Engar rússneskar flugvélar séu þar. Ut- anríkisráðherra ísraels vildi og er gera lítið úr því að rússneskar 10 flugvélar og sjálfboðaliðar væru komnar til Arabarikjanna. Taldi hann að egypzkar flugvélar hefðu sloppið til flugvalla í Sýrlandi undan loftárásum Breta. Engir bardagar við Súez. Ekki berast fregnir af bardögum við Súez og virðist vopnahléið vcl haldið. Burns yfirmaður gæzluliðs S. Þ. er enn í Kairó, en fer senn til Kýpur og ræðir við herstjórn Breta og Frakka. Bandaríkjastjórn gaf út yfirlýs- ingu í dag varðandi sjálfboðaliða, sem kvnnu að vilja fara til austur- landa. Var bent á, að stjórnar- völdin hefðu heimild til að barma slíkt og myndu gera það í bessu tilfelli. Margar tillögur fyrir þingi S.þ. Reglulegt þing S. Þ. kemur sam an til fundar n. k. mánudag. Á- kveðið hefir verið, að mál þau, | árásirnar á Ungverjaland og Eg- | yptaland, skuli bæði rædd á þing- I inu. í báðum málunum liggja fyrir ýmsar tillögur og fleiri eru á döf- inni. Drengur slasaðist er bíll rann niður í gljúfur við Goðafoss Frá fréttaritara Tímans á Fosshóli. Það slys varð að Fosshóli í gær, að bifreið sem stóð þar á hlaðinu og skilin hafði verið eftir í gangi, rann afturábak niður í árgljúírið nokkuð fyrir neðan Goðafoss. Bílstjórinn hafði brugðið sér inn í bæ, en tveir menn voru í bifreiðinni. | Aldraður maour, sem gat forðað sér út í þann mund er hún rann fram af brúninni, og lítill drengur, sem fór með henni alla leið niður og slasaðist mikið. Þetta er jappabifreið og höfðu mennirnir komið frá Laugum í veg fyrir áætlunarbílinn. Litli drengurinn, sem slasaðist, er son- ur hjónanna Páls H. Jónssonar, kennara á Laugum og konu hans, en þau voru að koma með áætlun- arbílnum og hafði drengurinn feng ið að fara til þess að taka á móti þeim. Bílstjórinn stöðvaði jappann á hlaðinu og brá sér inn í bæinn. Skipti það engum togum að japp- | læknarnir hann höfuðkúpubrotinn og mikið meiddan að öðru leyti. Hann er aðeins sex ára gamall. Sjúkrabíll frá Akureyri var á leið inni og var ætlunin að flytja dreng inn til Akureyrar. S.þ.taka að sérhreins im Söez-skisrðar NEW YORK, 10. nóv. — Tilkynnt var í aðalstöðvum S.þ. í New York í dag, að samtökin hefðu falið liollenzkum og dönskum fyrir- tækjum að annast hreinsun Súez- skurðar. Myndu S.þ. taka að sér að greiða kostnaðinn af þessum framkvænidum. Bretar tilkynna, að miklu fleiri skipum liafi verið sökkt í skurðinn en upphaflega var gert ráð fyrir, e'ða alls um 16. Muni taka marga mánuði að gera skurðinn skipgengan. Nass- er sagði í gær, að ekki kæmi til mála að leyfa siglingar um skurð inn fyrr en allar erlendar her- sveitir væru af egypzkri grund. Bretar liöfðu farið þess á leit við S.þ., að þeim yrði heimilað að hreinsa skurðinn, enda hefðu þeir góð tæki til þess. Því boði virðist hafa verið hafnað. 22 Akranesbátar lönduðu 3600 tunnur síldar í gær inn tók að renna afturábak og rann iram af brúninni. Þarna er um tíu metra hár hamraveggur. Bifreiðin kom niður á hjólin en mun hafa snúizt einu sinni í loft- inu. Hægt er að komast niður í gljúfr ið norðan við brúna og var strax brugðið við og farið niður. Einnig var símað til læknanna á Húsavík og Breiðumýri og komu þeir báð- ir upp að Fosshóli. Drengurinn var mjög mikið slasaður. Töldu Sjómemi kvácSust hafa séí Frá fréttaritara Tímans á Akranesi. Akranesbátar komu með ó- hemju afla í gær, hinn lang- mesta, sem þeir liafa fengið í liaust. 22 bátar lönduðu 3600 tunn um síldar, og var sá eflahæzti Reynir, með rúmar 300 tn. Skip- stjóri á honum er Helgi Ibsen. Næstur var Sigurvon með 280 tn., og þá Heimaskagi og Ás- mikla síld á stóru svæfti björn með 250 bn. hvor. Bátarnir urðu lítið varir við háhyrning, en nokkrar netaskemmdir urðu vegna þess hve síldin var mikil. Allir réru bátarnir aftur í gær- kvöldi í sæmilegu veðri, en á- hafnirnar kvaðust hafa séð mikla síld á stóru svæði. Öll síldin er söltuð eða fryst til útflutnings, þar sem nú þegar er búið að frysta nóg til beitu. GB. Myndin sýnir Nasser Egyptalands forseta og ráðherra hans á ráðuneytis- fundi þeim, þar sem ákveSið var aS hafna úrsiitakostum Breta og Frakka. Sala 2. fl. vísitölubréfa veð- deildar Landsbankans hafin Við úrdrátt verða bréfin endurgreidd eig- anda með þeirri hækkun framfærsluvísitöl- unna, sem orðið hefir frá útgáfu þeirra Mánudaginn 12. nóvember verður hafin sala á 2. ílokki vísitölubréfa þeirra, sem veðdeild Landsbanka íslands gefur út samkvæmt lögum um húsnæðismálastjórn, veðlán til í- búðabygginga 0. fl. Fénu, sem aflast með sölu bréfanna, er sem kunnugt er varið til íbúðalána. Vísitölubréfin eru með 5Vz % vöxtum og verða dregin út á 15 árum. Á hvert brófanna er skráð sú vísitala, sem i gildi var, þegar flokkurinn var opnaður, en við.út- drátt verða bréfin endurgreidd eiganda mcð þeirri hækkun íram- færsluvísitölunnar, sem oröið hef- ir frá útgáfu þeirra. Annar vísi- töluflokkurinn, sem nefnist B- flokkur 2, er með grunnvísitölunni 180, svo að þegar hefir orðið S vísitölustiga hækkun, síðan hann var opnaður. Er því grunnvirði bréfanna þegar orðið 3Vz % hærra en nafnverð þeirra. Auk vísitölu- tryggingar njóta bréf þessi skatt- frclsis og eru undanþegin íram- íalsskyldu. Verðmætið helzt óbreytt. Þegar útgáfa vísitölubréfanna j hófst um þetta leyti á síðasta ári, jvar um mjög merkilegt nýmæli að | ræða, þar sem í íyrsta sinn var |reynt að búa svo um hnútana, að 1 eigendur verðbréfa væru tryggðir I gegn áhættu verðþenslunnar. Hve- I nær sem vísitölubréfin verða dreg ! in út á næstu 15 árum, fá eigend- ur þeirra endurgreidda samsvar- ^ andi upphæð í raunverulegum verð mætum og þeir láta nú af hendi. Til viðbótar hljóta þeir svo 5V2% . vexti af nafnverði bréfanna. Sá, sem kaupir vísitölubréf er tryggður gegn rýrnandi peninga- gildi, og fjölda margir þeirra, sem nú leggja fé sitt í fastcignir, sem eru með uppsprengdu verði, geta komið því fyrir á tryggilegri, ein- faldari og ódýrari hátt ineð því að kaupa vísitölubréf. í viðbót njóta þeir svo skattfrelsis og und- anþágu írá íramtalsskyldu, sem bankavaxtabréfunum íylgir. Þegar 1. vísitöluflokkurinn var gefinn út á s. 1. ári, voru undirtektir alménn ings hinar beztu, enda hafa þau reynzt eigendum sínum góð fjár- festing, þar sem grunnverð þeirra hefir þegar hækkað um 3% og þar með íyllilega iialdið gildi ;'ínu miðað við ríkjandi verðlag, jafn- framt því að skila eigendum rín- um góðum vörum. Sala hins nýja flokks hefst, svo sem áður segir m.ánudaginn 12. nóvember, og verða þau til sölu hjá Landsbanka íslands og útibú- um hans, ennfremur hjá verðbréfa sölum, sparisjóðum og bankaúti- búum víðs vegar um landið. Valdimar Björnsson náði einn flokks- bræðra sinna kosningu Frá því var skýrt í biaðinu í gær, að Valdimar Björnsson hefði verið kjörinn til að gegna fjár- málaráðherraembætti í Minne- sótafylki í Bandaríkjuimm og hann ásamt dómsmálaráðherra fylkisins hefðu verið einu Repú- blikanarnir, sem náð hefðu kosn ingu í fylkisstjórnina. Við endur- talningu koin í Ijós, að Valdiniar var sá eini, sem náði kosningu af flokksbræðrum sínum í fylk- isstjórnina og sýnir það glögg- lega hinar miklu vinsældir hans í ríkinu. Vahliniar náði kosningu með 693 þús. atkv. og var það þó naum ur meirihluti, en mikill kosninga sigur engu að síður. Ræða Ungverja- landsmálið á Seffossi Stúdentafélag Suðurland.s efnir til almenns fundar að Selfossi n. k. þriðjudag og hefst hann klúkk- an 8,30 e. h. í Selfossbíói. Til um- ræðu verða Ungverjalandsmálin og öryggisleysi smáþjóða. Fundar- stjóri verður Páll Hermannsson, sýslumaður, en ræðumenn séra Jó hann Hannesson, Þingvöllum, Þor- steinn Sigurðsson, bóndi, Vatns- leysu, séra Sigurður Einarsson, Holti, Sigurður Greipsson, skóia- stjóri, Haukadal, og dr. Sveinn Þórðarson, skólameistari, Laugar- vatni. Jafnframt verður efnt til samskota handa Ungverjum og fara þau fram í fundarlok.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.