Tíminn - 21.11.1956, Síða 2

Tíminn - 21.11.1956, Síða 2
2 T f MIN N, miðvikudaginn 21. nóvember 1956, Bék um veiðimanualif i frumskógum Afríku Komin er út hjá Bókfellsútgáfunni bók, sem segir frá ævintýrum og villidýraveiðum í frumskógum Afríku og þótt hefir flestra bóka bezt og skemmtilegust um það efni á er- lendum vettvangi. Nefnist hún í íslenzkri þýðingu: „Veiði- mannalíf“ og höfundurinn er J. A. Hunter. í bók þessari segir höfundur á skemmtilegan hátt frá mannraun- um og ævintýrum, sem ver'ða á vegi þeirra, sem leggja fyrir sig viliidýraveiðar í myrkviðum frum- skóganna. Slíkar svaðilfarir, þegar farnar eru á gamla vísu fótgangandi, eða á fílsbaki hafa lengi þótt frásagn- arverðar og hættulegar. Eiga þær lítið sameiginlegt með þeim stóru leiðöngrum auðmanna inn í frum- skógana nú á dögum, þar sem bíl- ar og vélbyssur gæta baksins við hvert fótmál. Um þessar endurminningar Hunt Góður síldveiðidagur Hafnarf jarðarbáta í fyrradag Hafnarfirði í gær. — í fyrradag komu 16 bátar til Hafnarfjarðar með samtals 2700 tunnur síldar, og í gær komu 11 bátar með 600 tunnur. í dag er enginn bátur á sjó héðan vegna illveðurs. GÞ Þakkarkveðja ti! Karíakórs Kefíavíkur Með línum þessum vil ég þakka ykkur fyrir sönginn 18. þ. m. i verkalýðshúsinu í Keflavík. Það var mjög ánægjulegt að hlusta á ykkur, og þið sunguð mörg lögin með glæsibrag. Þið áttuð það sann- arlega skilið að fá troðfullt hús, og þið áttuð það líka skilið, hve hlust- endur klöppuðu ykkur óspart lof í lófa. Það er mjög virðingarvert, hve þið fórnið miklum tíma til að þjálfa ykkur, þar sem þið eruð all- ir meira eða minna störfum hlaðn- ir, og er því hægt að segja, að þið hafið unnið mikið afrek með því að ná þessum árangri. Það er mér mikið gleðiefni að sjá ykkur svona marga unga og glæsilega menn hefja söngstarf- semi liér í Keflavík, því að það eru svo sorglega fáar skemmtanir hér í bænum, sem geta kallazt göfgandi. Söngurinn er listræn skemmtun, sem lyftir mönnum upp í æðra veldi. Ég segi því enn, þakka ykkur kærlega fyrir söngsveinar í Karla- kór Keflavíkur. Og haldið umfram ailt áfram að syngja og syngið svo að undir taki um öll Suðurnes. Þess væri óskandi, að þið gætuð sungið burt hið drungalega and- rúmsloft, sem Suðurnesin eru svo rík af. — DD. ers frá veiðimannalífi, segir eitt helzta bókmenntablað samtíðar- innar: „Það er fjöldi bóka um Afríku og villidýraveiðar í frumskógun- um, en engin þeirra er með slík- um ágætum sem bók Hunters, enda má segja með sanni, að höf- undurinn sé fræknastur allra nú- lifandi veiðimanna. Ungverjaland (Framh. al 1. síðu.) samúð í liinum miklu hörmung- uin hennar. Fundi alþjóða verkamálanefndar- innar var frestað um stund í dag vegna þagnarstundarinnar, full- trúi Rússa mótmælti, en þau voru að engu höfð af öðrum nefndar- mönnum. Eden (Framh. af 1. síðu.) að kynna sér ástandið. Orðsending þessi er svar við orðsendingu kommúnistastjórnarinnar á dögun um, þar sem krafizt var skaðabóta Egyptum til handa vegna þess tjóns, sem aðgerðir Breta og Frakka í Egyptalandi hefðu valdið. Aðgerðirnar í Egyptalandi nauðsynlegar Eden segir ennfremur, að að- gerðir Breta og Frakka hafi verið nauðsynlegar til að koma á ró í landinu og stöðva frekari átök á milli ísraelsmanna og Egypta. — Hann hefði þegar í byrjun nóv. lagt það til, að lögreglusveitir S.þ. yrðu sendar inn í Egyptaland. Hann væri ánægður yfir því, að þetta hefði nú verið fram- kvæmt, heimurinn allur bíður eft ir svipuðum aðgerðum í Ung- verjalandi, sagði Eden að lokum í orðsendingu þessari. Vissu ekki um innrásar- fyrirætlunina Hermálaráðherra Breta lýsti yf- ir því í brezka þinginu í dag, að það væri fjarri öllum sannleika, að brezka stjórnin hefði haft nokkra hugmynd um innrás ísraels manna í Egyptaland og þaðan af síður hvatt þá til þess. Franska stjórnin lýsti því yfir í dag, að það væri alrangt, að franskar flug vélar hefðu átt nokkurn hátt að- stoðað ísraelsmenn í hernaðarað- gerðum þeirra á Sinai-skaga, en egypzka stjórnin hefir fyrir skömmu sakað Frakka um slíkt. Kljóðíærahús Reykjavíkur er 4(1 ára í dag í dag er I-Iljóðfærahús Reykja- víkur, Bankastræti 7, fjörutíu ára. Stofnandi og eigandi frá upphafi hefur verið frú Anna Friðriksson. í upphafi var verzlunin opnuð í Templarasundi 2, og var þá eink- um verzlað með stór hljóðfæri og nótur, en smátt og smátt hófst sala á öðrum hljóðfærum og músikvör- um yfirleitt, ennfremur gammófón plötum og grammófónum. Þá hef- ur verzlunin haft aðalumboð fyrir ýmis þekkt erlend fyrirtæki, sem verzla með músikvörur. Á árum áður gekkst verzlunin fyrir hljóm- listarferðum ýmissa kunnra er1- lendra listamanna hingað og vann þannig að eflingu tónlistarlífs hér heima. Þegar allur innflutningur á tón- listarvörum stöðvaðist á kreppu- árunum, tók frú Anna það til bragðs að hefja verz.Iun með alls- konar leðurvörur og hefur haldið því áfram síðan. Hljóðfæraverzlun Reykjavíkur rekur nú Leðuriðjuna h. f. og veitir sonur frú Önnu því fyrirtæki forstöðu. Nýjustu upp- tökur verzlunarinnar eru hljóm- plötur með Kristni Hallssyni, Elsu Sigfús og séra Þoi’steini Björns- syni. Þá gaf verzlunin út fjölda hljómplata fyrir stríð með Pétri Jónssyni, Eggert Stefánssyni og Sigurði Skagfield, en allar þær olötur eru nú uppseldar fyrir löngu. Síðan frú Anna Friðriksson hóf verzlun með músikvörur hefur hljómlistarlíf færst mjög í auk- ana hérlendis. Þakkar hún það m.a. Tónlistarskólanum og kynn- ingu útvarpsins á tónverkum. Þá hefur tónlistarsmekkur batnað mjög að hennar áliti, svo að sígild verk seljast nú um allt land, sem var lakom fyrir í upphafi verzlunar- innar. Fundur Framsóknar- marnia á Selfossi á Framsóknarfélag Árnessýslu og F. U. F. í Árnessýslu halda sameiginlegan fund að Selfossi, í Iðnaðarmannahúsinu ld. 2 á sunnudaginn. Verður þar jafn- framt aðalfundur F. U. F. Framsöguerindi á hinum sam- eiginlega fundi flytur Ágúst Þor- valdsson alþingismaður, en að því loknu verða almennar umræöur. Hálfrar aldar afmælis unglmgafræðsl unnar í Húsavík minnzt me8 viðhöfn Frábærs kennslustarfs Benedikts Björnssonar stofnanda skólans séríaklega minnzt Frá fréttaritara Tímans í Húsavík. Fyrra sunnudag var minnzt hér í Húsavík hálfrar aldar afmælis unglingafræðslunnar í Húsavík. Það var árið 1906 sem Benedikt Björnsson stofnaði unglingaskólann í Húsavík, og starfaði hann síðan óslitið í tengslum við barnaskólann þar til Gagnfræðaskóli Húsavíkur var stofnaður fyrir nokkr- um árum. Fordæmir aðfarir Rússa i Uaigverjai. Eftirfarandi ályktun var sam- þykkt einróma á fundi Bæjarstjórn ar Akraness 16. nóv.: „Fundur haldinn í Bæjarstjórn Akraness þann 16. nóv. 1956 sam- þykkir að fordæma harðlega hina grimmu og tilefnislegu liernaðar- árás Rússa á Ungverjaland og vottar ungversku þjóðinni vir'ð- ingu og dýpstu samúð í frelsis- stríði hennar og þakkar það for- dæmi, sem hún hefir gefið öllum frelsisunnandi þjóðum. Jafnframt harmar bæjarstjórnin hernaðaraðgerðir tveggja lýðræðis- þjóða V-Evrópu á Egyptaland í andstöðu við Sameinuðu þjóðirnar. Bæjarstjórnin skorar á ríkis- stjórnina að halda fast við þá yf- irlýsingu sína að fulltrúi íslands á Allsherarþingi Sameinuðu þjóð- anna vinni að því að báðar þessar þjóðir ráði sjálfar yfir landi sínu, án íhlutunar erlendra stórvelda. — Ennfremur og aðrar þær þjóðir, sem líkt eru settar." Brezkur verkamanna- flokksjíingma^ur afsalar sér þingmennsku LONDON, 20. nóv. — Einn þing- manna brezka verkamannaflokks- ins sagði af sér þingmennsku í dag samkvæmt beiðni flokksstjórn- arinnar. Ástæðan er sú, að þing- maður þessi hefir lsýt því opinber lega yfir, að hann geti ekki fallizt á stefnu verkamannaflokksins í Sú- ez-málinu. Sagði þingmaður þessi. að hver ríkisstjórn, sem sæti við völd í Bretlandi, yrði að haga gerð um sínum í þessum málum í sam ræmi við þá reynslu, er fengin væri af einræði og einræðisherr- um. Stefna brezku íhaldsstjórnar- innar í þessu máli væri rétt, sagði þingmaðurinn. Séra Friðrik A Friðriksson stjórn aði hófinu, en aðalræðuna flutti Axel Benediktsson skólastjóri gagn fræðaskólans og rakti hann í stór- um dráttum sögu skólans frá upp- hafi. Var Benedikts Björnssonar og konu hans Margrctar minnzt alveg sérstaklega. Benedikt er lát- inn fyrir allmörgum árum, en frú Margrét var viðstödd í hófi þessu. Einnig var þar staddur Egill Þor- láksson kennari á Akureyri og kona hans, en hann var lengi sam- kennari Benedikts við skólann. Frú Margrét afhenti við þetta tækifæri, Minningarsjóði Bene- dikts Björnssonar 5 þús. kr„ sem gjöf frá börnum þeirra hjóna. Skólastarf Benedikts Björnsson- ar var hið merkasta, einkum var móðurmálskennslu hans við brugð- ið, og telja ýmsir, sem þeirrar kennslu hans nutu, ómetanlegt veganesti, er hann veitti nemend- um sínum í þeirri grein. í hófinu skemmtu átta nemend- ur úr hópi fyrstu gagnfræðinga gagnfræðaskólans með söng, undir stjórn þáverandi söngkennara skól ans, séra Arnar Friðrikssonar. Einnig skemmtu núverandi nem- endur skólans með söng. í afmælis hófinu var staddur einn nemandi í fyrsta árangri unglingaskólans, Framsóknarmeim Jón Jónasson skrifstofumaður. Þ.F. Álfíýíusambarids|>ingið IFramhald af 12. slðu.) Forseti áréttaði að lokum mikil- vægi þessa Alþýðusambandsþings. Enda þótt samtökin eigi nú sam- hug hjá stjórn landsins væri eng- in ástæða til annars en hnlda bar- áttumálum á lofti og vinna ýmsum hagsmuna- og heillamálum samtak- anna framgang. Koma þyrfti á fót félagsmálaskóla og stofna hvíldar- og orlofsheimili fyrir vinnandi fólk. Ríkisstjórn, sem stofnuð er með fulltingi stéttasamtaka. Hins vegar myndu störf þessa þings að nokkm mótast af því, að nú er við völd í landinu ríkis- stjórn, sem stofnuð er með full- tingi vinnandi stétta til sjávar og sveita. Ríbisstjórn, sem vill og liefir samvinnu um lausn vanda- málanna við þær stéttir, sem þjóðfélagið byggir afkomu sína á öðrnm fremur. Sagðist Hannibal óska þess, að þetta Alþýðusambandsþing beri gæfu til að leysa torveld vanda- mál, sem það fær til meðferðar. í Kópavogi Stórþjófnaður á KefSavíkurvelfi S.l. laugardagskvöld var fram- inn stórþjófnaður suður á Kefla- víkurflugvelli. Var þar stolið um 650 dollurum í amerískri mynt, með þeim hætti, að sannað þykir, aö þjófurinn eða þjófarnir, hafa farið inn um glugga meðan hús- ráðendur voru í kvikmyndahúsi. Er mál þetta í rannsókn hjá lög- reglunni á Keflavíkurflugvelli og hafði hún ekki frekari upplýsingar að gefa í málinu, þegar blaðið hafði samband við hana í gær. Orðabók Afexanders Jóhannessonar 8. og 9. hefti eru nýkomin út, og er þá þessu ritverki, er hófst 1951, lokið (1406 bls., auk for- mála og skammstafana, bls. V.— XXIII). í síðustu heftunum er lok- i'ð við tökuorð í íslenzku, þá kem- ur skrá (í stafrófsröð indóger- manskra (germanskra, norrænna) frumróta, þá skrá (í stafrófsröð) allra íslenzkra orða (um eða yfir 20.000), er skýrð hafa verið í bók- inni, og loks leiðréttingar og við- bætur. Laust bindi fylgir fyrir fyr ir allt ritverkið og kostar kr. 18.— Áskrifendur eru beðnir að vitja heftanna íil Óskars Bjarnasens í háskólanum. Aðalfundur Framsóknarfélags Kópavogs verður haldinn í Barna- skólahúsinu miðvikudaginn 28. nóv ember kl. 8,30. Stjórnin Roskin kona fyrir bil — meiddist mikið Um tvöleytið í fyrradag vildi það slys til á Hringbrautinni fyrir fram an Elliheimilið, að roskin kona, Vigdís Sigurgeirsdóttir, Hring- braut 43, varð fyrir bifreið og meiddist mikið. Vigdís, sem er um sextugt, fótbrotnaði, og auk þess er talið, að mja'ðmagrind hennar hafi orðið fyrir hnjaski, jafnvel brotnað. Konan var flutt á sjúkra- hús. Rannsóknarlögreglan vill hafa tal af sjónarvottum að slysi þessu. 19 þús. kr. söfnuðust til sjúkrafiúss Húsavíkur Húsavík í gær. — Söfnuninni í sambandi við 20 ára afmæli sjúkra hússins í Húsavík lauk ekki um síðustu helgi og hafa enn borizt ýmsar gjafir. T. d. hefir Kvenfé- lag Mývatnssveitar síðan gefið þús- und krónur og einnig borizt gjafir frá ýmsum í Húsavík, svo að nú nemur söfnunin um 19 þús. kr. Þ.F. Athngasemd Hr. ritstjóri! f heiðruðu blaði yðar birtist í dag grein eftir Baldvin Þ. Krist- jánsson, þar sem lítillega er vikið að greinarstúf, sem ég ritaði fyrir skömmu. Af grein B. Þ. K. mættu ókunnugir ráða, að ég hefði aðal- lega verið að gera samanburð á að- förum Rússa í Ungverjalandi ann- ars vegar og Breta, Frakka og ísra- elsmanna í Egyptalandi hins vegar. Þetta er þó ekki alveg rétt. Mig skiptir það minnstu, hvor verri er, og þótt ég muni hafa jafnað þess- um tveim aðilum saman á ekki ó- svipaðan hátt og gert var í yfirlýs- ingu ríkisstjórnarinnar um þetta mál, þá er það aukaatriði í grein minni. Hitt lagði ég áherzlu á, að í þessum hráskinnaleik stórveld- anna um smáríkin megum við fs- lendingar ekki gleyma okkar litla landi, heldur ber okkur að skipa okkur við hlið annarra smáþjóða og fylgja fram þeirri kröfu, að stórveldin verði sem fyrst á brott með heri sína úr erlendum her- stöðvum. Með því að losa okkur við erlendan her af íslenzkri grund gefum við Ungverjum og öðrum kúguðum þjóðum sterlcara vopn í frelsisbaráttu þeirra en nokkur önnur þjóð hefir gefið þeim á þess- um síðustu hörmungatímum. Reykjavík, 20. nóv. 1956. Páll Bergþórsson, LöginviðVetrarferð- ina efíir Schubert Það ranghermi varð er sagt var frá þýðingu Þórðar Kristleifssonar á Vetrarferðinni eftir þýzka skáld- ið Wilhelm Miiller, að Beethoven hefði sami'ð lög við ljóð þessi. Það var Schubert, sem lögin samdi. Þess má og geta til viðbótar, að Guðmundur Jónsson, óperusöngv- ar.i. mun flytja þessi lög við þýð- ingu Þórðar í útvarpið í vetur. ■umiimMiiiiiM uiiiiiimiiiiimiimmiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiii I Drengjajakkaföt 6—14 ái s Matrósaföt og kjólar 3—8 ára 1 Drengjabuxur—Sokkar | Drengjabuxur—Drengja- peysur I Ullargarn, margir litir i Twink heimapermanent i Æöardúnssængur I Sent í póstkröfu. 1 Vesturgötu 12. Sími 3570.1 Tiiiiiiiiiiiiiiiiiiiniii iii iimiii...miiiiiiiiii miiiiiiiiuiiiik

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.