Tíminn - 21.11.1956, Síða 8

Tíminn - 21.11.1956, Síða 8
3l' 2!|||l!!ll!!llll!l!l!l!llllll!!!lll!IIIII!l|||ll!imilllll!l!!lllil!llll]lllll!ll!inillllll!lllllMllllllfinilrmilll!llllllll!i!!lllll!llllll!l!!lllllllll!llllll!IIIINIIill!ll!IIIIIIIIIIIIIIIII!llllllllll!llir I - 1 .V - Hyggnar húsmœður urn íand | aSSt hafa komist að raun um, | að það borgar sig að noítí' | ekkert annað þvottaefni en § CLOZONE í þvottavéiina. ^ CLOZONE er þvottaefni, sem sér- | staklega er framleitt til að þvo | úr því í þvottavóium. Það hefuf f hvorki skaðvœnleg óhrif á þvotta- | vinduna né neina aðra hluta | þvottavélarinnar — og það sem | mest er um vert, þvotturinn verð- | ur hreinni og blœfallegri en | nokkru sinni fyrr. | HEitDSöLUBiRGO®: EGGERT KRiSTJÁNSSON & 00. H.F. 77illl!!!IIII!JIIM!llill!lltllIllllllliriti9II!lll!lllllil!!l!l!illl!II!ll!!lll!im[III!!)!nil!l!l!lll!!ll’!!llillIIIII!ill!!lIIII!I!IIIIIiim!lUU!UllU!UliUH!lllli!llll!IIIIIIIIIII!!IIIII!lim!!ll!!IIII!lTl '•llllll!l!ll!!lill!i!illl!lill!illlllllilUl!iili!llilllllllllliillimímil!lliil!!llil!UIIIHimiilli!f 'llIlltiliimilliini)llili;illHMmir>ííVáillliliUMIiiillIlitiiltm»iiiiitliilaiiiiiiiiiii>iliiiiiin = Kfv.J = Getum nú afgreitt okkar viíSurkenndu WC-kassa — stál og postulín. | 1 AlHr varahlutir eru til á lager Vélsmiðjan h.f. § Trípólí 13 — sími 82047 inuiJiiiiiuiiiiuuiiiiiuiiiiiiiiiiiiiimiiuuimiiimiiiiiiiiiiiMiiiiilHiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiaiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiuimimiiiiimiiiHmifniiiiliHimiiiiiiiiiiilHiiiiniiiíiitiminiiliMÍ1 T í M I N N, miðvikiulaginn 21. nóvember 1956. Minning presthjónanna í :Eydökm, Sigurbjargar Bogadóttiir og séra Vigfósar Þérðársonár Frú Sigurbjörg Bogadóttir Smith verður lögð til hinztu livíldar í dag. Margir munu fylgja henni til graf- ar. Hinir eru þó miklu fleiri, sem I ekki eiga þess kost, sökum fjar- lægðar. En hugur þeirra mun fylgja henni. Hún innti af hönd- um sitt merka ævistarf í fjarlægum landsfjórðungi, þar mun hennar og eiginmanns hennar, séra Vigfusar Þórðarsonar, lengi verða að góðu getið. Frú Sigurbjörg fæddist 24. apríl 1875 í Arnarbæli á Fellsströnd við Breiðafjörð. Foreldrar hennar voru Bogi Smith bóndi í Arnarbæli og Oddný Þorsteinsdóttir kona hans, systir séra Jóhanns í Stafholti. Þeg ar Sigurbjörg var nálægt 12 ára aldri missti hún föður sinn og tvo bræður í sjóinn og dvaldist næstu árin hjá séra Jóhanni móðurbróður sínum í Stafholti, en eftir það með móður sinni og systrum í Reykja- vík. Hún hlaut hið bezta uppeldi og bar því vitni alla ævi. 30. september 1893 giftist hún Vigfúsi Þórðarsyni frá Eyjólfsstöð- um á Völlum, er lokið hafði emb- ættisprófi í guðfræði frá Presta- skólanum þá um vorið. Á næsta ári hófu þau búskap á Eyjólfsstöð- um og bjuggu þar í 7 ár eða til ársins 1901, er Vigfús fékk veit- ingu fyrir Hjaltastað í Hjaltastaða- þinghá. Þar var hann prestur í 18 ár og síðar í Eydölum í Breiðdal í 24 ár, unz hann lét af embætti fyrir aldurs sakir 1943. Auk Eydalaprestakalls þjónaði sr. Vigfús Stöðvarprestakalli í Stöðvarfirði í 17 ár og voru presta köllin sameinuð 1942. Þrjú börn þeirra hjóna eru é lífi, Einar, Oddný Elín og Ásgeir. Tveir fóstursynir, Águst Filippus- son og Bogi Sigurðsson. Fósturdæt ur Oddný Pétursdóttir og Guðrún Ásgeirsdóttir. Þau hjónin urðu fyr- ir þeim þungbæru hörmum að missa tvo syni sína uppkomna og einn barnungan. „En bak við heilaga harma er himininn ailtaf blár“. Það sannað- ist í þeirra lífi. Prestshjónin frá Eydölum áttu lengst af heima hér í Reykjavík eftir að þau fluttust þaðan og hér lézt séra Vigfús fyrir nokkrum ár- um.Síðan átti frú Sigurbjörg heima hjá Einari syni sínum, unz hún lézt 7. þ. m. Ég var í bernzku, er þau hjónin frú Sigurbjörg og séra Vigfús, fluttu að Eydölum með skyldulið sitt, og ólst upp á næsta bæ við þau. Það var skammt milli bæja og tíðförul leið. Prestsheimilið að Eydölum varð gluggi minn og margra annarra að umheim- inum. Og þegar frá líður, og sjóndeildarhringurinn víkkar fær engum dulist, sem lítur yfir ævi- starf þeirra, að áhrifa þeirra gætti til góðs um allt byggðarlagið og mun lengi gæta. Þessi prestshjón hlutu að vekja athygli við fyrstu sýn. Hann var fríður sýnum, virðulegur og góð- legur. „Hún var einnig fríð kona og tíguleg, mikilla sanda og mik- illa sæva.“ Þau virtu hvort annað mikils, já, mér er óhætt að segja að séra Vigfús hafi dáð konu sína. Þau voru ólík um margt hygg ég, en því aðdáunarverðara var að sjá, hve gagnkvæm ást og virðing réði sambúð þeirra. Bæði voru þau ágætlega mennt- uð til munns og handa. Það var I mikil hljómlist á heimilinu. Séra' Vifús lák ljómandi vel á harmóní- um, hafði afbragðs söngrödd ogi kenndi mörgum á hljóðfæri. Hjón-, in lásu mikið innlendra og er- lendra bóka, og lánuðu mörgum góðar bækur. Séra Vigfús var völundur í hönd unum og nutu sveitungarnir jafnt anda hans og handa. Frú Sigur- björg var örlát kona með afbrigð- um og hjálpsöm, mátti ckkert aumt sjá. Eigi hygg ég að hún hafi verið að sama skapi fyrirhyggju- söm, og féll það þá fremur í hlut eiginmannsins. Þannig bættu þau hvort annað upp á flestum sviðum og urðu meiri hvort með öðru, en þau hefðú orðið ári hvors annars. Mikil geátahatíð: ■ ■’vMr jaftíari á heirriili þeirra, þar var miðstöð sveitarinnar í beinni og óbeinni merkingu. Bæði hjónin voru ræð- in og skemmtileg, fylgdust vcl með stefnum og straumum í trúarleg- um og menningarlegum efnum. Þeir, sem komu á heimili þeirra, þágu eigi aðeins góðan beina, held ur eignuðust þeir einnig andlegt samfélag við húsráðendur, fóru glaðari og reifari en þeir komu. Nýjar hugsanir og viðhorf höfðu vakizt upp í huga þeirra við sam- ræður og sagnir. Oft voru þeir leystir út með gjöfum úr hendi hús móðurinnar, ellegar þeir höfðu ver ið í kennslustund hjá húsbóndan- um. Þau hjónin þekktu bæði þraut og gleði þessa lífs af eigin raun, enda tóku þau einlægan þátt í gleði og sorg sóknarbarna sinna og mega nú margir minnazt þess þakklátum huga. Hún var ör, hann hægari, hún var stórtæk, hann jafnari, hún minnti á sólina og regnið, hann á jörðina, sem grær. Fyrir samverkandi krafta sólar, regns og jarðar verða grösin græn. Þau frú Sigurbjörg og séra Vig- fús verða eigi aðskilin í minningu minni fremur en kraftarnir sem orka á grösin ungu. Þau komu við sögu mína á vori lífsins. Frá þeim árum geymast öll áhrif lengst og grópast dýpst í minninguna. Eg get eigi minnst frú Sigurbjargar án þess að minnast séra Vigfúsar, míns gamla góða vinar og söknar- prests um leið. Eg riiun ætíð minnast þeirra beggja með virðingu og þökk. Og ég bið þann guð, sem þau treystu og sögðu mér írá forðum daga að vera þeim' ljós og líf. Emil Björnsson. !

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.