Tíminn - 07.12.1956, Síða 2

Tíminn - 07.12.1956, Síða 2
2 T f M I N N, föstudaginn 7. desember 199S, Ein af myndum Ragnars á sýningunni. Unger listamaðiir opear sýningu í Listvinasalimm við Freyjegötii Sýnir f)ar íjöimargar análits- og mannamyndir í dag opnar ungur maður fyrstu málverkasýningu sína 1 Listvinasalnum við Freyjugötu. Maðurinn nefnist Ragnar Lárusson, 21 árs að aldri, og í gær boðaði hann blaðamenn á sinn fund til að skýra þeim frá sýningunni. Sýningin verð- ur opin næstu daga og er þess að vænta að menn gefi verk- um hins unga myndlistarmanns verðugan gaum. Á sýningu Ragnars eru fjölmarg ar myndir og margar hverjar býsna athyglisverðar. Hann sýnir olíu- krítarmyndir, tré- og dúkskurðar- myndir, álímingarmyndir, blýants- teikningar og penna- og pensilteikn ingar. Mest eru það andlits- og mannamyndir, en Ragnar kveðst einnig hafa fengizt mikið við mál- verk, þótt hann sýni þau ekki núna. Ragnar kvað þetta í fyrsta skipti sem hann sýndi verk sín opinber- lega, hefur hann ekki einu sinni tekið þátt í samsýningum áður. — Hann hefur stundað nám í Handíða og myndlistarskólanum í tvo vet- ur, aðalkennari hans þar var Sig- urður Sigurðsson og kvaðst Ragnar eiga honum mikið að þakka. Þótt Ragnar eigi ekki lengri námsferil að baki ennþá, er langt frá því að hann sé nýbyrjaður að stunda myndlist, heldur hefur hann feng- V araarmálasamningurinn (Framh. af 1. síðu.) um fulltrúum frá hvorri ríkisstjórn um sig, og sé hlutverk nefndar- innar: I. Að ráðgast við og við um varn arþarfir íslands og Norður- Atlantshafssvæðisins, að at- huga hverjar ráðstafanir gera þurfi vegna þeirra og að gera tillögur til ríkisstjórnanna beggja í þeim efnum, með hliðsjón af hernaðarlegu og stjórnmálalegu viðhorfi á hverjum tíma. II. Að undirbúa, að svo miklu leyti sem hernaðarlegur við- búnaður leyfir, að íslendingar taki í ríkara mæli en áður að sér störf, er varða varnir landsins, á meðan völ er á hæfum mönnum til slíkra starfa, svo og að tryggja að menn séu æfðir í þessu skyni. III. Að vinna að lausn mála, er varða stefnuna í almennum meginatriðum í samskiptum íslendinga og vamarli@sins.“ Utanríkisráðuneytið óskar að taka sérstaklega fram, að aðrir samningar en hér eru tilgreindir, hafa ekki verið gerðir og að samn ingum þessum er ekki ætlað að breyta neinu í sambandi við upp- sagnarákvæði 7. gr. varnarsamn- ingsins írá 1951. Utanríkisráðuneytið, Reykjavík, 6. desember 1956.“ izt við hana allt frá barnaskóla- árum sínum. Að lokum spurði fréttamaðurinn Ragnar um viöhorf hans til mynd- listarinnar og svaraði hann því svo að góð myndlist ætti alltaf rétt á sér á hvaða tíma sem hún væri gerð. En mestu máli skiptir að verk listamannsins séu sönn túlk- un þess tíma, sem hann lifir á. Ég er mjög hlynntur abstraktlist, sagði Ragnar að lokum, og ég held að margir hinir yngri listamenn okkar stefni þar í rétta átt. Sýning Ragnars verður opnuð í dag kl. 2 og verður hún síðan opin daglega frá kl. 10—10 í tíu daga. Jóíablað Tímans (Framhald af 12. síðu). þar á ferðalagi í haust. Jökull Jak- obsson skrifar grein um landmæl- ingar á öræfum íslands s.l. sumar. Greinin nefnist: Nú eru reiðar Kverkfjallavættir, og er hin prýði legasta lýsing á erfiði því, sem landmælingamenn verða að leggja á sig. Guðni Þórðarson skrifar grein um Grímsey, fróðleg grein, sem er prýdd mörgum myndum. Af sögum í blaðinu má nefna Forsjónin, eftir Guðmund Halldórs son, sem er hin íyrsta, sem birtist eftir höfundinn á prenti. Þá eru iþýddar sögur: Stóri vinningurinn eftir Georg W. Bengtsson og Orð í tíma töluð, eftir Margery Alling- ham. Þá er krossgáta og ýmislegt fleira efni, sem of langt yrði að telja upp hér. — Jólablaðið er óvenju snemma á ferðinni að þessu sinni, og er það gert til þess, að allir áskrifendur Tímans fái það fyrir jólin, og geti því um helgi- dagana sezt niður og lesið hið á- gætasta efni sér til skemmtunar og fróðieiks. Utsvör Reykvíkinga hækka (Framh. af 1. síðu.) Borgarstjóri fylgdi fjárhagsá- ætiuninni úr hlaði með ræðu, sem var að mestu leyti endurtekning þess, er Morgunblaðið hefir eftir honum af Varðarfundinum síðasta. Að ræðu hans lokinni tóku til máls fulltrúar minnihlutaflokkanna í bæjarstjórn, þeir Þórður Björns- son, Guðmundur Vigfússon. og Bárður Dáníelsson og gagnrýndu þeir allir áætlunina harðiega í ýmsum atriðum. Umræðan stóð fram oftir kvöldi. Umræ<Surnar á Alþingi (Framh. af 1. síðu.) bandalagsins. Efnislega var hún á þá leið, að þeir hafi eigi átt þátt í orðalagi eða framsetningu þeirr- ar tilkynningar, sem utanríkisráð- herra hefði birt, væru andvígir for sendum írestunarinnar. Hins veg- ar teldu þeir rétt að fresta við- ræðum þessum um nokkra mán- uði. Hann kvað ráðherrana og andvíga skipun fastanefndar, teldu hennar ekki þörf þar sem um væri að ræða bráðabirgðafrestun aðeins. Hitt teldu þeir til bóta, að skýrt er ákveðið í samkomu- i laginu, að ákvörðun um dvöl liðs hér er algerlega á valdi ríkis- stjórnar íslands einnar. SjálfstæSismenn fengu fundi frestað Bjarni Benediktsson talaði af hálfu Sjálfstæðismanna og lagði áherzlu á, að þeir hefðu ekki haft tækifæri til að kynna sér efni samkomulagsins; og óskaði að fá fundi frestað til morguns og ræða málið allt á fundi þá. Utanríkis- ráðherra upplýsti að hann væri á förum á ráðherrafund Atlants- hafsráðsins í París og gæti eigi rætt málið nema á yfirstandandi fundi fyrr en hann kæmi heim aft ur. Varð að samkomulagi að fresta fundi til kvölds og hófst þegar þingflokksfundur Sjálfstæðis- manna. Átti íramhaldsfundur í Sameinuðu þingi að hefjast kl. 8,30 í gærkvöldi. Þingfundurinn í gærkvöldi Á þingfundinum í gærkvöldi flutti Bjarni Benediktsson langa ræðu, og fólust í henni óskir um nánari skýringar á einstökum at riðum samkomulagsins. Hafði ræðumaður raunar skýringar frá eigin brjósti á reiðum höndum, og m.a. vildi hann enn túlka sam komulagið á þá lund, að verið væri að fjarlægja Island Atlantshafs- bandalaginu. Bjarni las upp laga greinar og samningsgreinar, virt- ist sem honum líkaði allvel ýmis atriði samkomulagsins, en stórilla að ríkisstjórnin skyldi hafi stað- ið að því. Yfirlýsing Einars Olgeirssonar Einar Olgeirsson, 3. þm. Reyk- víkinga flutti langa ræðu. í henni fólst yfirlýsing, sem var mjög á sömu lund og yfirlýsing ráðherra Alþýðubandalagsins. Þingmaður- inn lýsti stuðningi við frestunina, taldi ekki heppilegan tíma að knýja fram uppsögn samningsins nú, m.a. vegna „hugarfars" sam- starfsflokkanna, en lagði áherzlu á, að liann væri andvígur þeim for sendum frestunarinnar, sem utan ríkisráðherra lýsti, og kvaðst mundi berjast fyrir því, að málið yrði tekið upp að nýju fyrr held- ur en seinna. Utanríkisráðhérra svarar íyrirspurn Því næst tók utanríkisráðherra til máls. Varðandi nokkra aðra samninga en um væri getið í fréttatilkynn- ingu utanríkisráðuneytisins, kvaðst ráðherrann vilja taka skýrt fram, að engir aðrir samningar hefðu verið gerðir og engin drög hefðu verið lögð að nokkrum öðrum samningum. Varðandi fyrirspurnir um lán- töku, sagði ráðherrann, að ekki hefði verið minnzt einu orði á slíkt í samningunum við Banda- ríkin. Utanríkisráðherrann kvaðst vilja upplýsa, að strax í upphafi við- ræðnanna lýstu bandarísku samn- ingamennirnir yfir, að Bandaríkin væru reiðubúin að fara á brott með herlið sitt héðan af landi, ef íslendingar æsktu þess. Friðnum væri fyrst og fremst ógnað af at- burðunum í Ungverjalandi og Eg-1 yptalandi, erfitt væri að segja um, | hvar stríðshættan væri meiri. Það þyrfti í meira lagi lituð gleraugu | til þess að lýsa því yfir í dag, að friðvænlegt væri í heiminum. Ráðgefandi nefnd yrði sett á stofn til að leitast við að dæma um ástandið á hverjum tíma og í henni myndu eiga sæti þeir menn, sem í fremstu röð taka þátt í og bera ábyrgð á öllu í sambandi við varnir íslands og Bandaríkj- anna. MorgtmblaSiS vill breiSa yfir bitlingabraskið nyrðra Kallar alkunnar statSreyndir „ósannindi“, gerir gys a(5 flokkshlafönu á Akureyri Það hefir komiS við kaun Ihaldsliðsins hér að ljóstað var upp um bitlingabrask og samningamakk forustumanna Sjálf stæðismanna á Akureyri og kommúnista þar. En þetta sam- starf var innsiglað á bæjarstjórnarfundi á þriðjudaginn með handauppréttingum þessara bandamanna, sem stofnsettu sér- staka skrifstofu fyrir vinnumiðlun til að endurgjalda að fyrr verandi þingmanni Sjálfstæðisflokksins var hossað upp í stjórn Laxárvirkjunar í sumar. Morgunblaðið tekur þann kost að þræta, kallar alkunnar stað- reyndir um þessi efni „ósannindi“. Mbl.-liðið hugsar sem svo: Þrætum bara, alltaf verða einliverjir til að trúa. En á Akureyri brostu menn að afneitun Morgunblaðsins, og þó einkum að þeirri fullyrð- ingu, að flokksblaðið þar, íslend- íngur, hefði upplýst málið og gengið þannig frá því, að önnur blöð hefðu ekki þorað að æmta né skræmta síðan. Þarna gerir Mbl. gys að samherjum, því að þessu er þveröfugt farið. And- stæðingablöð íhaldsins á Akur- eyri gengu þannig frá flokksblað inu í þessu máli, er það var að reyna að klóra yfir samstarfið, að í síðasta eintaki þess, á föstu daginn var, tók það þann kostinn að þegja alveg. Augljósar staðreyndir. Það er óþarfi að hafa um þetta langt mál. Staðreynd er: Sjálfstæðisforingjarnir gengu til samninga við kommúnista þegar þeir töldu „hagsmunina“ þurfa með. Hagsmunirnir yfir skyggðu gjörsamlega fordæm- inguna á samskiptum við komm únista, sem getur að líta í öðru hverju Mbl. Til þess að ná í bitling handa skjólstæðingi eru óþörf útgjöld, margfalt hærri en bitlingurinn, lögð á bæjar- félagið. 7 atkvæði. Mbl. spyr: Hvernig fékk fram- bjóðandi íhaldsins 7 atkv. í Laxár virkjunarstjórn, þar sem fulltrúa- tala bandamannanna nýju er aðeins 6. Getur Tíminn upplýst það, spyr Mbl.? Já, Tíminn getur gjarnan gert það. Að kosningu lokinni lýsti einn bæjarfulltrúi því yfir, að hann hefði í ógáti kosið annan listabók- staf en hann ætlaði, og væri þar 7 atkvæðið. En það réði ekki úr- slitum, og skiptir því ekki máli hér. Þar hefur Mbl. skýringuna. Ætlar það enn að þræta? Kvöldvaka Framsóknarfélagaona fyrir Vesturbæinga í KR-húsinu í kvöld Eins og áður hefir verið auglýst efna Framsóknarfélögin til kvöldvöku fyrir Vesturbæinga í KR-liúsinu við Kaplaskjólsveg kl. 8,30 í kvöld. Kvöldvakan hefst með því að spiluð verður Framsóknarvist (12 spil). Að spilunum loknum verða þeim hlutskörpustu veitt verðlaun. Sýnd verður stutt kvikmynd. Síðan verður sameigin- leg kaffidrykkja og mun Þórður Björnsson bæjarfulltrúi ávarpa gesti kvöldvökunnar. Aðgangur er öllum heimill meðan húsrúm leyfir. Nánari upplýsingar eru veittar á skrifstofu Framsóknarfélaganna, sírnar 5564 og 6066. Salt til varnar geislavirkum áhrifum? PARÍS, 5. des. — Ramadier fjár- málaráðherra skýrði frá því í franska þinginu í dag, að fransk- ar húsmæður liefðu undanfarið hamstrað feiknin öll af salti, þar sem sá orðrómur hefir gengið fjöllumim hærra, að gott sé að nota salt til varnar gegn geisla- virkunum, sem stafa frá atóm- sprengjum. Fjöldi fólks keypti miklar birgðir af salti er stríðs- óttinn greip um sig í sambandi við liernaðaraðgerðir Breta og Frakka í Egyptalandi. Það kom oft fyrir, að fólk dýfði höfðinu í salthrúgu til þess að vera vel bú- ið undir hin geislavirku áhrif- atómstyi-jaldar. .V.V.V.V.V.V.V.W.V.W.’J Old Spice hinar vinsælu herrasnyrtlvörur f úrvali TöBAKSBÖÐÍN í KOLASUNDI ■V.V.V.V.’,V.V.’AV.W.VA »UimUIUiilimiHl.illll!lllllilIIIIillllHlllllllilllfllll!IIIIilllllllliIIIlliii!lll!IIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIilllll|lil|lllll||IU JÓLAFÖT Fjölbreytt úrval aí KARLMANNA- FÖTUM Oef jun - Iðunn Kirkjustræti a 3 qiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiuiuiiiiiiiiiiiiiiiiiinihk

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.