Tíminn - 08.12.1956, Qupperneq 1
íylgizt með tímanum og lesið
TÍMANN. Áskriftarsímar 232? og
81300. Tíminn flytur mest og fjöl-
breyttast almennt lesefni
40. árgangur.
12 síður
Skáldið á Þröm, bls. 4. 1
Leikhúsmál, bls. 4. ]
Básafjós og hjarðfjós, bls. 5.
Frá bændaför um Bandaríkin,
bls. 6.
Ljóðasafnið Kertaljós, bls. 7.
280. blað.
Mynd þessj var telcin af Vilhiálmi Einarssyni á Ólympíuleikunum í Mel-
bourne og er Vilhjálmur að stökkva í gryfjgna eftir hi5 geysimikla stökk,
16,25 m, sem tryggSi honum siifurverðlaunin. Myndin hefir birzt í mörg-
um blöSum víös vegar um heim, og þess þá getið, a5 Vilhjálmur hafi
unnið óvæntasta afrekfð á óiympíuieikunum.
Vilhj. Emarssce stekkur i Melbotime
Nasser kve$st aldrei hafa trúatJ því, a$ nokkur
ábyrgur brezkur stjórnmálamacSur myndi leggja
út í sískt ævintýri
,NEW YORK, 7. öes. — Nasser i
hefur látið svo ummælt í viðtali j
að árás Breta og Frakka á Egypta j
land hefði gjörsamlega kollvarp-
a‘5 öllum áæí’unum hans og út-
■ reikningum. Viðtal þetta birtist I
í síðasta tölublaði bandaríska j
vikublaðsins Time, og gefur það
giögga hugmynd um heimilis-
ástandið hjá egypsku stjórninni
.10 viðburðarríkustu daga áíak-
anna við Súez.
Nasser fullyrðir, að áður en árás
Breta og Frakka hafi neytt hann
til að breyta öllum sínum áætlun-
um, hafi egypski herinn haft í
fullu tré við heri ísraelsmanna á
Sinai-skaga, en brezk-franska árás-
in kollvarpaði cllum mínum út-
reikningum, segir Nasser.
Nasser kvaðst aldrei hafa trúað
því, að nokkur ábyrgur stjórnmála
foringi niyndi nokkurn tíma leggja
út í slíkt ævintýri.
(Framhald á 2. siöu)
Samkomulagið um varnarmálið er
eðlileg afleiðing breyttra tíma
Það er í falSu samræmi vitS áíur gefnar yfirlýs-
iagar um varnaríið og traust samstarf innan
AlSantshafsbandalagsins
Nokkur atriði úr ræðu Hermanns Jón-
assonar forsætisráðherra við iok um-
ræðna á Alþiogi í fyrrakvöid
Þegar utanríkisráðherra haíði lokið skýrslugerð sinni á
Alþingi í fyrradag, hófust umræður og fyrirspurnir, sem
einkum var til hans beint. Svaraði hann þeim öllum. Undir
lok umræðnanna í fyrrakvöld flutti Hermann Jónasson for-
sætisráðherra stutta ræðu um nokkur meginatriði samkomu-
lagsins og varnarmálsins og minnti á þá staðreynd, að það,
sem gerzt. hefir nú, er eðlileg afleiðing breyttra tíma i ver-
öldinni, og í fullu samræmi við fyrri yfirlýsingar.
Það er ekki afstaða okkar, sem heíir breytzt, það sem
hefir breytzt er ástandið í heiminum, sagði forsæíis-
ráðherra.
FnIStsrúi Fiiippseyja
kjörinn s öryggisráðið
New York, 7. des: •— Fulltrúi
Filippseyja var í dag kjörinn í ör-
yggisráð S. Þ. í stað fulltrúa Júgó-
slafíu, en hans kjörtímabil er nú
á enda. Fulltrúi Filippseyja hlaut
50 atkvæði, en iékkneski íulltrú-
inn hlaut 20 atkvæði, en hann naut
stuðnings Rússa og leppríkjanna.
Heybruni á
Seltjarnarnesi
Slökkviliðið í Reykjavík var í
gærmorgun kvatt að Nesi á Sel-
tjarnarnesi en þar hafði komið
upp eldur í heyhlöðu. Fóru slökkvi
liðsmenn á staðinn og var þá nokk
ur glóð í heyinu og reykur. Und-
anfarna daga hefir slökkviliðið
verið kvatt nokkrum sinnum íil
þess að slökkva í hlöðu þessari en
eldur jafnan gosið upp aftur að
I nokkrum tíma liðnum. Um kl. 5
i í gærdag kom enn kvaðning og'
I var eldur kominn í hlöðuna. Síð-
ast þegar blaðið átti tal við slökkvi
liðið í gærkvöldi unnu tíu slökkvi
liðsmenn að því að rífa út hey
og eru allár líkur til þess, að rífa
verði allt heyið út úr hlöðunni
til þess að komast fyrir eldinn.
V.b. Keilir fékk áfalS,
en setti aflamet í
sama róðri
I fyrramorgnn kom vélbátur-
inn Keilir til Akraness með mesta
síldarafla, sem um getur í reknet
í einum róðri, enda þótt hann
. hefði misst út allt að citt hundr-
| að tunnum ,er ólag reið yfir bát-'
i inn á leið til lands. Keilir fékk
I þennan mikla afla í Grindavíkur
sjó. Er báturinn átti eftir rúm-
Iega ldukkutíma siglingu til
Akraness fékk hann á sig brot-
sjó sem skolaði út síld af þilfari
j og laskaði bátinn þannig, að leki
kcm að honum. Vélin stöðvaðist
er sjór kom í vélarrúm. Var þeg-
ar sent út neyðarmerki. Björg-
unarskipið Sæbjörg liélt þegar af
stað í átt til Keilis. Einnig Akra-
nesbátarnir Ásbjörn og Höfrung
ur, en þeir sneru við er Keilis-
menn sögðu þeim að Sæbjörg
væri komin á staðinn.
(Framhald á 2. síðu.)
Forsætisráðherra hóf mál sitt j
með því að taka til meðferðar þá |
fullyrðingu Sjálfstæðismanna, að j
ann hafa endurspeglast í um-
ræðunum.
Annað sjónarmið er það, að
hér eigi aldrei að vera her,
hvernig sem á stendur.
Og þriðja skoðunin er sú, og
að henni standa Framsóknar-
menn og Alþýðuflokksmenn,
að nota eigi fyrsta tækifæri sem
býðst til að ljúka hersetu í land-
inu og taka við varnarstöðvunum
og gæta þeirra á friðartímum,
og þessi stefna var áréttuð í kosn
ingunum og lýsti utanríkisráð-
herra í skýrslu sinni.
Og þannig geti stöðvarnar þegar
gegnt hlutverki sínu ef ástæða
þætti til að kalla inn her vegna
ófriðarhættu eins og gert var hér
1951.
Þessi stefna var greinilega mörk
uð fyrir kosningar og hún kom
skýrt fram í yfirlýsingu þeirri, sem
utanríkisráðherra birti um utan-
ríkisstefnu stjórnarinnar þegar eft
ir stjórnarmyndunina.
Það, sem hefur breyzt, er ekki
eins og sagt hefur verið hér í
þingræðum skoðun okkar á þessu
máli. Hún stendur óhögguð. Það,
sem hefur breytzt og er ástand-
ið í heiminum.
Forsætisráðherra rakti því næst
nokkuð það, sem gerzt hefur í
veröldinni síðustu vikurnar, og
spurði, hvort nokkur þingmaður
treysti sér til að standa upp og
segja, að hann hefði séð þá at-
burði fyrir. Allt fram til þess tíma
höfðu margir stjórnmálamenn
víða um heim talið að stöðugt
þokaðist í átt til friðvænlegri tíma
og færu þeir batnandi.
LONDON, 7. des. — 65 þingmenn
í fulltrúadeild brezka þingsins úr
öllum flokkum, hafa fordæmt harð
lega hernaðarárás Rússa á Ung-
verja og afskipti þeirra af málum
Ungverjalands. Leggja þeir til, að
ef eftirlitsmönnum S. Þ. verði neit-
að að fara til Ungverjalands,
skyldu stjórnir allra þeirra landa,
sem greiddu atkvæði með því að
senda eftirlitsmenn S. Þ. til að
kynna sér ástandið, fara þess á leit
Við sendiherra sína í Búdapest, að
þeir semji ítarlega greinargerð
um atburðina í Ungverjalandi og
öll skýrslan síðan send til alls-
herjarþingsins til rannsóknar.
gverskum flotta
loðin landvist hér
íslenzk flugvél sæki fóSkið til
í Ausíurríki
Ríkissjórn íslands hefir sam-
kvæmt ákvörðun þeirri, sem áð-
ur var gerð og tilkynnt hefir
verið, ákveðið að bjóða Alþjóða
flóttamannastofnuninni að taka
við 50—60 landflótta Ungverjum
til dvalar hér á landi. Jafnframt
hefir Rauði kross íslands boðizt
til að senda fulltra til Vínar til
þess að undirbúa brottflútning
þessa fólks, sem til íslands vill
flytjast, og verður það síðan flutt
liingað með íslenzkri flugvél.
(Fréttatilkynning frá ríkis-
stjórninni.)
Hermann Jónasson
Framsóknarmenn og Alþýðuflokks
menn hefðu skipt um skoðun í
varnarmálunum. Hann taldi að uppi
mundu vera með þjóðinni þrjár
meginslcoðanir um þessi mál, og
hefði það komið fram við atkvæða
greiðslur á Alþingi og í útvarpi
og blöðum, að þær ættu allar tals-
menn.
Þrenns konar sjónarmið
Sumir hugsa þessi mál þann-
ig, að hér eigi að vera her, ef
nokkur hætta er, og aldrei .eigi
að taka neina áhættu. Telja, að
í stríðinu og eftir stríðið hafi
komið hér svo miklar varnar-
stöðvar og varnarmannvirki að
síðan sé hér sífelld hætta, ef
stöðvar þessar séu mannlausar.
Þetta sjónarmið taldi ráðherr-
Ekkert annað í samræmi
við yfirlýsingar
En þegar slíkir atburðir hafa
gerzt í veröldinni, þá getur það
vissulega ekki dulizt neinum, að
það var ekki hægt að gera annað
undir þeim kringumstæðum, sem
fyrir lágu, og ríkisstjórnin hefur
gert. Og ekkert annað væri heldur
, í samræmi við yfirlýsingarnar fyr
ir og eftir kosningar. Forsætisráð-
herra varpaði fram þeirri spurn-
ingu, hvernig þeir, sem greiddu
atkvæði með því að fá varnarlið
1951, ættu nú að krefjast brott-
farar þess, enda þótt þeir álíti að
' ástndið sé a.m.k .ekki betra,
í kannske verra, en það var þá?
I Slík krafa um brottför á þessum
i tímum væri í ósamræmi við stefnu
{ríkisstjórnarinnar og yfirlýsingar
i um samstarf við aðrar þjóðir.
í (Framh. á 2. síðu.)