Tíminn - 14.12.1956, Side 6

Tíminn - 14.12.1956, Side 6
6 T í MIN N, föstudaginn 14. desember 1956, Útgefandi: Framsóknarflokkurinn. Ritstjórar: Hauknr Snorrason Þórannn Þórarinsson (áb.). Skrifstofur í Edduhúsi viB Lindargötu Slmar: 81300. 81301, 81302 (ritstj. og blaSamenn), auglýsingar 82523, afgreiðsla 2323. Prentsmiðjan Edda h.f. Betra að borga útlendingum! „EF SÍS hefði tekið þessa afstöðu hefðu olíufé- lögin eignazt olíuflutninga- skip fyrir fjórum árum . . .“ Þetta eru orð Morgunblaðs- ins í gær, og munu verða lengi í minnum höfð. Hvað merkja þau? í aðalgreinum, að ef SÍS, samtök fólksins í landinu, hefðu samþykkt fyrir fjórum árum, að olíu- flutningaskip, er þá var unnt að kaupa, væri jafnt undir stjórn samtakanna og út- lendra olíuhringa, mundi Sjálfstæ(ðisflokkurinn ljá máls á því, að láta úti leyfi, sem pólitískir umboðsmenn oliuhringanna sátu á. Með þessari eftirminnilegu yfirlýs ingu hefur Sjálfstæðisflokk- urinn lýst viðhorfi sínu til þjóðmála öllu hreinskilnisleg ar, en menn eiga að venjast. Það hlýtur að fara um al- menna kjósendur „allrastétta flokksins", að sjá á prenti í sjálfu Morgunblaðinu, að fylgi flokksins við íslenzkt olíuskip hafi verið háð stuðn ingi við útlenda oliuhringa. Þurfa menn frekar vitna við auk raunverulegt innihald ,sjálfstæðisbaráttunnar‘? ,Ef SÍS hefði tekið þessa afstöðu ... !“ Það var bara það. Með þessu er játað, svo augljós- lega, sem verða má, að það hafi verið pólitískar spekúla- sjónir og ekkert annað, sem stóðu í gegn leyfisveítingu. Ef leyfi hefði fengist, mundi íislenzka þjóðin nú eiga 2 olíuskip a. m. k., e. t. v. 3, og vera algerlega laus af klafa útlendra olíuskipaeig- enda, sem hafa mjólkað þetta þjóðfélag um tugi milljóna króna á síðustu árum. MENN verða að muna •það í þessu sambandíi, áð olíuflutningar eru ekki smá- mál í þjóðarbúskapnum, held ur allt aö því helmingur allra flutninga til landsins að þungamagni, og farm- gjöld skipta tugum milljóna á ári, verða sennilega yfir 100 millj. króna. Það er því ekkert smámál, hvort íslenzk ir aðilar eða útlendingar nota farmgjöldin til þess að efla sta(rfrækslu sína. Það er í raun og sannleika eitt hið mesta hagsmunamál þjóðfélagsins, þótt lengi hafi legið í láginni. NÚ ER komið skipið og Ingólfur á Hellu segir lands- mönnum að betra sé að borga útlendingum farmgjöld en íslendingum. Morgunblaðið segir fullum fetum að ef SÍS hefði reynzt ofurlítið þjálla í viðskiputum við Shell og BP hefði ekki staðið á Sj álfstæðisflokknum að veita leyfi fyrir olíuskipi. Þarf nú frekar vitna við? í hvers þjónustu er svona flokkur? ÞAÐ ER lærdómsríkt, að þegar það liggur fyrir og öll- um augljóst, að töfin á leyfis veitingunni hefir kostað þjóð félagið 20 millj. króna, kem- ur Morgunblaðiö og segir: að SÍS hefði verið þjálla í samn- ingum við Shell á íslandi og British Petroluem ef íhaldið hefði Ijáð máls á leyfi. Þetta eru orð Morgunblaðsins. Þau standa þar og lýsa viðhorfi, sem mun vera öllum þorra landsmanna algerlega fram- andi. Þá er að kunna að draga réttar ályktanir af þvi. Ætla má, að þar séu flestir sjálfbjarga. „Shock" í Aðalstræti MORGUNBLAÐIÐ Og íylgiblað þess eru uppvís að því að hafa símað rangar fregnir af samningamálum íslendinga og Bandaríkja- manna til útlanda. Þessi fréttastarfsemi gekk svo langt, að talsmenn utan- ríkismálaráðuneytis Banda- ríkjanná gátu ekki orða bundizt heldur sögðu, að allt væri þar úr lagi fært. Eink- um að því er varðaði sam- stöðu íslands og Atlantshafs þjóðanna. Þar væri engin á- stæða til ummæla, sem frétta menn í Reykjavík hefði birt. ÞEGAR þetta allt er sannað og ótvírætt, segir Mbl. að aðeins hafi verið um smávægilegan misskilning að ræða, en þegar Mbl. menn telja hæfilegan frest úti, segja þeir að þeir hafi alla tíð sagt rétt og frómt frá. „Shockið", sem talsmenn í Washington lýstu yfir komi þeim bara hreint ekkert við. STAÐREYND ER, að Morgunblaðið fór herfilega rangt með fregnir af varnar málasamkomulaginu, og ó- frægingarskeyti urðu til þess að gera málstað í íslands tor tryggilegan. ÞAÐ ER „shock“ fyrir heiðarlegt fólk að sjá þessar aðfarir. Verst er þó að sjá Mbl. halda því fram, að það geri rétt í því standa þannig aö íslenzkum málefnum. MENN GETA deilt um málefni og haft skiptar skoð- anir á hlutum innan þess þjóðfélags sem þeir lifa í, en það gefur augaleið, að að mjög er hæpið að menn geti haldið þannig á mál- um, að hættulegt sé heild- inni. Það er aldrei neinn mál flutningur að reifa röksemd- ir sínar með röngum forsend um. Jafnvel þótt hægt sé að komast upp með slíkan moð- reyk í byrjun, kemur að því að ósannindin koma í ljós og vekja ógeð allra sannsýnna manna. FRÉTTAÞJÓNUSTU er- lendra blaða hérlendis hefur verið mjög ábótavant frá því fyrir kosningar og hafa verið pólitískt litaðar. Erlend Pistlar frá New York: Výr saraverkamaðnr Dulles Herter fær góða dóma sem væntanlegur alSstotJarutanríki’sráíherra New York, 9. des. SÍÐAN forsetakosningarnar fóru fram í Bandaríkjunum, hefir mik- ið verið um það rætt í blöðunum, hvort John Foster Dulles myndi vera utanríkisráðherra áfram og hver væri líklegasti eftirmaður hans, ef hann léti.af störfum. Yfir- leitt virðist það' nú álitið, að Eis- enhower láti ekki Dulles hætta, nema hann óski sjálfur eftir því, þar sem hann beri fullt traust til hans. Það virðist einnig álitið, að Dulles. vilji vera utanríkisráðherra áfram meðan heilsan endist. Að ó- breyttum ástæðum virðist því ekki líklegt, að Dulles dragi sig í hlé. En þetta getur breytzt fljótlega, því að Dulles er orðinn gamall og hefir nýlega verið skorinn upp við krabbameini. Talið er, að sú aðgerð hafi heppnast vel. Jafnhiiða því, sem það þykir nú nokkurn veginn víst, að Dulles muni ekki láta af störfum fyrst um sinn, þykir það einnig orðið öruggt hver verður eftirmaður hans, ef hann skyldi forfallast fljótlega. Þetta byggja menn á þeirri tilkynningu, sem Eisenhow- er lét birta í gær þess efnis, að 1. febrúar næstkomandi muni Chri- stian A. Herter verða aðstoðarut- anríkisráðherra Bandaríkjanna í stað Herberts Hoovers yngra, sem lætur þá af því starfi. Herter ríkisstjóri er einn þeirra manna, sem að undanförnu hafa verið taldir líklegastir til að taka við af Dulles, ef hann léti af störf- um. Hinir eru Thomas Dewey, fyrrv. ríkisstjóri í New York, Ca- bot Lodge, aðalfulltrúi Bandaríkj- anna hjá S. Þ., McClay, fyrrv. her- námsstjóri Bandaríkjanna í Vest- ur-Þýzkalandi, og Gruenter, fyrrv. yfirhershöfðingi Atlantshafsbanda- lagsins. CHRISTIAN A. HERTER ríkis- stjóri er 61 árs gamall, fæddur í París. Bæði móðir hans og faðir voru mjög listhneigð og dvöldu við listnám í París, þegar Herter fæddist. Þau voru þá fremur fá- tæk, en varð síðar allvel ágengt á listamannsbrautinni, þótt hvorugt þeirra hlyti mikla frægð. Herter reyndist snemma milcill námsmað- ur og lauk hann laganámi við Har- vard-skólann 1915 með mjög hárri einkunn. Hann gekk strax að nám- inu loknu í utanríkisþjónustuna og starfaði fyrst á annað ár við bandaríska sendiráðið í Berlín. Seinna var hann fluttur til Brus- sel og dvaldi þar þangað til Bandaríkin gerðust stríðsaðili. Meðan Herter dvaldi í Brussel, samdi hann ítarlega skýrslu um nauðungarflutninga á belgískum borgurum til Þýzkalands. Skýrsla þessi vakti mikla athygli og herti á andstöðu Bandaríkjastjórnar gegn Þjóðverjum. Hún átti hins vegar eftir að valda Herter sjálf- um alvarlegum erfiðleikum, því að Þjóðverjar handtóku hann sem njósnara, er hann var á leið til Sviss frá Brussel, en bandaríska sendiráðið þar var lagt niður, þeg- ar Bandaríkin gerðust stríðsaðili. Eftir miklar yfirheyrslur og fang- blöð hafa birt þessar fregnir vegna þess, að þau vita ekki betur en þeim séu sendar hlutlausar fréttir samkvæmt anda allrar óháðrar frétta- mennsku. En það er ekki einstefnuakstur í rógsfrétt- um íhaldsblaðanna hér. Eft- ir að farið er að minnka um gróusögurnar hér að heim- an, fara sömu aðilar og sendu þær út á sínum tíma, að flytja þær inn í mynd afbak- aðra frásagna, sem hermd- ar eru upp á virðuleg erlend blöð og þessir „móttakarar“ og „sendirar“ vilja svo við ekkert kannast þegar bent er á ófrægingarstríð þeirra gegn íslenzkri þjóð. Herter elsisvist í eina nótt, tókst Herter að sannfæra Þjóðverja um, að hann væri diplomatiskur embætt- ismaður. Annars hefði hann verið skotinn samstundis. Eftir að Herter kom heim til Bandaríkjanna, hugðist hann að ganga í herinn, en var neitað um inngöngu. Ástæðan var sú, að hann var ekki talinn hafa líkamsþunga, er samsvaraði hæð hans. Ilerter er með hæstu mönnum eða 6 fet og rúmir 5 þumlungar á hæð. Hann hefir gildnað með aldrinum og samsvarar sér nú allvel. HERTER GEKK aftur í utanríkis- þjónustuna, þegar honum var neit- að um inngöngu í herinn. Hann varð ritari nefndar þeirrar, er skipulagði heimflutning herfanga frá Þýzkalandi og síðar varð hann starfsmaður amerísku sendinefnd- arinnar, sem vann að friðarsamn- ingunum í París. Um svipað^leyti kynntist hann Herbert Hoover, er síðar varð forseti. Sá kunnings- skapur leiddi til þess, að Hoover réði hann nokkru seinna í þjón- ustu sína, en hann var þá yfirmað- ur víðtækrar hjálparstarfsemi í Evrópu. M. a. ferðaðist Herter þá fram og aftur um Sovétríkin til þess að afla upplýsinga um, hvern- ig hjálparstarfsemin gengi þar. Eftir að þessu starfi lauk, gerð- ist Herter starfsmaður í verzlun- armálaráðuneyti Bandaríkjanna, en Hoover var þá verzlunarmála- ráðherra. Árið 1930 ákvað Hérter að skinta um atvinnu. Hugur hans hafði jafnan beinst að stjórnmál- um og hann ákvað því að gefa sig alveg að beim. Hann bauð sig fram til fvlkisbingsins í MassachusettS og náði kosningu. Þar átti hann sæti í 12 ár og var fiögur seinustu árin forseti fulltrúadeildarinnar. Árið 1942 náði hann kosningu til fulltrúadeildar Bandaríkjaþings og átti þar sæti næstu 10 árin. Allan bann tíma átti hann sæti í utan- ríkisnefnd deildarinnar og vann sér mikið álit þar. Hann var m. a. talinn eiga mikinn bátt í því, að lögin um Marshallhjálpina kom- ust klakklaust gegnum fulltrúa- deildina. Herter er sagður hafa notið mikils álits þingbræðra sinna. Árið 1952 skoruðu flokksbræður Herters á hann að gefa kost á sér sem ríkisstjóra í Massachusett. Mjög vinsæll demokrati var þá ríkisstjóri þar. Herter, sem gjarn- an vildi vera á þingi áfram, lét und an flokksbræðrum sínum. Hann náði kosningu og þótti það mikill persónulegur sigur, því að þetta sama ár féll flokksbróðir hans, Cabot Lodge, núv. aðalfulltrúi Bandaríkjanna hjá S. Þ., við öld- ungadeildarkosningu í Massachu- sett eftir að hafa náð þar kosn- ingu sem öldungardeildarmaður tvívegis áður. Herter var svo end- urkosinn 1954, en gaf ekki kost á sér í haust. Hann er talinn hafa reynst mjög vel sem ríkisstjóri, enda kom hann mjög til tals sem forsetaefni republikana, ef Eisen- hower hefði forfallast. Harold Stassen beitti sér fyrir því á sein- ustu stundu, að Herter yrði vara- forsetaefni republikana í stað Nix- ons, en sú tilraun misheppnaðist m. a. vegna þess, að Herter sjálf- ur lýsti yfir stuðningi við Nixon og gerðist aðalframsögumaður að útnefningu hans á flokksþingi republikana. HERTER RÍKISSTJÓRI hefir jafn an verið talinn tilheyra hinum frjálslyndara armi republikana, (Framhald á 8. síðu). 'BAVsromN Danir hampa list. FYRIR NOICKRUM árum hóf danska samvinnuhreyfingin út- gáfu á endurprentunum á ágæt- um listaverkum eftir samtíma- listamenn. Forustumenn sögðu, að tilgangurinn væri að veita al- menningi tækifæri til þess að prýða heimili með góðri list, taka fjárhagslega hindrun úr vegi þorra fólks, sem gjarnan vill njóta listar. Þessir dönsku forvíg- ismenn töldu prentlist komna á það hátt stig, að þetta væri unnt að gera þannig, að öllum yrði til gagns. Listamenn fengju nokkurt fé fyrir erfiði sitt, heimilin aftur á móti myndir, sem horfa til upp- eldis og menntunar. Með þessu var líka unnið að því að útrýma alls konar glansmyndum og þeirri tízku, að rammagerðir ráði mestu um það, hvað menn hengja upp heima hjá sér. í framhaldi af myndaprentuninni hófu dönsku samvinnumennirnir að styðja framleiðslu fallegra listmuna úr leir, gleri og postulíni; hófu til vegs nýtt viðhorf í húsgagnagerð, studdu eindregið framleiðslu heimilisbúnaðar, sem er í senn fallegur og hagnýtur. Af þessari starfsemi hefir orðið hið mesta gagn. Dönsk heimilismenning, sem stendur á gömlum merg, lief- ir notið góðs af. íslenzk prentlist. ÞETTA KEMUR í hug þegar at- hugaðar eru útgáfur listaverka, sem nú eru á boðstólum í ódýr- um útgáfum. Mappa með nútíma- list, eftir 10 nafnkunna lista- meniv kostar 250 kr.; þjóðkunnur listamaður hefir gefið út 10 mynd- ir prentaðar í möppu fyrir 150 kr. Prentun á þessum teikning- um er þannig, að aðgæzlu þarf til að sjá, hvort um prentmynd eða frumrit er að ræða. Með þessil framtaki er stigið spor í rétta átt. Raunar er þetta ekki nýjung. Þetta er aðeins smækkuð mynd af hinni glæsilegu málverkaprent- un og útgáfu Ragnars Jónssonar. Þar eru litfögur málverk prentuð með fullkominni tækni erlendis. Það sem hér er á bent. er ekki svo stórt í sniðum. En prentun er gerð heima, og hún er vottur um íslenzka prentlist og sómir sér vel. Tíð postulínshundanna. MENN HAFA löngum haft postu- línshunda og glerkýr í flimting- um, og víst er liðin sú tíð, að mynd af Rússakeisara og danskrl konungsætt prýði íslenzk heimili. En menn þurfa ekki nema koma inn í íslenzka rammagerð til að sjá, hvað enn er hengt upp á veggi í íslenzkum heimilum. Þar ægir oft saman furðulegum hlut- um; danskir og brezkir veiði- hundar með önd í kjafti, og rauð- jakkaður aðalsmaður með 10 þús- und króna haglabyssu í hendi; eða fornfálegur kastali við Rín eða ámátlega lituð ljósmynd af íslenzku landslagi. Þetta má allt sjá í einni rammagerð, og margt fleira. Útgáfa listaverka vinnur gegn þessari húsaskreytingu. Slík útgáfa gegnir því allmerku hlut- verki. Ilún á skilið stuðning. — FrostL

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.