Tíminn - 06.02.1957, Side 1
Jftrlgizt með tímanum og lesið
TÍMANN. Áskriftarsímar 2323 of
81?()C. Tíminn flyt’ir mest og fjö)-
breyttast almennt lesefni.
41. árgangur.
Efnl blaðsins f dag. "3
Útvarpsræða forsætisráðherra, ■!
bls. 4. ^
Heimsókn á æfingu Menntaskóla-
nema, bls. 7.
Á kvenpalli, bls. 8.
J
30. bíað.
Menn telja útvarpsumræöurn
ar hafa veriö Særdomsríkar
Daglegar handtökur og líflát undir
ógnarstjórn ungverskra kommúnista
Um allt land segir maður við mmm Hörmu*
lega fóru Sjálfstæðismenn út íir þessu. Kæi
komíð tækifæn stjórnarflokkaeea íil þess
að hnekkja áróðri
Það er almannadómur eftir útvarpsumræðurnar, að aldrei
hafi nokkur flokkur orðið jafn hart úti í kappræðum á Alþingi
og Sjálfstæðisflókkurinn í útvarpsumræðunum í fyrrakvöld.
Undrast menn mjög, að flokkurinn skvidi sjálfur stofna till
þessara hrakfara með þingsályktunartillögu sinni.
Eftir umræðurnar liafa málin
skýrzt fyrir landsmönnum, stjórn-
in stendur sterkari eftir en áður,
látlaus óhróður og áróður Sjálf-
stæðisblaöanna sést nú í réttu
Ijósi. Tíminn hefir átt tal við menn
í ýmsum iandshlutum um útvarps-
umræðurnar og höfðu þeir m. a.
þetta að segja:
Reykjavík: Ýmsir Sjálfstæðis-
menn voru undrandi, að leiðtogar
þeirra skyldu leggja í þessar út-
varpsumræóur með svo lélegt vega
nesti. Niðurstaðan varð líka slæm.
Bjarni og Ólafur réttu sig aldrei
úr kútnum, betur hefði verið
heima setið.
Akureyri: Sjálfstæðismenn marg
ir hafa verið óánægðir með stjórn-
arandstöðuna og telja hana óskyn-
samlega. Þessir menn eru mjög'
< daufir í dálkinn eftir útvarpsum- j
ræðurnar. Lengi getur vont versn-
að. Flokksmenn eru hnípnir og
þykir ferð þeirra Bjarna og Ólafs
ill orðin. Annarra flokka menn
Óþekkt flugvél yfir
Norður-Svíþjóð
STOKKHÓLMI—NTB 5. febrúar:
Óþekkt flugvél flaug í dag yfir
N-Svíþjóð. Sænsku hernaðaryfir-
völdin hafa skýrt svo frá, að eng
in sænsk flugvél hafi verið á flugi
á þessum slóðum í dag og geti því
ekki verið um sænska vél að ræða,
þar sem engar farþegaflugvélar
hafi heldur verið á flugi þar á
þessum tíma.
segja helzt þetta: Aldrei hélt ég
það ætti eftir að koma fyrir mig,
að kenna í brjósti um Sjáífstæðis-
flokkinn. En maður varð að vor-
kenna þeim. Þetta voru svo óskap
legar hrakfarir.
Bóndi á Suðurlandi: Ómögulegt
annað en útvarpsumræðurnar hafi
verið stór ávinningur fyrir stjórn-
ina. Er hissa, hve Sjálfstæðismenn
stóðu sig illa. Sérstaklega vakti
það furðu, að þeir skyldu ekki
minnast á eitt einasta jákvætt mál
í öllum umræðunum. Aðstaðan og
vígstaðan voru auðvitað ekki góð-
ar, en þó vart ástæða til að svona
illa færi fyrir þeim, ef þeir hefðu
tekið jákvæðar á málum.
Bóndi á Héraði: Stuðningsmenn
stjórnarinnar hér um slóðir eru
sérstaklega ánægðir með útvarps-
umræðurnar, og teljurn, að þar
hafi gefizt kærkomið og vel notað
tækifæri til að leiðrétta misskiln-
ing og áróður, sem Sjálfstæðis-
menn hafa dreift út. Mönnum ber
yfirleitt saman um þetta, og að
Sjálfstæðismönnum hefði verið
betra að sitia heima en af stað að
fara. Umræðurnar voru prýðilegar.
ísafirði í gær. Mönnum þótti
hér sem nú væri á Sjálfstæðis-
mönnum gengið í útvarpsumræðun
um, og að jöfnu mundi hafa vald
ið málstaðurinn og illt sálarástand
foringjanna. Menn líta svo á, að
stjórnarflokkarnir hafi haft mik
inn hag af umræðunum, margt
hafi skýrzt fyrir mönnum og mál-
in liggi nú miklu ljósar fyrir en
áður, þegar áróðursreyk þeirra
Sjálfstæðismanna er burtu blásið.
Það var margt, sem upplýstist
í þessum umræðum, og það meðal
annars, að nú eru Sjálfstæðismenn
meira en lítið miður sín .
i
Frá fundi rússneska æfcfaráSsims
Megináherzlan verður
lögð á þun gaiðnaðinn
AHir heíztu leiðtogarnir
Mosltva-NTB, 5. febrúar. —
Fundir æðsta ráðs Ráðstjórnar-
ríkjanna var settur í dag og voru
þar viðstaddir allir helztu leið-
togar Rússa, m. a. Malenkov,
Shepilov, Kaganóvitsj og Serov,
en að undanförnu liefir orðróm-
ur verið uppi um það, að menn
þessir væru alvarlega veikir.
Á fundinum í dag flutti Pervu-
hin fyrsti varaforsætisráðherra
landsins ræðu, en hann er helzti
sérfræðingur Rússa í efnahagsmái
um.
7—8% aukning þungaiðnaðarins.
Pervuhin skýrði svo frá að meg-
ináherzlan yrði lögð á bungaiðnað
landsins og væri ætlunin, að iðn-
aðarframleiða landsmanna yrði
aukin um 2,5% miðað við síðasta
ár.
Þungaiðnaðarframleiðslan yrði
aukin um 7—8% og framleíðsla
á neyzluvörum um 5,9% miðað við
síðasta ár.
Pervuhin sagði að verzlunarvið-
skiptin vjð lönd í V-Evópu hefðu
aukizt á síðasta ári, en ekki væru
miklir möguleikar á frekari aukn
ingu slíkra viðskipta við hin kapí
talisku lönd sökum tregðu for-
ustumanna þeirra að stofna til
þeirra viðskipta.
KADAR
— handtökur og líflát
Ægileg spreng
ing í Nevada
Fjöldi fólks ferst
RENO—NTB—
Ægileg sprenging varð í dag í
hinum fræga skilnaðarbæ Reno
í fylkinu Nevada í Bandaríkjttn
um. Hús í bænum skulfu og
nötruðu við sprenginguna og heil
gata stóð skyndilega í Ijósum
logum. Jarðgas mun vera orsök
þessarar sprengingar. Fjórar
stórar byggingar stóðu í Iogum
eftir sprenginguna og fólk flýði
út úr liúsum sínum. Brunaliðs-
bílar bæjarins komu á vettvang,
en er liefja átti björgunarstörfin
komu tvær nýjar sprengingar.
I Eldslogarnir og reykjarmekkirn
! ir stóðu 109 metra upp í loftið.
Síðustu fregnir hermdu, að sum
I ar göturnar liefðu verið þaktar
' látnu og særðu fólki, en ekki
I var vitað, hve margir fórust.
Björn Pálsson setur
skíði á fíugvél sina
Björn Pálsson, flugmaður hef-
ir uunið að því síðustu dagana
að setja skíði á flugvél síua. Er
þetta í fyrsta sinn, sem skíði eru
sett á íslenzka flugvél. Skíðin
hefir Björn pantað frá Ameriku.
Ætlun Björns er að fljúga til ým
issa staða, þar sem flugvellir eru
undir snjó, og telur hann engin
tormerki að nota skíðin í stað
hjóla, ef með þarf. Mun hann
halda áfrain flugi að venju, þrátt
fyrir verkfall flugmanna, þar eð
j það nær ekki til einkaflug-
i manna. í gær fór Björn austur á
I Hornafjörð og sótti þangað tv.er
veikar konur.
Heuss heimsækir Banda-
ríkin í marz
WASHINGTON 4. febrúar: Til-
I kynnt var í Washington í dag, að
Heuss forseti V-Þýzkalands væri
væntanlegur í opinbera heimsókn
til Bandaríkjanna í marz næst-
komandi.
Kadar lýsir því yfir að sérhver ný uppreisn-
artilraun verði barin niður með miskueear-
lausri hörku
Orírómur um, aí ný uppreisn sé í vændum á
byltingarafmælinu í marz. — 1300 stúdentar
í Sofía fluttir í þrælabúðir vegna samúíar
met) Ungverjum
LONDON — NTB 5. febrúar:
Tilkynnt var í Búdapest í dag,
að 3 ungverskir háskólaprófessor
ar og 7 stúdentar hefðu verið
handteknir í síðustu viku er hús
rannsókn hefði farið fram í há-
skólanum í Búdapest. Einn hinna
handteknu er sakaður um að
hafa gefið út og deilt út ólög-
legu blaði, en annar er sakaður
um að hafa unnið að skipulagn
ingu samsærishrings gegn stjórn
inni.
HÚSRANNSÓKNIN HELDUR
ÁFRAM.
í tilkynningunni segir ennfrem
ur, að lögreglan hafi fundið mikl
ar birgðir í háskólanum af sprengi
efni og vólbyssum. Húsrannsókn
er nú haldið áfram af miklum
krafti í Búdavest.
ER NÝ BREYTING í
VÆNDUM.
Kadar forsætisráðherra lepp-
stjórnarinnar flutti ræðu í Búda
pest útvarpið í dag.
Ræddi Kadar nokkuð þann orð
róm, að ný bylting væri í vænd-
um í marzmánuði, en þá er af-
mæli byltingarinnar 1848. Kadar
sagði, að afturhaldsöflin maeittu
sín enn mikils á ýmsum stöðum í
landinu, ekki sízt úti á lands-
(ð'ggðinni svo og í menntaskól
' urn og háskólum. Öfl þessi væru
enn svo sterk, að þau gætu efnt
til ófriðar á nýjan leik.
Kadar kvaðst vilja vara við þvi
að sérhver ný uppreisn yrði misk
unnarlaust barin niður með mestu
hörku.
I
MIKIÐ UM HANDTOKUR
Handtökum er haldið áfram af
fullum krafti í landinu. Nokkrir
! námumenh voru handteknir í V-
Ungverjalandi í dag sakaðir um að
hafa haft vopn undir höndum. í
þorpi einu við landamæri Austur
ríki voru 3 menn handteknir í
dag sakaðir um að hafa brotizt inn
í ráðhús staðarins í leit að skjöl
um. 4 Ungverjar voru handteknir
I í dag samkvæmt frásögn ung-
.verskra blaða fyrir að hafa aðstoðað
flóttamenn við að komast úr landi.
Já
BANNSVÆÐI VIÐ
JÚGÓSLAFÍU.
Ungverska stjórnin hefir lýst yf
ir umferðabanni við landamæri
Júgóslafíu og fái enginn að fara
þar um, nema með sérstöku leyfi.
j Varðgæzla á þeim slóðum hefir
verið aukin til þess að koma í veg
j fyrir hinn síaukna flóttamanna-
straum til Júgóslafíu eftir að eftir-
litið var stórkostlega hert við aust
urrísku landamærin til að stöðva
flóttamennina.
Samkv. frásögn ungverskra yfir
(Framhald á 2. síðu.)
Lauris Norstad:
Dregið úr herafla NATO í MiðEvrépu
vegna komu öflugra kjamorkuvopna
V-Þjóðverjar leggja fram herlið
til varnar Vestur-Evrópu
LONDON, 5. febrúar: — Lauris tryggja enn varnarkerfi Atianta-
Norstad, yfirmaður alls lierafla hafsbandalagsins.
Atlantshafsbandalagsins sagði í
ræðu í dag', að áætlað væri að
bandalag'ið þyrfti að Iiafa 30 her-
fylkjum á að skipa til landvarna
við Mið-Evrópu, en það er um
liálfu niinna herlið en talið var
nauðsynlegt fyrir tveimur árum
til varna á þessu svæði. Norstad
sagði, að liægt væri að fækka her
liði bandalagsins í M-Evrópu
með liliðsjón af því að kjarnorku
vopn væru komin í hendur þess.
Árið 1954 og 1955 var talið, að
NATO þyrfti að liafa 60—90 her-
fylki lil varnar M-Evrópu. Gert er
ráð fyrir, að Þjóðverjar leggi fram
nokkur herfylki til landvarna ó
þessum slóðum á vegum Atlants-
hafsbandalagsins, m. a. 3 vélaher-
fylki og nokkrar flugdeildir, aðal-
lega flutningaflugvélar.
Norstad sagði í ræðu sinni í dag
að franúag Þjóðverja væri hið mik
ilvægasta og yrði til þess að
NORSTAD
— fækkun hermanna, ný kjarn-
orkuvopn.