Tíminn - 06.02.1957, Blaðsíða 4

Tíminn - 06.02.1957, Blaðsíða 4
T. í M IN I>J, migvikudaginn 6, fehrúgtr ,1957. Úfvarpsræða Herraanns Jónassonar forsætisráðherra í fyrrakvöld Fyrirheitið um samstarf stéttanna orðið að veruleika í tillögu þeirri til þingsá- lyktunar, sem borin er fram af hendi Sjálfstæöisflokks- ins, eru þær sakir bornar á rikisstjórnina, að hún hafi þverbrotið þau fyrirheit, sem stuðningsflokkar hennar gáfu fyrir kosningarnar. Segjast Sjálfstæðismenn því leggja til, að kosningar verði næsta vor. Nefnd eru þessu til rökstuðn- in|s þau dæmi,.)að!heitið þaíjj y^r- ijð. aðj segjf j uþp, varnarsangnin^iv- yjð Bgqd^í|yjriij þess^ð.^hey íiin íæryþé^rj svq.^ótt; sem, auðj ið vaéri,‘og ennfrémiir hafi því .ver ið heitið að tryggja varanlega láusn 'éfháhágsmárahná éftir nýj- um ‘leiðum. Þar sem þessi atriði í greinar- gerðinni eru eina tilraunin sem þar er gerð til að rökstyðja tillög- una, skulu þau tekin til meðferð- ar. Varnarmálin Þingsályktunartillaga sú, sem Aiþingi samþykkti 28. marz s. 1., var í tveimur köflum. Fyrri kaflinn var um það, að ís- lendingar vilji hafa góða sambúð við allar þjóðir, og svo orðrétt: „Að íslendingar eigi samstöðu nm öryggismál við nágrannaþjóð- ir sínar, meðal annars með sam- starfi í Atlantshafsbandalaginu“. f seinni hluta ályktunarinnar segir svo orðrétt: „Með hliðsjón af breyttum við- horfum síðan varnarsamningur- inn frá 1951 var gerður, og með tilliti til yfirlýsinga um, að eigi skuli vera erlendur her á fslandi á friðartímum, verði þegar haf- in endurskoðun á þeirri skipan, sem þá var tekin upp með það fyr- ir augum, að íslendingar annist sjálfir gæzlu og viðhald varnar- mannvirkja, þó ekki hernaðarstörf, og að varnarliðið hverfi úr landi Fáist ekki samkomulag um þessa breytingu, verði málinu fylgt eftir með uppsögn samkvæmt 7. gr. samningsins". Ég vek athygli á því að álykt- unin er þegar í byrjun rökstudd með því að viðhorfin séu breytt síðan 1951 — og að fyrir liggi yf- irlýsingar um að eigi skuli vera er- lendur her í landinu á friðartím- um. — Með þessari tillögu greiddu allir þingmenn Framsóknarflokksins og Alþýðuflokksins atkvæði. Þing- menn Sósíalistaflokksins og Þjóð- varnarflokksins einnig, en þó all- ir með þeim fyrirvara, að þeir væru andvígir fyrri hluta tillög- unnar, þ. e. „samstöðu íslands um öryggismál við nágrannaþjóðir sín ar, m. a. með samstarfi í Atlants- hafsbandalaginu.“ Sjálfstæðismenn greiddu, eins og menn muna, atkvæði gegn til- lögunni í heild. Stefnan í utanríkismálura er mótuo af samfjykkt Álþing- is á sl. vori og er óbreytt - ÞjóSin kefir aldrei verið frá- hverfari því aS fela SjálfsiæSisflokknum aukin völd en einmitt nú Þrjár stefnur Af þessu er ljóst, að þrjár stefn ur komu fram í varnarmálunum á Alþingi við atkvæðagreiðsluna 28. marz 1956. Ég lýsti þessum stefnum í út- varpsræðu, er ég flutti rétt fyrir kosningarnar, þannig að stefna Þjóðvarnar- og Sósíal- istaflokksins væri sú, að hafa hér engar varnir og láta það ráðast, hver tæki landið fyrstur, ef til Btyrjaldar kæmi að stefna Sjálfstæðisflokksins Væri sú, að hafa hér varanlega hersetu, án tillits til friðarhorfa, en af annarlegum ástæðum; að Framsóknar- og Alþýðuflokk- urinn vildu hins vegar standa við þá yfirlýsingu, er við íslendingar gáfum 1949, er við gengum í At- lantshafsbandalagið, að leyfa varn arher dvöl í landinu á styrjaldar- tímum eðá ef styrjaldarhætta væri rn'ikil,- eins og við gerðum 1951, en ekki á friðartímum. Fyrir kosningarnar gerði tíirja- ritið nýtt Helgafell fyrirspurnir til formanna stjórnmálafl. um stefnu þeirra í varnarmálunum. Spurt var meðal annars, hvar draga ætti mörkin í skuldbinding- umt ókkar íslendingk f ‘þeiM Víð aðrár'þjóðir. Svar friit't vaf: Mörky in eru þessi: Við ktöhddm ’með nábúum okkár og við munúm leyfa þehh að hafá hér hér í styrjöld eða vegna yfirvofandi árásar — en ekki á friðartím- um“. Þetta var í samræmi við þær yfirlýsingar, sem gefnar voru, er við gerðumst þátttakendur í At- lantshafsbandalaginu. Stefnan var þannig skýrt mörk- uð fyrir kosningarnar. Horfur á s. 1. vori Hinn 28. marz s. I. voru friðar- horfur betri en verið hafði um langt skeið og ástandið því gjör- breytt frá því sem var 1951. Gagn- kvæmar vináttuheimsóknir voru hafnar milli austurs og vesturs. Forseti Bandaríkjanna háði kosn- ingabaráttu sína undir kjörorðinu „friður og farsæld.“ Forustumenn í stjórnmálum trúðu almennt á góðar friðarhorfur. Okkur íslendingum var því bæði rétt og skylt samkvæmt þeirri stefnu í varnarmálum, sem við höfðum lýst yfir, að gera ályktun- ina frá 28. marz og hefja samn- inga til þess að herinn gæti farið eftir tilsettan 18 mánaða frest sam kvæmt samningnum frá 1951. Og atkvæðagreiðsla Sjálfstæðisflokks- ins gegn tillögunni er því auðsæ sönnun þess, að Sjálfstæðisflokk- urinn ætlar sér ekki að standa við þá stefnu frá 1949, sem margoft hefir verið rakin. — Enda lýsti hv. 1. þingmaður Reykv., Bjarni Benediktsson, yfir því í umræðum á Alþingi fyrr í vetur, að yfirvof- andi ófriðarhætta væri stöðugt til staðar í heiminum meðan eldur- inn logaði undir niðri, þ. e. meðan kommúnistar réðu einhvers staðar ríkjum, og afleiðing slíkrar álykt- unar yrði auðvitað sú, að herseta þyrfti að vera á íslandi um langa framtíð. Atburði þá, sem gerðust í Ung- verjalandi og við Súez, þarf ekki að rekja. Þá sá enginn fyrir 28. marz s. 1., og þeir geta því ekki af- sakað atkvæðagreiðslu Sjálfstæð- isflokksins á Alþingi þann dag. Hitt er svo annað mál, að eftir að þessir atburðir gerðust, lá fyr- ir sú staðreynd, að ófriðarhættan var sízt minni en 1951, er við gerðum varnarsamninginn og leyfð um bandarískum her að koma hing að, og því var það í alla staði eðli- legt og í samræmi við ályktunina 28. marz, að fresta samning- um, er viðtöl hófust við Bandaríkin, enda töldu meira að segja sósíalistar, að tíminn væri ó- hentugur til þess að gera kröfu um brottför hersins, — þótt þeir væru ekki samþykkir þeim rökum, sem borin voru fram fyrir frestuninni. Það, sem gerzt hefir, er því ekki það, að stefna stjórn arflokkanna hafi breytzt eða þeir hafi frá henni hvik- að í einu eða neinu, heldur hitt, að heimsástandið hefir með óvæntum hætti ger- breytzt, og til þeirra stað- reynda varð ríkisstjórnin að taka tillit í samræmi við fyrri yfirlýsingar, Að Hermann Jónasson forsætisráðherra stæðisflokkurinn gert með því að bregðast þeirri stefnu, sem mörkuð var árið 1949, Allir góðir íslendingar vona, að núverandi heimsástand breytist sem fyrst þannig, að við getum verið lausir við herinn, og það tækifæri, sem hlýtur að koma, verðum við að nota. Við .höfum tryggt okkur fyllsta rétt til þess. En það hefir meðal annars græðzt á þessum átökum í varnarmálun- um, að Sjálfstæðisflokkurinn hef- ir sýnt sitt rétta andlit, svo að þjóðin þarf ekki um að villast, hvar hann stendur, og það er ekki sennilegf, að þeir séu margir, sem fýsir að fela honum forustu í þeim Nú á, samkvæmt tillögu Sjálf- stæðisflokksins, að stofna til kosn- inga vegna þess, að stjórnarflokk- arnir hafi á einhverjum mestu hættutímum síðan styrjöldinni laiik frestað samningum um hrott- för hersins. Af þessum ástæðum ætti þjóðin að fela Sjálfstæðis- flokknum forustuna í þessum mál- um. Flokknum, sem vill hafa her í landinu varanlega. Flokknum, _ sem beitti sér gegn því, að radar-|maurn a stöðvunum úti um land væri lok- að. Flokknum, sem stóð fyrir því,)_ , að erlendum verkamönnum og her j tinanag'SKiaJlH mönnum á Keflavíkurflugvelli væri heimilað að dvelja utan flug- vallarins, hvar sem þeir óskuðu, fram á nætur. Flokknum, sem leið það ófremdarástand án mótmæla, að herbílar söfnuðu unglingum saman á tilteknum stöðum í bæn- um til þess að flytja þá á skemmt- anir suður á Keflavíkurflugvöll og annað eftir því. Flokknum, sem gaf út sérstakt saurblað á Kefla-! víkurflugvelli til þess að rægja fyrrverandi utanríkisráðherra, dr. Kristin Guðmundsson fyrir það, að hann kom á breytingum til bóta I á þessu ástandi, sem var orðið okk' ur til stórkostlegrar minnkunar. i Andlit Sjálfstæíis- flokksíns Þá eru þáð eínahagsmálin. Um þau segir í stjórnmálayfirlýsingu Framsóknár- og Alþýðuflokksins fyrir kosningarnar: „Samstarfi verði komið á milii ríkisstjórnar og samtaka verkalýðs og launþega, bænda og annarra framleiðenda um meginatriði kaupgjalds- og verð lagsmála. Markmið þessa sam- starfs skal vera að efla atvinnu- vegi landsmanna, trvggja stöð- uga atvínnu og heilbrigt fjár- málakerfi.“ Þetta er sú stefna, sem flokkarn- ir lofuðu í kosningunum að beita sér fyrir eftir kosningar. Eins og menn ef til vill muna, benti Sjálf- stæði.sflokkurinn ekki í kosningun- um á neina ákveðna leið í dýrtíð- armálunum frekar en endranær. Framsóknarflokkurinn lýsti því Nú segir Sjálfstæðisflokkurinn, stjórnar- að þjóðin þurfi endilega að kjósa|hvað eftir annað yfir, í samræmi við kosningastefnuskrána,. sem ég heiti sínu, «r því hrein f jar- stæða. Eh það hefir Sjálf- flolckarnir hafi brugðizt fyrir * vor’ ^ Þess að hún geti sem allra fyrst falið þessum flokki for- ustu í framkvæmd varnarmálanna að Býju. hefi nú vitnað til, að hann ætlaði að beita sér fyrir því, að samkomu lag yrði við vinnustéttirnar í þessu máli og velja aðferðina í sam- komulagi við þær. Spurningin, sem nú liggur fyrir, er sú, hvort við þetta hafi verið staðið. Samkomulagið viS stéttirnar Eftir stjórnarmyndunina hófust stjórnarflokkarnir þegar handa um að ná samkomulagi til bráðabirgða við vinnustéttirnar ura að falia frá þeirri vísitöluhækkun, sem launa- menn áttu kröfu á, gegn- því, að landbúnaðarvörur hækkuðu; - ekki iheldur og. að ríkisstjórnip: éetti ■ lög, i se.m* bönnuðu ' vetðihiékkahir ítilj; áramóta, þannig mð Rámp’getan Jhéidjst óbreytt, meðán vpiið'væri |að[ Jeita úrræða í dýrtíðarmálun- jum.Bsem samkomulág næðist um - milli þessara aðila. Undireins og þessum bráðabirgðaráðstöfunum hafði verið komið í kring, voru hafnir samningar við stéttasamtök in að nýju, jafnframt því sem sér- fræðingar rannsökuðu, livernig komið var og hvers væri þörf, til þess að framleiðslan, sem öll var að stöðvast við sjávarsíðuna, gæti haldið áfram. Eins og landsmönnum ér raun- ar kunnugt, er oft tálað um þrenns konar úrræði, seitn um er að velja í hinum mar'gi«htöluðu dýrtíðarmálum. — í 'fýrfeta lagi niðurfærsluleiðina. Sérfriaðingar í efnahagsmálum, sem rannsökuðu þessa leið, voru sammála um það, að verðbólgan hér á landi væri komin svo langt, að útilökað væri að fara þessa leið héðan af. Kaup- lækkun þyrfti að verða um 40—60 af hundraði, og munu flestir geta séð, að þegar af þeirri ástæðu og raunar mörgum öðrum, svo sem dýrra framkvæmda er einstakling- ar og opinberir aðilar hafa lagt í og skulda fyrir, er þetta úrræði nú orðið útilokað. Breyting á skráðu gengi krón- unnar hefir mjög verið rædd sem þrautaúrræði í efnahagsmálunum. Margir telja, að þessi leið sé helzta úrræðið og að hægt sé að fara hana án þess, að hún valdi veru- legri kjaraskerðingu fyrir vinn- andi fólk, ef gengisbreytingin er gerð í samráði og samvinnu við það og margháttaðar ráðstafanir gerðar samhliða til þess að koma í veg fyrir eða draga úr kjaraskerð ingunni. '< ! En ýmsir stjórnmálamenn hafa á ýmsum tímum, bæði hér og er- lendis beitt sér gegn þessu úrræði í ræðu og riti. Það hefir því verið gert óvinsælt, hvað sem líður kost- um þess og göllum. En reynsla er fyrir því, að þýðingarlaus eða þýð- ingarlítið er að framkvæma það, nema vinnustéttirnar vilji að því standa og að framkvæmdar séu margháttaðar ráðstafanir jafnhliða. Leiðin, sem farin er Sú leið, sem valin var,. er lands- mönnum kunn, og þarf því ekki að fara um hana mörgum orðum. Breytingin, sem gerð var, var sú, að afnema bátagjaldeyriskerfið og framleiðslusjóð, greiða uppbætur á útfluttar framleiðsluvörur og taka þá peninga, sem til þess þarf* aðallega með gjöldum, misjafn- lega háum, sem lögð eru á inn- fluttar vörur, innlenda þjónustu og innlenda framleiðslu,- sem er sérstaklega vernduð vegna hinna háu innflutningsgjalda. Þetta var það úrræðið, sem vinnustéttirnar töldu, að margrannsökuðu máli, vera í mestu samræmi við sinn eigin hag, eins og þessum málum var öllum komið. En jafnframt var því lýst yfir af hálfu nkisstjórnar- innar, að hún mundi, til þess að draga úr hinum óumflýjanlegu á- lögum, leggja á háan stóreigna- eða stóreignamyndunarskatt, lækka álagningu í heildsölu, lcoma á strangara verðlagseftirliti, breyta yfirráðunum yfir bönkunum þann- ig, að fjármagnið nýttist' sem bezt til nauðsynlegra framkvæmda og framleiðslu, setja húsaleigulög til þess að halda húsaleiguokri niðri, og fleira, sem auðvitað verður allt (Framhald: á.5^ ^íjön.)

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.