Tíminn - 19.02.1957, Síða 1
Fylgist með tímanum og lesið
TÍMANN. Áskriftarsímar 2323
81300. TÍMINN flytur mest og
fjölbreyttast almennt lesefni.
41. árgangur
Reykjavík, þriðjudaginn 19. febrúar 1957.
í blaðinu í dag:
Stúdent heldur út í heim, bls. 4,
Bréfkorn frá París, bls. 4. , J
Á ferð og flugi, bls. 5. |
Erlent yfirlit, bls. 6. 5
Viðtal við Sigurð Þórarinsson,
bls. 7. 1
41. blað.
ísing á togara
ÞaS hefir andað heldur köidu norðan frá Grænlandi síðustu daga og mann
skapurinn ber sig iila yfir kuidanum og menn ganga með b!á og rauð nef
svona sitt á hvað. En þó kalt sé í landi er ævi fólksins þar sældarlíf borið
saman við þeirra er á sjó eru og verða að vinna verk sín í ágjöf og frosti,
svo að hver gusa sem á skipið kemur gaddar um leið. Myndin að ofan var
tekin nýlega af togara sem var að koma úr söluferð frá Engíandi. { Sv. S.
Mjólkurbíllinn var viku til Borgar-
ness, 80 kílómetra veg
Staðarsveit innilokuó vegna snjóa, enginn
póstur heíir borizt í mánuí, farilS a«S bera
á vistaskorti
Frá fréttaritara Tímans í síðan verið alger jarðbönn. Síma-
bilanir urðu miklar á Mýrum og
í Kolbeinsstaðahreppi í byrjun
Frá umræðum um fjárlagafmmvarpið á Alþingi í gær:
Fjármálaráðherra boðar aukna að-
stoð við ræktun og stofnun nýbýla
Ennfremur verðnr hækkaS framlag
til atyinnnaiikningar
Sjálfstæðismeun hafa meiri áhuga á hnútu-
kasti í garð fjármálaráðherra, en málefna-
Segum afskiptum af afgreiðslu fjárlaganna
Önxiur umræða um fjárlagafrumvarp 1957 stóð yfir lengi
dags 1 sameinuðu Alþingi í gær. Karl Guðjónsson, formaður
fjárveitinganefndar, gerði þar grein fyrir breytingartillögum
meirihluta fjárveitinganefndar, en Magnús Jónsson talaði
af hálfu Sjálfstæðismanna. Eysteinn Jónsson, fjármálaráð-
herra, tók því næst til máls og skýrði frá því að innan skamms
yrði lagt fyrir þingið nýtt stjórnarfrumvarp um aukinn
stuðning við ræktun, nýbýlastofnanir og landnám.
Staðarsveit.
Frá áramótum hafa veður verið
mjög óstöðug í Staðarsvéit á Snæ
fellsnesi. Fram til 20. jan. var þó
snjólétt en þá tók að snjóa og
gerði mikinn jafnfallinn snjó á
táglendi. Síðan þá má heita að
sveitin hafi verið innilokuð og er
nú skortur á ýmsum nauðsynjum
að verða tilfinnanlegur.
Síðan 24. jan. hefur verið ó-
fært til Borgarness. Það má nefna
til dæmis um færðina að mjólk-
urbill sem reyndi að brjótast
hingað frá Borgarnesi var viku
í ferðinni en vegalengdin er 80
km. Vegurinn yfir Kerlingaskarð
til Stykkishólms er einnig með
öllu ófær. Frá Ólafsvík hefur
verið brotizt yfir Fróðárheiði eft
ir mjólk á fremstu bæina en
einnig þar er mjög illfært.
Eins og að líkum lætur er á-
standið að verða mjög alvarlegt.
Skortur á eldsneyti og fóðurvör-
um er að verða tilfinnanlegur og
sums staðar er jafnvel að verða
matarlítið. Ókleift er að halda veg
nm opnum með snjóýtum því aö
jafnharðan skefur í vegina aftur í
norðanáttinni. Ef svo fer fram sem
nú horfir verður eina ráðið að fá
snjóbíl til að annast flutninga í
sveitina.
Þegar eftir að snjóa gerði tók
fyrir alla beit útigangs og hafa
snjóakaflans. Af þeim sökum hef
ur verið mjög erfitt að ná síma-
ambandi héðan við aðra lands-
hluta. Með samgönguleysinu fylg
ir það að enginn póstur berst i
sveitina. Undanfarinn mánuð hafa
þannig hvorki borizt hingað bréf
né blöð.
Þ. G.
f gær varð stórbruni í Kefla-
vík, er fiskgeymsluhús og ver-
búðir Hraðfrystihúss Keflavíkur
h.f. eyðilagðist í eldi. Slökkvi-
liðið í Keflavík vaun ötullega að
slökkvistarfinu og tókst því með
aðstoð slökkviliðs af Keflavíkur-
flugvelli, að koma í veg fyrir það
að eldurinn breiddist út, en mik-
ill stormur var í Keflavík í gær.
Eldsupptök urðu um klukkan
sex í gærdag og voru þá þrír
menn sofandi í verbúðum á efri
hæð liússins. Tókst öllu fólki að
bjarga sér út úr Itúsiuu, eu þar
Frábærir sinfónm-
íónleikar
Sinfóníuhljómsveit íslands hélt
hljómleika í Þjóðleikhúsinu í
gærkveldi undir stjórn tékkneska
hljómsveitarstjórans dr. Václav
Smetácek. Á efnisskránni voru
lög eftir J. W. Stamitz, Isa
Krejci, Zdenek Fibich og A,
Dvorák, en þetta eru allt tékk-
nesk tónskáld. Tónleikamir vóru
óvenju glæsilegir, og fögnuðu
áheyrendur hljómsveit og hljóm-
sveitarstjóra mjög. Meðal áheyr-
enda var forseti íslands.
Stolka skerst iíla á
höfði i bifreiðaslysi
Það slys varð skammt fyrir sunn
an Hafnarfjörð fyrir hádegi á laug
ardaginn, að tvær bifreiðar rákust
saman með þeim afleiðingum, að
stúlka, sem var í annarri bifreið-
inni skarst illa á höfði og í and-
liti. Stúlkan var flutt í sjúkrahúsið
í Hafnarfirði og líður henni eftir
atvikum vel.
Vörubifreið úr Reykjavík var á
leið suður eftir og þegar hún kom
í svonefnt Gíslaskarð, rétt fyrir
sunnan Hafnarfjörð, kom Dodge
sendiferðabifreið á móti henni.
Rákust bifreiðarnar á hvor aðra
og skemmdust töluvert. Framrúð-
an brotnaði í sendiferðabifreiðinni
en stúlka, sem sat vinstra megin í
henni, hlaut við það vonda skurði
á höfði og í andliti. Er talið, að
hún hafi rekið höfuðið í rúðuna.
Áætlanir Breta valda
áhyggjum í París
Bretar flytja allan flugher
sinn einnig frá meginlandinu
París-NTB, 18. febr. Orðsend-
ing brezku stjórnarinnar til
stjórna V-Evrópulandanna um
fyrirhug'aða minnkun á herafla
Breta á meginlandi Evrópu hefir
valdið miklum áhyggjum í París.
Það mun nú hafa komið í ljós,
að Bretar hugsi sér ekki aðeins
að minnka heraflann um 30 þús.
manns, heldur mun einnig í ráði
að flytja allan flugher Breta á
meginlandinu heim til Bretlands.
bjuggu milli 40 og 50 manns,
landmenn vertíðarbáta og stúlk-
ur, sem störfuðu við mötuneyti.
Missti þetta fólk allt sem það
átti í verinu og liafði þar með
sér, nema fötin, sem það stóð í.
Hús þetta er stórhýsi um 800
ferm. Það er úr steinsteypu, en
loft og milligerðir voru úr timbri.
Neðri hæðin var notuð til fisk-
geymslu og fiskvinnu, en aðrir
hlutar byggingarinnar fyrir ver-
búðir og skiifstofu liraðfrystihúss
ins.
Hraðfrystihús þetta er hlutafé-
Beitir rfkisstjórnin sér fyrir
því að koma á nýrri löggjöf, þar
sem gert er ráð fyrir verulega
auknum stuðningi til ræktunar
á þeim býlum, sem skemmra eru
á veg kornin í ræktunarmálum.
Verður ennfremur í hinni nýju
löggjöf gert ráð fyrir auknum
stuðningi við fólk, sem vill
stofna nýbýli og efna til land-
náms.
Atvinniiaukmng og
raíorkuframkvæmáir
Fjármálaráðherra gerði þetta
mál að umtalsefni í sambandi við
væntanlega hækkun fjárlagafrum
varpsins við þriðju umræðu. Fjár
málaráðherra gat þess ennfremur
að gera yrði ráð fyrir auknum
útgjöldum, vegna raforkumála og
ennfremur þyrfti að auka atvinnu
aukningarfé. Ráðherra sagði að
beita yrði ýtrustu varfærni við af-
greiðslu fjárlaganna við þriðju
umræðu, ef nokkur von ætti að
vera til þess að hægt væri að af-
greiða greiðsluhallalaus fjárlög
með óbreyttum tekjustofnum ríkis
ins.
Fjármálaráðherra hóf mál sitt
með því að þakka meirihluta fjár-
veitingarnefndar fyrir ágæta sam
vinnu. Hann sagðist alltaf hafa bú
izt við því að fjárlögin myndu
hækka í meðferð nefndarinnar, en
sagðist vilja benda á að hækkun
in er langsamlega mest á tiltölu-
lega fáum þýðingarmiklum liðum
fjárlaganna.
Helztu hækkanir á
fjárlagafrumvarpinu
Eysteinn Jónsson fjármálaráð-
lag, en aðaleigandi fjnrirtækisins
er Kaupfélag Suðurnesja og er
liraðfrystihúsið sjálft á öðrum
stáð og skeinmdist það ekki af
völdum eldsins.
Mikið tjón hefir orðið í þess-
um eldsvoða og er líklegt að erf-
itt reynist að koma því fóiki fyr-
ir, sem húsnæðislaust varð í þess-
um bruna, enda þótt það hafi
fiest verið tímabundið í Kefla-
vík einungis við vertíðarstörf, en
mikið er eftir vertíðar, eins og
kunnugt ,er.
herra gaf síðan í stuttu máli yfir
lit yfir helztu hækkanir frá frum
varpinu, en þær eru sem hér seg
ir:
Til nýrra akvega 4,920 millj
kr. Til brúargerða 3,340 millj. Til
hafnarmannvirkja og lendingar-
bóta 3,535 millj. Styrkur til bygg
ingar barnaskóla oð íbúða fyrir
skólastjóra, gagnfræðaskóla og
héraðsskóla 4,220 millj. Samtals
nema þessar liækkanir einar til
verklegra framkvæmda 16,015
millj. króna miðað við síðustu
þá gert ráð fyrir því að heildar-
hækkun þessara liða verði 7,751
millj. króna miðað við síðustu
fjárlög 1956.
Helztu hækkanir aðrar á frum-
varpinu, samkvæmt tillögum meiri
hluta fjárveitingarnefndar eru
sem hér segir:
Póstur, gjöidin hækka um 1,
180 millj. Sími, gjöldin liækka
um 8,514 millj. Ríkisframfærzia
sjúkra manna og örkumla hækk
ar um 437 þúsund krónur. Kostn
aður við landhelgisgæzluna
hækkar um 1,4 millj. Skipaút-
gerð ríkisins, hækkun 2„300
millj. Framlag til íþróttasjóðs
hækkar um 400 þús. Fyrirhieðsl
ur og sjóvarnargarðar, hækkun
869 þús. Atvinnuleysistrygging-
ar, liækkun 2 millj. kr. Orlofs-
heimili verkalýðssamtakanna,
nýr liður 1 millj. kr. Niður-
greiðsiur vöruverðs, 24 milij. kr.
Áætlaðar afborganir og vextir af
lánum með ríkisábyrgð 2 millj.
kr. Landsmiðjan 900 þús. og
Flugvallargerð 650 þús.
Nema þær hækkunartillögur,
sem hér eru taldar því samtals
61,095 millj. kr. af þeim röskum
70 millj., sem fjárlögin myndu
hækka frá frumvarpinu, ef allar
breytingartillögur minnihluta-
nefndarinnar verða samþykkt-
ar. Þessir tiltölulega fáu liðir fela
þyí í sér meginhluta hækkananna.
Hnútukast í staS mái-
eínalegra aískipta
I ræðu sinni gerði fjármálaráð
herra nokkuð að umtalsefni hiu
óheiðarlegu vinnubrögð Sjálfstæð
ismanna í sambandi við afgreiðslu
fjárlaganna og framkomnar breyt-
ingartillögur. Sagði hann að svo
væri að sjá, sem þeir menn, sem
þar hefðu að unnið hefðu meira
hugsað um að komast að með
linútukast en sinna málefnalega
þeim verkefnum, sem fyrir liggja.
Tók ráðherra síðan nokkur
dæmi um þessi óskemmitlegu
(Framhald á 2. siðu.)
Fiskverkunarhús og verbúðir í Kefla
vik eyðiiagðist af eldi í gær