Tíminn - 19.02.1957, Qupperneq 9

Tíminn - 19.02.1957, Qupperneq 9
T í M I N N, þriðjudaginn 191 febrúar 1957. 76 en honum og henni saman- lagt. — Drottinn minn dýri, hvernig getur fimm ára gam- alt barn skipaö hér fyrir verkum? ■— Þetta 5 ára gamla barn getur sagt „Daginn, Harry“ í þeim tón áð það hljómar eins og skipun. Ég vildi bara óska aö hann gæti haldið sig frá bílskúrnum og plágað þig ef þú ert svona hrifinn af honum. T. d. þegar hann sagði eftir Ann . . . Bara að ég hefði fengið dal fyrir hvert skipti sem mig hefur langað til að sprauta á hann úr slöngunni . . . Og auk þess fer hann illa með dýrin. ■— Það hafði ég ekki hug- ttiynd um, sagði Marian. — Ég get ekki þolað það, sagði Harry. Hann er ekki fyrr kominn upp í vagninn en hann þrífur svipuna og lem- ur allt hvað af tekur. Eða hann gerði það þangað til að ég tók svipuna og faldi hana. Og hesturinn — þú veizt sjálf að shetlandshestur getur ver ið illgjarn eins og nokkurt kvikindi. Og þessi er slægur. Bíddu bara við. Það fór einnig eins og hann hafði séð fyrir. Ann sat í vagn inum með taumana í höndun um. Faðir hennar hafði kraf- izt þess að hesturinn væri sevinlega teymdur úr hesthús inu og út í húsagarðinn. — Ég vil teyma, sagði Joby. ' ■— Farðu upp í vagninn, Sagði Harry. Ég skal teyma sjálfur. — Komdu Joby, upp með þig, sagði Ann. — En ég vil teyma, sagði drengurinn. Hann reyndi að hrifsa taum inn frá Harry. Hesturinn hristi hausinn og beit dreng- inn í handlegginn, reif blúss una hans sundur og skrám- aði hann. Harry danglaöi í múlann á hestinum. >— Komdu niður og gættu að bróður þínum, sagði hann við Ann. Drengurinn sat hrínandi á hesthúsgólfinu meðan Harry kom hestinum aftur á básinn Og tók af aktýin. Siðan tók hann dauðskelft barnið I fang sér og bar það inn í húsið. .— Hesturinn beit hann; við verðum að ná í lækni, sagði hann við Marian. Ann, farðu upp til mömmu þinnar og segðu henni frá þvi sem kom fyrir. Hann vætti hreina tusku í viskí og þvoðði sárið með þvi. Barnið grét í sífellu og róað- ist ekkert þótt reynt væri að hugga það. Um kvöldið var Harry kall- Uður upp í vinnustofu Joes til að gefa skýrslu um atburð inn. Frásögn hans bar ná- kvæmlega saman við það sem gerzt hafði í raun réttri. — Tja, þá hefur hann að- eins fengið það sem hann átti skilið, sagði Joe. — Það var nú ekki það sem ég var að hugsa um, herra, sagði Harry. — Um hvað varstu þá að hugsa ,Harry? — Ja, ég veit varla hvernig ég á að koma orðum að því. Það er ekki gott fyrír mig að . . . — Láttu það bara flakka, Harry, sagði Joe. Þú hefur ekki annað en það sem þú áttir að gera. — Þakka yður fyrir að segja það, herra. En . . . ég var eig- inlega að hugsa um framtíð- ina, herra. — Framtíðina? — Já, og kannski um for- tíðina líka. — Er það eitthvað um Joby? Eitthvað sem þú vild- ir helzt ekki þurfa að segja mér? — Já, herra, sagði Harry. Það er . . . sannleikurinn er sá að sum börn hafa alls ekki lag á því að umgangast dýr. Ann gæti farið upp í básinn til hvors hestsins sem vera skyldi án þess að nokkuð kæmi fyrir. En það mátti bú- ast við að þetta kæmi fyrir drenginn, hefur mátt búast við því lengi. — Og þér finnst að hann hafi átt það skilið? — Já, herra, því miður. — Jafnvel þótt maður taki það með í reikninginn hvað sumir shetlandshestar eru ill gjarnir? — Já, herra. Joe hugsaði sig um. Síðan sagði hann: — Hefur hann kannski misþyrmt skepn- unni? — Ég myndi nú kannski ekki taka svo sterkt til orða. — Ég skil vel að þú viljir það ekki. En ef þú værir nú látinn sverja eið sem vitni — myndirðu þá ekki orða það svo? — Hm — jú. Joe kinkaði kolli. — Og hvað finnst þér aö við eigum að taka til bragðs í framtíðinni? —- Tja, ég skal náttúrlega gera það sem ég get, en ég get ekki ábyrgzt að þetta komi ekki fyrir aftur. — Þá finnst mér að við ætt um að losa okkur við hestinn. Það hlýtur að vera hægt aö finna góðan stað handa hon- um. — Nei, hr. Chapin, það er engin lausn á málinu, sagði Harry. Þér eruö búinn að fá mig til að segja meira en ég ætlaði mér og þá get ég alveg eins komið með það sem eftir er. — Ja, við getum nú ekki los að okkur viö drenginn, sagði Joe brosandi. — Það er rétt. Það getum við ekki. En ef hann væri son ur minn, myndi ég halda hon um frá dýrunum, þar til hann væri orðinn dálitið eldri. — Þú átt þá við aö þetta sé eitthvað eðlislægt við dreng- inn? — Hefði shetlandshestur- inn hefði ekki oröið til þess arna, hefði það verið reiðhest urinn. Ég læt drenginn aldrei koma nálægt honum, aldrei. Þér vitið sjálfur hvernig það er þegar sumt fólk kemur ná- lægt hesti — þá byrjar hann að krafsa með hófunum og frísa. — Drottinn minn dýri, er það svona slæmt? — Ég þori ekki að líta eitt andartak af drengnum með- an hann er þarna inni. — Ég vildi óska að þú hefð- ir sagt mér þetta dálítið fyrr. — Ég er ekkert hrifinn af því yfirleitt að vera að segja yður frá því, herra. Og ég geri það aðeins af því að svona fór í dag. Það gæti hafa farið verr. ; — Ég er alveg samþykkur því sem þú hefir sagt og gert, Harry, og mér er ljóst að við hefðum getað átt á hættu að hesturinn fældist með dóttur mína ef þú hefðir ekki verið þarna. — Guð forði því, sagði Harry. — Það er enginn efi á að þetta er vandamál. En þú þarft ekki að velta því meira fyrir þér, Harry. Bæði frú Chapin og ég erum þér mjög þakklát fyrir það sem þú hef ur gert. Alveg það sem þú átt ir að gera. Farðu nú fram í eldhús og fáðu þér einn sterkan. — Þakka yður fyrir, herra, sagði Harry. Með þessum hætti hófst tímabil barnsins í lífi Joe Chapins. Fyrstu tvo áratugi tuttug- ustu aldarinnar var það blett ur á heiðri Gibbsville að þar var enginn golfklúbbur. A!lt fram til 1920 urðu herrarnir í Gibbsville að fara yfir í næsta hérað ef þá langaði til að leika golf. Allir félagar í tennisklúbbnum fengu til- mæli um að taka þátt í stofn un hins nýja Lantenengo- golfklúbbs og þeir þáðu það næstum allir. Þeir sem voru í tennisklúbbnum voru verð- ir inngöngu í næstum alla klúbba í Gibbsville. Sumir fé- lagar í Gibbsville-klúbbnum gátu ekki fengið inngöngu í tennisklúbbinn af því að kon uf þeirra höfðu ekki náð jafn hátt i samkv.lífinu og þeir i heimi viðskiptanna. Þeir sem voru í Gibbsville-klúbbnum gátu heldur ekki gengið að því vísu að þeim væri tryggð- ur aðgangur að golfklúbbnum. En nætum hver einasti krist- inn maður sem hafði varið fé sínu í viðurkennd fyrirtæki, og ekki hafði spillt mannorði sínu í of stórum stíl með því að leggja bílnum sínum óhæfi lega oft framan við hóruhús- in, gat verið viss um að verða valinn félagi í Gibbsvilleklúbb inn í mesta lagi tveimur ár- um eftir að hafa sent umsókn sína. 9' iniiHiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiimiiimiimiimmniinniiiiiiinu Lítil íbúð 2 til 3 herbergi og eldhús óskast. — Tvennt § fullorðið í heimili. É Harry Frederiksen, s Sími 1668. p ......» iiuiiiiiiiiiiiimniiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiHiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiMiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiniiiiiiiiiiiiiiEimiiiiiiiiiiuiiiiiii jiiiiiiiiiiiiiiiiuiiiiiiiiiiiiiiiniiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiMiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiimiiiimiiimiimiiiimiiiiiiiM Tilboð éskast í nokkrar fólksbifreiðir, er verða til sýnis að Skúla- 1 túni 4 þriðjudaginn 19. þ. m. kl. 1—3 síðd. — | Nauðsynlegt er að tilgreina símanúmer í tilboði. | Tilboðin verða opnuð í skrifstofu vorri sama dag f klukkan 5. Sötunefnd varnarliðseigna símar 4944 og 82033. iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiulii iiiiiiiiiiiiiiiimimm..]iiiimmiiiiimniiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimmnnniiiiiiiiiimmiiiiiimmiiiiiimiii ÚTBOÐ I • a 1 Tilboð óskast í að byggja almenningsnáðhús i Hljóm- §| I skálagarðinum. Upplýsingar í síma 1912 og í teiknistof- § | unni Laugavegi 13. = = Skilatrygging kr. 200.00. miiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimmiiimmiiiiimiiiiiri ■AW.V.V.V.V.V.V.'.V.V.V.V.'.V.V.V.V.'.WA’.^VyV. Gerist áskrifendur að T í M A N U M Áskriftasími 2323 ’.V.'.Vr'.V.V.V.V.V.V.V.’.V.V.V/.V.V.V.V.V.V.V.W.W s Innilegustu þakkir færi ég öllum þeim, sem glöddu í mig á áttræðisafmæli minu 7. febrúar síðastl. Sigurlaug Daníelsdólfir, “• Hreðavatni. í V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.VWy '.V.V.V.V.V.V.V.V.’.VV.V.V.V.V.V.VV.'.V.V.V.V.VV.W •: £ ■I Innilegustu þakkir færum við öllum þeim, sem heiðr- «• í uðu okkur á fimmtíu ára hjúskaparafmæli okkar með > í; heimsóknum, gjöfum og skrautrituðu ávarpi frá Grafn- > ■; ingshreppsbúum. í; I; Ingibjörg Þóra Jónsdófftr, \\ Sigurður Jónsson, I; Langholtsvegi 190. !!* i m m ■ ■ ■ i VVVVVVVVVVVVV.VV.V.VV.V.VV.VV7 w. Hugheilar þakkir lil allra, er sýndu samúð og vinarhug við andlát og úíför móffur minnar, EEínar Thomsen. Fyrir hönd vandamanna. Pétur Thomsen. Sonur mtnn. Haftiði Eiríksson, Hliðarhvammi 12, Kópavogi, andaoist á Sjúkrahúsi Hvítabandsins 16. þ. m. Guðrún Hafiiðadóttir. Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug við and- lát og jarðarför móður minnar Helgu Jónsdótfur prófastsekkju frá Eskifirði. Fyrir hönd vandamanna. Björn Sléfánsson.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.