Tíminn - 20.02.1957, Qupperneq 1

Tíminn - 20.02.1957, Qupperneq 1
Fylgist með tímanum og lesið TÍMANN. Áskriftarsímar 2323 81300. TÍMINN flytur mest og fjölbreyttast almennt Iesefni. #1. árgangur Reykjavík, miðvikudaginn 20. febrúar 1957. I blaðinu i dag: Tékknesk tónlist, bls. 4. Aukið fé til skólabygginga, bls. 5. Næsti kanslari V-Þýzkalands bls. 6 Ræður um kjörbréfamálið, bls. 7. 42. blaS. Sveinbjöm Högnason og Pétnr Ofte- sen bera fram tillögn á Alþingi nm endurheimf íslenzku handritanna Flutningsmeim telja tímabært a$ Alþlngi láti nó máliS til sín taka aS nýju Tveir þingmenn, þeir Sveinbjörn Högnason og Pétur Otte- sen hafa lagt fram á Alþingi tillögu til þingsályktunar um endurheimt íslenzkra handrita frá Danmörku. Þar sem tillaga þessi mun vekja mikla athygli, verður hún birt hér í heilu lagi ásamt greinarger'ð. Tillagán sjálf er svohljóðandi: Alþingi ályktar að skora á ríkis stjórnina að beita sér fyrir því við dönsk stjórnarvöld, að orðið verði við íterekuðum kröfum Is- lendinga um, að skilað verði aftur hingað til lands íslenzkum handrit um, fornum og nýjum, sem borizt hafa héðán til Danmerkur og geymd eru í söfnum þar, svo sem safni Arna Magnússonar. Tekur þetta einnig til þeirra íslenzku liandrita, er konungur landsins hef ur fengið héðan fyrr á tímum og enn eru varðveitt í Danmörku. Greinargerð. Islendingum er það að vonum mikið áhuga- og kappsmál að fá því til vegar komið, að dönsk stjórnarvöld skili aftur hingað til lands íslenzkum handritum, sem þangað hafa borizt og geymd eru í dönskum söfnum .Hér er um að ræða dýrmæta bókmenntafjársjóði sem varða sögu vora og menningu. Það eru ekki skiptar skoðanir um það hér á landi, að Islendingar séu réttir eigendur þessara hand- rita. Þau eru hugsuð og samin af hérlendum mönnum, skrifuð á ís landi og varðveitt þar lengur eða skemur, og íslenzkur er uppruni Fulltrúi íslands við ■ sjálfstæðistöku Gullstrandarinnar Akveðið hefir verið að Erlendur Einarsson, forstjóri, verði fulltrúi íslenzku ríkisstjórnarinnar við há- tíðahöldin í Accra dagana 3. — 10. maz n. k. þegar Gullströndin (Ghana) öðlast sjálfstæði. (Frá utanríkisráðuneytinu). þeirra að öllu leyti. Hinn eini eðli | legi vettvangur til várðveizlu og hagnýtingar handritanna er Há- skóli Islands. Þar er miðstöð allra íslenzkra fræða nú orðið, og öll gögn til iðkana þeirra eiga að vera á Islandi. En það skortir mikið á, að svo sé, meðan geymd eru í Danmörku um 4300 íslenzk hand rit og sum af þeim hin merkustu allra handrita vorra. Handrit þessi bárust á sínum tíma tií Danmerk ur með ýmsum hætti ,er, langsam lega mest fyrir framgöngu hins mikla safnara Árna Magnússon ar, sem ferðaðist um allt land við samningu jarðabókarinnar. og fyr ir ásælni danskra konunga, eink um þeirra Friðriks III. og Krist- jáns V. Báðir þessir konungar sendu erindreka til Islands í þessu skyni. Sópuðu þeir að sér handrit um og forngripum. Komust þessir menningarfjársjóðir vorir að vísu ekki allir á danska grund, en voru samt glataðir Islendingum, því að mikið af handritum og forngrip- um, sem Kristján V. hafði látið safna, týndist, er skip það, sem þeim var komið til flutnings í, fórst í hafi á leið til Danmerkur. Var með þessu höggvið skarð í bók menntaauðlegð þjóðar vorrar og annað ekki minna við brunann í Arnasafni. Islendingum hefur því orðið dýr flutningurinn á hand- ritum vorum og forngripum til Danmerkur, iþótt Danir verði við kröfu vorri um að skila því aftur, sem en er óglatað af þessum dýr- mætu fjársjóðum. Þörf að Alþingi láti nú málið til sín taka. Til flutnings á handritum vorum og forngripum til Danmerkur er, svo sem alkunnugt er, þannig stofn að, að Islendingar eiga bæði laga legan og siðferðilegan rétt til að krefjast þess af Dönum ,að þeir (Framhald á 2. síðu). llm 30 bæir í Hrunamanna- breppi fengu rafmagn í vetur Háspennulína lögtS um hreppinn í haust, en eftir áramótin hafa heimtaugar verití laglSar Frá fréttaritara Tímans í Hrunamannahreppi. í júní s. 1. var byrjað á rafveituframkvæmdum í Hruna- mannahreppi. Unnið var að lengingu háspennulínunnar frá Soginu, en hún var áður komin að Auðsholti í Biskupstungum. Lagt var rafmagn á rúmlega 30 bæi. Vár rafmagninu hleypt á þetta kerfi 15. febrúar s. 1. Um mánaðamótin nóvember og desember var aðallínunni um hreppinn lokið að mestu. Hætti þá vinna í bili, en nokkru eftir ára- mótin var svo byrjað að setja upp spennistöðvar og ganga frá heim- taugum. All erfitt var að vinna að þessu sökum fannkomu og ófærð- ar. Rafmagninu mjög fagnað. Föstudaginn 15. febrúar var svo rafmagninu hleypt á þetta kerfi. Heimtaugargjald fyrir hvert býli hefir orðið mjög misjafnt, allt frá fimm til þrjátíu þúsund krónur á bæ. Gjaldið er 45% af gildandi fasteignamati til viðko'mandi jarð- ar og húsa á henni. Heildarupp- hæð heimtaugargjalda fyrir þær jarðir, sem rafmagnið fengu, er lauslega áætlað um 400 þús. kr, og mun önnur eins upphæð vera farin í raflagnir innan húsa, svo og fyrir nauðsynlegustu rafmagns- tæki. Fólk hefir beðið eftir rafmagn- inu með eftirvæntingu og er mjög ánægt með að hafa nú fengið það. Riki Vestur-Evrópu ákveða að mynda sameiginlegan frjálsan markað Forsætis- og utanríkisráðherrar ríkjaima munu hafa náð fullu samkomulagi um mál- ið á fundi sínum í París í gær . Prís. 19. sept. — Löndin sex, sem standa að Kola- og stál- samsteypu Evrópu, halda ráðstefnu í París þessa dagana og er rætt um að koma á fót sameiginlegum markaði þessara landa. í kvöld bárust þær fregnir, þó ekki hafi verið opin- berlega staðfestar, að samkomulag hafi þegar náðst um skil- yrði fyrir því, að þessum sameiginlega frjálsa markaði verði hrundið í framkvæmd. Verði gefin út sérstök yfirlýsing um þetta innan skamms. Hér er um stórmerkilegt mál að ræða og mun vafalaust valda þáttaskiptum á ýmsum sviðum fyrir ríki Vestur-Evrópu. , . skyldi leggja til uppbyggingar at- Það eru forsætis- og utanríkis- vjnnuiífs j nýlendum Frakka í N- ráðherrar hinna sex ríkja í Vestur Afríku. Evrópu, sem ráðstefnuna sitja. Paul Henri Spaak tók að sér Komu þeir til fundarins í morg- ag miðla málum og kom á fundi um og ráðstefnu þeirra lýkur í mmj Mollet og dr. Adenauers. HENRY S>'.Ak forgöngumaður Evrópumarkaðar, ræðir við norrænan ráðherra, Júlíus Bombolt, Hvað gera Norðurlönd markaðsmálinu? Fyrsta kaupskipið stöðvað Engar sættir í farmanna- deihumi enn Verkfall hófst á kaupskipaflot- anum í fyrrakvöld. Sáttasemjari ríkisins, sem liefir deiluna til meðferðar, hélt fund með deilu- aðilum í fyrrakvöld og stóð hann til kl. 3 í fyrrinótt en ekkert sam- komulag varð. í gær liafði fund- ur ekki verið boðaður að nýju. Fyrsta kaupskipið, sem stöðvast vegna verkfallsins, er Dettifoss, sem kom til Reykjavíkur í gær, en búast má við, að þau stöðvist næstu daga hvert eftir annað eft- ir því sem þau koma til Reykja- víkur. kvöld. Tvö höfuðágreiningsefni. Það kom fljótt í ljós, að tvö á- greiningsefni stóðu fyrst og fremst í vegi fyrir því, að. sam- komulag tækist um að hefja und- irbúning að sameiginlegum mark- aði. Annað þeirra varðaði eink- um Frakka og Vestur-Þjóðverja Á þeim einkafundi tókst forsætis ráðherranum að jafna ágreining sinn. Höfðu Frakkar krafist þess að nýlendum þeirra væru ætlaðar 150 milljónir doilara, á ári til uppbyggingarstarfs, en Þjóðverj- ar vildu ekki fara nema í 100 milljónir. Þeir sættust loks á 121 milijón dollara að tillögu Spaaks. Hitt deiluefnið var um hversu en það var hvernig háttað skyldi hagað skyldi sameignarskipulagi sambandi nýlendna einstakra ríkja ríkjanna á byrgðum af kjarna- við bandalagið. Kom hér í raun og, kleifum efnum til kjarnorku- vinnslu. Mun einnig hafa náðst samkomulag um það mál og hefst þá víðtækt samstarf þessara ríkja einnig á þessu sviði. Væntanlega verður nú hafizt handa og undinn bráður bugur að því að vinna að undirbúningi áætlunar um fram- kvæmd hins frjálsa markaðar £ einstökum atriðum. Þá verður V-. Evrópa sterk viðskiptaheild, sem ætti að standa jafnfætis stórveld- unum tveim í austri og vestri í samkeppninni á heimsmarkaðin- um. veru til greina, hversu mikið fé Fundur í Framsóknar félagi Reykjavíkur á sunnudaginn Framsóknarfélag Reykjavíkur lieldur fuud í Tjarnarkaffi niðri kl. 2 á sunnudaginn kemur, 24. febrúar. Nánar verður skýrt frá fundarefni og framsögu næstu daga hér í blaðinu. Illíært að verða á vegum víSa norðan- lands vegna snjóa, einkum austan til Af frásögnum fréttaritara þeirra, sem blaðið hafði tal af á Norðurlandi 1 gær, er auðséð, að nú dregur að því að bíl- færi leggist af vegna snjóa í mörgum sveitum. Einkum er færð að verða erfið í Eyjafirði og ósýnt að hægt verði að halda vegum færum marga daga úr þessu, ef snjókoma heldur áfram eins og verið hefir. .ýtu. Ófært var orðið til Mývatns- Fréttaritari blaðsins á Dalvík Jsveitar * &aer. símaði, að leiðin þaðan til Akur- ( " 1 ....■■ ■ eyrar væri alveg að teppast. Mjólk1 er sótt fram í Svarfaðardal á ýt- i um, sem draga sleða, og aðeins bíl- j um með drif á öllum hjólum er | fært til Akureyrar og sækist þó seint. f fyrradag var mjólkurbíll um 8 klukkustundir frá Akureyri til Dalvíkur. Tilgangslaust er talið að ryðja með snjóýtu, því að jafn- óðum fennir og rennir í förin. Sir Anthony Eden alvarlega veikur London, 19. febrúar. Fregnir hafa borizt til London þess efnis að Sir Anthony Eden fyrrv. for- sætisráðherra, sem er á leið til Nýja Sjálands á farþegaskipf einu, hafi fengið tvö hitaveikis- köst undanfarna daga og hafí það seina verið mjög alvarlegt. Skipið er nú nær því komið á leiðarenda, og hafa þegar verið gerðar sérstakar ráðstafanir til þess að útveg Sir Anthony lækn ishjálp hið bráðsta. Víða í Eyjafirði er orðið mjög erfitt á vegum og hætt við að þeir lokist alveg næstu dægur. Öxna- dalsheiði er alveg ófær nema snjó- bílum og ýtum, sömuleiðis Vaðla- heiði, en snjóbíll hefir gengið yfir hana síðustu daga. Fréttaritari blaðsins í Húsavík sagði, að færð þyngdist þar með hverjum degi, og kæmyst mjólkur- bílar ekki þangað nema með lijálp Kynlegt að fulltrúa tveggja norrænna landa vantar í Norðurlandaráðið sag'Si danskur stjórnmálamaður og átti við Grænlendinga og Færeyinga í ljós undrun sína á því, og sagðl að það væri mjög miður farið að tvær hinna norrænu þjóða skyldu ekki eiga fulltrúa á fundum Norð urlandaráðs, þ. e. a. s. Grænlend ingar og Færeyigar. Sagði hann, að liér hlyti aðeins að vera um misgáning að ræða, að þeim skyldi ekki boðið til fundar og kvaðst vona, að þetta yrði tekið til athugunar og misgáningurinn leiðréttur áður en næsti fundur ráðsins yrði lialdinn. — Aðils. Kaupmannaliöfn í gær. — I gær kveldi flutti danska ríkisútvarp ið dagskrá frá Helsingfors, þar sem fulltrúar pólitískra æskulýðs félaga I Danmörku komu fram. Fulltrúar þessir eru gestir Norð urlandaráðsins og sitja fund þess sem áheyrnarfulltrúar. Létu þeir í stuttu máli í ljós álit sitt á starfi Norðurlandaráðsins. Mesta athygli vöktu ummæli fuIStrúa ungra radikala. Hann lét

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.