Tíminn - 22.02.1957, Page 2
T f MIN N, föstudaginn 22. febrúar 195T,
2
Sjúkraflugvélin lenf á fannbreiSu viS Vopnafjörð.
Sjúkraflugvélin getur nú lent á skíðum
víðast þar sem sléttlendi er undir snjó
Forseti öryggisráðs-
ins fer til Kasmír
Hefir i>egar komitf sér vel aft skííi voru fengin á
vélina og búií atS lenda vítSa á fannbreitSum
Björn Pálsson hefir nú farið nokkrar flugferðir á flugvél-
inni með skíðaútbúnaðinum og lent á mörgum stöðum fyrir
austan fjall, fyrir vestan og norðan og hefir þessi útbúnaður
reynzt ágætlega.
I fyrradag fór Björn austur á
Vopnafjörð og sótti þangað fár-
þega, sem þurfti að komast vestur
í Mývatnssveit og til Reykjavíkur.
Var það Pétur Jónsson bóndi og
vegaverkstjóri í Reykjahlíð við
Mývatn. Var hann búinn að vera
veðurtepptur í hálfan mánuð á
Vopnafirði vegna ófærðar og veð-
urs.
A Vopnafirði lenti Björn á flug-
braut innan við fjarðarbotninn, en
'mi var þar nokkuð djúpur snjór á
mestum hluta brautarinnar. Flýtur
vélin ágætlega á snjónum á skíð-
unum, jafnvel þó ekki sé göngu-
fært í lausamjöll.
Nokkur sjúkraflug hefir Björn
farið með skíðin á vélinni og lent,
þar sem ekki hefði verið hægt að
lenda með öðru móti. Fyrir fáum
dögum var maður austur í Gríms-
nesi illa kominn með sprunginn
botnlanga og varð að komast taf-
arlaust á sjúkrahús. Björn flaug
austur og lenti á fannbreiðunni og
flutti manninn á fimmtán mínút-
um til Reykjavíkur.
100 ára afmæli Baden-Powell
stofnanda skátahreyfingarinnar
Skátahreyfingin hófst fyrir 50 árum en nú
eru 11 milljónir skáta í 62 löndum
Milijónir æskufólks minnast í dag (22. febr. 1957) hins
heimsfræga æskulýösleiðtoga Lord Baden-Powell, sem fædd-
:ist þennan dag fyrir 100 árum í Lundúnaborg. í dag er þess
einnig minnzt að fyrir 50 árum dvaldi fyrsti skátaflokkurinn
undir handleiðslu Baden-Powell á Brownsee-eyju við Eng-
landsstrendur. Það var upphaf að þeim hundruðum milljóna
æskufólks, sem fylkt hafa liði undir merkjum skátahreyfing-
arinnar. í öllum löndum, þar sem skátar starfa, hafa þeir
unnið að undirbúningi hátíðahalda þessa merka afmælis, og
póststjórnir 25 landa gefa út frímerki í tilefni dagsins.
í dag eru 11 milljónir starfandi
ikátar í 62 löndum. Á íslandi enr
am 3.500 starfandi sicátar. Til ís-
iands kom skátahreyfingin árið
1912. Skátafélag Reykjavíkur er
stofnað 2. nóv. sama ár. Frá
Reykjavík barst félagsskapurinn
:il annarra byggðarlaga. Banda-
iag ísl. skáta var stofnað 1924, og
gekk strax í alþjóðasamtök skáta,
sem höfuðstöðvar hafa í Bretlandi.
Foringi alþjóðasambandsins var
kjörinn Baden-Powell og kona
hans varð foringi kvenskátasam-
bandsins. Til skamms tíma hefir
það verið venja að félög drengja
og stúlkna störfuðu sjálfstætt út
af fyrir sig innan sinna vébanda.
Árið 1944 áttu ísl. skátar frum-
kvæðið að breyttu fyrirkomulagi
þessara mála. Bandalag ísl. skáta
varð sameiginlegt fyrir drengi og
stúlkur. Lög bandalagsins hafa ver
ið þýdd á erl. tungumál, með það
íyrir augum að sameina starfið
sums staðar erlendis að 'ísl. fyrir-
mynd. Það má segja um hátíða-
höid þau sem nú hefjast, að þéim
3júki ekki fyrr en 13. ágúst í sum
ar, þegar 40.000 skátar hafa tekið
saman tjöld sln á alheimsmólum,
6em haldin verða í Bretlandi. —
Skammt frá Birmingham verða
um 36.000 drengjaskátar dagana
1.—-13. ágúst. Verða það skátar á
öllum aldri. Kvenskátar dvelja á
alþjóðamóti í Windsor Parlc, stutt
frá London. ísl. þátttakendurnir á
mótum þessum verða um 100 alls.
Islenzkir skátar fylla í dag mörg
samkomuhús landsins. Á nokkrum
stöðum er komið fyrir sýningum
í verzlunargluggum, t. d. á Akur-
eyri og víðar. Keflavíkurskátar
ganga til kirkju og hafa varðeld
i bænum. Á Selfossi, Ak.ranesi, ísa
firði og víðar þai- sem skátar
starfa er dagsins minnst á ýmsan
hátt. Reykjavíkurfélögin efna til
fánahyllingar í miðbænum við
Lækjargötu kl. 12,30. Skátar fá frí
í skólum frá hádegi. Kl. 15,30
koma yngstu skátarnir, Ijósálfar
og ylfingar saman í skátaheimil-
inu. Kl. 19 verður hátíðarsamkoma
í Austurbæjarbíói fyrir alla skáta
unga sem gamla, og gesti, þar á
meðal forseta íslands og forseta-
frú. Að hátíðinni lokinni koma 200
skálaforingjar saman í skátaheim
ilinu um jkvöldið. Allir skátar
yngri og eldri munu draga fána
að hún, þar sem því verður við
konuð.
Nevv York, 21. febr.: Örj’ggisráð
ið samþykkti með 10 atkvæðum
gegn engu seint í kvöld, að forseti
ráðsins Svíinn Gunnar Jarring
skyldi takast ferð á hendur til
Kasmír og freista þess að finna
friðsamlega lausn á deilu Indlands
og Pakistans. Sovétríkin sátu hjá
við atkvæðagreiðsluna, en í gær
kvöldi beittu þau neitunarvaldi til
að hindra samþykkt tillögu frá
Bandaríkjamönnum, þar sem einn
ig var gert ráð fyrir því að sent
yrði gæzlulið frá S. þ. til Kasmír.
ágreiningur samvinnu-
manna
(Framhald af 12. síðu).
„mannúðarstörf“ Rússa í Ung-
verjalandi, um að öll glæpaverk-
in væru að kenna „fasistum“,
engir nauðungarflutningar hefðu
verið framkvæmdir o. s. frv. Há-
marki náði þessi þula þeirra, er
þeir fóru að segja frá efnahags-
hjálp og gjöfum til Ungverja-
lands, t. d. hefðu þeir sent mik-
ið af bílum. Þá hrópaði einn
fundarmanna: „Þið meinið auð-
vitað mikið af skriðdrekum".
Rússar báru síðan fram sína
eigin ályktunartillögu. Aðalatriði
hennar voru þessi: Burt með út-
lenda heri úr Egyptalandi, fulla
virðingu fyrir sjálfstæði Ungverja-
lanas, brottför rússnesks hers frá
Ungverjalandi samkvæmt nánara
samkomulagi ríkisstjórna landanna
beggja.
Hæfta á klofningi
Bonovv telur mikla hættu á að
ICA muni klofna, því að á Parísar-
fundinum hafi fulltrúar Hollend-
inga og Svisslendinga tilkynnt, að
þessi lönd mundu endurskoða af-
stöðu sína til ICA í ljósi þeirra
atburða, sem gerzt hefðu, og ef
ekki reyndist unnt að útiloka
Rússa frá stjórri ICA, mundu þessi
lönd e. t. v. segja sig úr sam-
bandinu. Afstaða vestur-þýzku og
amerísku sambandanna var svipuð.
ÖIl þessi mál, segir Bonow,
koma nú til umræðu á Lundúna-
fundinum sem hefst í þessari viku.
Þar er ekki aðeins framkvæmda-
stjórnin heldur öll miðstjórnin,
fulltrúar allra landa, sem í ICA
eru, alls um 100 manns.
Rússar hóta að kijúfa
í ofanálag hafa Rússar sjálfir
hótað að kljúfa ICA. Parísarfund-
urinn vildi ekki veita kínverska
sambandinu. aðild að ICA vegna
' þess, að þar væru ekki frjáls sam-
ivinnufélög heldur eingöngu ríkis-
fyrirtæki. Rússar tilkynntu þá, að
svo kynni að fara að Kínverjar og
Rússar og önnur „alþýðulýðveldi"
teldu hentast að stofna nýtt sam-
band og slíta samslaríinu í ICA.
Öll þessi mM munu skýrast, er
miðstjórnarílnidiití'iíUJa hefst nú í
vikunni.
íl
lllllllllliIIIIIII!!!llllll{!l!IIIIIIIIIII!llll!li!lllllllllllllllllllllllllllllllll!lllllllllillllllllllllllllllllllllllllll!llllll!ll
Sunnudaginn 24. 2.
Verzlunin Rós í Vesturveri
vill ]pá gefa bendingu:
konan fái á konudaginn
kærkomna blóma sendingu.
Sími 5322.
iiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiii
Leikfél. Kópavogs frumsýnir Spausk-
fluguna næstkomandi laugardagskv.
í byrjun janúar s. 1. var stofnað leikfélag í Kópavogi, Leik-
félag Kópavogs, af rúmlega 40 áhugamönnum og konum.
Þrátt fyrir það, að ekkert samkomuhús er til í kaupstaðnum,
var þegar ákveðið að hefja æfingar og var leitað til formanns
fræðsluráðs Kópavogs og skólastjóra barnaskólans um að fé-
lagið fengi afnot af barnaskólahúsinu til æfinga og sýninga.
Var þeirri málaleitan tekið með miklum skilningi og velvilja.
af þeggja hálfu. _________________
Leikstjóri var síðan ráðinn frú
Ingibjörg Steinsdóttir og í samráði
við hana var „Spanskflugan" eftir
Arnold og Bach valin sem fyrsta
verkefni félagsins.
Æfingar hófust síðast í janúar
og er nú ákveðið að „Spanskflug-
an“ verði frumsýnd í barnaskólan-
um í Kópavogi næstkomandi laug-
ardagskvöld 23. febr. kl. 8,30 e. h.
og síðan verði tvær sýningar á
sunnudag 24. febrúar kl. 3 og kl.
8,30 e. h.
Því nær allir leikendur í
„Spanskflugunni“ koma hér í
fyrsta sinni fram á leiksviði.
„Spanskflugan“ mun ekki hafa
verið leikin í Reykjavík síðan 1926
en þetta er meðal hinna allra vin-
sælustu leikrita þessara frægu gam
anleikjahöfunda og munu margir
eldri Reykvíkingar minnast þess
síðan.
Sandnám
(Framh. af 1. síðu).
lokum frestaði hann málinu til
næsta iundar.
Fyrirtæki þetta, sem ráðamenn
bæjárihs eru nú að leggja niður,
þrátt fyrir kosningaloforðin fyrir
þremur árum, er eitt af elztu fyr-
irtækjum Reykjavíkurbæjar, stofn-
að 1910.
Belgir styðja Breta
New York, 21. febrúar. Fulltrúi
Belga í stjórnmálanefnd allsherj-
arþingsins Iýsti yfir því í dag, að
hann teldi Kýpurmálið algert inn-
anríkismál Breta og afskipti S. þ.
af því gætu hafi hættulegár afleið
lingar bæði fyrir heimsfriðinn og
samtökin sjálf. Kvað hann málið
eiga að leysast með beinum samn
ingum milli Breta, Tyrkja og
Grikkja. Þrjár tillögur í málinu
liggja fyrir, ein frá Bretum og
tvær frá Grikkjum. Bandaríkja-
menn hafa lýst yfir, að bezt væri
að engin þessara tillagna yrði sam
þykkt og málinu vísað frá.
Stjórnmálanámskeiði
lokið á Akureyri
Akureyri í gær. — Nýlega er
lokið hér á Akureyri stjórnmála-
námskeiði Félags ungra Framsókn
armanna. Tóku þátt í því 22 ungir
menn. Björn Hermannsson, lög-
fræðingur, annaðist stjórn nánv
skeiðsins, en auk hans fluttu
fræðsluerindi á því Jóhann Frí-
mann skólastjóri, Jóhannes Óli Sæ
mundsson, námsstjóri og Guttorm
ur Sigurbjörn.sson, erindreki. Aðal
lega æfðu þátttakendur sig í
mælskulist og héldu umræðu-
fundi um ýmis mál.
Fréttir frá landsbyggðinni
Merkur bóndi látinn
AKUREYRI í gær. — Hinn 17.
febrúar lézt að heimili sínu, Vill
ingadal í Eyjafirði, Hjálmar Þor-
láksson, nær 83 ára að aldri. Hann
var hinn merkasti bóndi, vinsæll
og traustur í allri gerð. ED.
Hletíur niSur snjó
í Húnaþingi
BLÖNDUÓSI í gær. — Síðan á
föstudag hefir snjóað hér dag
hvern, og er færð orðin mjög
erfið í héraðinu. Þó hafa bílar
brotizt 'til þessa vestan úr Hrúta-
firði, en víða er orðið ófært í nær
sveitum Blönduóss. í dag er verið
að draga þrjá vörubíla úr Skaga-
firði norður yfir Holtavörðuheiði.
í gær var hér mikil fannkoma.
SA.
Margar ílugferSir tii
Akureyrar
AKUREYRI í gær. — Þrjár flug-
ferðir voru farnar hingað til Akur-
eyrar í gær, enda var gott flug-
veður og margir biðu eftir flug-
fari, þar sem þetta eru einu sam-
göngurnar við Reykjavík nú sem
stendur. Undanfarna daga hefir
sjaldan verið flugveður, en í gær
birti upp og var flugvöllurinn
hreinsaður. ED
Ófært yf ir heiðar eystra
EGILSSTÖÐUM í gær. — Lausa-
mjöllin er enn svo mikil á heiðun-
um, að snjóbílar komast ekki einu
sinni yfir þær. Síðast í dag hefir
snjóbíll verið að brjótast yfir
Fagradal, en var ekki kominn
nema upp á háheiði síðdegis og
óvíst hvort hann kemst hingað.
Stór snjóbíll reyndi að fara yfir
Fjarðarheiði í gær en varð að
snúa aftur og komst eftir mikla
erfiðleika niður til Seyðisfjarðar
í morgun. Hinsvegar er snjóbíl-
færi gott hér á Héraði, og er snjó-
bíll hér á ferðinni svo að segja
nótt og dag, við að flytja fólk,
varning, mjólk og rjóma.
ES.
Fyrsta flugvélin eftir
verkfallií ti! Egiisstaía
EGILSSTÖÐUM í gær. — í gær
var hér bjart veður og kom fyrsta
flugvélin hingað síðan flugmanna
verkfallinu lauk. Hefir átt að
fljúga dag hvern þangað til í gær
en ekki gefið fyrr. Voru margir
búnir að bíða lengi eftir flugfar
ínu. Þá fengum við og allmikið
af pósti, sem ekki hefir komið hing
að síðasta hálfan mánuðinn.
ES.