Tíminn - 02.04.1957, Qupperneq 4
-4
T í MIN N, þriðjudagmn 2. apríl 1957,
Spænskan er eins og sinfóma,
íslenzkan eins og höggmynd
Rætt við ungan Spánverja, sem er kominn
hingað til lands til að þýða verk Laxness
áspænsku
GROÐUR OG GARÐAR:
INGOLFUR DAVIÐSSON
Grasgarður Englendinga
Kannske hafa einhverjir
tekið eftir því á dögunum, að
í blöðum kom fyrirferðarlítil
tilkynning þess efnis, að
‘ kennsSa í spönsku fyrir al-
menning væri að hef jast í há-
skóEanum. Maðurinn, sem
þessa kennslu annast, er ung-
ur Spánverji, José Antonio
Fernanclez Romero; hann
lauk í fyrravetur norrænu-
, prófi við háskólann og er nú
nýkominn aftur hingað til
lands. En hann ætlar sér
annan og erfiðari starfa en
kennsluna eina; í þetta skipti
kemur hann hingað fyrst og
frerrtst til að þýða verk Lax-
ness á spönsku.
Þegar maður hittir Romero-, vek
ur það undrun hversu vel hann
talar íslenzku. Og fyrsta spurning-
in verður því eðlilega: Hefurðu
verið hér lengi? Og hvernig stóð
á því, að þú lagðir leið þína hing-
að til lands?
— Það liggja nú engar furðu-
legar ástæður til þess að ég kom
hingað í fyrsta skipti, segir Rom-
ero. Árið 1952 var auglýstur styrk-
ur handa Spánverja til náms á ís-
landi. Ég hafði þá hug á að velja
mér einhverja sérgrein íil náms,
var alveg óráðinn — og lét freist-
ast af styrknum. Síðan kom ég
hingað og kunni vel við mig, kom
hii’gað' aftur og nú hefi ég dvalið
hér 25 mánuði að öllu samanlögðu.
í þetta skipti er Laxness höfuð-
tilgaugurtnn með ferð minni; það
er samningum bundið að ég þýði
tvö verk hans, Heimsljós og ís-
landsklukkuna, á spönsku. Og nú
verð ég a'ð lesa og kynna mér sem
bezt allt eftir og um Laxness.
Eg hef þannig verið beðinn að at-
huga um möguleika á að þýða síð-
ustu bók hans, Brekkukotsannál,
en það mál er á undirbúningsstigi
ennþá. Ég er að lesa bókina....
Hvernig mér finnst hún? Ég get
nú tæpast gert mér grein fyrir því
enn sem komiö er. Jú, mér finnst
allmikið til hennar koma; hún er
ólík öðrum verkum Laxness,
kannske betur við hæfi útlendinga.
Ísíendingar og Spánverjar
— íslenzkar bókmenntir eru að
sjálfsögðu lítt þekktar á Spáni enn
sem komið er?
— Já, þær hafa lítið verið þýdd-
ar og þá úr öðrum málum en ís-
lenzku það lítið sem er. Sjáifstætt
José Antonio Romero
inn og var af sumum talinn líkleg-
folk eftir Laxness hefir þo venð astur tjj Nóbelsverðlauna í haust.
þytt a spönsku, kom ut í Argen-, ^f yngrj höfundum eru einkum
tinu. Ég man lika eftir barnabok-, mgrg athyglisverð Ijóðskáld, enda
um eftir Jón Sveinsson sem senni
lega hafa verið þýddar úr þýzku
eða frönsku. Eitthvað hefir einnig
hefir ljóðagerð alltaf staðið föstum
fólum meðal Spánverja. Einnig
eigum við nokkra góða skáldsagna-
verið skrifað um fornbókmenntir höfunda; það er athyglisvert að
ykkar; það er vist aðallega byggt a margjr þeirra fást einkum vi'ð trú-
þyzKum utgafum og gefið ut i ar]eg vándamál svipað og við þekkj
Argentinu. Eg man hka eftir að um úr írönskum bókmenntum ...
hafa seð ema bok eftir Knstmann | gn svo vug vjhjum ag ögru: jþað
Guðmundsson Morgunn lifsins er skemmtilegt athugunarefni,
hét hún víst. jhversu íslenzka og spánska eru
Spanverjar hafa þa varla mik- gej-gijbaj- tungur. Sennilega á þetta
il kynni af Islendingum sjalfum? uppruna sinn að miklu leyti j
— Jæja, þau fara heldur vax- ólíkri iyndisejnkunn þjóðanna;
andi. Þegar ég fór hingao xyrst,1 ímyndUnaraf 1 Spánverja er xrjáls-
vissi enginn neitt um Island, og iegra 0g skrúðugra en íslendinga,
kunningjar mínir töldu mig með ísiendingar eru aftur á móti þyngri
öUu glataðan. En ég kom reyndar jog fastari fyrir. 0g þetta speglast
aftur heill á huf i, hafði hvorki ver-! SVQ j rnálinu. spænska er eins og
ið etmn ne frosið i hel og þa sinfonia> islenzkan eins og högg-
urðu suœir meira en hissa. Upp mvncj j>etta gerir vitaskuld erfið-
: úr Þessu fengu ymsir studentar ara um vik að þýða úr öðru mál.
' áhuga á Islandi, studentaskipti
hafa tekizt milli landanna og all-
margir íslendingar dvalizt á Spáni
mu a hitt; margt sem er fagurt
og íilkomumikið í okkar máli, verð-
ur beinlínis hlægilegt, þegar það
Kj artan, Þórbergur,
Laxrtass
— En hefurðu nokkuð fengizt
við þýðingar úr íslenzku áður?
— Já, ég hef þegar þýtt tvær
bælcnr, íslenzkan aðal eftir Þór-
berg og Sól í fullu suðri eftir
Kjartan Ólafsson. Þær hafa ekki
verið gefnar út ennþá en samn-
ingar standa nú yfir um útgáfu
þeirra. íslenzkur aðall kemur vita-
skuld út í styttri gerð, margt í
bókinni höfðar til íslendinga einna
og suinir þættir ástarsögunnar eru
þess eðlis að vafasamt er að rit-
ÆkoðunÍR spánska leyfði birtingu
þeirra. Þeir gætu víst reynzt sið-
fcríi Spánverja eitthvað háskaleg-
ii ’ Það hefir reynzt mér ágæt æf-
ing að fást við þessar bækur, og
'ég hef notið aðstoðar ýmissa góðra
’manna; þannig hjálpaði Kjartan
Ó1 afsson mér mikið við þýðinguna
á bók sinni.
Forlagið, sem ætlar að gefa verk
Laxness út, er eitt stærsta útgáfu-
fyrirtækið í spánska heiminum,
Aquilar forlagið. Laxness kemur út
í sérstökum flokki Nóbelsverð-
launahöfunda, og verða bæði verk-
ir, í einu bindi. Þetta eru stórar
bækur og fallegar og mjög ódýrar.
Ef bókin fær góðar viðtökur, er í
ráði oð gera undantekningu og
gcía út annað bindi með verkum
Laxness.
Ég vil ekkert segja um það hve-
mær ég lýk þessu verki eða hvern-
ig það gengur. Þetta er erfiður
starfi og tjáir ekki að flasa að
neinu, aðalatriðið er að þýðingin
lánist sæmilega. Laxness er sjálfur
vel heima i spænskri tungu og bók-
menntum, og hann hefir lofað að
vera rflér innanhandar við þýðing-
una. Ég skal heldur engu spá um
það, hverjar móttökur bókin fær,
en hitt er víst, að áhugi er all-
mikill á Laxness meðal Spánverja.
um lengri eða skemmri tima. Allt hefir verið þýtt á íslenzku og eins
þetta hefir stuðlað að auknum er meg ýmisiegt ur ykkar bók-
kynnum, og emnig liafa þrir at-; menntum, í>annig held ég að ís-
i óurðir orðið til að Island komst til lendingasögurnar væru mjög íor-
umrasðu í blöðum og manna á þýddar a Spænsku, hinn knappi
milli. Það var í fyrsta lagi Nobels- sfill þeirra næst aldrei í þýðing-
verðlaun Kiljans, siðan alyktun Al- unnii missir áhrif sín með öllu.
! þingis um uppsögn lierverndar- xökum til dæmis litla setningu
samningsins og loks sigur Islend- eins 0g þessa: Miklir menn erum
ings á Ólympíuleikunum. Þetta hef vig; jjrglfur minn. Þetta hljómar
ir orðið til þess að almenningur ve| á sinum stag En á spönsku
hefir heyrt meira um Island og myndi þag lata j eyrum eins 0g
fengið meiri áhuga á landmu en fireinasti bjánaskapur.
nokkru sinni íyrr.
; Annars er það athyglisvert að ... . ,
Islendingar eiga mjög auðvelt með ^
að komast niður í spönsku; ég
miða þá aðallega við þá, sem hafa
stúdentsmenntun og kunna því dá-
lítið fyrir sér í latínu og frönsku.
En hvað um verk Laxness í
Það er einmitt það, sem ég
er að glíma við þessa dagana. Ég
held jafnvel að þeir kaflar úr verk
um hans, sem beztir yrðu á
Með því að leggja nokkra rækt j spænsku, ef vel lánaðist, séu tor-
við námið, geta þeir náð góðum i yeldasíir viðureignar. Það eru hin-
árangri á sex mánuðum, orðið vel ljóðrænu kaflar eins og t. d.
læsir á málið og komizt þó nokkuð uPPhafið að Fegurð himinsins. Ef
upp á lag með að íala
Eg held það væri vel farið af
frekari menningarskipti tækjust
með löndunum, því að báðar þjóð-
irnar hafa margt til hvor annarrar
að sækja. Spánverjar geta fengið
héðan íleira en saltfisk, fslending-
ar annað og meira en rauðvín frá
Spáni.
-------------------**
vel tekst til í þýðingunni, verða
þeir mjög fagrir — en ef þýðing-
in mistekst, er voðinn vís. Ljóð-
rænn skáldskapur Spánverja er
einmitt að miklu leyti í lausu máli
— t. d. verk Jimenez — og minnir
talsvert á þessa kafla hjá Laxness
eða Fornar ástir Nordals, svo að
dæmi séu tekin. Og það er vitað
mál, að Spánverjar kunna vel að
meta slíkt — ef þýðingin á þeim
lánast á annáð borð.
Þetta er erfitt verk, satt er það.
En maður reynir að vona hið bezta.
Munurinn á ísienzku
og arabisku
— Það var skemmtileg tilviljun,
segir José Antonio Romero að lok-
um, að Spánverji skyldi fá Nóbels-
verðlaunin næstur á eftir íslend-
ingi, og eru þeir þó ólíkir höfund-
ar að flestu leyti Laxness og Jim-
enez. En báðir eru þeir mikil
skáld og góðir fulltrúar þessara
ólíku þjóða á skáldaþingi. íslend-
ingar þekkja lítið til Jimenez,
Spánverjar lítið til Laxuess. Von-
ar af eldri kynslóðinni er tvímæia- j andi eiga þjóðirnar samí eftir að
lauSt Juan Ramón Jimenez. en j kynnast betur hinu bezta úr aienn
Baroja er einnig mjög mikils met-lingu hvor annarrar.
Sinfónía og höggmynd
— Hvað geturðu helzt sagt mér
um spænskar nýbókmenntir?
— Ja, ég er nú enginn bók-
menntafræðingur, þú mátt ekki
taka mig sem neinn spámann í
þeirn efnum. — En ég held það
megi segja, að við Spánverjar höf-
um misst mörg beztu skáld okkar
á undanförnum árum og áratug-
um, en þó ekki komið nýir menn,
sem skipa sess þeirra til fulls. Á
árum borgarastyrjaldarinnar lét-
ust þeir Lorca og Unamuno og
skömmu síðar Benavente, leikrita-
skáldið fræga, sem lilaut Nóbels-
verðlaun á sinni tíð. Ortega er ný-
látinn. Mesta núlifandi skáld oklc-
Kew Gardens er frægur um all-
an heim. Maður er nefndur Josep
Banks. Hann sigldi umhverfis jörð-
ina í leiðangri hins fræga sæfara
James Cook 1768—1771. Banks var
náttúrufræðingur. Hann ferðaðist
hór á landi árið 1772, og hafði tals
verð og vinsamleg afskipti af ís-
landsmálum á dögum Magnúsar
Stephensens. Eftir heimkomuna úr
; ieipangursferð Cooks, fór Banks að
hugsa um að koma á fót fyrirtæki
með útvegun plantna og plöntu-
sendingaviðskipti í brezka heims-
veldinu. Leiðangursmenn höfðu
komið með mikið af plöntum frá
ýmsum löndum og nú vildi Banks
láta reyna þessar og aðrar plöntur
víðs vegar i löndum Breta — í hag
nýtum tilgangi. Georg III konungi
leizí vel á hugmyndina og gerði
Banks að forstjóra hins konung-
lega grasgarðs vio sveitaþorpið
Kew, suðvestan við Lundúnaborg.
Starfaði Banks við garðinn í 40 ár.
í Kew voru fyrir þá þegar fjöl-
margar trjátegundir, stórir blóma-
garðar og nokkur stór gróðurhús.
Banks tók þegar til óspilltra mál-
anna og sendi á næstu árum hóp
duglegra grasafræðinga út í heim
í jurtaleit. Grasafræðingarnir ferð-
uðust víða og leituðu hvarvetna að
nytsömum trjám og runnum, mat-
jurtum, grastegundum og skraut-
jurtum.
Margir kannast við hina frægu
sögu „Uppreisnin á Bounty“, sem
einnig hefir verið sýnd hér sem
kvikmynd. Færri vita kannske að
einn grasafræðinga Banks var með
skipinu og átti m. a. að flytja brauð
aldintré frá Suðurhafseyjum til
Vestur-Indía. Seinna tókst að
flytja brauðaldintrén til mikilia
hagsbóta fyrir íbúa Vestur-Indía
Einn Banks-manna kom heim með
mörg skrautblóm frá Afriku og
eyjunum í Suður-Atlantshafi, t. d.
rósageraníuna, sem hér er ræktuö
í stofum. Grasafræðingarnir komu
einnig heim með þurrkaðar og
pressaðar jurtir svo nú er talið að
sex milljón eintaka sé geymt í
grasasafni Kew. Streyma þangað
vísindamenn til rannsókna. Banks
skildi að gagnsiítið var að dreifa
plöntum til nýlendnanna og viðs
vegar um önnur lönd, nema þar
væru til menn, sem kynnu að
rækta þær. Þess vegna stofnaði
hann garðyrkjuskóla, sem starfar
enn. Árlega sækja skólann 20 garð
yrkjunemendur utan Englands og
nema þar grasafræði og garðyrkju.
Er nú talið, að menn, sem lært
hafa í Kew, stjórni um 200 gras-
görðum víða um heim (eða séu
þar garðyrkjumenn). Standa flest-
ir þeirra stöðugt í plöntusendinga-
viðskiptum við Kew. — Enskur
læknir, Ward, gerði á árunum 1820
—1830 uppgötvun, sem mjög auð-
veldaði sendingu plantna um langa
vegu. Ward læknir hafði látið fiðr-
ildapúpur ásamt handfylli af
blautri mold í lokaða glerkrukku,
og ætlaði að láta púpuna klekjast.
En í staðinn spíraði burkni upp úr
moldinni, óx í loftþéttri krukk-
unni í 4 ár og lifði m. a. á vætunni
sem settist innan á glerið. Síðan
hafa Ward kassar verið notaðir
mikið til plöntusendinga. Á stutt-
um ferðum er mikið farið að nota
plastkassa og plastvefjur. Sérfræð
ingar frá Kew fluttu m. a. hið
fræga kínatré frá Perú til Ceylon
og Indlands. Varð það til þess, að
læknislyfið kínin lækkaði stórum
í verði. Með brögðum náðu þeir í
fræ af paragúmmítrénu; sáðu því
Sedrusviður
frá Líbanon-f jöllum í Kew Gardens
í gróðurhús í Kew og gróðursettu
plönturnar í Malajalöndum.
Með þessu var rofinn einkarétt-
ur Brasilíu með ræktun gúmmí-
trjánna og framleiðslu. Kew hafði
náð í fræ. sem upp af spíruðu 2000
gúmmítré. Það varð vísir að stór-
kostlegri gúmmíframleiðslu. Kew
hefir staðið fyrir geysivíðtækum
plöntuflutningum til nýrra heim-
kvnna. Nok.kur dæmi skulu nefnd;
Olíupálmar fluttir frá V-Afríku til
Indlands. ýmsar kryddjurtir frá
S-Ameríku til Afríku, fjölmargar
læknisjurtir, grastegundir, urmull
skrautiurta, triá og runna. Talið
er að um hundrað lönd hafi auðg-
að garða sína og gróðurríki með
plöntum frá Kew. Grasgarður Eng
lendinPa er bannig mjög mikilvæg
viðskintamiðstöð, jafnframt vísinda
starfseininni, sem er fræg um all-
an heim. Saut, er jafnvel að vísinda
menn frá Nýja Sjálandi, Pakistan
o. fl. löndum komi til Kew til að
rannsaka gróðurríki síns eigin
Jands! Það sé auðveldara þar en
heima. Enda ræður Kew yfir um
120 hektörum lands og þangað lief
! ir lengi verið safnað saman bæði
lifandi plöntum og burrkuðum
frá flestum löndum veraldar.
I íslenzkum grasgarði mun nú fyr
! irhugaður staður í Laugardalnum
; í Reykjavík. Hann á að verða bæði
i skrúðgarður og kennslugarður og
| jafnframt plöntuviðskiptagarður.
, Grasgarðsmálið hefir verið á döf-
! inni í hálfa öld hér á landi og má
|ekki dragast úr þessu. Væri æski-
I legt að bær og ríki bindist samtök
um um málið og hrindi því í fram-
kvæmd. — Ing. Ðav.
Styrkur ti! háskóla-
náms á Spáni
Ríkisstjórn Spánar hefir heitið
íslenzkum stúdent eða kandidat
styrk til háskólanáms á Spáni frá
1. október 1957 til 30. júní 1958.
| Styrkurinn nemur 16.000 peset-
'um nefnt tímabil. Ef námsmaður-
j inn æskir, mun honum verða út-
I vegað húsnæði og fæði í stúdenta-
garði, gegn venjulegu gjaldi. Styrk
; þegi þarf hvorki að greiða innrit-
. unar- né skólagjald.
' Þeir, sem kynnu að hafa hug á
iaðhljóta styrk þennan, sæki um
hann til menntamálaráðuneytisins
i fyrir 1. maí n. k.
Umsókn beri með sér, hvers kon
ar nám umsækjandi hyggst stnnda,
og fylgi staðfest afrit af prófskír-
teini svo og meðmælum ef til eru.
(Frá Menntamálaráðuneytinu).
Það má kannske skjóta því inn
að lokum, að íslenzka er bezt borg-
að mál á Spáni, betur en segjum
arabiska eða rússneska. Þýðing úr
íslenzku er greidd 10.000 pesetum ,
betur en þýðingar úr þessum
ágætu málum. Það er því varla
hægt að segja að íslenzkan sé van-
metin á Spáni. —
Við óskum hinum unga Spán-
verja til hamingju með þann árang
ur, sem hann hefir þegar náð.
Vonandi lánast honum að túlka
verk Laxness fyrir landa sína á
sem minnilegastan hátt.
Jó.
Tyrkneska stjórnin mót-
fallin bví aí leysa
Makarios úr haldi
ISTANBÚL - NTB, 3ð. marz. —
Ilafí er eftir góðum heimildum,
í Istanbúl í gærkveidi, að tyrkn-
eska stjórnin ínyn.di bera fraro
formleg mótmæli til brezku
stjórnarinnar vegna þeirrar á-
kvörðunar hennar að leysa
Makaríos erkibiskup úr haldi.
Tyrkneska stjórnin heldur því
fram, að Makaríos beri að miklu
leyti ábyrgð á hermdarverkun-
um á Kýpur.