Tíminn - 06.04.1957, Blaðsíða 12
VefriS I dag: '
Suðaustan gola eða kaldi, skýjað
og lítilsháttar rigning.
Hitinu kl. 18: 1
Reykjavík 6 stig, Akureyri 8 stig,
London 17 stig París 17 stig, Stokk
hólmur 8 stig, New York 6 stig.
Laugardagur G. apríl 1957.
Framsóknarvisi
næsta fimmtudag
Framsóknarfélögin í Reykja-
vík gangast fyrir Framsóknar-
vist fimmtudaginn 11. apríl í
Breiðfirðingabúð. Verður húsið
opnað kl. 8 og byrjað að spila kl.
8,30. Að spilunum loknum verð-
ur útlilutað verðlaunum til þeirra
sem bezlan árangur sýna. Séra
Sveinn Víkingur flytur ávarp. —
Eins og að venju verða síðan
skemmtiatriði og dans til kl. 1.
Fólki er vinsamlegast bent á
að tryggja sér miða i tíma með
því að hringja í síma 5564.
SamtmS Finna
og Rássa hæli
Moskvu, 5. apríl. — Tímaritið
Novoje Vremja í Sovétríkjunum
hirtir í dag grein um sambúð
Sovétríkjanna og Norðurlanda. Er
þar farið mjög lofsamlegum orð-
um um sambúð Finna og Sovét-
ríkjanna. Tilefni greinarinnar er
að 9 ár eru liðin frá undirskrift
vináttusamnings milli Sovétríkj-
anna og Finna. Hins vegar segir
í greininni að mikið vanti á að
sambúð hinna Norðurlandanna og
Sovétríkjanna sé sem skyldi. Eink
urn taki þetta til Noregs og Dan-
merkur. Stríðsæsingamenn færi
nú út áhrif sín í þessum löndum
og leytist við með tilstyrk endur-
vopnaðs Þýzkalands, að draga
þessi ríki æ fastar inn í hervarnar
kerfi sitt. Með tilliti til þessa sé
vinátta og hlutleysisstefna Finna
mjög mikilvæg.
Mikil hætta af kjarn-
orkuknúnum skipum
Tókíó, 5. apríl. — Gunnar
Randers yfirmaður kjarnorku-
stofnunar Noregs, sagði í Tókió
í dag, en þar er hann á ferð, að
hann byggist við, að köLIuð yrði
saman alþjóðaráðstefna til að
fjalla um öryggismál skipa, sem
knúin yrðu kjarnorkuvélum.
Kvaðst hann sammála ítölskum
vísindamönnum sem um þetta
hafa rætt, að stórmikil hætta
myndi stafa af slíkum skipum, ef
þau færust, strönduðu, rækjust á
eða skemmdust á einn eða annan
hátt. Enginn vísindamaður myndi
vilja taka á sig þá ábyrgð, að
mæla með eða standa fyrir smíði
kjarnorkuknúinna kaupskipa al-
mennt, nema fyrst færi fram
rækileg atliugun á öryggisráð-
stöfunum, sem gera þyrfti, ef
slík skip verða almenn, eins og
líklegt er talið að verði innan
mjög langs tíma.
Kjarnorkusprengju-
tilraun í Sóvét
Lundúnum, 5. apríl. í fréttum
frá Lundúnum segir, að kjarn
orkusprengja hafi verið sprengd
í Sovétríkjunum. Ekki var þess
getið, hvar sprengingin var gerð
né heíldur um hverskonar
sprengju hefði verið að ræða.
Nú er ekki gott i efni báðir hreyflar annars vængjar „bilaðir". Svona var
það á flugi yfir Þingvölium í gaer, skrúfurnar grafkyrrar.
I blindflugi meS Heklu og báða
hreyfla annars vængjar óvirka
Loftleiðir buðu blaðamönnum í gær í blindflugferð með
millilandaflugvélinni Heklu og var flug þetta liður í þjálfun
og prófun flugstjóra og flugmanna félagsins. Slík þjálfun fer
fram á sex mánaða fresti og miðar að því að viðhalda og auka
hæfni og öryggi flugmanna, einkum í því að ráða fram úr
vanda, þegar óvænta hættu ber að höndum.
Þjálfun þessi fer bæði fram í
Bandaríkjunum og hér á landi.
Loftleiðir senda flugmenn sína
vestur og eru þeir þar á nám
skeiði í kennslutækjum í blind-
flugi. Tæki þessi eru útbúin sem
stjórnklefi í flugvéi, ög eru þeir
æfðir þar og prófaðir í lausn
ýnússa flugþrauta. Tekur sú próf
un samtals 12 stundir.
í blindfiugi.
Eftir það hefst þjálfun í lofti.
Eru flugmennirnir látnir fljúga
blindílug og leysa ýmsar þrautir
við flug og lendingar. Það var eitt
slíkt flug, sem blaðamönnunum
var boðið í.
Þegar þeir komu út á flugvöll
um klukkan ellefu, var þar stadd-
ur Magnús Guðmundsson, yfir-
flugstjóri, en hann sér um flug-
þjálfunina. Var hann að fara í
loftið á Heklu með Sigurði Ólafs
syni, flugstjóra, sem reyna átti í
þolrifin að þessu sinni. Vélamað
ur var Ragnar Þorkelsson. Var
síðan lagt af stað og flogið austur
yfir Þingvöll. Byrjaði þar leikur
inn. Breitt var vandlega fyrir
gluggana í stjórnklefanum hjá
Sigurði Ólafssyni, en við hlið
hans sat Magnús og tók að leggja
fyrir hann ýmsar þrautir. Skipaði
hann honum að lækka eða hækka
flugið skyndilega, taka snarpar
beygjur og rétta vélina síðan af
aftur og finna rétta stefnu eftir
tækjum einum.
Á tveimur lireyflum á öðrurn
væng.
Þá stöðvaði Magnús annan hreyf
il á hægri væng og síðan hinn á
sama væng, og varð Sigurður að
fijúga vélinni á tveim hreyflum.
Minnkaði þá hraðinn en flughæð
hélzt, en þegar slíkt kemur fyrir
í farþegaflugi, sem sjaldan ber
Nýr samkomusalur í Gefjuni
á Akureyri tekinn í noikun í dag
Akureyri: í kvöld faeldur starfs
fólk verksmiðja Sambandsins á
Akureyri árshátíð sína og fer hun
nú í fyrsta sinn fram í nýjum
samkomusal, sem innréttaður
hefir verið á efstu hæð í nokkr-
um Iiluta verksmiðjubyggingar
Gefjunar.
Eru þetta allt ný húsakynni,
mjög rúmgóð og vistleg.
í tilefni þessa atburðar koma
hingað þeir Erlendur Einarsson,
við, er flugið lr^kkað í 5 þús. fet.
Var nú flogið um stund á tveim
hreyflum og gekk vel. Var ekki um
það að villast, að Hekla gat vel
haldið sér á lofli á tvemi hreyíl-
um.
Lending og flugtak.
Var nú flogið suður yfir Kefla-
víkurflugvöll, og renndi Sigurður
sér niður á flugbraut tvisvar eða
þrisvar, en hóf sig til flugs jafn-
skjótt og hjólin höfðu snert braut
ina. Loks var flogið til Reykjavík
ur, og hafði ferðin tekið um tvær
stundir.
Fagurt var að fljúga yfir Suð-
vesturlandinu í gærmorgun, heiö
ríkt og veður stillt. Þingvallavatn
er enn hálft undir ís, sem þó
er orðinn mjög sprunginn.
(forstjóri SÍS og Harry Frederiksen,
framkvæmdastjóri iðnaðardeildar
Sambandsins, og mun forstjórinn
flytja ávarp á samkomu starfs-
mannanna.
Þessi samkomusalur er einn hinn
stærsti og glæsilegasti hér í bæ,
og bætir mjög aðstöðu verksmiðju-
fólksins til samkomuhalds, auk
þess sem salurinn verður daglegur
mat- og kaffisalur að nokkru leyti.
Sigurður Ólafsson í stiórnklefanum.
Breitf er fyrir gluggana. Þetta er
blindflug.
Nýir flugstjórar.
í sambandi við þessa þjálfun
Loftleiða er verið að útskrifa tvo
nýja flugstjóra á millilandavélum
hjá félaginu. Eru það Magnús
Norðdahl og Hallgrímur Jónsson,
sem hefja starf í millilandsflug-
inu í vor. Einnig tvo aðstoðarflug
menn í millilandaflugi, þá Einar
Gíslason og Guðlaug Helgason.
Flugþjálfun sem þessi er mjög
dýr. Kennslustund í kennslutækj
unum í Bandaríkjunum kostar 58
dollara og um 6 þús. kr. kostar
klukkustundarflug í Skymaster-
vél.
Kadarsijórnin hefir byrjað nauðung-
arflntninga á folki á nýjan leik
New York, 5. apríl. — Leppstjórn Kadars hefir á ný tekið
upp þá ómannúðlegu aðferð að flytja þá, sem grunaðir eru
um andstöðu við stjórnarvöldin nauðuga úr landi eða að
minnsta kosti hrekja þá með litlum fyrirvara frá heimilum
sínum og skilja þá eftir á algerri vonarvöl. Síðan getur lög-
reglan tekið þetta fólk og flutt nauðugt til fangabúða eða úr
landi undir því yfirskini að það hafi gert sig sekt um flakk.
Þessar upplýsingar koma fram í
bréfi, sem einn af ungversku út-
lögunum í Bandaríkjunum sendi
blaðinu New York Times. Er mað-
ur þessi einn af stjórnarmeðlimum
útlagastjórnarinnar vestra.
Bílstjóri dk brctt
(rá fóthrotnusi
Stúdentar fyrstir.
Maður þessi heldur því fram, að
stúdentar hafi fyrst orðið fyrir of-
sóknum lögreglunnar, er Kadar-
stjórnin hóf baráttu sína gegn
uppreisnarmönnum eða þeim, sem
grunaðir voru um andstöðu við
Kadarstjórnina. Síðan kom röðin
að meðlimum í verkamannaráðun-
um, sem stofnuð voru víða um land
í uppreisninni.
Nú segir hann er einnig farin
herferð gegn fyrrv. miðstéttarfólki
í Ungverjalandi. Hafi verið gefin
út tilskipun í marz af innanríkis-
ráðherranum, þar sem lögreglunni
er heimilað að reka hvern þann,
sem grunaður er um að vera
stjórnmálalega eða efnahagslega
hættulegur, frá heimili sínu. Skulu
þeir tilkynna nýja aðsetursstaði
innan hálfs mánaðar. Takist þeim
það ekki, lenda þeir á vonarvöl
og hægt að fara með þá hver sem
vera skal undir því yfirskini að
þeir séu flakkarar.
Indónesía mótmælir
vetnissprengju-
tilraunum
London, 5. apríl. — Ríkisstjórn
Indónesíu hefir lagt fram form-
leg mótmæli við stjórnina í Lon-
don vegna fyrirhugaðra tilrauna
með vetnissprengjur í sumar á
Jólaeyjum. Segir í orðsendingunni
að hætta geti stafað af geislavirku
ryki, er breiðist út frá sprengju-
svæðinu og auk þess kunni fiski-
mið að spillast eða reynast hættu
leg.
dreng
Um klukkan sjö í gærkveldi
hljóp lítill drengur á bil á Hverf
isgötuuni og hlaut opið fótbrot.
Bílstjóriun ók brott án þess að
skeyta um þetta, eða hann varð
þess ekki var. Rannsóknarlög-
reglan auglýsti í útvarpinu eftir
bílnum og bað fólk, sem orðið
hefði vart við þetta að gefa upp
lýsingar. Brá margt fólk fljótt
við og Iét í té upplýsingar, og
náðist í bíistjórann á tíunda tím
anurn í gærkveldi, og stóð ranu
sókn slyssins yfir. Kvaðst rann-
sóknarlögreglan vera afar þakk-
lát fyrir, live fólk hefði brugðið
þarna fljótt og vel við.
Mikil hrifning á
hljómleikum
Smetana kvartetts
Smetanakvartettinn hélt fyrstu
hljómleika sína hér í gærkvöldt
í Austurbæjarbíói við mikla
hrifningu áheyrenda. Viðfangs-
efnin voru eftir Mozart, Janácek
og Smetana. Listamennirnir voru
ákaft hilltir og margkallaðir fram
fram að loknum leik efnisskrár-
innar. Þeir léku eitt aukalag eft-
ir Schubert. Aðrir hljómleikar
Smetanakvartettsins eru í kvöld
og eru þeir einnig fyrir styrktar-
félaga Tónlistarfélagsins. Á mánií
daginn verða þriðju og síðustu
hljómleikar þeirra félaga hér að
sinni.
Réttarhöldum yfir Adams lækni lýk-
ur senn viS Old Baiiey í Lundúnum
Verjandi telur sig ekki þurfa a<S Leiíia fleiri vitmi
þar e íS sakleysi dr. Adams sé augljóst
Lundúnum, 5. apríl. — Málaferlin gegn dr. Adams lækni
frá Eastbourne virðast nú nálgast lokin. Verjandinn Geoffrey
Lawrance féll skyndilega og flestum til undrunar frá því að
kveðja fleiri vitni en þau þrjú, sem hann þegar hefir leitt.
Alls voru það 25 vitni, sem hann hafði gert ráð fyrir að leiða
fram í réttinum. í lokaræðu sinni í dag sagði verjandinn, að
hann teldi ekki ástæðu til að leiða fleiri vitni. Framburður
þeirra, er þegar hefðu komið fram, ætti að vera nægjanlegur
til þess að kviðdómurinn hefði sannfærzt um sakleysi lækn-
isins.
Hann kvaðst ekki heldur myndi
leggja neinar spurningar fyrir sak-
borninginn. Hann væri nú eftir
margra mánaða fangelsisvist svo
illa farinn á taugum, að hann
þyldi illa spurningar og hik af
hans hálfu yrði ef til vill túlkað
sem vottur um sekt.
Tvísýnt hvernig fer.
Svo er að sjá sem verjandanum
hafi allmjög tekizt að veikja lík-
urnar fyrir sekt dr. Adams, hvern-
ig sem kviðdómur annars lítur á
það mál. Það kom sem sé í ljós, að
fleiri læknar en Adams höfðu
stundað frú Morell og einn þeirra
hafði gefið henni inn deyfandi lyf
í jafnvel enn stærri skömmtum en
ákærður.
Hví geymdi hann sjúkrabækurnar?
Saksóknari hélt enn fast við
ákæru sína um að dr. Adams hefði
myrt frú Morrel. Hann kvaðst ekki
beinlínis bera brigður á að sjúkra-
bækur þær, sem verjandinn hefði
lagt fram í réttinum og færðar
voru af hjúkrunarkonum frú Morr-
el, væru ófalsaðar, en hitt þætti
sér undarlegt að nokkur skyldi
hafa geymt þær svo lengi, þar
sem venja væri að brenna slíkar
bækur strax. Aðeins einn maður
hefði getað hagnazt á að geyma
þessar bækur og það væri dr. Ad-
ams, enda hefði hann varðveitt
þær. Rétturinn kemur á ný sam-
an n. k. mánudag.