Tíminn - 10.04.1957, Qupperneq 5

Tíminn - 10.04.1957, Qupperneq 5
TÍMINN, miðvikudaginn 10. apríl 1957. 5 Orðið er frjálst Guðm. Þorsteinsson frá Lundi Álit milliþinganefndar Margir þeir sem láta sig ein- hvérjti var'öa eyðingu refa og minka hér á landi hafa beðið með nokkurri eftirvæntingu þess, að eitthvað heyrðist frá nefnd þeirri sem sett var á rökstóla milli þinga til þess að hugleiða þau mál og leggja álitsgjörð fyrir alþingi það sem nú situr. M. a. fékk hún í veganesti fyrirmæli um að kynna sér skoðanir þeirra manna sem starfað hafa mest að eyöingu refa hér á landi. Nú hefur þetta nefndarálit í frumvarpsformi, þegar verið til atugunar fyrir Búnaðarþingi. Hvergi sézt á því að nefndin hafi ráðfært sig við refaskyttur við- víkjandi málinu, að því undan- teknu að skoðun Stefáns í Kal- mannstungu er hátiðlega tekin upp í frumvarpinu. Margar refaskyttur hafa þó á starfstíma nefndarinnar, látið álit sitt ótvírætt í ljós í blaðagrein um og á mannamótum, og allar í einu hljóði hafa á móti eitrun fyrir refi. En nefndin er á öðru máli, og vill fyrirskipa skilyrðis I laust eitrun um land allt, í afrétl um og heimahögum. Mörg rök hafa verið færö fram gegn eitrun, bæði af skyttum og öðrum, en ekki er mér kunnugt að neinn hafi mælt henni bót op inberlega. Þora eitrunarsinnar virkilega ekki að verja skoðun sína, eða þykjast þeir yfir það hafn ir að ræða við menn um það sem skiptir þjóðina miklu hvernig ráð ið er til lykta? Bent hefir verið á þá hættu sem stafað getur af víðtækum eitrunum, bæði fyrir önnur dýr og jafnvel menn. Ekki virðist nefndin treysta sér að neita því, en gefur í skyn að finnast kunni betri að- ferðir við eitrun — sem engan veginn er ómögulegt. Þá tæpir hún á því, að til kunni að vera mildari eitrunartegundir en strykknin. Ekki er þó vitað að þær hafi verið einu sinni reyndar hér á landi, hvað þá að hægt sé að benda á jákvæðan árangur. Sumar bolla- leggingar nefndarinnar um þetta eru jafnvel helzt á óskhyggju- og draumórastigi, lítt til þess að vekja traust. Samt leggur hún til að fyrir brot á fyrirmælum hennar sæti sveitarfélög sektum, allt að 10.000 kr. — nema þyngri refs ing liggi við samkv. öðrum lögum, og missi opinbers framlags til fram lafgs til refaeyðingar. Þar sem sá kostnaður er hár getur þetta því numið fleiri tugum þúsunda, sam tals. Slík lög hefðu einhverntíma verið nefnd þvingun, þegar þess er gætt hverri mótspyrnu eitrunar hugmyndin hefur sætt í blaðgrein um. Margar skyttur hafa eindregið lýst þeirri skoðun, að eitrun sé algjörlega neikvæð, þó nokkrar hinar vesælustu og meinlausustu tófur kunni að farast af henni, og varað algerlega við eitrun vegna þess. Þessu hefur ekki verið mótmælt opinberlega hvað þá að það sé afsannað — sem reynast kynni örðugt. Þeir sem m. a. hafa lýst þessari skoðun eru öndvegishöld ar meðal íslenzkra refaskytta, sem sé Jón heitinn í Ljárskógum, Guðmundur Einarsson á Brekku Theódór á Bjarmalandi og fleiri slíkir, sem eru flestum mönnum fróðari um allt það sem viðvík- ur tófum og tófuveiðum. Samt ætlar nefndin að gjöra eitrunina að aðalhaldreipi í baráttunni við tófuna. Það er velþekkt fyrirbrigði, að þeir sem einhvernveginn hafa öðl- ast aðstöðu til þess að ráða, vaxi fljótt upp úr því að taka til greina bendingar frá alþýðunni. En þegar þeir hafa svo, með flasfengni og offorsi, leitt ómælandi töp yfir þjóðina, þá fer alþýðan náðar- samlegast að „borga brúsann", eins og t. d. slysin sem fylgdu inn- flutningi karakúl-fjárins, sem eng inn veit sennilega hvað mikið kost- að hafa þjóðina, og innflutning minksins, sem þegar er að verða alvarlegri plága en refurinn — þó stjórnarvöldin séu tæpast vökn- uð enn til þess að hefta útbreiðsiu hans, hvað þá til þess að sækja á. Þess vegna er naumast von að neinn óri fyrir því enn hv,að það á eftir að kosta þjóðina í örðug- leikum, skapraunum og verðmæt- um. En það er ekki heldur séð fyrir endann á því hvað þessi allsberjar- eitrunar-glópska getur orðið dýr, að samantöldu, ef reynslulitlir ráða menn geta knúið hann fram, GEGN ráðum og tillögum þeirra sem reyndastir eru og fróðasíir um þessi mál, — og þingmenn okkar bera ekki gæfu til þess að gjalda við henni meiri varhuga en innflutningi fjárpestanna og minksins. HEIMILD — SKYLDA. Þess er skyit að geta, að minni- hluti nefndarinnar, Páll Pálsson, yfirdýralæknir vildi aðeins mæla með heimild til eitrunar, í stað skyldu þeirrar sem frumv. krefst. Á þessu tvennu er regin-munur. Segja má að ekki væri sanngjarnt gagnvart þeim sem tekist hefur að varðveita barnatrú sína á skefjalausri eitrun, allt frá s. I. aldamótum, að fyrirmuna þeim að sannreyna ágæti hennar. En engu sanngjarnara væri gagnvart hin- um, sem sannfærðir eru um gagns leysi eitrunar í aðra röndina, en skaðsemi í hina, að neyða þá með afarkostum til þess að hræsnast við hana — enda sýnilegt hversu vandlega hún yrði þá framkvæmd. Torskilið mun heldur að ekki sé hægt að sýna tilhlýðilega virð- ingu skoðun Stefáns í Kalmanns- tungu, þó hún sé ekki vegin þyngri á metum en skoðun allra þeirra sem ritað hafa í blöðin að undan- förnu um þetta mál og skilyrðis- laust lagzt gegn eitrun. Væri af þessum orsökum, og mörgum fleirum, vægasta krafa til heilbrigðrar skynsemi þingmanna okkar, að þeir lögfestu ekki eitrun ar-skyldu, þó heimild kæmi til greina. Er ólíklegt að það verði til mikils sársauka Búnaðarþingi því sem nú hefur lokið setu, að j samþykkja athugasemdalaust slíka j fjarstæðu, sem allsherjar-eitrun um land allt. Þá er annað atriði sem flestir þeir, sem um þessi mál hafa ritað, bera mjög fyrir brjósti, og mæla með sem heillavænlegri endurbót, en það er verulega hækkun skott- anna fyrir hlaupatófur (fyrst og fremst vetrarveiði). Nefndin stikl- ar í kringum þessa hugmynd með svipaðri varfærni og um kjarn- sprengju væri að ræða. Það er sjálfsagt ómetanlegt, að forustu- mennirnir séu varkárir, einkum þar sem hin einfalda alþýða sér enga hættu! Nefndinni er ekki grunlausa, að það hafi lítinn ár- angur borið erlendis að hækka skotlaun cg finnst því varhuga- vert að hætta verulega á það, — og þykir jafnvel líklegt ef tófum fækkaði að mun ,að þá bæri hækk unin engan árangur hér. í nefndar áliti er sundurliðuð skýrsla um ýmislegt viðvíkjandi refaeyðingu, sem nær yfir s. I. þrjú ár. Þar er liður sem ætla má að sé nokkurn- veginn áreiðanlegur, því hann hef ur lengi verið bókaður árlega, en það er árlegur heildarkostnaður við refaeyðingu. Hann sýnir þessi þrjú ár stöðugt hækkun, sumsstað ar með risaskrefum. Virðist því ekki svo bráð hætta á fækkun refa, að ekki megi hætta á hækk- un skotlauna vegna þess. Þá er helzt að skilja, að nefndin sé and- víg þessari hækkun af sparnaðar ástæðum. Já, aldrei skal ég mæla á móti hagsýnum sparnaði. En gömlu búmennirnir minntust stöku sinnum á það með góðkíminni vorkunsemi, að spara eyrinn en spilla krónunni“. Vonandi dettur engum í hug slíkt í þessu sam- bandi! VETRARVEIÐI. Vík ég þá nokkrum orðum að vetrarveiði: Meðan skinnaverð var hátt, stunduðu margir hana með ágætum árangri, sér til mikilla tekna. Þegar skinn urðu verðiaus og lítt seljanleg, lagðist sú veiði niður að mestu, þó fáeinir ein- staklingar geri alltaf nokkuð af henni, mest af ahuga og þegnskap. Hafa Þingeyingar alitaf verið ofar- lega í þvi nytjastarfi. En þetta hefir aldrei verið litið stórum aug um af löggj'aíarvaldinu, svo þegar fyrst var efnt til skotlauna af opin beru fé, voru þau IILÆSILEGA smásálarleg (mig minnir 60 kr.) eða varla fyrir skósliti. Ofurlítið þokast þau upp á við, en engan- veginn í samræmi við nauðsyn. Meðan vetrarveiði var stunduð af kappi, átti hún drjúgan þátt í fækkun tófu, og munu í sumum sýslum hafa verið unnar miklu fleiri tófur á veturna en vorin, þó grenjavinnsla hafi oftast endra- nær verið drýgsta eyðingar-aðferð in. í gengisleysi vetrarveiða, nú á annan tug ára, má líklega sjá aðal-orsök þess hversu grenjakostn aður hækkar ört. Ætti mönnum því að vera ljóst að vetrarveiði j Ma ekki falla niður, en til þess að nokkur fáist til þess að stunda hana að ráði, verða menn að fá nokkur laun erfiðis síns, — sem er meira en þeir geta skilið, sem lítið þekkja til þeirra starfa. ; Kostir vetrarveiði eru margir. I Þar læra rnenn fyrst og fremst að I reynslunni, og eru frjálsir að því j að gera glappaskot alveg á eigin I ábyrgð, en fá við það áhuga fyrir þessari snjöllu íþrótt, sem eflir bæði líkamsþrek og hyggjuvit. Þá er engin aðferð öruggari til þess að kynnast leyndum refaholum og nýjum grenjum en sú að elta tófu slóðir. Enginn aðferð býður held- ur önnur eins skilyrði til þess að æfa nýliða til þess að taka við af eldri skyttum, jafnótt og þær hljóta að leggja niður vopn sín, samkv. eðlislögmáli. Sé nokkuð greitt að gagni fyrir þessa veiði, geta snjallir menn og röskir hagn- ast á henni, fyrir eigin heppni og atorku — og eru vel að því komn- ir. Á grenjum er svo mikið í húfi að nýta tækifærin, að betra er að þurfa ekki að byrja þar með algjöra nýliða. Loks er svo það, að engin aðferð við eyðingu refa er jafn mannúðleg og að skjóta þá á vetrum. VANDAMÁL, SEM EKKI VERÐUR UMFLLTÐ. Svo lengi sem reynt er að byggja búskap landsmanna að töluverðu leyti á sauðfjárrækt, neyðumst við til þess að standa í styrjöld við tófuna. Nú þegar er kvartað yfir því sumsstaðar, að illa gangi að fá hæfar skyttur til þess að vinna greni. En hvað haldið þið þá að verði eftir 10—20 ár, þegar flestar þær skyttur sem nú eru heilla- drýgstar, verða hættar, ef ekkert er gert til þess að örva unga menn til starfsins? Ég þykist hafa fært fyrir því skiljanleg rök, að sæmi- leg hækkun skotlaúna, sé hin lík- legasta, og i rauninni hin eina leið til þess að tryggja að refa- skyttur hverfi ekki úr sögunni. Ræð ég því eindregið til þess að hún verði reynd, — nema ráða- menn okkar séu þegar farnir að sjá það í glæstum hillingum að þetta sé eitt starfið, sem við getum látið útlendinga vinna fyrir okkur, á meðan við brjótum egg og burst um skó fyrir agra útlendinga, — sem auðvitað er miklu léttara verk og löðurinannlegra — þar til við komumst á svo hátt menning- arstig, að búa allir í nokkrum þorp um, geturn hætt að snúast við sauðkindur, en lofum minkum ein um og refum að rífast um lands- nytjar og bítast um yfirráð sögu- frægra höfuðbóla. KRAFA BÚNABARÞINGS. Fyrir tveim árum dirfðist Bún- aðarþing að fara þess á leit að op- inbert framlag fyrir að skjóta hlaupatófu yrði hækkað í 300 kr. Alþingismönnum okkar þótti þessi hógværa ósk firn mikil, brugðu karlmannlega sveðjum sínum, og nitíTm 11jn yTj-* Smetanakvartettinn í Austurbæjarbíéi á tónleikunum föstud. 5. opríl Smetana-kvarteltÍEe frá Prag Aðrir hljómleikar Smetana- kvarteítsins frá Prag voru í Aust urbæjarbíói á mánudagskvöldið og voru viðfangsefni eftir Beeí- hoven, Brahms og Dvorák. Húsið var þéttskipað áheyrendum, r-em fög'nuðu listamönnunum mjög innilega. Smetana-kvartettinn hefir áður verið kynntur í Tímanum. Hann skipa þessir menn: Jiri Novák, fiðla, Lubomir Kostecký, 2. fiðla, dr. Milan Skampa, víóla og Antonin Kohout, selló. Allt eru þetta ungir menn og einkar við- feldnir. Mest er þó um vert, að þeir eru afburðasnjallir listamenn, hver á sínu sviði og allir sameig- inlega, og ágætir fulltrúar tékk- neskrar menningar og listar. Þess ir hljómleikar voru unaðsstund. í leik fjórmenninganna fer saman mikil kunnátta, sniöll listtúlkun og fullkomin þjálfun og fágun. Þarna var hvergi snurða á þræðin um, verkin féllu fram eins og tær lind, stundum blítt og angurvært, stundum með fossafalli, samt aldr ei svo að útaf flóði. Listamenn- irnir flvtja verkin af svo mikilli kunnáttu, að þeir þurfa ekki nqjt ur að lesa, músíkin streymir bcint írá hjartanu. Fjórir menn ganga inn á sviðið, þar sem stnnda 4 stólar, taka sér sæti, og svo hofst leikurinn, og aldrei er minnstx hik á neinum. Fj’rsta verkið á efnisskránni var kvartett í c-moll op. 18. nr. 4 eft- ir Beethoven. þar næst kvartett í B-dúr op. 67 eftir Brahms, loks kvartett í As-dúr op. 105 eftfr Dvorák. Það cr ástæðulaust að fnra að gera upp á milli flutnings þc:>sára undurfögru verka. Þau voru öll snilldarvel leikin. E. t. v. var rnest ur þróttur og heitastur hljómur í kvartett Dvoráks, og má kalia það að vonum. Þetta eru einhverjir ánægjuleg- ustu tónleikar Tónlistarfélagsiris um langa hríð, og er það ekki sagt til lasts neinum listamanni, sem á undan hefir farið. En kcma Smetana kvartettsins er tónlistar- atburður, sem lengi mun minnzl. Þá komust menn í snertingu við hin fegurstu tónlist eins og hún er flutt af hinum ágætustu lista- mönnum. Ac. lctu skammt stórra höggva milli jingu þessara laga, held ég veija þar til þeir höfðu skorið tillöguna! það, að telja vandlega þau d;)r, niður í 180 kr., sem gilt hefir síð-; seni vinnast, en þar til var að 'ns an. Milliþinganefndin hætti á, eft-jbókaður heildarkostnaður refaeyð- ir varfærna athugun, að leggja íii, j ingar. Þess vegna er ekki þægilcgt að þetta vrði fært upp í 250 kr. j aS sýna betta í töJum, en reynt — og h'efir víst þótzt sýna verulega skal að drepa á það: í fyrra grennsl rausn! Loks vogar Búnaðarþing sér; aðist ég efir þessu í min.ni vveit. svo að leggia til að hækka þetta í Heildarkostnaður refaeyðingar ; ar 400 kr. -— og hefir liklega marg-jtil frá mörgum árum, en ekki dýra an sund'að, þegar komiB er í slíka i talan. En þar sem ég þekkti aýar hæð!! Annars hlýtur það að vera {grenjaskytturnar, fékk ég dýratöl- Ijóst hverjum þeim, sem þekkir juna hjá þeim. frá næstliðnu voH, eitthvað til vetrarveiða, að þeir,og komst að þeirri niðurstöðu, að sem að slíku káki standa, munu j kosta mundi þar nær 1200 kr. ekkí oft hafa látið sig fenna í kaf j grenjadýrið. Hjá oddvita annarar á greni, legið margar klst. fyrir isveitar ekki mjög langt frá, fékk ég tófu í snjó og kulda, eða gengið; þessar tölur fyrir sama vor, og frá 40—80 km. á dag, o. s. frv., cn i kostaði þar fullum helmingi meira ekkert af þessu verður íalið til j dýrið, eða 2500 kr. Nú fyrir fáum mjög fágætrar reynslu meðaL dögum spurði ég tvo oddvita úr þeirra, sem lagt hafa að sér við: nærsveitum Rvíkur eftir þessum vetrarveiði. Nei, því miöur erujtölum hjá þeim á s. 1. vori. Hjá þessar tillögur líkastar því að vera j öðrúm þeirra kostaði grenjadýrið’ runnar undan rifjum þeirra ! 2300 kr., en hjá hinum 3480 kr. pg manna, sem varla hafa mígið í j rúml. þó. (Þessar tölur eru miðað- mosató, eða stigið á stein, nema! ar við það, að jafna öílum grenja- steyptan af mannahöndum. Og enn \ kostnaði á fullorðnu dýrin, til öám- eiga svo þingmenn okkar eftir að! anburðar við vetrarveiði, — þV: þó þæfa þessar tillögur; þarí varla að' einhvern tíma kunni að hafa Verið ástæða til þess fræðilega, að vara kastað verði til þess óttast að höndum! En hvað allar þessar vangavelt- ur um smámuni, kosta höfuðgjöld margra refa, veit ég því miður ekki, — sem ekki er von, þvi ekki er einu sinni víst að þingskjölin beri þ«að með sér, en töluverð upp- hæð hlýtur það a'ð verða. Það veröur að skeika að sköp- uðu, þó hárin rísi á höfðum bing- | mannanna, en ég trúi því, að með I núgildandi verðlagi eigi skóílaun fyrir hlaupadýr, ekki að vera lægri en eitt þúsund krónur á dýr. Væri þetta viðtekið, myndi grenj- um fækka að mun, og kostnaður þar með lækka. Hafa sparnaðar- postular okkar nokkurn tima gjört sér það ómak að athuga, hyað grenjavinnsla kostar á dýr? IIEILDARKOSTNAÐUR. Þarfasta nýmæli í síðustu breyt-l bæhdur við að setja á lömbin’urrd- an ánum, sem drepa undan sér á vorin, munu skyttur ekki trúa því almennt, að liggja þurfi á grenjiíjn fyrir þær tófur, sem skotnar eru á vetrum, eða hafa fyrir yrðlingufn þeirra). Þá má heldur ekki- ganga fram hjá þvi, að oft hafa tófur gjört ærinn skaða, frá því að þær leggjast í greni og þar til þau tru unnin.. Má þar aðeins hafa hlió.ión af sögu Guðm. Einarss-otlar á Brekku (Tíminn, 8.3. 1957) þcgar tveir bítir sluppu af grenjum Lund rlælinga vorið 1395. Bændiir vðru •þó ósmeykir við það, og eitruðu rausnarlega fyrir þá veturinn cítjjp, .sem var harður. En svo neyðarleg- ir og kaldrifjaðir voru þessir rcfjp, að i stað þess a(S farga sér á eitfi, eins og til var ætlast af þoim, drápu þeir næsta vor 40 lömb og (Framhald á 8. síðu).*

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.