Tíminn - 10.04.1957, Page 6

Tíminn - 10.04.1957, Page 6
6 Útgefandi: Framsóknarflokkurlnn Ritstjórar: Haukur Snorrason, Þórarinn Þórarinsson (áb), Skrifstofur í Edduhúsinu við Lindargötu Símar: 81300, 81301, 81302 (ritstj. og blaðamenn). Auglýsingar 82523, afgreiðsla 2323. Prentsmiðjan Edda hf. Viðskilnaður Olafs og skólaskipið MORGUNblaSið skýrir írá því í gær undir stórri fyr irsögn, að fjórir þingmenn Sjálfstæðisflokksins, þeir Sig urður Bjarnason, Sigurður Ágústsson, Magnús Jónsson og Kjartan J. Jóhannsson, hafi lagt fram á Alþingi til lögu til þingsályktunar um athugun á því, hverni'g ungir menn verði örvaðir til þátt- töku í sjómennsku og um skólaskip. Mbl. segir að tillag an hljóði á þessa leið: „Alþingi ályktar að kjósa 5 manna nefnd til þess að rannsaka og gera tillögur um leiðir til þess að örva unga menn til þátttöku í sjó- mennsku og fiskveiðum. Skal hún m. a. athuga möguleika á rekstri skólaskips fyrir ung sjómannaefni og gera til- lögur og kostnaðaráætlun um útgerð þess og tilhögun hennar.“ ÞÁ minnist Mbl. á greinar gerð þá, sem fylgir tillög- unni og birtir m. a. eftirfar andi kafla úr henni: „Það er kunnara en frá þurfi að segja, að undanfar- in ár hefur ríkt mikill og vaxandi skortur á sjómönn til þess að manna íslenzka fiskiskipafiotann. Hefur því orðið að fá erlenda sjómenn til starfa á skipunum, bæði togurunum og vélbátunum. Samkvæmt upplýsingum Landssambands íslenzkra út vegsmanna munu nú vera um 1000 færeyskir sjómenn á íslenzkum fiskiskipum. Er það a. m. k. Vs hluti allra þeirra sjómanna, sem á flot- anum eru . Engum dylst, að ef fslend- ingar verða framvegis að manna fiskiskipaflota sinn erlendum mönnum, er vá fyrir dyrum“. Flutningsmenn virðast svo helzt sjá það til úrbóta á þessum vanda, að athugað- ur sé möguleiki fyrir rekstri skólaskins fyrir ung sjó- mannsefni. í GREINARGERÐ þeirra þingmanna S.iálfstæðisflokks ins er það ekki rakið, hvaða orsakir liggja til þess, að íslendingar fást ekki leng ur til sjómennsku, og und- ir hverra leiðsögn sú öfug- þróun hefur átt sér stað. í þessu sambandi er það nefni lega ekki ómerkilegt umhugs unarefni, að seinustu 10 ár- in eða frá því í janúar 1947 þangað til í júlí 1946 heyrði stjórn sjávarútvegsmálanna undir ráðherra úr Sjálfstæð isflokknum, þar af seinustu sjö árin undir Ólaf Thors. Undir þessari handleiðslu á sjávarútvegsmálunum hefur þessi öfugþróun átt sér stað. Forkólfar Sjálfstæðis- flokksins hafa oft stært sig af því, að þeir hefðu manna mestan áhuga fyrir vel- gengni sjávarútvegsins. Hvernig má það ske, að flótt inn frá sjávarútveginum hef ur fyrst og fremst átt sér stað undir handleiðslu þeirra? Svarið er ósköp einfallt. Stjórn sjávarútvegsmálanna hefur verið í fyllst ólestri seinustu árin. Þannig hefur verið búið að samkeppnis- færasta atvinnuvegi þjóðar- innar, að hann hefur orðið mesti styrkþegi þjóðfélags- ins. Fjármagn og vinnuafl hefur því leitað ahnað. f lok stjórnartímabils Ólafs Thors blasir því þessi stað- reynd við: Sjávarútvegur- inn er á pappírnum mesta hallafyrirtæki þj óðarinnar, um langt skeið hefur ekkert verið gert til að efla og end urnýja togaraflotann, og fiskiskipin eru að % hluta rekin með erlendu vinnu- afli! VEL má vera, að það sé góð hugmynd að fá skóla- skip. En skólaskip munu þó lítils megna til að snúa af braut þeirrar öfugþróunar, sem átt hefur sér stað sein- ustu árin undir sjávarútvegs stjórn þeirra Sjálfstæðis- manna. Ef sjávarútvegurinn á að halda hlut sínum, verð ur að vinna markvisst að því að tryggja honum og sjó- mönnum þann hlut, sem þeim ber. Núv. stjórn hef- ur þegar unnið merkilegt starf í þá átt. Hún tók bet- ur kröfum útgerðarmanna við seinustu áramót en áð- ur hefur verið títt og hún hefur gert lagfæringar á hög um sjómanna, m. a. með auknum skattahlunnindum sjómanna. Hún hef.ur hafist handa um éflingu og endur nýjun fiskflotans. Það mikla viðreisnarstarf, sem hér bíð ur, verður hins vegar ekki unnið allt í einu. í slíkt óefni voru þessi mál komin, þegar Ólafur skildi við. Hver sagði Mogganum aprílfrétt? UM seinustu mánaðarmót birti Mbl. þau tíðindi í Reykjavíkurbréfi sínu, að þrír nafngreindir fyrrv. og núv. alþingismenn hefðu verið skipaðir í einhvers- konar nefnd, sem blaðið kall aði „yfirstjórn búnaðar- mála“ (!), og hefði svo mik- il völd, að með tilkomu henn ar væru aðrar stofnanir land búnaðarins í raun og veru að engu gerðar! Svo mikið fannst Mbl. um frétt þessa, að það birti myndir af „nefndarmönnum“ öllum. En þegar farið var aö spyrja „nefndarmennina“ um störf þeirra kom í ljós, að þeim var þessi nefndar- skipun Morgunblaðsins ó- kunn með öllu, og kváðust ekki vera í neinni nefnd sam an, hvorki í landbúnaðar- TIMINN, miðvikudaginn 10. apríl 1957. ERLENT YFIRLIT: Þingkosningarnar í Danmörku Veríur mynduð ríkisstjórn á Weiðum grundvelli eftir þær? Á FÖSTUDAGINN kemur mun danska þingið ljúka störfum sín- um að þessu sinni. Áður en það lýkur störfum, munu fara fram almennar pólitískar umræður, sem verða eins konar upphaf kosninga- baráttunnar, sem er fyrir höndum, en þingkosningar eiga að fara fram 14. maí næstkomandi. Að rcttu lagi hefðu kosningarn- ar ekki átt að fara fram fvrr en í september, en almennt samkomu- lag hefir orðið um að flýta þeim um þennan tíma. Ástæðan til þess er m. a. sú, að horfur eru nú mjög erfiðar í efnahagsmálum Danmerk- ur. Mikið verðfall hefir nefnilega orðið erlendis á landbúnaðarafurð- um, sem eru helztu útflutnings- vörur Danmerkur. Rétt þykir að ný stjórn, sem ekki hefir kosning- ar yfir höfði sér, glími við þann vanda, enda vona menn að hin nýja stjórn verði eitthvað sterk- ari en núverandi stjórn, sem er H. C. H A N S E N minnihlutastj órn Alþýðuflokksins eins. Radikalir hafa veitt henni stuðning og þannig varið hana falli. FLOKKASKIPTING er nú þann- ig í danska þinginu, að Alþýðu- flokkurinn hefir 74 þingmenn, Vinstri flokkurinn 42, íhaldsflokk- urinn 30, Radikali flokkurinn 14, Kommúnistaflokkurinn 8 og Rétt- arsambandið 6. Skoðanakannanir hafa farið fram nokkrum sinnum undanfarið á fylgi flokkanna. Seinasta könnun- in fór fram í febrúarmánuði síðast- liðnum. Ef marka má niðurstöður hennar, mun Alþýðuflokkurinn tæplega halda sama fylgi og í kosningunum 1953, kommúnistar munu tapa verulega, en allir hinir flokkarnir munu vinna lítilsháttar á, Vinstri flokkurinn þó einna mest. Samkvæmt niðurstöðum þessarar skoðanakönnunar veltur það á blá- þræði, hvort kommúnistar missa ekki öll þingsæti sín. Til þess að fá þingsæti, þarf flokkur annað hvort að vinna kjördæmasæti eða fá yfir 60 þús. atkv. samanlagt. Samkvæmt skoðanakönnuninni ættu kommúnistar að fá 65 þús. atkv., en fengu 93 þús. atkv. 1953. Þá fengu þeir formann sinn, Aksel Larsen, kjördæmakosinn, en hann virðist í mikilli hættu að missa sæti sitt, ef niðurstaða skoðana- könnunarinnar reynist rétt. málum né öðrum. Einhver hrekkjalómur hef ir þarna sagt Mbl. apríl- frétt, sem það hefir tekið alvarlega, eins og afmælis- greinina frægu um franska skattstjórann í vetur. i KOSNINGABARÁTTAN er enn | ekki hafin að ráði, a. m. k. bera j blöðin ekki merki hennar. Fátt I bendir til þess, að hún verði átaka- j mikil. Á kjörtímabilinu, sem er að ; líða, hefir ekki skorizt neitt stór-1 vægilegt í odda milli flokkanna, j þar sem stiórnin hefir orðið að j i semja um öll helztu málin við and j stööuflokkana. Stærsta málið, sem hefir verið afgreitt á kjörtímabil- inu. er löggjöfin um almennan ellilífeyri. Með henni hafa Danir tekið upp víðtækari ellilífeyri en nokkur þjóð önnur. Verður því vafalaust veitt athygli víða um heim, hver reynsla þeirra verður af benni. ! Horfur eru ekki á því að kosn- ingabaráttan einkennist af neinum djúpstæðum ágreiningi milli flokk- anna. Alþýðuflokkurinn mun t. d ekki setja neina þjóðnýtingu á oddinn. Afstaða kjósenda til flokk- anna mun mjög markast af því, hverjum þeir treysta bezt til að fást við lausn hinna mest aðkall- andi dægurmála. Margir kjósendur virðast enn ekki ráðnir. Þannig virðist það t. d. vera með þá, sem hafa fengið atkvæðisrétt síðan 1953. Við skoð- anakönnunina í febrúar svöruðu 50% þeirra, að þeir væru óákveðn- ir. Af þeim, sem voru ákveðnir, fylgdu 50% Alþýðuflokknum, 20% Vinstri flokknum, 13% íhalds- flokknum og 10% Radikalaflokkn- um. ALLT BENDIR til, að kosninga- baráttan milli aðalflokkanna muni fyrst og fremst snúast um innan- landsmálin, en utanríkismálin muni lítt bera á góma. Þannig er búizt við því, að allir aðalflokk- arnir muni standa að svari dönsku stjórnarinnar til Bulganins. f sam-1 bandi við það hefir hið óháða blað ; í Kaupmannahöfn, „Information", I gert allharða liríða að Erik Erik-1 sen, formanni Vinstra flokksins, í j tilefni af því, að „Vestkysten" í Esbjerg, sem hefir verið talið mál- gagn Eriksen, birti hógværari for- ustugrein um bréf Bulganins en flest hinna dönsku blaðanna. „In- formation" hefir spurt Eriksen, hvort hann væri eitthvað að nálg- ERiK ERIKSEN ast sjónarmið Radikala flokksins. sem fylgir hlutleysisstefnu. Eriksen hefir svarað með því að hann hefði fylgt þátttöku Dan- merkur í Atlantshafsbandalaginu, og stefna sín væri enn óbreytt að því leyti. „Information“ dregur þá ályktun af þessu m. a., að heldur sé að draga úr samstöðu íhaldsflokksins og Vinstri flokksins í utanríkis- og varnarmálum. Það hafi m. a. kom- ið nýlega fram í þinginu, að Vinstri flokkurinn vildi ekki ganga eins langt í vígbúnaðinum og íhalds- flokkurinn. Allmikið er þegar rætt um það hvaða stjórn muni fara með völd í Danmörku eftir kosningar. Áður en minnihlutastjórn Alþýðuflokks- ins tók við, fór með völd minni- hlutastjórn Vinstri flokksins og í- haldsflokksins undir forystu Erik- (Framhald á 8. siðu). Grímseyjariaxinn. ÁHUGAMAÐUR skrifar: Fregn in um Grímseyjarlaxinn vakti mikla athygii í gær, og vakti á ný allar sögurnar um „þann stóra“, sem legið hafa niðri síð- an vertíð iauk. Einhver speking- ur iætur Morgunblaðið hafa það eftir sér, að þessi 49 punda skepna muni „líklega vera Nor- egslax“. Segir Mbl. þetta lax- veiðimann „með mikla reynslu". i Reynslu við hvað? Við dorg uppi í á eða við fiskirannsóknir? Um mæli þessi eru í meira lagi út; í hött. Vísast veit enginn um ferð ir þessa fisks. Og vel mætti bíða athugana á honum, sem fyrir dyrum standa, áður en „laxveiði menn, með mikia reynsiu að i baki“ fara að láta blöð hafa eft- ir sér fuliyrðingar af þessu tagi. Sá stóri í Laxá. VEL MÁ sem sé hugsa sér, að þessi fiskur sé uppvaxinn í ís- lenzkri á. Jafnstærstu laxar hér á landi fæðast upp í Laxá í Aó'- aldal. Á hverju ári að kalla má fást þar fiskar yfir 30 pund, og sá stærsti sem þar hefir fengizt á stöng var 36 pund. Grímseyjar laxinn mundi ekki hafa vegið mikið meira eftir nokxra dvöl í ánni. En um það eru mörg vitni að stórlaxar ganga í Laxá. Fyrír 3 árum voru tveir menn að veið- um á neðsta veiðisvæði árinnar, snemmá í júní. Annar renndi færi í streng, en hinn sat pppi á kletti og horfði á, sá hvar tveir fiskar lágu í strengnum og var annar mun stærri en hinn. Leiðbeindi hann nú félaga sínum hvernig renna skyldi færinu, og eftir nokkrar tilraunir, fór svo, að minni laxinn tók, en hinn hvarf út í iðuna. Minni iaxinn vóg 32 pund, er á land kom. Hve stór var þá hinn? Farsælt fyrirkomulag. MEÐALÞUNGI laxa í Laxá hef ir jafnan verið mestur á landi hér, og hefir haldist nokkurn veginn í horfi síðustu áratugi Engin netaveiði er lengur í Laxá í ánum hér sunnanlands, sum um hverjum, hefir meðalþungi laxa minnkað stórlega og ískyggi- lega og segir það sína sögu um áhrif netanna. í Laxá hefir verið stunduð stangaveiði einvörðungu nú hátt á annan áratug, og ’er reynslan mjög lærdómsrík. Með- alveiði helzt í horfi, og er mun meiri nú en var síðustu árin, sem veitt var í net og kistu. Stang veiðimennirnir sjálfir takmarka veiðitímann. Veiða aðeins til 31. ágúst, þótt lög leyfi veiði til 15. september. Þegar líður að hrygningu, fær laxinn frið. Þá er veiði aðeins leyfð frá kl. 7 til 12 f. h. og frá 4,30 til 10 e. h, og hefir þetta gefizt mjög vel Þetta fyrirkomulag og góð sam búð landeigenda og veiðimanna hefir reynst farsælt fyrir þessa ágætu veiðiá. , •,

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.