Tíminn - 01.05.1957, Side 2
2
T í MIN N, miðvikudaginn 1. maí 1957«
i Ávarp verkalýðsfélaganna í Rvík
Á hinum alþjóðlega baráttu- og
hátíðisdegi verkalýðsins, 1. maí,
sameinast islenzk alþýða þeim
milljónum verkamanna og verka
kvenna um allan heim, er undir
merkjum samtaka sinna fylkja liði
til baráttu gegn skorti og ótta, fyr
.ir friði, frelsi og bræðralagi allra
þjóoa.
Alþýðan fagnar í dag því er á
unnist hefur til bættra kjara og
aukinna- réttinda og minnist jafn
framt .þess er miður hefur farið
I starfi á liðnum tímum. En fyrst
og fremst fyikir alþýðan liði í dag
til sóknar og nýrra sigra.
1. mai tekur íslenzk alþýða af
heilum hug undir kröfuna um frið
og afvopnun og leggur ríka á-
herzlu á að bönnuð verði fram
leið'.la og notkun vetnis- og kjarn
orkuvopna og krefst þess að kjarn
orkan verði notuð öllu mannkyni
til heillá og blessunar.
íslenzk alþýða krefst þess að
céxfever þjóð fái að lifa frjáls í
landi sínun og neitar því að nokk
ur þjóð hafi rétt til þess að undir
Oka aðra.
líún krefst þess að framfylgt
verði svo fljótt sem auðið er, sam
þykkt Alþingis frá 28. marz 1956.
f>ótt margt hafi áunnist fyrir
mátt samtakanna í dægurbaráttu
alþýðunnar, bíða enn sem fyrr mik
ilvæg hagsmunamál óleyst.
Enn skortir mikið á að alþýðan
búi við fullkomið atvinnuöryggi.
Hún gerir kröfu til að sérhver
vinnuíær maður geti haft fulla
vinu við þjóðnýt störf. Því fagn
ar hún að gerðar hafa verið ráð
stafanir til öflunar nýrra fram
leiðslutaskja.
Það er krafa verkalýðshreyfing
arinnar, að dýrtíðinni sé haldið í
skefjum og kaupmáttur launanna
aukinn. Hún styður hverja þá við
leitni, sem miðar að því að koma
í veg fyrir óhóflega álagningu á
vöruverð og þjónustu.
Enn býr margt fólk í bröggum
og öðru heilsuspillandi húsnæði
og skortur á íbúðarhúsnæði er til
finnanlegur.
Verkalýðshreyfingin krefst þess
að hiutur hins vinnandi manns
verði gerður betri með réttlátari
skiptingu þjóðarteknanna.
•Alþýða Reylcjavíkur!
I'ylktu liði í dag og sameinastu
urb kröfur þínar til bættrar af-
fcqmu og betra lífs, fyrir atvinnu
örýggi og auknum kaupmætti
laima, gegn dýrtíð og kjaraskerð
ihgu.
Við gerum kröfu til að landhelg
islínan verði færð út, svo sem
hagsmunúr íslenzkra fiskimanna og
þjóðarinnar allrar krefjast og að
takmarkið sé að landgrunnið verði
fyrir íslendinga eina.
Við gerum kröfu til að unnið
veéði úr aíla togarana hér, en
þeir ckki látnir sigla með hann á
erlendan markað.
Við -gerum kröfu til að leyst
verði húsnæðisvandræðin og að
úti'ýmt verði herskálum og öðru
heilsuspiilandi húsnæði.
Við gerutn kröfu til að vinnu
vikan verði stytt, án þess að skerða
launin. Við gerum kröfu til sömu
launa fyrir sömu störf, hvort sem
uhnin eru af körlum eða konum.
Við geruin kröfu til stærri- hluta
af þjóðartekjunum til hinna vinn
andi stétta.
Kjörotð dagsins eru þessi:
*5Vtvinnuöryggi. Aukinn kaup-
níatt launa. Sömu laun fyrir sömu
vihnu. 40 stunda vinnuvika með
óskertu kaupi. Auknar byggingar
íbúðarhúsnæðis. Útrýming heilsu
spillandi íbúða. Skatlfríðindi fyrir
fiskimenn. Auknar tryggingar.
Hækkun ellilífeyris. Réttiátari
Skipting þjóðarteknanna.
Aiþýðufólk, verkalýðssinnar!
Fylkjum liði 1. maí! Treystum
einingu samtakanna. Lifi bræðra
lag verkalýðs allra landa. Lifi sam
tisle alþýðunnar. Lifi Alþýðusam
band íslands.
í fyrstu maí nefnd Fulltrúaráðs
ins, Iðnemasambandsins og verka
lýðsféíagaiMia 1 Reykjayík.
'Björn Bjnrnason, Eðvarð Sig
arðssaai, Snorri Jónsson, Jóhann
es Jónsson, Hólmfríður Helgadótt
ir, Guðmundur Þorkelsson, Finn
bogi Eyjólfsson, Kjartan H. Guð
mundsson, Sveinn Ólafsson, Jó-
hann Magnússon, Tryggvi Bene
diktsson, Helgi Þorkelsson, Gunn
ar Valdimarsson, Hólmfríður Jóns
dóttir, Leifur Ólafsson, Halldóra
Ó. Guðmundsdóttir, Guðný Jóns
dóttir, Bjarnfríður Pálsdóttir,
Magnús Lárusson, Kjartan Eínars
son, Skafti Einarsson, Kristín Ein
arsdóttir, Árni Waage, Þorsteinn
Þórðarson.
r
Ovenjulega vel sótt
sýning ungs málara
Sýning Guðmundar Guðmunds-
sonarsonar (Ferro) hefir verið
mjög vel sótt, jafnvel svo að alveg
óvenjulegt má teljast um ungan
og áður Jítt kunnan málara, sem
heldur fyrstu sýningu sína hér.
Alls hafa komið á sýninguna um
1200 manns og hvorki meira né
minna en 67 myndir höfðu selzt í
gær.
U
Krustjov og Stalín, myndin tekin á blóðtímunum 1937—1938.
Ræða Krustjovs um feril Stalíns
komin út á íslenzku
Komin er út á íslenzku ræða sú, sem Krustjov ritari rúss-
neska kommúnistaflokksins flutti á 20. kommúnistaþinginu í
Moskvu og vakti mesta athygli á sínum tíma. Nefnist bókin
Leyniræðan um Stalin.
eina texta, sem talið er að út hafi
borizt heill og Bandarikjastjórn
birti í fyrra. Ræða þessi er svo
merkileg, að ekki er að efa, að
margir vilja lesa hana í óstyttri
útgáfu, þótt mörg blöð hafi áðui'
birt hluta hennar.
Útgefandi ei íngólfsútgáfan, en
þýðandi er Stefán Pétursson, fyrrv.
ritstjóri. Áki Jakobsson, alþingis-
maður ritar formála, sem heitir:
Kommúnisminn, afturhald nútím-
ans. Ræðan er þýdd eftir þeim
Þórarinn Jónsson og Agnar Þórðar-
son semja dagskrárefni fyrir
Afmælissjóð útvarpsins
Sagníræðingurinn Toynbee og söngvarinn Gerhard
Hiisch koma hingaft á vegum Afmælissjóhsins
í tilefni af aldarfjórðungsafmæli Ríkisútvarpsins var sem
kunnugt er stofnaður afmælissjóður, en tilgangur hans skyldi
vera sá að styrkja ýmsar rannsóknir og listræn störf í þágu
útvarpsins og útvarpsdagskrárinnar. Einnig má veita úr sjóðn-
um verðlaun.
Árlega veita vexti sjóðsins,
allt að 60 þús. kr. fræðimanni,
skáldi eða tónskáldi til þess að
vinna að erindaflokki eða flokkum,
skáldverki, þýðingu eða tónverki,
er síðar verði frumflutt í útvarp
Fyrstu veitingarnar ákveðnar.
Fyrstu veitingarnar úr sjóðnum
hafa nú verið ákveðnar. Lista-
mennirnir er tekið hafa boði út
varpsins eru þessir: Þórarinn Jóns
son tónskáld. Hann semur fyrir
útvarpið nýtt tónverk er síðan
verður frumflutt hér. Þórarinn er
löngu þjóðkunnugl tónskáld og út-
varpshlustendur þekkja ýmis verk
hans, sem hér hafa verið flutt o,g
notið mikilla vinsælda.
Agnar Þórðarson, skáld, semur '
fyrir útvarpið samfelldan flokk
útvarpsleikrita, sem einnig verða
frumflutt hér. Agnar Þórðarson
er löngu kunnur fyrir skáldverk
sín. Hann hefir áður samið útvarps
leikrit og á leiksviði hafa leikrit
hans, síðast Kjarnörka og kven-
hylli öðlast miklar vinsældir.
Ennfremur hefir verið ákveð
ið að veita nokkurt fé til erjendra
heimsókna í útvarpið. Próf. Arn
old Toynbee hefir tekið boði af-
mælissjóðsins um að koma hingað
og flytja erindi um sagnfræði.
Próf. Toynbee er löngu heimskunn
ur fyrir söguritun sína og sögu
skýringar.
Þá kemur hingað i boði sjóðsins
söngvarinn Gerhard Húsch og
syngur á vegum útvarpsins. Hann
þykir öndvegissöngvari og velkunn
ur útvarpshlustedum. Loks verða
einnig veitt verðlaun fyrir sönglög
við íslenzk kvæði. Ennfremur
hefir verið ákveðið að greiða úr
Afmælissjóðnum heiðurslaun fyr
ir flutning á nokkrum verkum
Pálma heitins Hannessonar rekt
ors.
Hygginn bóndi tryggir
dráttarvél sína
SPYRJIÐ EFTIR PÖKKUNUM
MEÐ GRÆNU MERKJUNUM
Fulltrúi framkv.nefndar „Alþjóða
sambands lýðræðissinnaðrar æsku
heimsækir ísland
í ráíi er atS efna til ,'friðarmóts“ í Moskva
Fréttamenn ræddu fyrir skömmu við persneskan mann,
Mahmoud Modarressi að nafni, sem hingað er kominn á veg-
um framkvæmdanefndar fyrir svokallað „Alþjóðasamband
lýðræðissinnaðrar æsku“.
Ferð hans hingað til lands er
þáttur í undirbúningi fyrir „heims-
mót æskunnar", sem halda á aust-
ur í Moskvu 28. júlí til 11. ágúst
í sumar. Ekki vildi Modarressi við-
urkenna, að nokkur pólitískur áróð
ur væri hafður í frammi á heims-
mótum þessum og má það vera rétt
svo langt sem það nær. Sjálfsagt
verður ýmislegt að sjá og heyra á
móti þessu og mikið líf og fjör á
„alþjóðadansleiknum“ í Kreml,
sem er eitt atriði mótsins, en ekki
verður sagt annað en að samkomu-
AfSi glæðist veS við
Norðausturland
Dalvík í gær. — Hér voru hlý
indi um sumarmálin og leysti snjó
mikið. Er nú orðið snjólítið á lág
lendi. En síðustu daga hefir veðr
átta verið köld með hríðaréljum,
en í dag er hlýrra. Fiskafli hefir
verið tregur með hríðaréljum, en . staðurinn’sé einkar vel til fallinn
í dag er hlýrra. Fiskafli hefir ver I til friðarhátíðar eftir atburði síð-
ið tregur undanfarið þar til í gær ustu mánaða austur þar. Eða
að góður afli fékkst. Mestan afla
hafði Skíði hálfa sjöundu lest,
Freyja og Hafþór höfðu litlu
minna. Bátarnir fengu aflann við
Gfímsey. Snæfellið frá Akureyri
sem stundar togveiðar fyrir Norð
urlandi, landaði hér í gær 50 lest
um til vinnslu í frystihúsi og 15
lestum • í Hrísey. Tveir Dalvíkur
bátar, Hannes Hafstein og Júlíus
Bjömsson komu heim af yertíð
kannske hefði Budapest verið
heppilegri? I pistli „alþjóðasam-
bandsins“ segir, að eitt höfuðmark
mið samtakanna sé að berjast gegn
nýlendustefnunni og er rétt að
vona, að sú barátta sjái Ijós dags1-
ins austur á Volgubökkum í sumar,
við Suðurland um helgina og byrja
að róa hér með línu í dag. PJ
. ' •'•y.
./.ftfAvJl
Sumardvalarheimili fyrir börn stofn-
að í Hafnarfirði - ávarp áhugamanna
Nokkrir áhugasamir menn og
konur í Hafnarfirði hafa bundizt
samfcökum um að koma á fót sum
ardvalarheimili í nágrenni bæjar
ins, lyrir hafnfirzk börn, á aldrin
um 5—8 ára. Hefur, í þessu skyni
verið ákveðið að festa kaup á sum
arbústað Theodórs heitins Math
iesen suður í Óttastaðalandi. Sum
arbústaðurinn er um 70 ferm. að
stærð, stór matsalur, tvö herbergi
eldhús, salerni og forstofa. Enn
fremur er svefnloft yfir öllu hús
inu. Með nauðsynlegum endurbót
um, má hafa þarna milli 25—30
börn yfir sumarmánuðina. Snyrti
lega og skemmtilega unnin lóð
fyigir sumarbústaðnum, og þykir
stáðsetning. hans og húseignin öll
vera hinn ákjósanlegasti stofn að
barnaheimili.
Húseign þessi kostar 80 þús.
kr. Hefur sérstakur barnaheimilis
sjóður verið stofnaður og fjársöfn
unarnefnd verið kjörin. Jafnframt
liefur verið ákveðið að hefja
skyndifjársöfnun meðal bæjarbúa.
Hafa þegar borizt myndarleg fjár
framlög, en ljóst er að margir
þurfa hér að leggja hönd á plóg-
inn. Er þess fastlega vænzt, að
Hafnfirðingar bregðist nú fljótt og
vel við og leggi fram, hver sinn
skerf, svo að nauðsynjamál þetta
nái fram að ganga og starfsemin
geti hafizt nú þegar á þessu vori.
Nöfn gefenda verða skráð í sér-
staka bók, sem þegar hefur verið
gefin barnaheimilissjóði, og mun
hún verða látin liggja frammi í
barnaheimilinu. Ennfremur verð-
ur gefið yfirlit yfir fjársöfnunina
í blöðum bæjarins, jafnóðuin og
fjárframlögin berast. Fjárframlög
iná senda til einhvers úr fjársöfn
unarnefndinni eða til barnaheim
ilissjóðs, pósthólf 2, Hafnarfirði.
Virðingarfyllst,
Hjörleifur Gunnarsson, Selvogs-
götu 5, (9366, 9978), Kristinn J.
Magnússon, Urðarstíg 3, (9274),
Vilbergur Júlíusson, Sunnuvegi 8,
(9285).
Stjórn Barnaheimilissjóðs liefir
verið kosin og skipa hana Ólafur
Einarsson, héraðslæknir formað
ur, Iljörleifur Gunnarsson, gjald
keri, Vilbergur Júlíusson ritari,
Sólveig Eyjólfsdóttir, Björney
Hallgrímsdóttir, Jóhann Þorsteins
son, Ingibjörg Jónsdóttir og Krist
inn J. Magnússon.
umiimmu'^niiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiniiiiiiiiiiiimmiiiiniiiiiiiiiimmmiiiiiiimijnimuiimiimmHMi
S ' f a
2 =1
| Góð jörð í Árnessýslu |
| Veséra Geldingaholt í Gnúpverjahreppi e.r til sölu með |
I eða án búslóðar. Éignaskipti á íbúð í Réykjavík koma I
| til greina. " 1
| Upplýsingar gefur:
Málflutningsskrifstofa Vagns E. Jónssonar,
Austurstræti 9, sími 4400.
Ihiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiuiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiniiiimuiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiuiiiiiiiiiiiiiii