Tíminn - 01.05.1957, Síða 5
TÍMINN, miðvikudaginn 1. maí 1957.
5
ti
mai
1 tilefni af 1. maí senda kaupfélögin víðs vegar um landið
og Samband íslenzkra samvinnufélaga árnaðaróskir til allra vinnandi
manna í landinu.
Á þessum degi er viðeigandi að minnast þess, að barátta vinn-
andi manna til sjávar og sveita fyrir bættum lífskjörum hefur verið
háð á mörgum sviðum. Er samvinnuhreyfingin veigamikill þáttur í
þessari baráttu, en hana hafa landsmenn nú í þrjá aldarfjórðunga not-
að til að tryggja sér sannvirði afurða sinna og rétt innkaupsverð á allri
vöru.
Samvinnufélögin áttu mikilsverðan þátt í því að brjóta niður ok-
urvaid erlend7‘a selstöðukaupmanna og gera verzlunina íslenzka. Fólk-
ið fami mátt samtakanna og hefur beitt þeim að æ fleiri verkefnum,
bæði í verzlun, framleiðslu og samgöngum. Þannig tryggjasamvinnu-
félögin sannvirði í verzlun, auka framleiðslu og skapa atvinnu, en allt
stuðlar þetta mjög að bættum lífskjörum fólksins.
Samvinnufélögin eru eign fólksins, sem skapar þau og er í þeim.
Þetta sama fólk stjórnar félögunum og ræður gerðum þeirra. En fé-
lögin geta því aðeins náð tilgangi sínum, að félagsfólkið sé trútt og
áhugasamt, standi vel á verði um það, sem unnizt hefur, og efli heil-
brigt félagsstarf til frekari átaka.
Innan kaupfélaganna eru tugir þúsunda af íslendingum í öll-
um stéttum þjóðarinnar, en þó fyrst og fremst hinir vinnandi menn,
bændur, verkamenn, sjómenn og iðnaðarmenn. Sterk og öflug sam-
vinnuhreyfing mun i framtíðinni verða þeim ómetanleg hjálparhejla í
baráttu þeirra fyrir bættum lífskjörum og betra mannlífi.
•Víi-æ