Tíminn - 07.05.1957, Side 2
TÍMINN, þriðjudaginn 7. maí 1957,
&
{ Fraeskur kafbátur í Reykjavíkurhöín
Á laugardaginn kom til Reykjavíkur franskur kafbátur, sem heitir Mar-
soufr, og er nýr. Er hann í reynsluför og er óvopnaður. Kafbáturinn
var tiér í cpinberri heimsókn, og héit á brott í gærkveldi. Báturinn er
204 fet. Báturinn lá við hafnarbakkann á sunnudaginn og var þar mann-
margt að skoða hann. ■ (Lj'ósm: 3HM)
Óeirðír í pólskri borf í síðustu viku:
Herlið og lögregla send á vettvang
tíl að kæía óeirðir
London—6. maí. — Dag-
btað í Varsjá hefir skýrf svo
frá, að heriiði og lögreglu
hafi verið beitt til að kæfa ó-
eirðir í borg einni í suðaust-
ur Póllandi í siðustu viku.
Samkvæmt frásögn blaðsins var
það uppltaf óeirðanna, að öryggis-
-sveitir rílcisins handtóku drukkinn
herman:-! og fóru með hann til
næstu lögreglustöðvar. Félagar her
inannsins og nokkrir fleiri tóku
Sig þá til og eltu öryggislögregl-
Una til að koma hermanninum til
hjálpar. Ekki leið á löngu þar til
fjöldi fólks safnaðist saman og
gerði harða hríð að lögreglustöð-
'inni.
-Herlið var nú kallað á vettvang
og var íáragassprengjum varpað.
Til átaka kom milli hermanna og
fólksins, en engin alvarleg meiðsli
urðu.
......" ' -------------------
Frv. um breytingu á
kosningaíögunum af-
greitt frá efri deild
umræðulaust í gær
Frumvarp um breytingar á kosn-
ingalögunum, þar sem tekin eru
upp ný og fyllri ákvæði um sæti
varaþingmanna, var sambykkt við
þriðju umræðu í efri deild í gær
og tók enginn til máls um málið
við þessa síðustu umræðu í deild-
inni, enda hefir þetta mál í raun-
inni verið þrautrætt frá öllum
hliðum, í sambandi við þær miklu
umræður er urðu, er Eggert Þor-
steinsson tók sæti á Alþingi í vet-
ur, sem varaþingmaður fyrir Al-
þýðuflokkinn.
Ör!ög á Litla-Hrauni, bíu frásagnir
eftír Sigurð Heiðdal
k vegum Iöunnar-útgáfunnar er komin út bók eftir Sig-
urð fíeiðdal, og nefnist hún Örlög á Litla-Hrauni. Eru þetta
níu frásagnir af mönnum, sem gistu hæiið, er Sigurður var
iforstjóri þess á árunum 1930—1940. Mun frásögnin í öllum
jaðalatriðum vera sönn, en nöfnum er breytt.
Sigurður Heiðdal var forstjóri
vinnuhælisins fyrstu árin sem það
starfaði, og sögurnar, sem hann
segir í þessari bók, eru heyjaðar
úr samtölum hans við fangana og
persónulegum kynnum við þá. Frá
Sagiiirnar bera þessi nöfn: Tveir
hen amenn; í íeiðslu; Kalinn kvist
er allt sem sýnist; í tveimur vist-
ur, Ég iæt ekki beygja mig; Ekki
um; Bi'otin rúða; Útlagi; Hreins-
unareldur. Loks eru svo nokkur
orð um vinnuhælið á Litla-Hrauni.
Bók þessi er allóvenjuleg og ó-
neitanlega töluvert forvitnisleg,
tlar sem frá segir glöggur maður
og vel rittær og fjallar um efni,
eem hann gerþekkir, lýsir lífi, sem
ekki iiggur í augum uppi öllum
alinenningi. Þetta eru engar glæpa
sögur, hsldur nærfærnar lýsingar
á olnbogabörnum og ólánsmönn-
um, sem oftast hafa lent fyrir illa
lilviýun, út af alfaravegi hinna
fyrirskipuðu dyggða, og sumir
þeirra hafa verið hgjta grátt leikn
ir af mannféiflginu.
Sigurður Hciðdal
Samsöngur í ísafjarð-
arkirkju
Frá fréttaritara Tímans
á Isafirði.
| Sunnukórinn hélt samsöng í ísa
! fjarðarkirkju, laugardaginn 4. maí
Stjórnandi "var Jónas Tómasson,
töriskáldi Fyrst söng kvennakór-:
inn sex lög, en einsöng sungu
Herdís Jónsdóttir og Elísabet Sam
úelsdóttir, þá flutti séra Sigurður
Kristjánsson erindi og ræddi um
orgelkaup í kirkjuna. Þriðja at-
riðið . var kvaríettsöngur þeirra
Herdísar, Elísabetar, Sigurðar
Jónsspnar , og .Gunnlaugs Jónasson
ar. Kvartettinn söng fimm lög.
■ Samsöngurinn var haidinn til fjár
: öflunar fyrir orgelsjóð ísafjarðar
1 lcirkju. Ákveðið er að kaupa nýtt
| orgel í kirkjuna á þessU ári. Orgel
í ið, sem nú er í kirkjunni er orðið
j svo úr sér gengið, að ekki' er
talið borga sig að gera við það.
G.S.
Maður bráðkvaddur
í gærdag varð mgður bráð-
kvaddur inni á Kirkjusandi. Hafði
hann verið þar við vinnu sína
I sviðningaskúr, en starfsmenn á
Kirkjusandi fundu hann þar sem
hann hafði hnigið niður á gólfið
í skúrnum, og var hann látinn
er að var komið. Maðurinn hét
Jón Jónsson og bjó hann í skúr
í Laugarnesi.
Auylfoit í Timakun\
Frá Sýeingarsainum nýja
Sýningarsalurinn i Alþýðuhúsinu hefir nú verið opinn rúma viku, og
hefir aðsókn verið mjög góð. Almenningur virðist kunna vel að meta
það að þar má fá ýmsar smekklegar og listrænar tækifærisgjafir, og
má nefna t. d. að ýmsir hafa fundið þar ágætar brúðargjafir. Undanfarið
hefir staðið yfir í salnum samsýning sjö myndlistarmanna, en þeirri sýn-
ingu lýkur annað kvöld og verður salurinn þá opinn til kl. 11.
ikil hersýning og hátíðahöld í Isra-
el í tilefni 9 ára þjóðhátíðar
Herfckinn rússneskur skriðdreki til sýnis á götunum
LONDON, 6. maí. — Nærri hálf
milljón manna horfði á liersýn-
ingu fsraelshers í Tel Aviv er
efnt var til í tilefni af 9 ára
fullveldisafmæli Ísraelsríkis.
Fréttaritari brezka útvarpsins
skýrir svo frá, að fagnaðarlæti
manngrúans hafi aldrei ætlað að
taka enda er rússneskum skrið-
dreka, herteknum í herförinni á
Sinai-skaganum, var ekið um göt
ur borgarinnar. Einnig voru brezk
og bandarísk vopn til sýnis er her
tekin höfðu verið í Súez-stríðinu
við Egypta.
Vorosjilov marskálknr fær heldur ó-
blíðar viðtökur s opiuberri heiuisókn
í Jakarta
Mannfjöldinn hrópaði ókvætSisorí og reif ni(S-
ur myndir af forsetanum
Stofnað félag við-
skiptafræðinga
Hinn 2. maí var haldinn aðal-
fundur í Félagi Viðskiptafræðinga.
Formaður var kosinn Hjálmar
Finnsson og aðrir í stjórn: Valdi-
mar Kristinsson, Sigurður Jörgen
son, Hróifur Ásvaidsson, Guðlaug
ur Þorvaldsson og Sigurður Fjald
sted.
Helen Keller
JAKARTA - LONDON, 6 maL —
Vorosjílov forseti Ráðstjórnar-
ríkjanna kom til Jakarta í fndó-
nesíu í dag í tveggja daga opin-
bera lieimsókn. Er marskálkur-
inn kom til fíugvallarins var þar
fyrir múgur fagnandi manua,
sem veifuö'a rússneskum og indó
nesiskum fánum.
Ekki voru fagnaðarlætin endur-
tekin er Vorosjílov ók inn í borg-
ina, því að þar var fyrir mikill
mannfjöldi, sem vottaði marskálkn
um fyrirlitningu sína með því að
hrópa ókvæðisorð til hans og rífa
niður niyndir af honum. Innan
skamms komu lögréglumenn og
herdeildir á vettvang og vörpuðu
táragassprengjum á mannfjöldann
til þess að dreifa honum.
Brezka stjómin vottar Hassain og
þjcð hans virðingu fyrir ötula haráttu
Talsmaíur Verkamannaflokksins telur, aheilla-
óskirnar hafi vafsamt gildi
LONDON - NTB, 6. maí. — Vara
utanríkisráðherra Breta lýsti þvi
yfir í neðri deild brezka þings-
ins i dag, að brezka stjórnin væri
þeirrar skoðunar, að lífsnauðsyn
Iegt væri að tryggja sjálfstæði
og algjölt fullveldi Jórdaníu til
þess að friður og öryggi gæti
ríkt í M-Austurlöndum.
Brelar óskuðu jórdönsku þjóð-
inni og Hussein konungi góðs geng
is og vonuðu, að Bretar og Jórdan
íumenn mættu hafa vinsamleg
samskipti nú sem áður.
Bevan, talsmaður Verkamanna |
flokksins í utanríkismálum kvað 1
það vafasamt að óska þeirri stjórn I
velgengis, sem þverbrotið hefði
allar þær grundvallarhugsjónir
lýðræðisins, sem Bretar hefðu til
þessa getað hrósað sér af.
(Framhald af 1. síðu).
úru, sem hún skynjar með ilman
og tilfinning.
Helen Keller hefur sannað með
lífi sínu, hvernig leysa má mikla
hæfileika úr viðjum, ef við nýtur
alúðar og kunnáttu þeirra, sem
annast uppeldi öryrkja. Heimsókn
hennar ætti að örva menn til að
styðja og styrkja stofnanir, sem
hér starfa að velferðarmálum
þeirra, sem hlotið hafa svo þung
örlög.
Smásagnasafn IndriSa
(Framhald af 1. síðu).
undur hefir endursamið þær og
breytt nokkuð. Flestar eru þó
alveg . nviar af nálinni. f þeim
er fjallað um sundurleit efni. Flest
ar þeirra eiga svið sitt í málefn-
um dagsins, en ein þeirra Gömul
sa«a gerist á fyrri tímum, og er
stíll hennar og gerð að nokkru
frábrugðin hinum sögunum. Flest
ar mimu sögurnar ritaðar á síð-
asta ári.
Síðan Sjötíu og níu af stöðinni
kom út eru þeir margir, sem beðið
hafa eftir næstu bók Ipdriða með
eftirvæntingu, og nú er hún kom-
in.
Frágangur bókarinnar er sér-
stæður og einkar smekklegur frá
hendi forlags og prentsmiðju. '
Eiginmaður minn,
Jón Jóhannesson,
prófessor,
lézt 4. þ. m. — Jarðarförin fer fram frá Dómkirkjunni föstudag-
inn 10. þ. m. kl. 2 e. h. Bióm og kransar afbeðið. Þeim sem vildu
minnast hans, er vinsamlegast bent á minningarsjóð rim hann við
Háskóla íslands.
Guðrún Helgadóttir