Tíminn - 26.05.1957, Blaðsíða 4

Tíminn - 26.05.1957, Blaðsíða 4
4 T f M IN N, sunnudaginn 26. maí 1957, Attræður: Halldór Stefánsson fyrrverandi alþingismaður Halldór Stefánsson, fyrrverandi alþingismaður er fæddur á Desja- *nýri í Borgarfirði eystra h. 26. «iaí 1877. Foreldrar hans voru 4>restshjónin á staðnum, Stefán Pétursson og Ragnhildur Björg Idetúsalemsdóttir. Stefán prestur var sonur Péturs prests á Valþjófs- slað, Jónssonar vefara, en það er k’illuð vefaraætt, sem frá honum er komið og margt hinna mikil- fcæfustu manna. Var Jón vefari dóttursonur séra Hjörleifs prófasts á Valþjófsstað Þórðarsonar. Kona Péturs prófasts var Anna Björns- dóttir prests á Eiðum, Vigfússon- ar, prests í Garði í Kelduhverfi, Björnssonar, en móðir Önnu var Þórunn dóttir Guðmundar sýslu Hianns ríka í Krossavík, Pétursson oi'. Allt eru þetta svo kunnar kraft miklar prestaættir austur þar, að þess garist eigi þörf að rekja nán- ar. Ragnhildur B. var dóttir Metú- salems sterka í Möðrudal. Standa a'ð henni kunnar ættir. Og þangað mun Halldóri hafa brugðið mest um atgerfi og lund a, far og má þó vera að annað hefði maður ályktað ef hann hefði verið prestur, eða sýslumaður. Ætt þeirra Möðrudalsmanna er cinnig vel kunn af mörgum sök um, og vel rakin í riti Halldórs sjálfs um Möðrudal á Efra Fjalli, og í Ættum Austfirðinga. Jón í Möðrudal, faðir Metúsalems sterka var scnur Jóns bónda er þar setti byggð úr eyði 1789, Sigurðssonar tuggu, en Sigurður átti þá konu scm Ólöf hét, Árnadóttir, bónda á Straumi i Hróarstungu, en það er ókunn ætt. En nýlega var ég að lesa Grýlukvæði séra Brynjólfs Halldórssonar á Kirkjubæ, d. 1737, scm eru ort liílu fyrir 1720, en Ólöf var fædd 1708. Kemur Grýla fceiman frá sér úr Rangárhnúki íg Iiittir fyrir Orm bónda á itangá, Bregður hún honum um tiisku. (Hann er forfaðir minn) Hún læíur eins og hún sé dálítið góðkvandi við ekkjuna í Dagverð argerð'i, en skattyrðist við Finn boga á Vífilsstöðum og Sigga á HeykoUsstöðum. En er hún hittir Árna á Straumi, kveðst hún geta haft þar allt með sjálfskyldu og það sé ekki nær að fúni af myglu kafloðnir maurar þínir en þeirra njóti einhver þurftugur. En Árna kvað sér illa aftur farið ef slík óvætt skuli sig kúga og grípur torfljáinn, en Grýla nær un'. skammorfið og verða svipting ar unz Árni mæðist og segir Grýlu að hann eigi nautkrakka nógu þrif legan og hann. skuli hún hafa. Svo fÓF nú betur og sæll vertu Árni, sagk Grýla og iabbaði út í Litlu Steinsvað. Kvæði séra Brynjólfs hefur víða að geyma góðar mann ■lýsingar á Tungubændum á þess uíu tíma og Árni er sýnilega þrifn aðar og forstandsbóndi, fyrst hon- ui ér brugðið um maura og naut krakkinn er þriflegur hjá honum. í ætt írá Sigurði tuggu og Ólöfu Árnadóttur hafa það verið rakin ætternikenni. Er slæmt að vita ekki hverra manna Árni var. Árið 1884 gerðist séra Stefán pi - tur ó Hjaiiastað, en þar naut b'ar.s cigi lengi við, því liann and aðir.t l,. 12 ágúst 1887. Voru börn i njjú 12 að tölu og flest í bernsku. Komust þau öll til þroska og er það t>j’> kunnugt, hversu mannvænleg- ur hópur hér var í uppvexti og rey ídist síðan vera í þjóðiífinu. Ei i. var auður í garði frekar en vant er að vera á barnaheimilum á íslandi, né styrkjuin og t-rygg ingum til að dreifa. Voru sum bfrnin tskin í fóstur á góð heim ál), en ekkjan setti bú á einni af pre.tíekknajörðinni, Geitagerði í FJjótsdal. Þá var Halldór 11 ára gamall er hann kom í þessa sveit, þar sem hann átti eftir að koma við sög'u, og telur enn í dag sína sveit. Halldór dvaldi með móður sinni 1 Geitagerði. Þurfti hann snemma á sér að halda í störf unuip og kom í ljós að hann var lundmikill og kappsamur, og vakti sner.Via eftirtekt livað honum var sýnt um að ganga ekki úr störfum fyrr en þeim voru gjörð full skil. Má segja að það hafi ver ið ríkast einkenni á Halldóri í. öllum störfum síðan. Árið 1895 ■ gekk Haildór á Möðruvallaskól ann og útskrifaðist þaðan vorið 1897. Gekk honum námið með ágætum og er hann einn þeirra sem útskrifast hafa af þeim gamla Möðruvallaskóla með hæstu eink un. Árið 1900 réðst hann í Skriðu klaustur til stórbóndans Haildórs Benediktssonar og hafði þar for sögn á verkum næstu 3 ár, því Halldór bóndi var lítt tilfær og létu ferðamenn þess getið, að.eng inn hestur bæri hann, sakir gild leika. Þetta ár 1900, hinn 1. des. kvæntist Halldór Björgu dóttur Halldórs bónda, hinni ágætustu konu, og varð þeim 5 barna auð ið. Árið 1903 réðst Halldór starfs rr.aður hjá Pönlunarfélagi Fljóts dalshéraðs, sem starfaði á Seyðis firoi, en forstjóri þess var þá bróðir hans Jón Filippseyja- kappi. Stóð svo til 1909 að félagið leystist upp. Hafði það lent í fjár kröggum í verðhruninu mikla er varð á landbúnaðarafurðum er sauðasalan til Englands hætti. Kalldór fór þá heim í dalinn aft ur og setti bú í Hamborg, stutt fyrir utan Skriðuklaustur. Var það jafnan fremur lítið býli en farsælt eins og flest býli í Fljótsdal. Bjó Halidór þar snotru búi og komu í ljós hans ættarein kenni að hann gerðist hinn mesti þrifnaðar bóndi. Hafði hann gnótt í búi, vista og búnaðar, svo ég er ekki viss um nema honum hafi verið brugðið um maura, eins og Árna forföður hans. Árið 1910 var Kaupfél. Héraðs búa síofnað með aðsetri á Reyð arfirði. Voru Fljótsdalsbændur þar í fararbrcddi og gekk Halldór í stjórn þess og var formaður hennar lengi síðan. í hreppsnefnd starfaði hann og oddviti um hríð og sýslunefndarmaður um tíma. Auk þess gekk hann í stjórn Bún aðarsambads Austurlands 1918 -og var það næstu 3 ár. Þótti Halldór vaxa af hverju starfi þar sem hann var tilkvaddur. Árið 1921 fluttist Halldór til Vopnafjarðar. Keypti hann jörðina Torfastaði ,sem er ein bezta jörð þar um slóðir. Varð strax mikill svipur á búsetu Hall dórs á Torfustöðum. Var hann kor; inn í hreppsnefnd 1922 og þegar í stað oddviti hennar og var það síðan meðan hann dvaldi í Vopna firði. Þetta sama ár, hinn 13. okt., missti hann Björgu konu sína, og má skilja að erfiðari urðu honum búhagir er svo mikils var misst enda var Björg hin mesta forstands kona um bú- og heimilisstjórn. Elztá dóttir þeirra, Ragnhildur tók við búsforráðum og fórst ágæt lega vel. Var heimil Halldórs á Torfastöðum hið mesta fyrirmynd arheimili og var annasamt af margskonar erindarekstri er menn áttu við Halldór bónda, bæði vegna hreppsstjórnar og annarrar fyrxr greiðslu er menn höðfu þangað að sækja. Varð Halldór vinsæll í Vopnafirði sem síðar .bar raun á. Árið 1923 var Halldór kosinn 1. þingmaður Norðurmýlinga. Bænda pólitíkin var þó að vinna á í Norð urmúlasýslu, en Norðmýlingar höfðu jafnan kosið þingmann sakir almenns tr^usts, og var það ekki nema stundum að þeir voru flokks legir .samherjar. Var það ljóst að það var hið almenna traust á Hall dóri sem greiddi götu hans til þingfarar, og enn voru þingmenn Norðurmýlinga ekki af sama flokki. Árið 1927 var Halldór aftur ur kosinn 1. þingmaður Norðinýl inga og með honum Páll Hermanns son. Stóð nú bændapólitikin föst um fóíum í Norðurmúlasýslu. Varð svo enn í tvennum kosning um 1931 og 33, en þá gengu þeir Tryggvi Þórhallsson og Halldór Stefánsson úr flokki og mynduðu Bændaflokkihn með fleirum. Þá sögu þarf ekki að rekja en Hall dór féll í Norðurmúlasýslu árið eftir, 1934. Lauk þar með afskiptum hans af stjórnmálum. Þótt enn héldi hann ; um sinn ýmsum umboðslegum störfum frá sínum flokkstíma. j Halldór kvæntist aftur 17. apríl 1928 Halldóru Sigfúsdóttur bónda á Hofströnd í Borgarfirði eystra hinni ágætu=ta konu og vorið eftir brá hann búi á Torfastöðum og flutti til Reykjavíkur. Tók hann þá við forstöðu tryggingarstofnunar ríkisins, Brunabótafélagsins og slysatrygginganna og gengdi því starfi síðan, nálega til aldurstak- marka. Eftjr að Halldór hafði hætt af skiptum af stjórnmálum og sat í næði í starfi sínu í Reykjavík fór hann að sinna fræðamennsku. Hann er einn af þeim, ef til vill mörgu íslendingum, sem iðkað hafa lærdóm allt sitt líf. Meðan ! hann bjó í Hamborg, kynnti hann sér samvinumál og erfðafræði og ritaði um þau mál fræðilegar grein ar í Timarit Samvinnumanna og Ársrit Búnaðarsambands Austur lands. Halldór var ekki málskrafs maður á fundum né geysir á rit velli, en fræðileg rök sem hann kunni setti hann fram með yfir burðum skýrlega, hvort heldur var í ræðu eða riti og hélt sig umbúða- i laust við kjarna hvers máls. Stóð J hann af þessum sökum jafnan j manna bezt fyrir máli sínu, þó færra segði en þeir sem aldrei > voru búnir að tala nóg. Er það vel | kunnugt nð þeir, sem af sjálfum • sér læra, hafa fastari og öruggari ; skoðanir en þeir sem fara með ! skólalærdómsfleipur. Margháttuð lífsreynsla og yfirburðagreind 1 gerðu Halldóri fært að mynda sér skoðanir og honum myndi þá illa aftur farið eins og Árna forföður hans ef óvættir skyldu þar af honum kúga. 1 En þá var Halldór kominn nokk uð á sjötugsaldur er hann tók að | sinna því verkefni, sem ég ætla ] að haldi nafni hans lengst og bezt á lífi. Hann fór að sinna aust firskum fræðum og eftir hann liggja í því efni það mikil verk, að hann tekur sæti við hlið hinna miklu austfirsku fræði- manna sér Einars Jónssonar og Sigfúsar Sigfússonar. Séra Einar vann í ættfræðinni, Sigfús í þjóðfræðunum, báðir með yfriburðum en Halldór sneri sér að hinni almennu viðburðafræði og hreifingum tímanna. í þessum stíl hefur Halldór unnið og á þessu ári, þegar síðasta bók hans er kom in út, má heita að Halldór sé bú inn að vinna mjög samfellt og greinargott yfirlit yfir sögu Aust urlands. Austfirðngiafélagið í Reykjavík hafði undir forustu Sig urðar Baldvinssonar póstmeistara myndað sjóð er verja skyldi til söguritunar Austurlands og er þessi sjóður tók til starfa 1945 varð Halldór formaður ritnefnd »4? »4» Þáttur kirkjunnar: Bænadagur ÞESS ER GETIÐ í helgum fræðum, að Kristur hafi átt hljóða stund að morgni utan giaums og hávaða borgarinnar. Hann átti stað, vafalaust ynd iilega blómabrekku uppi í fjall- inu. og þangað fór hann til að safna kröftum, efla sig til dags- verksins. Það verður siálfsagt orfitt í vsi og þröng nútímans í fjcTmenninu, að fylgja dæmi hans. En getum við raunveru- lega gnldið það afhroð, sen; bænarlaust lif verður. H')ið var Jesús að gera upp í fiallið? Hann var svo mikili, vitur og gðður, að svo mætti svnast. að hann þyrfti ekki að b'ria um re;tt af því, sem van- sæla og synduga sál vanhagsr m-ast um. P-ÆNIN. HUGTAKIÐ sjálft, er oft misskilið. Flestir telja þexta fyrst og fremst einhver crð, sem þá ættu helzt að vera ósk- ir um eitthvað sérstakt. En slíkt er aðeins einn þattur bæn- arhugtaksins. Bæn er fyrst o.g fremst áköf leit að hinu göfga. fagra og góða, sanna og rétta, í einu orði sagt: Bænin er lcit að Guði. Jesús finnur Guð bezt í un- aði náttúrunnar í faðmi morg- unsins við blóm>aangan og fugla söng, útsýnið yfir himinblátt vatnið og til fjarlægra fjalla, sem sólin kyssir mjúkum geisla vörum. Þannig opnast honum föðurfaðmurinn eilifi, þannig vekja ástarundur Guðs upp hina hreinu elsku í sál hans, þann kærleika, sem gat faðmað að sér lítið barn, dáðzt a'ð feg- urð eins blóms, en líka faðmað alian heiminn með ástúð og mildi útbreiddra arma í kvól krossins, þar sem hvorki óvinir, ræningjar né ástvinir voru und- an Skildir. ÞANNIG VAR bæn Jesú. Þetta var erindi hans upp í fjallið á morgnana. Þar gat orðið kraft- stöðin, sem sál hans naut og teygaði af í svo ríkum mæli. Skyldi hann ekki einmitt þar hafa ort ódauðlegu ljóðin, sem við köllum Sæluboðanir, eða sönginn um liljurnar og fugla himinsins, eða dýrðaróðinn um kærlei'ka Guðs, þegar hann horfðí á smalann. sem fól litla lambið villta við barm sér. Og sannarlega þurfum v;ð börn tuttugustu aldarinnar, ald- ar storma og styrjaldar, alda hinnar miklu orku og æ.gilegu krafta. að eignast slíkar kraft- stöðvar kærleiks og bæna. E;n- mitt ættu bær að geta beint öil- um kröftum efnisins inn á þær brautir, sem veita blessun og frið. OG VIÐ ÞURFUM öll að eiga blióða stund á hverjum morgni áður en hark dagsins hefst, kannske í svefnherberginu úti við gluggann eða í stofunni lijá fallegri mynd eða hljóðfærinu, eða úti í garðinum eða einhverj um stað, sem okkur finnst Guð vera næst. Og gott er að lesa þarna eitt sálmavers, eina smá- grein í Nýjatestamentinu eða leika lag. syngja söng, kannske hlusta á fallega músík í útvarp- inu, eitthvað sem lyftir yfir þröngan hring hversdagsleik- ans. En umfram allt þögn í sál- unni, kyrrð, góðieiki, ró og frið ur, sem speglar, endurspeglar dýrð Guðs við sólaruppkomu eða dagskomu. Og mikið má það vera, ef einhver, já, flestir, sem reyndu að eignast slíka helgistund fyndu ekki, hvernig Guð gengur um í morgungeisl- unum, fyndu ekki nálægð yndis legra engilvara, horfinna ást- vina, og fengiu svo kraft og jafnvægi í sál sína til að vinna störf dagsins, já, allt sitt ævi- starf í kærleika til Guðs og manna. EINN SLÍKUR bænadagur, ein slík stund helguð af himins náð, oss hefja til farsældar má Hinn ákveðni „bænadagur" kirkjunnar ætti fyrst og fremst að minna á þetta, svo að hvert heimili, hver kristinn maður, ætti sín augnablik í nálægð Guðs á hverjum degi. Árelíus Níelsson, «!i$ill!íiasi§ I 7 - l ÍT-rJi. = >5„ «r i'wllN' 11.. I' li. 5,..=.. í ffliwil'lillillis ..Sliisiffilffinillialllliillíii ar þeirrar er kosin var til fram kvæmda. Meginþunginn af þessu starfi hefur hvílt á Halldóri og bækur félagsins bráðum 6 að tölu hefur Halldór ritað að meirihluta og sumar af þeim einn. Það má segja að Halldór byrj aði á þessu merka starfi með því að gera niðjatal foreldra sinna er prentað var sem handrit í tilefni af 100 ára afmæli föður hans. „Að fortiíð skal hyggja ef frum legt skal leggja“ kvað Einar, og Halldóri reyndist þetta gæfusamt því nú var hann kominn á þá leiðina, sem honum var svo auð farin. Þá ritaði hann sögu Möðru- dals á Efr-Fjalli hinnar merku jarðar, höfuðbólsins í bláfjalla geimnum, þar sem forfeður hans höfðu búið á tvennum tímaskeið um lengi í senn. Þá skrifaði hann sögu Jökuldalsheiðarbyggðarinnar, byggða og ábúendasaga, og birtist hún í 1. bindi ritsafnsins „Austur- land“. í annað bindi skrifaði hann yfirlit um landnámssöguna austur þar. I þriðja bindi sama ritsafns skrif- aði hann mikinn hluta þess og um þjóðfélagshreifingar á Austurlandi og austfirska menn. Auk þess eins og áður segir 4. bindi og 6. bindi þessa ritsafns. Auk þess skrif aði Halldór ritling, sem hann kall aði Refskák stjórnmálanna um ýmsa þá vankanta sem honum þótti vera á stjórnmálalífi Islend inga. Halldór skrifaðar góðan stíl, hreint mál og meitlað og má víða finna í ritum hans ágætan sagna stíl. Kom þetta strax fram með ágætum í sögu Möðrudals á Efra Fjalli, sem er skemmtilega vel rit uð bók. Á bak við stuttan og kald an stíl tekst Halldóri að láta blika á viðkvæm örlög lands og manna í Möðrudal. Það er forn frægð af sagnaritun. Halldór hefur alltaf verið bóndi, eins og þeir hafa bezt gerzt á íslandi og endurskin þess mætir manni enn á heimili hans á Flókagötu 27 í Reykjavík, þótt þar virðist nú vanta alla hamra og allar tengur, amboð tögl og hagldir, sái og söðla, sem einu sinni prýddu heimili hans með ríkilæti í góðri hirðu. Þrjú börn af fyrra hjónabandi Halldórs eru á lífi, Halldór starfs ma'ður hjá Búnaðarfélagi íslands, Pétur starfsmaður hjá Tryggingar stofnun ríkisins og Arnbjög hús freyja á Akureyri gift Ólafi Tryggvasyni. Ragnhildur dóttir hans gift Sveini kaupm. Sigurjóns syni í Reykjavík er dáin fyrir nokkrum árum. Einn dreng, Stefán misstu þau hjón á ungum aldri og stofnuðu minningarsjóð um hann sem er eign Fljótsdalshrepps. Þau hjón Halldór og Ilalldóra Sigfús dóttir eignuðust tvö börn, Ragnar viðskiptafræðing og Herborgu, enn í föðurgarði. Allir hinir mörgu vinir og sam> ferðamenn Halldórs árna honum allra heilla, með þökkum fyrir langt og dáðrikt ævistarf, nú á þessum sjónarhóli. Benedikt Gíslason frá Hofteigi. AKUREYRI í gær. — Nýlega var opnuð veitingastofa hér í bæ. Er hún til húsa í nýja Útvegsbanka- húsinu og er einkar smekkleg. —. Eigandi veitingastofunnar er Brynj ólfur Brynjólfsson. Þar er m. a. seldur góður matur með hóflega verði. ED,

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.