Tíminn - 28.05.1957, Page 4

Tíminn - 28.05.1957, Page 4
'4 TÍMINN, þriðjudaginn 28. maí 1957. f KrafíaverkiS í Manorville — Sjö ára drengnr ofan í bninn — Allt björgnii- arstarf virtist vonlaust — SkorSaSur í brunnimim í fullan sólarkring — Lífs í nístandi kulda i i Sagan gerist í smábænum j Manorville, N. Y., í Banda- j ríkjunum. Benny litli Hoop- er, sjö ára gamall, var aS leik meS félaga sínum utan j við beimili sitt. Skammt þar j frá hafði faðir hans verið að grafa brunn, en nú gekk hann áleiðis upp að húsinu. j h'snn sneri baki við börnun- j , um þegar hann heyrði eitt- | 1 hvað þrusk, síðan óp: Benny * datt niður í brunninn. Kent Hoóper þreif vasaljós og flýtti sér aftur að brunninum. Sonur hans var skorðaður niðri við botn, 21 feti neðar, þar sem brunnurinn var ekki nema 10 þumlunga víður. Jakkinn hans hafði svópzt upp yfir höfuð hon- urr, önnur höndin var skorðuð beint upp í loftð. Pabbi, snökti drengurinn. Hooper lét reipi siga niður í brunninn, en Benny hafði ekki Ikrafta til að halda sér í það með annarri hendinni aðeins. Þá hrað- eði faðir hans sér inn til að kalla á lögreglu og slökkvilið bæjarins. Skyndilega tóku neyðartilkynn- ingar að berast til næstu sím- síöðvar. Símstjórinn, Borghild Hooper, var önnum kafin við að sinna þeim næstu tuttugu mínút- ! urnar; þá fyrst varð henni Ijóst ■að það var verið að kalla á hjálp heim til hennar, að sonur hennar Var í hættu. Þa3 er vonlausf Þegar móðir Bennys kom heim var björgunarliðið orðið fjölmennt í garði hennar. Slökkviliðsmenn- Irni:.' dældu súrefni niður í brunn- inn til Bennys. Það var komið fham á kvöld og garðurinn var uppljómaður af kastliósum, bif- reiðar komu á hraðri ferð með á- höld og sjálfboðaliða íil hjálpar. Björgunarmennirnir hömuðust við að grafa nýjan brunn í tíu feta fjarlægð frá brunninum sem Benny hafði fallið í og samhliða hor.um. Vélskófla var sett af stað til að hraða greftrinum en eftir skamma stund varð hún að hætta því að brunnurinn hrundi saman. Nokkrir menn snöruðust niður í brunninn og mokuðu upn úr hon- um á nýjan leik með skóflum. Kl. 11 um kvöldið sást að hönd Benn- ys skalf og féll máttlaus niður. Það var síðasta skiptið sem lífs- mark sást með honum. Þurr sand- Beiri nýling eldsneylis í dráitar- vélabreyílum Leiksystir Bennys vakir mo3 móSur hans moSan unnið er a'ð blöruuninni ur féil skrjáfandi niöur á höfuð honum. Alla þessa löngu köldu nótt börðust björgunarmennimir 150 áfram. Hvað eftir annað hrundi niður í brunninn og hann fylltist svo að byrja varð á nýjan leik. Þegar komið var fram á næsta dag andvarpaði lögreglustjórinn sem stjórnaði aðgerðunum: Þetta er vonlaust, við náum honum aldrei lifandi. Kraftaverkið En áfram var haldið þrátt fyrir þreytuna, þrátt fyrir það að eng- Björgunermennirnir unnu alla liðlanga nóttina og langt fram á næsta dag. — Vélskóflan var gagnslaus. ar líkur virtust til að drengurinn væri lengur á lífi. Fólkið vildi ekki gefast upp. Síðdegis var loks komið svo langt að brunnurinn var orðinn nægilega djúpur, en nú skildi 10 feta þykkur veggur milli Bennys og björgunarmanna hans. Þá kom hjálp frá atómtil- raunastöðinni í Brokhaven sem þarna er í nágrenninu, ívöföld pípa úr hertu stáli (ætluð til varnar gegn geislaáhrifum). Hún var hömruð gegnum vegginn yfir til Bennys. Ungur negri, Sam Woodson, skreið gegnum pípuna og kom við hönd Bennys. Hún var náköld. Þá var klukkan 7,32 e.h. og 23 klukkustundir og 48 mínút- ur síðan Benny féll niður í brunn- inn. Woodson náði tökum á drengn um og þeir voru dregnir til baka gegnum pípuna. Benny stundi. Hið ótrúlega hafði gerzt: hann var á lífi! Niðri í brunninum var kuldinn • 55 stig (á Fahrenheit). Benny var heill á húfi nema hvað hann hafði fengið milda lungnabólgu. Hann j átti líf sitt að launa jakkanum j sem hafði myndað loftrúm um höf- 1 uð honum og fyrst og fremst fólk- ! inu sem var ákveðið að hann skyldi ekki deyja heldur halda lífi. Dísilhreyflar nýta yfirleitt elds- neytisorkuna talsvert betur en ben zín- og steinolíuhreyflar, vegna meiri þjöppunar, en því miður eru þeir dýrari í innkaupi og við- haldi. meðai annars vegna hinnar dýru eldsneytisdælu, og hingað til hafa þeir einnig verið kröfufrekari með gæzlu. Dísilhreyfillinn hefir þess vegna aldrei náð verulegri út- breiðslu í þeim löndum, þar sem varð á eldsneyti er tiltölulega iágt, t. d. í Bandaríkjunum. í þessum löndum hafa menn heldur viljað hinn einfalda og meðfærilega benzinhreyfil, er ekki gerir mikl- ar kröfur um gæzlu til þess. er situr í ekilssætinu. Það þarf mikla þjöppun. Þess vegna er eðlilegt, að menn hafi reynt að finna leiðir til að gera hreyfilinn betur úr garði, Drengurinn er kominn til sjálfs sín í súrefnistjaldi á sjúkrahúsinu. þannig, að hann hafi hina góðu eldsneytisnýtingu dísilhreyfilsins, án þess að tæknilegir gallar hans fylgi þar með. Mesta hindrun þessa er í sjáifu benzíninu. Til þess að fá betri nýt- ingu, verður nefnilega að auka þjöppunarhlutfallið, þ. e.a. s. hlut- fallið milli rúmfangsins yfir bull- unni, þegar hún er í hotni, og þeg- ar hún er uppi og hér þolir venju- legt benzín ekki hærra hlutfall en um 7:1, en dísilhreyflar hafa venju lega hlútfallið 15:1. Ef reynt yrði að nota hærra þjöppunarhlutfall en venjulegt er í benzínhreyflum, myndi verða forkveikja — sjálfs- íkveikja í benzínlaftinu. Miklar endurbætur hafa þó orð- ið á hæfni benzínsins til að þola samþjöppun. Fyrir fáeinum árum gat venjulegt benzín aðeins þolað þjöppunarhlutfallið 6:1, en nú hefir tekizt að framleiða benzín, (sem enn er þó á tilraunasfigi), sem þolir þjöppunarhlutfallið 12:1, eða nærri því eins hátt hlutfall og er í dísiihreyflinum. Til þess að rannsaka kosti hins háa þjöppunarstigs, smíðaði Oliver dráttarvélaverksmiðjan í Banda- rikjunum tilraunahreyfil, sem hafði þjöppunarhlutfallið 12:1 og hafði til samanburðar venjuiegar hreyflagerðir verksmiðjunnar, m. a. „Oliver 70“, sem var sömu stærðar, en með þjöppunarhlut- fallið 6,5:1. Það kom í ljós við til- raunina, að hestorkutalan óx um 92%, en eldsneytissparnaður varð 36%. Nú mega menn ekki vænta þess, að slíkur hreyfill komi í dráttar- vélar í bráð; til þess dugar ekki það benzín, sem nú er á boðstól- um. Tilraunabenzínið, sem notað var í þennan hreyfil, hafði oktan- tölu — en það er tala, sem gefur til kynna haefni benzíns til að þola samþjöppun — sem var yfir 100, en okkar núverandi benzín hefir oktantölu í kringum 80. En það er stöðugt verið að bæta það. Fyrir aðeins 17 árum var oktantal- an um 70. Vínanda og vatni bætt í. , Það er einnig farið að gera til- raunir með sára einfaldar aðferðir til þess að bæta benzínið; hér er um að ræða að bæta í vínanda og Sigri hrósandi lyfta björgunarmennirnir Benny upp úr brunninum. faðir hans situr við rúmstokkinn. (Framhaid á 8. síðu.)

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.