Tíminn - 20.06.1957, Blaðsíða 5

Tíminn - 20.06.1957, Blaðsíða 5
T í M I N N, fimmtudaginn 20. júní 1957. 5 Við sigldum inn Dýraf jörð síðla dags í kyrru veðri. Skip stjórinn lagði að bryggju og á Þingeyri höfðum við tal af mönnum, sem stóðu á bryggjusporðinum. Okkur var sagt að strandferðaskip- ið mundi koma innan klukku tíma og skipstjórinn ákvað að leggja frá á ný og bíða úti á legunni. Þar var varpað akkerum og við vissum að skipið yrði ekki hreyft þaðan meðan við stæðum hér við. Hásetarnir mögluðu eitthvað og tautuðu sín á milli, röð- uðu sér upp við borðstokk- inn og horfðu á húsin í landi. Við sáum fólk á gangi og jeppa þræða eina aðalgötu þorpsins. Klukkutíma á eftir áætlun sigldi strandferðaskipið inn fjörðinn og lagðist að bryggju. Drunur eimpíp- unnar bergmáluðu milli fjallanna. Það var sýnilega gleðskapur í full um gengi, við heyrðum h’látur í karlmönnum og stúlkurnar skræktu. Við horfðum á, þar sem við stóðum iðjulausir í brúnni og reyktum. — Það væri gaman að vera kom inn á ball, sagði stýrimaðurinn. — Þú ert enga stund að synda í land, sagði skipstjórinn. Svo héldum við allir áfram að reykja. Tugl hafði kviknað þegar Strandferðaskipið loksins seig frá bryggjunni og stefndi til hafs. Eim pípan gaf frá sér langdregið gaul og söngurinn á þilfarinu hljóðnaði eftir því sem skipið fjarlægðist. Loks hvarf það okkur sjónum og kyrrðin rikti ein á firðinum. Við biðum allir þöglir nokkra stund og allir vissu að hver einn beið þess í eftirvæntingu hvort skipstjórinn mundi færa sig innað bryggju. — Hann lauk við að reykja pípuna sína, sló öskunna úr henni við skó hælinn og sagði: Það er eins gott að liggja hér, fyrst það er ekki bryggjupláss fyr ir fleiri skip. Eg nenni ekki að færa mrg í hvert sinn sem strand- ferðaskipið kemur. — Það kemur í hæsta lagi einu sinni í vi'ku, sagði einhver. — Við þurfum að athuga einn stimpilinn, sagði hann. Við getum alveg eins athafnað okkur hér úti á legunni. Svo klifraði hann niður á káet- una sína og bauð okkur góða nótt. Mér var sama þó við værum hér. Eg hafði aldrei komið hér áður og þekkti ekki nokkurn mann. Og ég yrði hvort sem er fluttur í skips-1 bátnum í land á morgun, ég vari eini íslendingurinn um borð og | það var starf mitt að vera túlkur! þeirra og greiða fyrir þeim. Þó hefði verið gaman að vera í landi og ganga um göturnar á ókunnu fiskiþorpi þar Sem maður þekkti engan, horfa á andlitin sem mað- ur hafði aldrei séð áður en voru þó svo kunnugleg að maður hafði næstum heilsað án þess að vita af, kunnugleg af því maður hafði kom ið í svo mörg fiskiþorp á undan þessu. En við vorum kyrrir um borð og reyktum, horfðum til lands og spauguðum um kvenfólkið í þorpinu, kvenfólkið sem enginn okkar hafði séð. Við töluðum um þær eins og við hefðum þekkt þær alla ævi. Sólin var sest og 6nar- brattar fjallshlíðaranr voru sveip- aðar djúpum bláum skuggum, ald- an gjálfraði við kinnunginn, máfur hnitaði hringa hátt yfir höfðum okkar. Hin bjarta nótt norðurhjar ans ríkti í almætti. Til lands Árla næsta morgun var ég kom- in upp á þilfar. Veðrið var ennþá kyrrt og fagurt, en nú var þoka niður í miðjar hlíðar. Skipstjórinn stóð í brúnni og hafðist ekki að. Mælingarmaðurinn Hanssuaq gekk um gólf með hendur í vösum og horfði á'hyggjufullur til fjalla. — Þegar ég hafði borðað morgunverð fór ég upp til þeirra. Landmælingamenn bíða byrj- ar hjá góðufólki á Vestfjörðum Jökull Jakobsson segir frá dvöl í Dýrafirði og ferð á Kaldbak, hæsta fjall Vestf jarða - Fyrri grein Við gerum varla mikið í dag, sagði mælingamaðurinn. Þokán er biksvört og hangir niður í miðjar hlíðar. Það er engin hreyfing, é henni. Þá er tilvalið að fara í land og undirbúa leiðangurinn, sagði ég.' það gæti tekið nokkurn tíma'að fá mannskap. Fjórir hásetanna geta faríð ‘með ykkur, sagði skipstjórinn. Þéir eru ekki vanir fjaílgöngum enLSþeir, hljóta að geta borið eitthvað.'-Þeir eru hraustir strákar. Þú ert kl^r á því hvað þarf að útvega? mælingamaðurinn. .. Leiðsögumann, tvo burðarkgrlj; bíl eða hesta, sagði ég. Við hufum talað um það oft áður og ég kúfmí' það utanað. Hann kinkaði'-kolÆUií Það er bezt að skjóta þérÆjhtfd núna. Þú hlýtur að hafa upp-4«l*i§ri- hverjum sem getur útvegað okkur þetta. Á meðan get ég tekið til apí- Þingeyri við Dýrafjörð. ið og skift þvi niður. Við þurfum? >.-^ , , ,................ „ . .. ,. . tog^myndarlegu husi a eyrmm rett að nota timann þo utlitið se ekki • ,T i ,• . “ . .. . .........olan við bryggjuna. Hann kynnti. -mig fyrir konu sinni og bauð mér gott. Og það getur birt til þégar líður á daginn. Einn hásetanna ferjaðu mig ií ,að þiggja kaffi. Mér þótti gott að, , * , J smakka kökurnar hans eftir dansk land askipsbatnum. Við,komum ln kQst um boi.g Hann yar skraf. okkur saman um að hann sækti hreifinn ljú:fmalmlegur, það var! mig þegar eg kæmi i eins og við værum aldavinir og1 bryggju og veifaði. Ilann skyld. hefð;|m þukkst alla ævi. Hann hafa auga með mer. Eg g«WP-upp. ræddi um ævi sína og brátt kom í mannlausa bryggjuna og upp a-'að-j ]jós að vjg áttum sameiginlega I algotuna. Eg vissi ekki hvaða ^ ^ . , , . , vini í hofuðstaðnum. Þannig eru stefnu eg skyldi taka þaðan, í , ,. , * , . ’ , ’ ..Islendmgar. i rauninm var það sama þvi að eg; , 1 þekkti engan og enginn var öðrum I En nn er bezt að athuga hvað líklegri til að aðstoða okkur., I;aö hw®1 er að Sera fyrir ykkur, sagði var sunnudagsmorgun og fáir' á hann. Eg veit hver er bezti maður j ferli. Eg sá mann nálgast og ég á- pem &etið fengið. _ | kvað að bíða eftir honum. Hahn Hvenær ætlið þið að leggja í hafði mjólkurbrúsa í annarri hopdi,<Þann- og daghlaðabúnka í hinni. Eg f Næsta sólskinsdag. Það þýðir góðan daginn, hann staðnæmdist *ekkert að fara nema útlit sé fyrir og tók kveðju minni. Ertu.. mrfL.skyggni. Það þarf að mæla til danska bátnum? spurði hann.. I einna fimm sex fjalla hringinn í Tycho Brahc, er það ekki nafnið kring. á honum? " t — Það er viððúið að verði allir í — Já, við þurfum á aðstoð áð heyi ef þun-kur er, sagði bakarinn M b. Tycho Brahe á Þingeyrarhöfn halda, sagði ég. Ertu kunnugur jvinur minn. Og flestir verkfærir hér? |<menn teptir við virkjunina inni í — Borinn og barnfæddur, sagði firði. En við skulum sjá hvað hægt hann brosandi. Hvaða ferðalag er annars á ykkur? Upp á Kaldbak er að gera. Gunnar á Hofi er þaul kunnugur ieiðinni á Kaldbak. Eg tala við hann, karlinn. Meðan ég gæddi mér á rjóma- Við erum frá mælingunum. ViJL kaffi og tertum sat hann við sím- þurfum að kómast upp á Kaldbak | ann og hringdi í allar áttir. 1 þann til að mæla. Okkur vantar kunnug j mund er ég hafði lokið góðgerðun- an leiðsögumann, tvo hrausta burð ( um var hann næstum búinn að arkarla og bíl eða hesta. Hver værrt skipuleggja leiðangurinn út í æsar. líklegur til að liðsinna okkur. Gunnar á Hofi var á leið í þorpið. — Ætlið upp á Kaldbak, sagði; Ilann var mjólkurpóstur og kom hann. Þið ráðizt ekki á garðinn.j á hverjum degi á jeppanum sínum þar sem hann er lægstur. En labb j með mjólk til þorpsbúa. Við mund um ná tali af honum. Og við höfð aðu heim með mér, við skulum sjá hvað við getum gert. Hann var bakari og veitingamað ur þorpsins, Höskuldur að nafni, ;um fengið loforð fyrir tveimur hraustum strákum sem þekktu leið ina á Kaldbak eins og fingurna á bjó ásamt fjölskyldu sinni í stóru ’ sér. Eg hafði samband við skipið og gaf skýrslu: góðar vonir um ein- valalið. Daninn hugsaði sér ekki til hreyfings enda grúfði dimm þokan enn niður í miðjar hlíðar. En allt þurfti að vera tilbúið þegar birti. Eg dvaldi daginn allan á heimili Höskuldar í bezta yfiriæti. Hann og kona hans veittu mér rausnar- lega og ég hafði ekki vanist slíku sællífi allt sumarið. Eg var ekki sá eini sem naut góðs af gestrisni þeirra. Það var stöðugur gestagang ur, menn komu á trillum yfir fjörð inn, á bílum inn úr sveitinni, gang andi úr næstu húsum. Allir áttu eitthvað erindi, öllum veitt úrlausn enginn fór án þess að þiggja hinn rausnarlega beina þeirra hjóna. Það var gott að dvelja í þessu húsi þar var líf og gleði. Hér hefur alls konar fólk drukkið kaffi, sagði frú in, allt frá kolsvörtum negrum af strönduðu skipi til forseta íslands. Leiðangur undirbúinn Við höfðum tal af Gunnari bónda þegar hann kom akandi í brúnum jcppa, hlaðinn mjólkur- brúsum. Hann var nokkuð við ald- ur, meðal maður, kvikur í hreyfing um og íhugull á svip. Hann hlust- aði með athygli á erindi mitt, velti því fyrir sér gaumgæfilega og gaf mér skýr og skjót svör. Hann var reiðubúinn að liðsinna okkur á all- ann hátt. Ekki treysti hann sér að fara sjálfur með okkur á fjallið, þótt hann hefði hlaupið þangað upp þrisvar sinnum á einum degi í smalamennsku á yngri árum. En jeppinn hans var falur hann skyldi selflylja okkur og farangurinn eins langt og unnt var að komast á bíl, hann skyldi taka að sér að hafa samband við okkur í talstöð meðan við værum upp á fjalli. Hann var reyndur og þaulkunnugur leiðum. Ekki leizt honurn beint vel á þá hugmynd okkar að dvelja í tjaldi á efsta tindinum. Ef hann blæs þarna uppi, þá er það andskotinn sjálfur sem er laus. Það stenzt ekkert fyrir þeim ham- förum. Þar geta gengið sviptibyljir yfir með eldingarhraða. Og ég býð ekki í ykkur ef þið lendið í byl. En það er hvergi hægt að tjalda í bröttu hlíðunum og það er til einskis að vera fyrir neðan, kann- ske fáum við skyggni í kortér og er um þúnir að missa af því þegar við höfum klöngrast upp á tind. Þá er eins gott að sitjá inni í stofu. Nei, við verðum að vera klárir að bíða allt upp í viku uppi á tindi. Hinn reyndi og gamli bóndi beygði sig fyrir okkur hógværlega eins og maður lætur undan kenj- um bilaðra manna sem ekki þýðir að andmæla. Það varð að ráði að Gunnar yrði tilbúinn næsta dag sem útlit væri fyrir heiðskírt veð- ur. Við skyldum hafa samband við bakarann, hann skyldi gera Gunn- ari viðvart og strákunum tveimur sem færu með okkur upp. Um kvöldið dvaldi ég enn hjá þeim á- gætu hjónum er höfðu tekið mér með slíkum ágætum, vegalausum og ókunnum, við fórum i bíltúr inn fyrir þorpið og ég varð margs vís- ari um innansveitarmál. Á tnið- nætti kom skipsbáturinn og sótti mig, það var logn og ládeyða á firðinum, máfarnir sveimuðu um í lcit að æti, allt var kyrrt og þögult nema vólaskellirnir í bátnum. Við renndum að skipshlið og klifruð- um uim borð. Strákarnir fram í lúkar og ég í káetu mína. Það var betra að vera vel sofinn ef við legð um á brattann á morgun. Nscsta morgun var veðrið svipað. En nú var meiri hreyfing á þok- ur.ni og ég sá að danski mælinga- maðurinn tvísté á þilfarinu óróleg- ur, horfði í allar áttir og það var dautt í pípunni hans. Eg vissi hverskyns var: það var kominn ferðahugur í hann. Þegar hann sá mig benti hann á rauf í skýjunum þar sem blánaði fyrir himni. Sko, þokunni er að létta, hróp aði hann eins og hann hefði upp- götvað iangþráðan fjársjóð. Sæi hann einhversstaðar rönd af himni var hann orðinn óviðráðanlegur og ekkert hélt aftur af honum, hvorki hrakspár Veðurstofunnar né mót- mæli reyndra bænda. Eg hafði oitit sinn útskýrt fyrir honum orðið dag málaglenna. En honum var hvergi hnikað ef hánn hefði ákveðið að nú yrði skyggni. Maður veit aldrei sagði hann venjulega. Enginn veit neitt. Við höfum stundum orðið að liggja sólarhringum saman í frosti og fannkyngi á fjallstindum af því hann hafði bitið það í sig að nú yrði skyggni. En stundum höfðum við líka lokið mœlingum þegar starfsbræður hans sátu um kyrrt niðri í býggð. Þið getið alveg eins haft það ró- legt í dag um borð, sagði skipstjór inn og hallaði sér makindalega að stýrishúsinu meðan hann svældi pipu sína. Það verður þoka í allan dag, sanniði til. Það fer betur uim ykkur hér en þarna uppi í kuldan- um. En Hanssuaq var þegar byrjaður að raða farangrinum. Eg fór í land á skipsbátnum til að gera liðsmönn um okkar viðvart. Það birti til meir og meir og sólin brauzt fram úr skýjunum. Innanúr sveit komu þau tíðindi að svarta þoka væri enn á Kaldbak, en henni gæti létt þegar liði á daginn. Gunnar á Hofi var staddur í þorpinu og hann flýtti sér að afgreiða mjólkina; síðan ókum við fram á bryggju og gáfum hljóðmerki. Innan skamms brunaði báturinn að, hlaðinn far- angri og hásetarnir sem ætluðu með í fjallgönguna, voru spenntir og kvíðnir í senn. Þeir höfðu aldrei farið í fjallgöngu svo heitið gæti. Við handlönguðum dótið upp úr bátnum, hlóðum jeppann utan og innan og smugum sjálfir á eftir. Það var ekki rúm fyrir alla, við mundum þurfa að fara tvær ferð- ir. Nokkrir þorpsbúa voru komnir niðrá bryggju og horfðu á. Þeir fylgdust vel með hverri hreyfingu en virtust ekki sérlega uppnæmir. Það var skrítið fólk sem var að æða uppá fjöll um hásláttinn. — Þetta heita víst vísindi. Svo var lagt af stað inní sveit, að Hofi. Að Hofi Þar þágum við veitingar meðan hinir voru sóttir í þorpið. Við sá- um ekki til Katdbaks frá Hofi en Gunnar henti okkur á hvassa fjalls egg innst í dalnum og sagði að á m'eðan það væri -þoku hulið gegndi sama máli með Kaldbak. Það vissi hann af ævilangri reynslu. Siðan kölluðum við fjallið það arna radar inn hans Gunnars. Og það var ó- hætt að treýsta þeim radar. Vi3 tókum upp talstöðvarnar og sýnd- um Gunnari, hvernig þær skyldu notaðar. Hann var enga stund að átta sig á því. Enda kom í ljós að Gunnar var vólameistari mikill, hugvitsmaður og brautryðjandi á læknisviðinu. Hann átti elstu drátt arvél í tandsfjórðungnum, Inter- nátional 1930. Það voru aðeins tvö ár síðan hann hætti að nota hana. Hann hafði fundið upp tæki til að raka saman heyi og fest framan á jeppann. Hann hafði verið fyrsti maður til að koma sér upp súg- (Framhald á 7. síðu). ,

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.