Tíminn - 02.07.1957, Blaðsíða 12
Ve3ri® í dag:
Norðaustan stinningskaldi, þurrt
veður og léttskýjað með köflum.
Hitinn kl. 18:
Reykjavík, 16 stig, Akureyri 10,
Khöfn 16, Ósló 13, París 25,
London 22.
Þriðjudagur 2. júlí 1957.
Landsmót UMFÍ og 50 ára afmælishátíð á ÞingvöD-
um undir merki þjóðfánans og Hvítbláins
jafnvægi í valdabaráttunni
Hátíðasýning í Þjóðleikhúsinu. Konungshjón og forsetahjón í stúku, Davíð skáld Stefánsson les „Prologus" á
sviðinu. — (Ljósm.: Pétur Thomsen). . .........
Blaðamenn ræddu í gærdag við
Östen Undén, utanríkisráðherra
Svíþjóðar, sem hér er á ferð
ineð Svíakonungi og föruneyti
lians eins og kunnugt er.
Undén hefir verið utanríkis
ráðherra lands síns í 12 ár, en
þetta er í fjórða sinn, sem hann
heiinsækir ísland.
Undén sagði, að afstaða Svía í
utanríkismálum hefði smám sam
an öðlazt viðurkenningu, og aðal
markmið hennar væri að draga
úr styrjaldarhættunni og viðsjám
í heiminum, en vinna að því að
koma á jafnvægi í valdabaráttunni
Bera klæði á vopnin.
Ráðherrann lagði á það áherzlu
að lega landsins og aðrar aðstæður
gerðu það að verkum, að Svíum
væri heppilegast að reyna að bera
klæði á vopnin í átökum stór
þjóðanna.
Svíar hefðu valið þann kostinn
að efla mjög varnir landsins
í stað þess að ganga í nokkurt
hernaðarbandalag. Ekki taldi Und
én, að Svíar ynni bezt að friðnum
í heiminum með því að taka að
eins afstöðu með öðrum hvorum
aðilanum.
Utanríkisráðherrann kvaðst
hinsvegar vilja leggja á það á
herzlu, að Svíar væru ekki hlut
lausir í gamalli merkingu þess
orðs, þó að þeir höfnuðu þátttöku
í liernaðarbandalögum. Þeir
tækju afstöðu á sviði alþjóða
mála, t. d. á vettvangi Sameinuðu
þjóðanna. Afstaða Svía á hverj
um tíma mótaðist hinsvegar af
því einu ,hvað þeir álitu réttast
og heillavænlegast.
Aðspurður um sambúð Rússa
og Svía kvað Undén standa vonir
til þess, að hún færist senn í
eðlilegt horf. Varðandi Kýpur og
Alsírdeiluna kvað ráðherrann það
álit Svía, að fara yrði mjög gæti
lega að því að breyta margra alda
skipulagi og fyrir alla muni yrði
að forðast að láta þar vopnin skera
úr.
Landsmót Ungmennafélags
íslands og fimmtíu ára msnn
ingarhátíð þess stóð á Þing-
völlum nú um síðustu helgi,
laugardag og sunnudag. Tím-
inn mun næstu daga skýra
frá einstökum íþróttaafrek-
um á mótinu. Sömuleiðis
mun blaðið flytja lesendum
sínum frásögn um upphaf
sambandsins. Þess vegna
verður um hvorugt fjölyrt,
en gangur hátíðahaldanna
hins vegar rakinn í aðaldrátt
um.
{
Mótið hófst klukkan 9 á laugar-
dagsmorgun með glæsilegri skrúð-
göngu íþróttafólks inn á hátíða-
svæðið. Þjóðfáninn ísienzki og
Hvítbláinn voru bornir fyrir skrúð-
göngunni en síðan mátti sjá merki
margra héraðasambanda. Keppend
ur frá hverju héraðasambandi
voru í samlitum íþróttabúningum
og héldu hópinn í skrúðgöngunni
úndir sínu héraðsmerki. Gengið
var frá tjaldborg þeirri miklu er
slegið hafði verið upp inn á völl-
unum og á íþróttavöllinn. í tjald-
borginni hafði hvert héraðssam-
band tjöld fyrir sig og höfðu sum
reist hlið fyrir tjöldum sínum.
Vakti hlið Eyfirðinga og skipan
þeirra sérstaklega athygli.
Þorsteinn Einarsson íþróttafull-
írúi var mótsstjóri og stjórnaði
skrúðgöngunni inn á völlinn.
Ávarp forseta fslands.
Þessu næst ávarpaði forseti ís-
lands hiátíðargesti og sett' mótið
með snjallri ræðu. Hann minntist
eigin reynslu sem gamall ung-
xnennfélagi og talaði um almenna
uppeldisþýðingu félagslífs og íé-
lagsstarfa.
Að lokum afhenti forseti íslands
formanni hátíðarnefndar fcrkunna
íagran verðlaunabikar, er hann gat
til að keppa um á mótinu.
Allan laugardaginn stóð svo í
þ'róttakeppni fram til miðaftans.
Um kvöldið var útifundur, er
Skúli Þorsteinsson skólastjóri
stýrði: Þar fluttu fjórir menn
stuttar ræður um félagsmál og
gildi þefcrra. Ræðumenn voru
Gunnar Ólafsson, Guðjón Ingi
mundarson, Sauðárkróki, Hall-
dór Kristjánsson, Kirkjubóli og
Vilhjálmur Einarsson íþrótta-
kappi.
Eftir þennan útifund voru viki
ar sýndir, Sigríður Valgeirsdóttir
Ávarp íorseta íslands og ráSherra - íjölbreytt og þrótt-
mikil íjjróttakeppni - mikil tjaldkorg á völlunum - þátt-
takendur úr öllum héruðum landsins
íþróttakennari stjórnaði sýning
unni en Unnur Eyfells lék á píanó.
Um kvöldið var svo dansað á
palli.
Hátíðin á sunnudaginn.
Sunnudagsmorguninn var veður
hið fegursta, heitt og stillt og sól
skin öðru hverju. Þá var tekið iil
starfa kl. 9 og haldið áfram I-
þróttakeppni.
Klukkan hálf tvö var svo hátíða
messa flutt á íþróttavellinum. Sig
urður Ágústsson í Birtingaholti
stjórnaði söng við messuna en sam-
bandsstjóri ungmennafélaganna,
séra Eiríkur J. Eiríksson prédik
aði.
Að messunni lokinn ávarpaði for
maður hátíðanefndar, Stefán Ó1
afur Jónsson, mótsgesti. Síðan las
Halldór Kristjánsson á Kirkju-
bóli afmæliskvæði, eftir Guðmund
Inga Kristjánsson.
Bernhard Stefánsson alþingis
maður flutti ræðu þar sem hann
rifjaði upp ýmislegt í sambandi
við stofnun UMFÍ á Þingvöllum
1907 en hann var sjálfur einn af
stofnendunum.
Lúðrasveitin Svanur lék milli
ræðna. Séra Jóhann Hannesson
þjóðgarðsvörður flutti ræðu og
sagði margt viturlegt um þær
hættur sem íslenzk menning og
íslenzk þjóð stendur andspænis.
Kristinn Hallson óperusöngvari
söng.
Erlendir gestir.
Fulltrúar erlendra ungmenna-|
félaga voru á þessu móti og fluttu :
ávörp. Fyrstur talaði af hálfu'
finnsku ungmennafélaganna Yrjö I
Wasama. Mælti hann fyrst nokkur
orð á íslenzku en síðan talaði
hann á sænsku.
Fyrir Noregs bondeungdomss-
lag var Einar Straume bóndi en
fulltrúi Noregs Ungdomslag var
Ivar Orglund sendikennari. Full
trúi færeyskra ungmennafélaga
var Páll Patursson kóngsbóndi í
Kirkjubæ. Þeir Ivar Orgland og
Páll Patursson töluðu báðir ís-
lenzku.
Allir þessi gestir færðu UMFÍ
minjagjafir frá félögum þeim, er
sendu þá.
Mikla athygli vakti fimleika
sýning, sem Þórir Þorgeirsson í-
þróttakennar á Laugarvatni stjórn
aði en þátttakendur voru víðsveg
ar að.
Fjölmenni á Þingvöllum.
Fjöldi manna var á Þingvöllum
bæði laugardag og sunnudag.
Nokkru spillti það, að þegar leið
á sunnudaginn gekk á með þung
um skúrum og féll niður af þeim
sökum bændaglíma, sem ráðgerð
hafði verið. En þó að skin og
skúrir skiptust þannig á þessa
daga var mótið mjög ánægjulegt
í heild.
Það voru kringum 120 einstakl
ingar, sem tóku þátt í frjálsutn
íþróttum á þessu landsmóti. Sund
keppni fór fram í Hveragerði á
laugardaginn og þreyttu hana ná
lega 100 manns. Auk þess kepptu
tvö kvennalið í handknattleik,
Skagfirðingar og Kjalnesingar og
unnu Skagfirðingar þá viðureign.
Enn kepptu þrjú knattspyrnulið,
VestUr-Húnvetningar, Kjalnesing
ar og Suður-Þingeyingar. Þingey
ingar báru sigur úr býtum.
Héraðssambandið Skarphéðinn.
vann mótið.
Á sunnudagskvöldið voru til
kynnt úrslit íþróttakeppninnar og
verðlaun afhent. Þá sleit sambands
stjóri mótinu með ræðu.
Veizla í Valhöli.
Stjórn Ungmennafélags íslands
hafði boð inni í Valhöll kl. 5 síð
degis á sunnudaginn. Voru þar m.
a. ýmsir af frumherjum ungmenna
félaganna og forystumenn nokk-
ui'ra annarra félagssamtaka í land
inu.
(Frambald á 8. síðu.)
Páll Patursson kóngsbóndi flutti
kveðjur frá Færeyingum. (G. Sig.)
Rætt viS Undén, utanríkisrá<Sherra SvíJjjóSar:
Aðalmarkmið utanríkisstefnunnar
er að draga úr viðsjám og koma á