Tíminn - 03.07.1957, Page 5

Tíminn - 03.07.1957, Page 5
TÍMINN, miðvikudaginn 3. júlí 1957. s Aflið var ættjarðarást - stefnan ræktun lýðs og lands Kæru úngmennafélagar og aðrir gestir. Eftir rúmlega mánuð eru liðin rétt 50 ár frá því að Samband U.M.F. íslands var stofnað hér á Þingvöllum og sú hátíð, sem hér er haldin, er því 50 ára afmælishátíð þess. Það vóru aðeins þrjú ungménna- félög, sem stotfinuðu sambandið í fyrstu: Ungmennafélag Akureyrar, Ungmennaféiag Beykjavíkur og Ungmlennafélag Skriðuhrepps, en þá tilheyrði Öxnadalur Skriðu- hreppi. Þessi þrjú félög sendu sam tais sjö fulltrúa á þetta stofnþing sambands U. M. F.Í., en auk þess feomu þar áhugafulltrúar frá Ung- mennafélagi ísafjarðar og Bolung- arvíkur, en þau félög gengu ekki í sambandið í það sinn. Þessir Sjö fuiltrúar voru: Jó- hannes Jósefsson og Guðmundur Guðlaugsson frá Umf. Akureyrar, Guðbrandur Magnússon forstjóri, Helgi Valtýsson kennari og rithöf- undur, Jón Helgason prentari og Snorri Einarsson frá Umif. Reykja- víkur. Eg var sá sjöundi frá Umf. Skriðuhrepps, en áhugafulltrúinn var Arngrímur Fr. Bjarnason. Eft- ir því sem ég bezt veit, eru allir þessir m'enn enn á lífi nema Guð- mundur Guðlaugsson. Hann andað- ist fáum érum síðar. V'egna þesis áð ég var einn af þessum sjö fulttrúum, eru mér minnisstæðir þeir dagar ,sem ég sat á þessu fyrsta þingi UMFÍ árið 1907, fyrir 50 árum. Forseti þingsips var kjörinn Jó- hannes Jósefsison, núverandi eig- andi Hótel E-orgar, en þá einn kunnasti glíinufeappi og íþróttamað ur landsins. í þinglokin var svo Jóhannes kosinn fyrsti forseti UMFÍ. Jóhannes hafði, ásamt Þórhalli Bjarnarsyni prentara og fleiri ung um mönnum, stofnað Ungmenna- félag Akureyrar snemma árs 1906 og var formaður þess, en það var einmitit Ungmennafélag Akureyrar, sem einkum gefekst fyrir stofnun sambands ungmennafélaganna. Það er því Jóhannes Jósefsson, sem er aðalstofnandi Ungmennafélags ís- lands. Hitt er aftur misskilningur, sem þó oft hefir heyrst, að Ungmenna- félag Akureyrar sé fyrsta ung- menna félag landsins. Svo er efeki, því það eru ti'l ungmennafélög sem stofnuð voru é undan því. Þar á jneðal var slfkt félag stofnað í minni sveit érið 1900. En þessi fé- lög höfðu ekíkert samband sín í milli og ekki er hægt að tala um neina almenna Ungmennafélags- hreyfingu fyrr en Ungmiennafélag Akureyrar, undir forustu Jóhannes ar Jósefssonar, hratt henni af stað fyrir 50 árum, bæði með stofnun sambandsins og annarri útbreiðslu- starfsemi. Þessa forgöngufélags og forustumanna þess bar því að minn ast sérstaklega á háiíð þeirri, sem hér er haldin. Ræða BernharSs Steíánssonar al|>ingismanns - úr hópi frumherja ungmennahreyfingarinnar - á 50 ára afmælishátíð UMFÍ á ÞingvöIIum s. 1. sunnudag ungmennafélaganna í Noregi, þann ig hafði t. d. Jóhannes Jósefsson dvalið við nám í Noregi og kynnst. ungmennafélögunum þar skömmu áöur en hann stofnaði Ungmenna- félag á Akureyri.Munu þau kynni hafa kvatt hann til að beita sér fyrir svipuðum félagsstofnunum hér. Ræktun lýðs og lands Kjörorð ungmennafélaganna gaf til kynna að hverju þau vildu fyrst og fremst vinna, en það var ,.is< landi allt“ og stefnan var „ræfetun lýðs og lands“. Starf þeirra beind i'st því bæði inn á við, að ökkur ungmennafélögunum sjálfum, og út á við, að baráttu fyrir hugsjóna miálum okkar. Við vildum í fyrsta lagi vinna að því að þroska okfeur sjélf, bæði andlega og líkamlega, til þess að við gætum orðið sein beztir synir og dætur ættjarðarinn- ar. Á fundum og samkomum ung- mennafélaganna fóru að vísu 'fram skemimtanir, enda þarf ungt fólk að skemmta sér og á að geía iþað. En ég fullyrði, að m. k. fyrsta ára- tuginn eftir að samband ungmenna félaganna var stofnað, eða á með- an ég þefekti félögin bezt, v.or.u stoemmtanir ekki aðalatriðið og þaðan af síður eina atriðið í starfi félaganna, heldur fór þar margt fram, sem varð til að glæða áliúg- ann og efla þroska ungmennanna. Það voru haldnir málfundir,' -þár sem félagarnir æfðust í að setja skoðanir sínar skipulega fram og að taka virfean þátt í félagsmála: starfi. Hygg ég að þetta hafi verið mörgum þeim, sem síðar gáfu sig við alm'ennum málum, góður skóli og tel ég mig geta borið um það af eigin reynslu. í sumum félögum voru gefin út skrifuð blöð, sem ýmist voru lesin upp á félagfund- um eða gengu á miili félagsmanna. Þannig æfðu'st menn í að birta hugsanir sínar í rituðu máli, enda hafa ýmsir gamlir ungmennafélag- ar frá þeim tímum orðið kunnir rithöfundar. Oft voru líka mennta menn, eða aðrir andans menn, fengir til að halda fyrirlestra á fé- lagsfundum. Sum félögin gengust og fyrir námsskeiðum, þar sem bæði fór fram bókleg kennsla, einto um í því, sem bezt var fallið til undirbúningis félagsmálastarfsemi og einnig í íþróttum, því að íþrótt ir, eintoum íslenzka glíman, voru mikið stundaðar í ungmennafélög- unum á þeim tímum og eru það vonandi enn. Þanníg reyndu ungmennafélag- arnir með sjálfsnámi og samhjálp að efla þroska sinn andlega og lík- amlega og alveg sérstatolega þegn- skap sinn gagnvart landi og þjóð. Félagslegar dyggSir og þegnskapur Fyrir 50 árum áttu fæstir ungl- iingar knst ' skólagó-.e i. Nú eru feomnir skólar fyrir ailt, sem eiga að veita nemendum sinum flest það, scm ungme.inafélögin áður gerðu. Eg dreg þó í efa, að þeir séu þess umk mnir að öllu leyti og raunar síst í þvi er mest á ríöur fyrir þj.öina, en það er tfling fé- lagslsgra dyggða og þegnskapar. Ungimennafélögin hafa því enn mifelu hlutverki að gegna á því sviði. Því það er sitt hvað skyldu- nám í skólum eða frjálst áhuga- starf. Hvað snertir hinn aðalþáttinn i stefnu og starfi ungmennafélag- anna, eða þátttöku þeirra út á við í þjóðmálum, héraðsmálum og al- mennum framfaramiáium, þá er þess að gæta, að kosningarétturinn "fil Alþingis og sveitarstjórna var fyrir 50 árum og lengi síðan bund- inn við 25 ára aldur.en mikill hluti félagsmanna var yngri. Beinu á- hrifin í þjóðmálum gátu því ekki í fyrstu orðið mikil. Óbeinu áhrifin urðu því meiri, einkum þannig, að þegar ungmennafélagarnir urðu eldri og fóru að taka beinan þátt í þjóðmálum, þá fylgdu þeir fram hugsjónum ungmiennafélaganna, cg höfðu í félögunum fengið æfingu og öðlast þroska til að vinna þeim málstað gagn. Sjálfstæðismálið Það mál sem U'ngmennafélögin settu ofar öllu öðru var fullt sjálf- stæði landsins, en fyrir 50 árum laut Ísland Danakonungi, þó við hefðum þá nýlega fengið innlenda stjórn, og bæði Danir og umhcimur inn leit á íslar d sem hluta af Dana veldi. Þegar samband Ungmennafélags íslands var stofnað fyrir 50 árum hér á Þingvöllum, þá fór hér sam- tímis fram mikil hátíð og mikill mannfjöldi var hér saman kominn En þessi hátíðahöld voru ekki hald in í tilefni af stofnun UMFÍ. Fjarri fór því. Heldur var verið að fagna hér Friðriki 8. konungi Danmerkur og íslands. Fánar blöktu hér hvarvetna, en það voru ekki íslenzkir fánar, held ur danskir, því ísland átti þá eng- an löggiltan fána, heldur var litið svo á að danski fáninn væri jafn- frarot okkar fáni. Við fulltrúarnir á þessu 1. sam- bandsþingi UMFÍ höfðum lítið tjald hér á völlunum. í því sváfum við, og 1 því og við það héldum við þingið. Þarna voru fyrstu lög UM FÍ samin og samþykkt, og auk þess gerðar ályktanir um ýmis mál, bæði félagsleg og önnur áhugamál, sem of langt yrði upp að telja. Eitt atriði í lögum sambandsins olli á- greiningi og varð þess valdandi, að sum ungmennafélög vildu ekki ganga í sambandið, en það var, að allir ungmennafélagar innan sam- bandsins sfeyldu vera bindindis- men:i, Þetta ákvæði var síðar af- numið. Þetta þinghald okkar lét lítið yf ir sér og mundi sennilega alls enga athygli hafa vakið m'eðal mannfjöld ans, ef ekki hefði tvennt komið til. í fyrsta lagi að við drógum upp fána, á tjatdinu okkar, sem ekki var danski fáninn, að vísu ekki heldur sá fáni, sem síðar varð fáni íslands, heldur blár feldur með hvítum krossi (Heiðbláinn) en mjög margir vildu þá gera einmitt þann fána að fána íslands þó önn ur gerð þætti hentugri síðar. Fáni og þjóðbúningur Þetta, að við skyldum draga upp „ólöglegan“ fána, eins og það var orðað, þóttu víst hin mestu býsn' og lýsa uppreisnarhug gagnvart feónginum og ríkinu, þ. e. danska ríkinu. Mikilsvirtur alþingismaður, síðar þingforSeti, var sendur til ökkar með áskorun um að draga fánann niður en það var að engu haft. E'kki ’<ar þó neinu lögreglu- valdi beitt við okkur og fáninn blakti þarna á tjaldinu þingdagana. í öðru lagi vöktum við fulltrú- arnir athygli á okkur með því, að við gengum allir til Lögbergs í fornmannabúningum eða litklæð- um. Héldu sumir Íslendingar, að þar færi flokkur úr lífverði kon- ungsins, en sumir Danir héldu að við værum sérstakur íslenzkur heiðursvörður hans. Þetta tiltæki var ef til vill barnalegt, en við gerðum þetta þó ekki af neinni fordild, heldur af því að við vildum styðja allt sem íslenzkt var: íslenzkan fána, þótt ágreiningur væri raunar um gerð hans, og taka upp íslenzkan þjóðbúning, einnig fyrir karl- menn, og við töldum að forn- mannabúningurinn væri vel til þess fallinn. Fáum árum eftir þetta fékk ís- land sinn eigin fána. 1918 var svo landið viðurkennt frjálst og full- valda rítoi í konungssambandi við Danmörku og 17. júní 1944 var lýð veldisfáninn dregin að hún á Lög- bergi. Þá var sjálfstæðisbaráttan við Dani farsællega til lykta leidd og ég fullyrði að eldri og yngri ungmennafélagar áttu sinn fulla þátt í þeim sigri, 6em ef til vill var þó of auðveldur. Ófriðarhættars, sem kemur ' innan frá En ,,það er ekki minni vandi að gæta fengis fjár en að alla“. Og því miður er það augljóst, að ýms- ar hættar ógna nú okkar unga lýð veldi. Þær hættur stafa ekki leng- ur frá Dönum, heldur að nokkru frá heimisástandinu, ófriðarhætt- unni en þó einkum frá okkur sjálf um. Einstaklingar og heilar stéttir gera nú sífedlt kröfur til þjóðfélags ins, kröfur til annarra, en fæstir til sjálfra sín. Þetta er orðið ísl- lenzka þjóðfélaginu hættulegt og getur riðið frelsi okkar að fullu. í þesisu efni hafa ungmennafélögin enn mifeið m'annbótastarf að vinna meðal æskulýðs landsins. Eins og é'g áður gat um, lögðu ungmenna- félögin megin áherzlu á það fyrir 40—50 árum, að innræta meðlim- um sínum þegnskap gagnvart landi og lýð. En sannur þegnskapur er etoki fólgin í því að gera sífelldar kröfur ti'l annarra, ekki heldur til þjóðfélagsins, heldur í hinu að færa fórnir þegar þjóðarheill krefst. Hamingja íslands og ís- lenzku þjóðarinnar er nú ef til vill mest undir því komin að æska landsins s'kilji þetta og ef ung- imennafélögin nú eru upphaflegu hugsjóninni, sem hratt fólögunum af stað fyrir hálfri öld, jafn tní og þau voru þá, ættu þau að geta innrætt mikluim hluta æskulýðs landsins þetta. I i Að klæða landið Ungmennafélögin gömlu vildu fyrst og fremst að ísland yrði frjálst, en þau vildu líka taka þátt í hvers konar uppbyggingarslarfi. Eg nefni aðeins skógræíktina sem dæmi um það. í einu aldamóta- ljóði segir skáldið: „Sú kemur tíð, að sárin foldar gróa, sveitirnar fyllast, akrar hylja móa, brauð veitir sonum móðurmoldin frjóa, menningin vex í lundum nýrra skóga.'1 Að þessum hugsjönum vildum við vinna og þá ekki hvað síst hjálpa til að stoapa hina nýju sfeóg arlundi, sem stoáldið spáði að kor.ia mundu. Mörg ungmennafélög komu sér upp trjálundum og standa ýmsir þeirra enn með blóma. Aðrir mistókust að vísu, sennilega mest vegna þekkingar- leysis, því óvíða var hægt að fá leiðbeiningar um slíkt í þá daga. En hver sem afdrif stoógarlund- anna urðu, þá var unnið að þeim öllum af félagsmönnum sjálfum í sjálfboðaliðsvinnu og af hinum mesta áhuga. Annars unnu ungmennafélagarn- ir oft og að ýmsu í sjálfboðavinnu án þess að taka gjald fyrir. Þannig kom það oft fyrir, að ef veikindi eða aðrir sérstakir erfiðleikar voru á heimili, þá kom heilt ungmenna- fclag, piltar og stúlkur, þangað heim á sunnudagsmorgni og vann þar kauplaust að heyskap allan daginn. Aflið var ættjarðarástin Hvaða afl var það, sem hratt ungmennafélagshreyfingunni af stað fyrir 50 árum? Eg held að ekki sé notokúr vafi á, að það hafi fyrst og fremist verið ættjarðar- ástin. Það var yorhugur í íslenzku þjóðinni um og eftir aldamótin, ekki hvað sízt meðal unga fóltosins. Skáldin okkarihöfðu kveðið eldheit ættjarðarkvæði í tilefni aldamót- anna og þau hrifu hugina og kvöttu til dáða og drengskapar. „öldin oss vekur ei til værðar friðar Ung er hún sjálf, og heimtar starf án biðar.“ sagði eitt s'toáldið og menn voru í þá daga fúsir til að vinna fyrir land sitt og þjóð. Efniishyggjan hafði þá ekki enn náð verulogum tökum hér á landi, sem meðal ann- ars sést á þvi, að ungm'ennafélögin ákváðu þegar í upphafi að byggja Btarf 6itt á kriistilegum grundvelli. Að notokru má víst einnig rekja ungmennafélagshreyfinguna hér til Hinir erlendu fultrúar á afmælismóti UMFÍ á Þingvöllum, ásamt nokkrum forustumönnum ungmennafélags- hreyfingarinnar, ráöherrunum Eysteini Jónssyni og Hannibal Valdimarssyni og íþróttafulltrúa ríkisins, Þor- steini Einarssyni. (Ljósm.: Gísli Sigurðsson.) Gamlar minningar — " nýr tími Eg hefi dvalist um stand við gamlar minningar um ungmenna- félögin. Vona ég að þið takið etoki til þess, vegna þess að ég er nú einn af el'stu ungmennafélögum landsins og var hér á Þingvöllum fyrir 50 árum, til að taka þátt í stofnun sambands Ungmennafélags íislands. Það er að vísu nauðsynlegt að þetokja fortíðina, en framtiðin er þó aðalatriðið. Eg óska UMFÍ hjartanlega til hamingju með afmælið. Eg ósfea þeim guðs blessunar og alls vel- farnaðar í framtiðinni. Megi- þau safna öllum æstoulýð landsins und- ir merki sín og innræta hcnum dáð og drengskap, ættjarðarást og sannan þegnskap. Takist það „Þá mun sá guð, sem veitti frægð til forna, fósturjörð vora reisa endurborna, Þá munu bætast harmasár þess horfna. Hugsjónir rætast. Þá mun aftur morgna.**

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.