Tíminn - 06.07.1957, Síða 1

Tíminn - 06.07.1957, Síða 1
Fylgizt með tímanum og Iesið TÍMANN. Áskriftarsímar: 2323 og 8 1300. — Tíminn flytur mest og fjölbreyttast almennt lesefni. 41. árgangur. Tteykjavík, laugardaginn 6. júlí 1957. Inni í blaðinu: Fröns'kunám og freistingar bls. 4. Grein um atburðina í Rússilandi, bls. 6. Friðrik Ólafsson skrifar skákfréttir bls. 7. 147. bla». Pétur Rögnvaldsson sigrar í grindahlaupi Hreinsanirnar enn í fullum gangi í Moskva: Pervukhin og Saburov reknir úr em- bættum aðstoðarforsætisráðherra Keppni i 110 m. grindahlaupinu voru mjög tvísýn og hlaupið afar skemmtilegt. Pétur Rögnvaldsson sigraði var siónarmun á undan hinum frábæra finnska hlaupara Mildh. Báðir náðu ágætum tima 14.9 sek., sem er bezti tíihi þeirra beggja í þessari grein. Ljósmyndir Jón H. Magnússon. Lundúnaráístefnu samveldisjijóíanna lokiS: Takmörkuð afvopnun getur dregið úr viðsjám í alþjóðamálum Ghana og Maiaya boíin velkomk í kóp frjálsra þjóSa inu einu er skipt í þr jú embætti Á bæjarstjórnarfundi í fyrra- dag samþykkti bæjarstjórnar- meirihlutinn að búa enn til ný embætti og auka þannig þá rniklu yfirbyggingu, sem skrifstofubákn bæjarins er og srníðuð er án alls skipulags og af handahófi. Er nú svo komið, að raunveru lega er búið að skipta starfi borg arritara í þrjú embætti. Tómas Jónsson, sem verið hefir borgar ritari um langt skeið verður nú borgarlögmaður og vinnur þann- ig, eftir sem áður hluta af sínu fyrra starfi, Gunnlaugur Péturs- son er skipaður borgarritari og Páll Eíndal skrifstofustjóri borg arstjóra og varaborgarritari. Þórður Björnsson bæjarfulltrúi Framsóknarflokksins benti í þessu sambandi (á nauðsyn bess að endurskipuieggja og endur- bæta allt stjórnarkerfi bæjarins. eiukum þó framkvæmdastjórn, fjármál og yfirstjórn verklegra framkvæmda. Hin nýju embætti þýddu alls ekki endurbætur í þessum efn- um, og myndu seinka þeim. Þess vegna sagðist Þórður vera mót fallinn hinu nýju embættum. Þessi embætti væru ekki auglýst áður en ráðið væri í þau þau yrðu til þess að auka skrifstofu báknið, án þess að heildarskipu lag kæmist þar á. Hjúkrunarheimili á Hvammstanga Hvammstanga: Hér er hafin bygging hjúkrunarheimilis, sem verður allmikil bygging. Er til þess ætlazt að hún verði fokheld fyrir næsta vetur. Yfirmaður við hana er Páll Lárusson húsasmíða- meistari frá Keflavík. Atvinna er hér nú meiri en oft áður. LONDON—NTB 5. júlí: Ráð stefnu forsætisráðherra brezku samveldislandaima lauk í London í dag.‘ í yfirlýsingu, sem gcfin af öllum forsætisráðherrunum að ráðstefnunni lokmni er lögð á- herzla á nauðsyn aukinnar sam vinnu í þágu heimsfriðarins. Lýst er yfir nauðsyn þess að ‘styrkja bandalag Sameinuðu þióð j anna um ieið og lýst er yfir djúp i uim harmi vegna hönmunga ung- versku þjóðarinnar. Dregið úr viðsjátn. Það er skoðun ráðfaerranna, að jafnvel samningar um takmark- aða afvopnun geti orðið til þess að draga úr viðsjám í alþjóðamál um og þess vegma beri að vinna að þeim niálum af fulluin krafti. Lögð er áherzla á nauðsyn þess að nýta kjarnorkuna til friðsam- iegra nota. Að lofkum bjóða ráð- herrarnir Ghana velkomið í hóp brezku samveldiisþj'óðan’na og Mal aya sem innan skamms öðlast sjálfstæði og sæti á bðkík brezku samveld isþ j óðanna. Fréttir í fáum orðum Tveir varaforsætisráðherra Júgó- slafíu leggja upp í „sumarleyfis- ferð“ til Moskvu innan skamms. Talið er víst, að þeir muni ganga á fund Krústjeffs. Vestur-Þýzka sambandsþingið hef- ir samþykkt aðild landsins að markaðsbandalagi Evrópu. Bandaríkjastiórn hefir lýst því yf- ir, að hún muni ekki geta fallizt á algjört bann við beitingu kjarn- orkuvopna. Hún mun hinsvegar fús til að undirrita yfirlýsingu um, að þeim verði aldrei beitt nema í varnarskyni. Stærsta kjarnorkusprengjutilraun í sögu Bandaríkjanna var í gær gerð í Nevada-eyðimörkinni. Bloss inn sást í 800 km. fjarlægð. Nöímim M0L0- TOV-bæja o g hér- aða breytt MOSKVA—NTB 5. júlí: Skýrt var frá því í Moskvu í dag, að nafni bæjarins Molotov í Ural-héraðinu hefði nú verið breytt og hefir hann nú fengið sitt fyrra nafn, Perm. Einnig heitir Molotov-héraðið eftirleiðis Perm-héraðið. í tii- kynningu segir, að ástæðan til þessarar nafnabreytinga sé hin „hættulega andflolikslega klíku- starfsemi Molotovs“. Map Tse-tung óskar Krúsjeff til hamingju — fjórmenningarnir sakaftir um a<S hafa undir- búí5 leynilegt samsæri gegn stjórn landsins Moskva—NTB, 5. júlí. — Tilkynnt var í Moskva í dag, að ákveðið hefði verið að svipta þá Pervukhin og Saburov embættum sínum sem aðstoðarforsætisráðherrar landsins, en þeir voru sviptir sætum sínum i miðstjórn flokksins um leið og Molotov, Malenkov og Kaganóvitsj. Stórstúkuþingið vill handritin heim Meðail margra ályktana, sem sam þýkktar voru á nýatflstöðnu Stór- stúkuþingi er þessi: Stórstúteuþingið fagnar ályktun Alþingis í handritamiálinu og að endurvakinn er áhugi íslendinga á héiimiflu'tningi handritanna. Treyst ir stórstúkuþingið því að ríkis- stjórnin fylgi má'linu fast eftir. í tilkynningu Tass-fréttastofunn- ar um málið er ekki tekið fram, hvort Pervukhin hafi verið sviptur embætti sínu sem ráðherra vélaiðn aðarins, en það er álit fréttamanna í Moskvu. að hann muni enn halda því embætti. Hefir því fjórum varaforsætisráðherrum verið vik- ið frá á tveim dögum, aðeins tveir eru því eftir og er Mikoyan annar þeirra. Heillaóskir frá Peking Það er nú almenn skoðun frétta- ritara í Moskvu, að Krúsjeff hafi nú öll ráð í hendi sér. Hann hafi tryggt sér stuðning Rauða hersins og Sjúkovs auk þess sem hann hafi fengið þær upplýsingar er- lendis frá, að hinar róttæku hreins anir hafi mælzt vel fyrir hjá komm únistaflokkum annarra landa. Krúsjeff fékk i dag skeyti frá Peking þar sem miðstjórn kín- verska kommúnistafiokksins lýsir yfir fögnuði yfir breytingunum og telur, að þær verði til að efla og styrkja sambandið á milli kommúnistaflokka Kína og Ráð- stjórnarríkjanna. Kaganóvitsj harðlega gagnrýndur Kaltsjenko, forsætisráðherra sov étlýðveldisins Úkraínu réðst í dag harkalega á Kaganóvitsj, sem á sínum tíma var einn af nánustu samstarfsmönnum Stalíns og m. a. sendur af honum til Úkraínu til að reka erinda einræðisherrans. Kaltsjenko sagði, að Kaganóvitsj hefði sigað leynilögreglunni á fjöl marga mektarborgara, sem ekkert hefðu til saka unnið. Ferill Kaga- nóvitsj í Úkraínu væri hinn versti og það væri þjóð hans kunnugt. Fjöldafundir voru haldnir um gjörvöll Ráðstjórnarríkin í dag og allsstaðar var lýst yfir stuðningi við þá stefnu er Krúsjeff hefði markað á 20. flokksþinginu í íebr- úar 1956, er hann réðst á persónu- dýrkunina og afhjúpaði glæpaverk Stalíns. Undirbjuggu samsæri Æskuiýður Rússlands var í dag fræddur um það í unglingablaði Pravda, að þeir Molotov, Malen- kov og Kaganóvitsj hefðu unnið á laun að samsæri gegn stjórn lands og fiokks með það fyrir augum að hrifsa völdin í sínar hendur. Krúsjeff og Bulganin halda á mánudaginn sem kunnugt er í vináttuheimsókn“ til Tékkóslóva- kíu, en í för með þeim verður Ser- ov, yfirmaður öryggismálanna. Sérfræðingar og stjórnmála- menn hins frjálsa heims ræða enn mikið um mögulegar breytingar á utanríkisstefnu Rússa að hreins- unum loknum. Frú Golda Meir, utanríkisráðherra ísraels lét svo ummælt í Vínarborg í dag, að sennilega myndi spennan í alþjóða málum minnka við breytingarnar. Matvæli í stað skriðdreka Shepilov, maðurinn sem hefði borið höfuðábyrgðina á samning- unum við Nasser um vopnasending Framh. á 2 síðu Danir vikja færeysk- um þingmanni af þingi Frá fréttaritara Tímans í Kaupmannahöfn samkv. einkaskeyti í gær. Danska þjóðþingið gerði alvöru úr því í dag að víkja frá þingsetu færeyska þing!marmmum Thorst- eini Petersen. Var þessi ákvörðun teikin með 136 samihljóða atkvæð uun á þingi Dana án mótatkvæða. Laxness símaði mótmæli til Kadars - Til tjóns fyrir sósíalismann, móðgun við menninguna -... FRETTAMAÐUR sænska blaðsins Dagens Nyheter, sem hér dvaldi um konungskomuna, hefir birt í blaði sínu símskeyti sem Halldór Kiljan Laxness, Nóbelsskáld á Gljúfrasteini, sendi Janosi Kadar, forsætisráðherra rússnesku lepp- stjórnarinnar í Ungverjalandi, í þann mund, er Kadar bjó sig til að láta taka af lífi tvo ungverska rithöfunda fyrir þátttöku í frelsis- uppreisn ungversku þjóðarinnar á s. 1. hausti. Samkvæmt frásögn sænska blaðs ins ávarpaði Laxness félaga Kadar á þessa leið: — „Það hefir hrellt mig að heyra fregnir um dauðadóma, sem upp hafa verið kveðnir yfir tveimur ungverskum vinum mín- um og kollegum, og af því til- efni leyfi ég mér að vara ríkis- stjórn yðar hágöfgi við oftrú á fangabúðir, fangelsi og henging- ar sem andsvar til rithöfunda og liugsuða. Slíkt er ekki aðeins til tjóns fyrir sósíalismann, heldur jafnframt brot á innstu siðalög- málum mannkynsins og móðgun við menninguna." Samkvæmt frásögn sænska blaðsins var skeytið undirritað þannig: Halldór Laxness, hand- hafi Andersen Nexö-heiðurs- merkis heimsfriðarhreyfingarinn- ar og Nóbelsverðlaunahafi. í FRÉTTUM í gær var skýrt frá því, að dauðadómunum hafi verið breytt í fangelsisdóma, öðrum i lífstíðarfangelsi, hinum í 15 ár. Margir frægir rithöfundar aðrir og rithöfundasamtök hafa ávarpað Kadar af sama tilefni þessar síð- ustu vikur. Thorstein Petersen Þi'ngforeeti tilkynnti að Hakun Djunhuus tæki nú sæti hins fær I eyska þingmanns. Danska þjóðþing inu báruist í gær mörg móttmæla skeyti frá Færeyjum. Hafa flokks bræður Thorsteins mótmælt harð- lega og hvasisorð mótimæla orðsend ing boriist til Danmerkur frá floteks bræðrum hans í bæjarstjórn Þórs- hafnar. —Aðils.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.