Tíminn - 03.08.1957, Blaðsíða 1
limar TÍMANS eru nú:
Ritstjórn og skrifstofur
18300
RlaSamenn eftir kl. 18:
18301 — 18302 — 18303 — 18304
41. árangur.
Reykjavík, laugardaghm 3. ágúst 1957.
Auglýslngaslml TlMANS «r núi
1 95 23
Afgrelðslusimi TÍMANS:
1 23 23
170. blað.
Þessar myndir voru teknar við Reykjavíkurhöfn í gær. Á efri myndinn
er veriS a3 skipa vörum út í Heklu, sem heldur nú á hafnir landsins meí
vörur, sem vönturi var orðin á. Á neðri myndinni er verið að skipa vörum
út í Gullfoss, sem sigldi í gærkvöldi til Leith í aukaferð. — Ljósm.: J.H.M
Sameiginlegar tillögur vesturveldanna um afvopnun:
Öil Bandaríkin, Sovétríkm og Kan-
ada verði undir nákvæmu eftirliti
Sorin tekur heldur kuldalega í tiílögurnar,
en segir, að þær verði rækilega athugaðar
NTB —Lundúnum, 2. ágúst. — John Foster Dulles utan-
ríkisráðherra Bandaríkjanna lagði fram á fundi afvopnunar-
nefndar S.Þ. sameiginlegar tillögur vesturveldanna um eftir-
lit með vopnabúnaði bæði á jörðu niðri og úr lofti. Er Sovét-
ríkjunum gefinn kostur á að velja milli tveggja svæða, er
komi undir slíkt eftirlit og tekur annað þeirra til Banda-
ríkjanna allra, Kanada og Sovétríkjanna.
DulSes „fáfróðuru
um uppreisnina
í Oman
NTB—LUNDÚNUM, 2. ágúst: ~
Enskar flugvélar hafa í dag hald
ið uppteknum hætti og gert ú-
rásir á stöðvar uppreisnarmanna
í Oman. Hafa þær einkuni rúð-
izt á flutningatæki þeirra, svo og
kofa þeirra og tjöld. Segja Bret-
ar, að nú hafi Imamen aðeins
fylgi eins ættarhöfðingja.
Dulles sagði fréttamönnum í
kvöld, að hann hefði rætt laus-
lega um uppreisnina við utan-
ríkisráðherra Breta. Hann kvaðst
þó ekki vita nægilega um mála-
vexti til þess að hann gæti tekið
afstöðu með eða móti um íhlut-
un Breta, cn kvað Bandaríkja-
stjórn vona, að hún tæki enda
sem fyrst.
Ægir fann síld ut af
Siglufirði
Samkvæmt fregnum, sem bár-
ust frá síldarleitárskipinu Ægi í
fyrrakvöld, fannst mikil síld 50
—60 sjómílur út af Siglufirði og
eins virtist mikið af átu vera þar
í sjónum.
Fá skip voru þá á þessum slóð
um, en skip, sem komust þang-
að síðar, urðu ekki síldar vör,
þannlg, að hægt væri að veiða.
Hitt svæðið, sem gefinn er kost
ur á í þessum tillögum, nær til
heimskautasvæðanna nor'ðan heim
skautsbaugs og verða þó einnig Al-
eutaeyjar og Kurilaeyjar þar með
taldar.
Eftirlit í mestallri Evrópu.
Fallist Sovétríkin á eftirlit eins
og gert er ráð fyrir í annarri
hvorri þessari tillögu, eru vestur-
veldin reiðubúin til að taka upp
samninga við Sovétríkin um eítir-
lit með sama hætti í Evrópu allt
frá írlandsströndum til Úralfjalla
eða á takmarkaðra svœði, ef Sovét-
stjórnin teldi það aðgengilegra.
Skilyrði fyrir slíku eftirliti, er þó
af hálfu vesturveldanna, að Sovót-
ríkin fallizt á aðra hvora tillöguna
er fyrst voru nefndar. Vesturveld-
in taka og fram, að slíkt eftirlit sé
háð samkomulagi viðkomandi ein-
stakra ríkja, en jafnframt segir,
að bandamenn þeirra í V-Evrópu
séu í meginatriðum sammála þeim
tillögum, sem fram hafi verið lagð
ar.
Hvað gera Sovétríkin?
Sorin, fulltrúi Sovétrfkjanna í
nefndinni, tók til máte á eftir
Dulles og gagnrýndi tillögurnar
allharðlega. Hvað hann vesturvekl-
in sniðganga kjarna málsins, sem
væri algert bann við kjarnorku-
og vetnisvopnum. Hann spurði
hvers vegna Dulles hefði ekki not-
að færið tfl þess að ræða við utan-
ríkisráðherra allra ríkjanna, sem
sæti eiga í afvopnunarnefndinni?
Hann kvaðst þó ekki hafna þess-
um tillögum. Þær myndu i/erða
vandlega athugaðar.
Fréttaritarar segja, að erfitt
sé að spá um, hvernig Sovétleið-
togarnir bregðizt við þessum
nýju tillögum, en flestir virðast
þó þeirrar skoðunar, að þcir
muni hafna þeim.
Á vesturlöndum mælast þessar
nýju tillögur vel fyrir yfirleitt.
Talsmaður frönsku stjórnarinnar
lét svo unimælt í dag, að þær
væru eilt merkasta skrefið, sem
stigið hefði verið frá lokum seinni
heimsstyrjaldar til þess að vernda
heimsfriðinn.
,4ukaútsvar“ Heykjavíkuríhaldsins á dagskrá:
Fulltrúar minnihlutaflokkanna biðjá félags-
málaráðuneytið að skerast í leikinn
Mikil önn við höfnina, skipin tínast út
og eðlilegar siglingar hefjast
Við Reykjavíkurhöfn var starfsamt í gær, unnið við mörg
skip, og í gær létu fvrstu skipin úr höfn. Gullfoss fór í auka-
ferð til Leith og Fjallfoss hélt til útlanda. Hálfri stundu
eftir að verkfallinu var aflýst var farið að undirbúa losun
HamrafeOJs.
Dælt var úr skipinu upp í geyma
í Örfirisey, og síðan losar það einn
ig í Skerjafirði og við Laugarnes.
Á mánudaginn heldur Hamrafell
til Rússlands til að sækja nýjan
farm. Eina Sambandaskipið, sem
er í Reykjavíkurhöfn, er þar í
vélarviðgerð en byrjar olíuflutn-
inga sína eftir helgina. Á Reyðar-
firði lágu Ilvassafell og Dísarfell,
sem héldu úr höfn í gær og fara
á ýmsar hafnir austan lands og
norðan og taka 16 þús. tunnur af
saltsíld til Finnlands. Helgafell Iá
á Akureyri og fór til Dalvíkur, los
ar timbur á nokkrum höfnum og
kemur svo hingað suður og losar
hér. Arnarfellið var einnig á Ak-
ureyri og hélt í gær til útlanda
að sækja timburfarm.
Strandferðaskipin Hekla og
Esja voru að búast til ferðar og
lesta vörur til flutnings út á land.
Breiðarnar fara eftir helgina.
Helztu atriði samniuganna.
Eins og skýrt var frá hér í blað
inu í gær, náðist samkomulag i
deilunni á grundvelli þeirra kaup
hækkana, sem boðnar voru í síð-
ustu tillögu sáttanefndarinnar, en
þó hnikað lítillega til í lokasamn-
ingum, yfirleitt til hækkunar. Skip
stjórar fengu enga grunnkaups-
hækkun en lcngd sumarfrí og land
gönguíé þeirra var hækkað um
200 kr. án vísitölu.
Fyrstu stýrimenn fengu nokkra
grunnkaupshækkun eða 7—9,5%,
og 2. stýriníenn fengu 10—12%
hækkun, og 3. stýrimenn 12%
hækkun.
Allir vélstjórar fengu liækkaða
{Framhald á 2. síðuj
Biðja rátSuneytií aí rannsaka og úrskuríJa um
lögmæti umframálagningarinnar og koma fram
lei&réttingu meÖ lögmætum aftgertSium
Fulltrúar minnihlutaflokkanna í Reykjavík hafa nú skrif-
að félagsmálaráðuneytinu bréf, þar sem þess er óskað að
ráðuneytið taki til meðferðar umframálagningu bæjaryfir-
valdanna á útsvarsgreiðendur í Reykjavík, en hún nemur
sem kunnugt er, sjö milljónum króna, rannsaki og úrskurði
um lögmæti hennar og komi fram leiðréttingum með lög-
mætum aðgerðum. Bréfið er svohljóðandi:
„Rcykjavík, 2. ágúst 1957.
Hinn 20. desember 1956 sam-
þykkti bæjarstjórn Reykjavíkur
fjárhagsáætlun Reykjavíkurkaup-
staðar fyrir árið 1957. Samkvæmt
henni nam fjárhæð áællaðra út-
svara skv. útsvarslögum kr. 181.
305.000,00 auk 5—10%.
Var þar um að ræða mjög mikla
hækkun útsvara frá fyrra ári og
um 60% hækkun miðað við með-
altal útsvara áranna 1954—1956.
Þurfti því staðfestingar félagsmála
ráðuneytisins á áætlunarfjárhæð-
inni skv. 3. gr. úlsvarslaganna.
Sótt var um þá staðfestingu hinn
16. janúar 1957. Með bréfi hins
háa ráöuneytis dags 1. júlí s. 1.
samþykkti ráðuneytið, „að útsvör-
in mættu verða svo sem gert er
ráð fyrir í áætluninni kr. 181.305.
000,00“, eins og segir í bréfinu.
Þegar aðainiðurjöfnun lauk hinn
10. júlí s.l. og skrá um niðurjöfn-
unina var lögð fram, kom í ijós,
að jafnað hafði verið niður kr.
206.374.350,00 eða kr. 6.938.850,00
umfram samþykkt bæjarstjórnar
og heimild í staðfestingarbréfi
hins háa ráðuneytis. Skrá um að-
alniðurjöfnunina hefii- legið
frammi í 2 vikur eftir að niður-
jöfnun lauk og rann kærufrestur
út á miðnætti aðfararnótt 29. júlí
s. i.
Þar sem meirihluti bæjarráðs
Reykjavíkur hefir ekki viljað hlut-
ast til um að aðalniðurjöfnuninni
frá 10. júlí s. 1. verði breytt og
hún leiðrétt þannig, að heildarfjár
hæð álagðra útsvara í Reykjavík
1957 verði innan___lögleyfðra og
heimilaðra marka, kr. 199.435.500,
00, leyfum vér undirritaðir bæjar-
fúlltrúar oss hér með að snúa oss
til hins háa ráðuneytis með þá
beiðni, að ráðuneytið ranasaki
miálið, úrskurði um lögmæti
greindrar umframálagningar og
komi fram leiðréttingu með lög-
mæltum aðgerðum.
Virðingarfyllst,
Gúðmundur Vigfússon,
Þórður Björnsson,
Ingi R. Helgason,
Alfreð Gíslason,
Petrína Jacobsson.
Til félagsmálaráðuneytisins."
Rétt er að taka það fram, að
aðalfulltrúi Alþýðuflokksins, Magn-
ús Ástmarsson, er erlendis, og
varamaður hans, Óskar Hallgríms-
son, einnig, og gátu þeir þvi ekki
staðið að þessu bréfi með hinum
minnihlutaflokkunum.