Tíminn - 10.08.1957, Blaðsíða 8
Veðrið:
Hagstæð austan átt, skýjað. Þoku
6Úld með köflum.
Hitinn á liádegi í gær:
Reykjavík 10 stig, Akureyri 16,
London 17 París 19, Kaupmanna
höfn 18.
Laugardagur 10. ágúst 1957.
j . * 91
Lappakonur skoða skartgripi sína. Þjóðbúningur Lappa er litskrúðugur
og ber smekkvísi vott.
Lappamynd Per Höst var frumsýnd
í gær við hrifningu áhorfenda
Klukkan fimm í gær frumsýndi frú Guðrún Brunborg í
Stjörnubíói kvikmyndina Same Jakki, eða „Eitt ár með Löpp-j
um“. Er þetta snilldarleg' mynd og ættu sem flestir að sjá
hana.
Um 30% almennings í Bretlandi
viríist sammála gagnrýni Altrinc-
hams lávarSar
Öll blöí og tímarit í Bretlandi ræía enn af
ákafa gagnrýnina á drottninguna
NTB-Lundúnum, 9. ágúst. — Bókstaflega öll blöð og tímarit
í Bretlandi halda áfram að ræða af miklum ákafa árás Altrinc-
hams lávarðar á Elísabetu drottningu og hirð hennar. Grein-
ar og bréf streyma til blaðanna og þau eru óspör á rúm til
birtingar á slíku efni. Lávarðurinn kom enn fram í sjónvarpi
í gærkveldi — fimmtudagskvöld — og varði þar sjónarmið
sín.
Frú Guðrún bauð sýningargesti
velkomna og skýrði stuttlega frá
íilgangi sínum með sýningunum,
en hún vinnur enn að sama efni og
íyrr, söfnun fjár til aukinna menn
jngarskipta íslendinga og Norð
manna.
Síðan flutti höfundur myndar
dnnar, Per Höst, hinn kunni dýra
íræðingur og könnuður, stutt er-
indi. Lýsti hann ánægju sinni yf-
Jr að hafa fengið tækifæri til að
koma til íslands, þótt viðdvölin
yrði stutt að þessu sinni.
Síðan lýsti hann töku myndar
sinnar í Lapplandi og fór nokkr-
um orðum um lífshætti Lappa.
Eftir það komu inn á sviðið tvö
börn og stúlka í Lappabúningum.
Kvikmyndin er í litum með
dönskum texta og eins flytur Per
Höst sjálfur skýringar með mynd
inni. Myndin sýnir líf og starf
einnar Lappafjölskyldu, sem á
stóra hreinhjörð. Fyrst er það
vetrarumhverfið inni á Finnmörk,
síðan vorflutningarnir út til strand
ar og sumardvölin þar, og loks
er haldið með hausti inn til fjalla
aftur. Þótt myndin sé fræðandi
er í henni spennandi söguþráður.
Dýramyndirnar ekki sízt fugla-
snyndirnar, sem skotið er inn í,
eru ekki sízt fagrar. Öllum, ung
um sem gömlum, er óblandin unun
Varð 102 ára í gær
í gær varð 102 ára Kristján
Jóhann Jónsson til heimilis
að horfa á myndina. Hún verður
sýnd næslu daga í Stjörnubíói.
Þá má geta þess, að þessa dag
ana er smekkleg gluggasýning á
búningum og listmunum Lappa
í sýningarsal í Alþýðuhúsinu við
Hverfisgötu. Þcir, sem leið eiga
þar um, ættu að líta í gluggann.
NTB—Lttndúnuni, 8. ágúst. Eins
og kunnugt er vakti árás Altrinc
ltains lávarðar á Elísabetu titikla
athygii og gerir enn, ekki aðeins
í Bretlandi Iteldur víffa um heim.
Skiptast menn í andstæðar fylk-
ingar, svo sem við mátti búast
nteð cða rnóti lávarðinum og
drottningunni.
í dag skoraði ítalskur aðals-
maður, sent jafnframt er ákafttr
konungssinni, Altrincham lávað
á hólm og hugðist þannig aff
gömlttm og góðum sig riddara
legra aðalsniamia hefna fyrir
móðganir í garð drottningar. Er
fréttamenn spurðu Altrineham
livort hann myndi taka áskorun
inni, þá svaraði ltann því til, að
hann ætti hvorki skantmbyssu né
korða til í eigu sinni. Hefði hann
regnhlíf eina að vopni og yrði
þá að berjast með henni. Einn
Eldur í vélbáí við
Verbiiðabryggju
Klukkan rúmlega 7 í gatrmorg
ttn var slökkviliðið kvatt niður að
Verbúðarbryggju, en þar liafði
elds orðið vart í vélbát. Báturinn
er Geir goði, KE 28, frá Kefla-
vík, og mun ltann liaía verið
mannlaus og yfirgefinn. Er
slökkviliðið kont á vettvang lagði
mikinn reyk upp unt káettuop
al'tur á bátnum, og virtust horf
ur á því að eldurinn kænsist í
vélarúm bátsins. Slökkviliðs-
mönnum tókst þó að varna því
og ráða niðurlögum eldsins. Kom
í ljós að eldurinn hafði átt upp
tök sín í lúkarnunt, í fremri
stjórnborðskáetu. Báturinn
skemmdist allmikið af eldi og
reyk. Ekki er vitað hvað brun
anunt olli, en líkur virðast helzt
benda til þess að einhver óboðinn
næturgestur ltafi valdið íkveikj
unni.
Er telpan enn á
ferðinni?
Blaðið hafði spurnir af því í
gærkveldi, að telpa hefði komið
inn í verzlun í gær og beðið um
að fá að nota símann. Ilenni var
leyft það og sagðist hún hafa
hringt þrisvar, en það hefði eng-
inn anzað. Nokkru síðar tók af-
greiðslustúlka eftir því, að fjögur
hundruð krónur höfðu horfið úr
veski, sem hún hafði geymt ná-
lægt símanum.
blaðamannanna kvað þá mál til
komið að hann fengi sér betri
vopn. Altrincliam tók lítt á því,
og kvaðst auk lieldur hafa líliun
(Framhald á 2. síðu >
Verzianir skreyti
glugga sína
Þær verzlanir í miðbænum, sem
óska að skreyta glugga sína í lil-
efni hinnar opinberu heimsóknar
Finnlandsforseta og frúar hans n.
k. þriðjudag, geta fengið lánaðar
rnyndir af forsetahjónunum og
finnska fána.
Myndir og fánar verða afhentar
í skrifstofu Sambands smásöiu-
VcrZlana, Laugavegi 22 (gengið frá
Klapparstíg) laugardag og mánu-
dag á venjulegum skrifstofu tíma.
Þátlur þessi heitir: Æskan vill
fá að vita, og er mikið á hann hlust
að og' honft. Lávarðurinn var sem
áður ómyrkur í máli og hólt fast
við fyrri ásakanir sínar á liirðfólk
drottningar, sem hann kvað ein-
göngu yfirstéttar-fólk og fákunn-
andi urn hag alþýðu. Hins vegar
liefir hann lítið viljað segja um
droltninguna sjálfa og heldur dreg
ið úr fyrri ummæium sínum, er
bana snertu.
Lávarðurinn liélt því og fram,
að bréf þau, sem til hans streymn
sanni ótvírætt, að gagnrýni hans
eigi miklu fylgi að fagna nteðal
almennings í Brellandi og einnig
erlendis í samveldislönduniim. í-
haldsblaðið Daily Mail gefur þær
upplýsingar um málið í dag, að
70ft þeifra, sem skrifa blaðinti,
séu ósamntála lávarðinum, en
30% algerlega samdóma honutn
og telji hann hafa gert þarft
verk.
Erkibiskup ver drottningu.
Erkihiskupinn af Kantaraborg,
dr. Fisher, hefir verið dreginn inn
í þessar uinræður. Hann tók að
sjálísögðu málstað drottningar, og
taldi i'ullyrðingar Altrincham fár
ártlegar. Er hann var spurður um
álit á þeirri fullyrðingu, að ræð-
ur drottningar væru eins og eftir
fermingartelpu, svaraði hann því
til, að vafalaust væru hugsanir
niargra fermingartelpna mún
hugnanlegri heldur en hugrenn-
ingar Altrinchams, þótt kominn
væri af fermingaraldri.
að:
Norskt síldarskip strandaði við
Héraðsflóa, áköfnin ekki í hættu
Myndin er of því, er náungi einn gaf Altrincham vænan löðrung fyrir að
móðga drotfninguna. Lávarðurinn var að koma frá sjónvarpsþætti um
ítalskur konungssinni skorar Áltrinc-
ham á hólm en íávarður á fátt vopna
Lambanesi í Fljótum í Skagafii'ði.
Kristján hefir borið vel hinn háa
aldur og má geta þess að hann
las glcraugnalaus, þegar hann
var 98 ára gamall, en nú mun
Bjónin vera farin áð bila.
í gærkveldi strandaði norskt síldarskip við sunnanverðan
Héraðsfióa. Mannbjörg varð, og voru sumir strandmanna
komnir til Seyðisfjarðar um klukkan tíu í gærkveidi. Skip
voru á staðnum og fór fram athugun á því, hvort unnt yrði
að ná skipinu út.
Allgóð síldveiði út af Dalatanga
og í Norðfjarðardjúpi í gærkveldi
Veður batnaði fyrir Austurlandi þegar leið á dag í gær, og
síldarflotinn, sem lá þar víða inni á höfnum, hélt út á miðin.
Brátt fóru að berast fregnir af síldveiði, og um klukkan tíu í
gærkveldi höfðu allmörg skip tilkynnt komu sína til lands með
góðan afla.
Síldin veiddist aðallega út af
Ðalatanga og x Norðfjarðardjúpi
eigi langt frá landi. I-Iöfðu skipin
fengið 2—600 tunnur. Til Norð-
fjarðar höfðu þá 8—10 skip til-
kynnt komu sina.
Þegar blaðið átti tal við Raufar
höfn um klukkan 11 í gærkveldi,
voru báðar flugvélarnar úti að
leita en höfðtt ckki orðið síldar
varar. Ailmörg skip eru á svæð-
inu við Grimse.v og Kolbemsey.
Veður var þá orðið allgott fyrir
öllu Norður- og Austurlandi, og
gerðu menn sér nokkrar vonir um
síldveiði í nótt.
Norska skipið hét Ovik. Um
orsakir strandsins var ekki full
kunnugt í gærkveldi, Cn talið er
að skipið hafi strandað vegna
dimmviðris. Níu manna áhöfn var
á skipinu. Fóru fyrst þrír menn
frá boröi í bát og náði hann landi
undan Ketilstöðum, síðar komu
hinir sex til Njarðvíkur.
Björgunarsveit lagði af stað frá
Seyðisfirði, en var ekki komin
heiin aftur, er blaðið fór í prent
un. Norslca korvettan Draug kom
brátt á vettvang og eins nokkur
íslenzk skip, þar á meðal varðskip,
og voru þau á strandstaðnum I gær
kveldi.
Norðaustan bræla var á þess-
slóðunt í gær en fór batnandi er
á daginn leið og var komið sæmi
legt veður í gærkveldi.
máli'ð.
Kviknaðiá raímagnsperu, sem tengd
var við þurrkuhengið í baðherberginu
Fólki‘0 hafíSi kvartatS undan bví að þatS fengi
rafmangsstraum, er þa$ kæmi viS hcngidi
r~
Síðan rafmagnið kont til sög-
unuar og farið var að nota það
til Ijósa og iðnaðar, hefir fólk
verið að fá í sig rafniagnsstrauni
á ólíklegustn stöðum. Verður
aldrei of varlega farið' með raf-
magn, en stundum verður fólk
fyrir rafmagnsstraum, þar sent
engri mannlegri veru gæti dott-
ið í hug að það' væri fyrir liendi.
Eafmagnað þurrkuhengi.
Þess vegna var varla von að
það þætti trúlegt, þegar fólk í
íhúð hér í bænunt fór að fá raf-
magnsstraitm í sig' úr þurrku-
hengitiu í baðherberginu, ef
skrúfað var fyrir krana og' tekið
til þurrkunnar um leið.
Kviknar á perunni.
Rafmagnsmaður var kallaður
á vettvang og hafði hantt prufu-
lantpa nteðferðis. Brá ltann vír-
um lampans á þurrktihengið og
kranann. Þá gerðist það ótrú-
lega, að ljós kviknaði á perunni.
Þurrktihengið var nú skrúfað
frá veggnum og kom þá í ljós,
að festingin ltafði verið sett í
gegnunt rafmagnsrör og inn í
rafinagnsleiðslu. Var mildi að
ekki ltafði lilotizt slys af þesstt.
m*.