Tíminn - 08.09.1957, Qupperneq 2

Tíminn - 08.09.1957, Qupperneq 2
T í MIN N, sunnudaginn 8. september 195T Myndin sýnir glögglega, að ekki er mikil fjarlægS á milli flugleiSar SAS og bannsvæðis Rússa. Fram og Víkingur leika í haustmótinu í Vopn Rússa da g Haustmót meistaraflokks verð- ur haldið áfram í dag og leika þá Fram og Víkingur. Fer leik- urinn fram á Melavellinum og hefst kl. 14. Þetta er annar leikur þessara félaga í meistaraflokki í sumar, en eins og kunugt er, sigr- aði Fram í Reykjavíkurmótinu með 15 mörkum gegn engu. Stigin í mótinu eru þannig, að Valur hefur 45 stig, KR 2 o« hin 3 félögin ekkert. í .dag verður haldið áfram með Haustmót 3. fl. A á Háskólavell- inum og leika Fram—Þróttur kl. 9,30 og á eftir Valur—Víkingur. 1 35. fl. B leika KR—Fram á Valsvellinum kl. 9,30 og á eftir hefst Haustmót 2. fl. B á sama velli með leik KR—Vals. Færri en vilja sjá þá tannhvössu ísafirði í gær. — Leikfélag Reykjavíkur sýnir nú gamanleik- inn Tannhvassa tengdamömmu hér á ísafirði. Uppselt er á allar sýn- ingar og komast færri að en vilja. Sömu sögu er að segja frá Bolungarvík. Þar varð fólagið við ósk fólks um að fresta leiksýningu þar til klukkan 10,30 um 'kvöldið, eða þar til það hafði lokið vinnu. Kvikmyndin Gilitrutt var sýnd hér fyrir fullu húsi. G:S. CFramhald af 1. síðu). þeir hafa nýlega skýrt frá. Taismenn skandinaviska flug- félagsins SAS hafa lýst yfir mikl- um áhyggjum vegna viðvarana Rússa, þar sem hér er um að ræða svæði, sem liggur rétt við flugleið félagsins yfir Norðurpól- inn. Talsmaðurinn sagði, að félagið yrði að gefa flugáhöfnum þeim er færu þessa leið nýjar leiðbeining- ar og öryggisákvæði. Einkum mun á það lögð áherzla að gæta þess, að flugvélar félagsins fari ekki hársbreidd út fyrir hina af- mörkuðu leið. íþróttablaðið Sport ið út Nýlega hóf íþróttablaðið Sport göngu sína í nýjum búningi. Rit- stjóri blaðsins og útgefandi er Jó- hann Bornhard fyrrverandi rit- stjóri íþróttablaðsins. Efni þessa fyrsta töiublaðs er mjög fjölbreytt og ritið allt hið læsilegasta. Greinar eru um frjáls- íþróttir, knattspyrnu, sund, hand- knattleik, golf, róður, ásamt nýj- ustu erlendum íþróttafréttum. Áformað er að Sport komi út hálfsmánaðarlega í framtíðinni, það er 20 síður í sama broti og íþróttablaðið. Má búast við, að Sport verði mjög skemmtilegt og fróðlegt aflestrar, því að ritstjór- inn, Jóhann Bernhard er allra manna fróðastur um íþróttir og málefni íþróttahreyfingarinnar. FyrirtækiE Teppi h.f., sem var tll húsa í gömlu Geysisverzluninni í Hafn- arstræti er nú flutt í ASalstræti '9 iþar sem verzlunin Guilfoss var áður tll húsa. Býr Teppi h.f. nú vlð 'hin vistlogustu 'húsakynni. Enn sem fyrr verða á boðstólum ullarhamps- -og ullarteppi, aðallega flutt inn frá Tékkóslóvakíti og A-Þýzkalandi. Verzlurtln, sem tók tll starfa 1955 er hin ‘fyrsta sinnar tegundar hér á landi. í sambandi við verzlunina er földunar- og viðgerðarverkstæði. Aðaleigendur fyrirtækisins eru Sigurð- ur Árnason og Jón Jónsson. Myndin er frá hinum nýju húsakynnum verzlunarinnar. Dönskum lýðháskóla möiimim sendur tónninn Danska blaðið „Sorö Amtstid- ende“ birti nýlega grein mjög and- stæða íslendir.gum í liandritamál- inu og fullyrðir, að því sé fjarri, að ekki séu neinar ástæður fyrir að ástæður séu fyrir hendi :aú iil þess að afhenda íslendingum hand ritin. Um leið er notað íækifærið til þess að senda dönskum lýð- skólamönnum tóninn á lieldur hryssingslegan hátt. Þar segir i.d. „Það stuðlar ekki að lait3n máls ins, þó að íslendingar geri kröfur um alit eða ekkert eða heimti nýja nefndarskipun og hlutdeild í þeirri nefnd. 'Rétt er það, að til eru danskir nienn, sem leggjast á sveif með íslendingum, einkum ■illmargt lýSháskólamanna. Því virðast -engin ftakmörk sett, h,vað hægt er að kalla norræna sam- vinnu og norrænan bróðurhug, þeg ar lýðháskólamenn eru annars .veg-1 ar. En ií þeim hópi hlýtur þó að . vera :til fólk, sem skilur, að þjóð- ernislega gimsteina or ekki hægt að gefa eins og pappírssnepla eða j sóa á glæ“. Fjölskylda þjóðanna (Framhald af £L. síðu). ans nýja. Ef allar myndirnar á sýningunni væru lagðar hlið við hlið, myndu þær ná yfir 300 m.: langan veggflöt. Kössunum, sem myndirnar voru fluttar í, hefur verið hlaðið upp í kjallara skóla- byggingarinnar, en þaðan þurfti að flytja myndirnar upp á 4. hæð hússins og raða þeim niður í stof- urnar og á gangana í samræmi við uppdrátt Stefáns. Þegar lokið hef ur verið við að hengja myndirn- ar upp og koma þeim fyrir á sem haganlegastan hátt, sem út af fyrir sig er mikið vandaverk og seinvirkt, munu rafvirkjar koma fyrir sérstökum ljósaútbúnaði, sem fylgir sýningunni, þannig að myndirnar njóti sín sem bezt. Eins og getið hefur verið í blöð um og útvarpi, verður sýningin opnuð laugardaginn 21. sept., og mun hún standa yfir í þrjár vikur, en að því búnu verður hún send aftur til meginlands Evrópu. Að loknu vel heppnuðu sjúkraflugi Björgunarflugvél frá varnarliðinu á Keflavíkurfiugvelli flaug s. I. fimmtu- dag fil Suður-Grænlands og sótti þangað mann sjúkan af botnlangabólgu. Þetta var Ameríkumaður, sem hafði veikzt skyndilega í strandgæzlu- skipinu „Firebush", er það var statf á þessum sióðum. Fiugvélin -var Albatrosflugbátur og settist hann við erfiðar aðstæður á sjóinn hjá skipinu ií Tokolak-fhði. Flutti vélin síðan manninn til Keflavíkur, þar sem hann var skorlnn upp í sjúkrahúsinu. Myndin sýnir, er sjúklingur- inn er fluttur úr flugvélinni í sjúkrabifreiö við komuna. í veiruíeit Svo virðist sem landlæknisem- bættið hafi eitfchvað á móti því, að Tíminn geti skýrt fyrir lesend- um sínum hvað er að gerast hér- lendis varðandi varnir og gang hinnar svonefndu Asíu-inflúenzu. Á sama tíma og iandlæknisem- bættið sendir frá sér haglega orð- aðar tilkynningar um málið til dagblaðanna í Reykjavík, verður Tíminn að byggja fréttaflutning sinn af flenzunni á skyndisímtali við landlæknir, sem einkum snér- ist um það, hvar Tíminn ætti að leit.a sér upplýsinga í málinu. — Nú eru það vinsamleg tilmæli blaðsins, að landlæknisembættið láti ekkí niður 'falla að senda því tilkynningar þær, sem það sendir öðrum blöðum. Háteigskirkja (Framhald af 1. síðu). hefir kvenfélagið haldið fundi sína. Hefir þessi aðstaða verið söfn- uðinum miklis virði. Kirkjulegar athafnir hafa farið fram í kirkj- um bæjarins, hefir t. d. verið fermt í Ðómkirkjunni bæði vor og haust og þar hafa verið altarisgöngur í sambandi við fermingar o. s. frv. í dag hefir kvenfélag sóknarinn- ar kaffisölu í Sjómannaskólanum til fjáröflunar. Hefir það félag starfað frá upphafi af miklum á- huga og lofsverðri fórnfýsi. Þeg- ar starfið hófst í hátíðasalnum kostaði félagið gluggatjöld og dreg il á gólf. Það gaf fyrir noklcru 70 fermingarkyrtla og ýmsum málum hefir það veitt gott lið. Nú væntir félagið fjölmennis við kaffisöluna Hætta í sjónum vegna geislavirkra á- hrifa Þrír af heiztu sérfræðingum heims í öllu því er lýtur að rann- sókn úthafanna, þeir Dr. Anton Bruun, próf. Einer Stemann Niels en, sem báðir eru Danir og rússn- eski prófessorinn Zenkevich, hafa gefið út yfirlýsingu um hættuna, sem fiskum hafsins stafi af aukn- um geislavirkum áhrifum í sjón- um. Þeir telja, að ef tilraunum með kjarnorkuvopn verði haldið áfr.arn öllu lougur, verði sú hætta fyrir hendi, að fiskurinn í sjón- um verði eitraSur og hættulegur til matar. í dag, sem hefst kl. 3 að lokinni messu, þar sem séra Bjarni Jóns- son vígslubiskup predikar. Líkön af kirkjunni og umhverfi hennar verða til sýnis í Sjómanna- skólanum í dag. IIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIUIIIIIIIIIIIIIIIIHIK Franileiðuin allar tegundir af einkennishúfum. Ódýrar vinnuhúfur með lausum koili. jöliiir k^eSst Míta en át rýjar í sambandi við lausn flutningadeilunnar að Efra-Sogi, óskar stjórn Mjölnis að taka fram eftirfarandi: Þróttur setti fram í samninga- viðræðunum það skilyrði fyrir samkomulagi að Mjölnir félli frá áfrýjunarrétti til sanlbandsþings og gerði kröfu til að samningar gíltu virkjunina út. Mjölnir neit- aði algjörlega að fallast á það og féll Þróttur þá frá kröfu sinni um þelta atriði. Á Mjölnis-fundi í fyrrakvöld var samþykkt einróma að áfrýja til Sambandsþings úrskurði Landsam bandsstjórnar. Hafði félagsfund- ur áður gert kröfu til að auka- þing væri kallað saman í haust til að útkljá endanlega þetta deilu atriði. Stjórn Landssambandsins hefur ekki ennþá svarað þeirri málaleitan. Fundurinn í fyrrakvöld taldi, Kaskeyti ávallt fyrirliggjandi. Bílstjórahúfur með tilvísun til 18. gr. laga Lands sambandsins, Mjölni skylt að j lilíta *hinum rangláta úrskurði eft i ir frávísun A:S.Í„ þar til Lands-! sambandsþing hefði breytt þeim1 úrskurði. Hinsvegar mótmælti fundurinn enn sem fyrr úrskurð- i inum og italdi hann enga stoð eiga ! í vinnuskiptareglum Sambandsins. 1 Stjórn Mjölnis vill færa öllum meðlimum félagsins þakkir fyrir einhug og samheldni í átökum deilunnar. Sérstaklega þakkar hún frábæra fórnfýsi félaganna í hinni erfiðu verkfallsvörzlu. — Einnig þakkar stjórn félagsins öll um þeim aðilum utan félagsins, sem veitt hafa félaginu stuðning og liðsinni á einn eða annan hátt í deilunni. 1 Kuldahúfur á börn og unglinga. P. EYFELÐ Ingólfsstræti 2. Box 137, sími 10199. -iliiillillliiiiiiliiiiiwiiiiiiliilllllilllllillllillllliniiiiiiiiiiv

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.