Tíminn - 14.09.1957, Qupperneq 4

Tíminn - 14.09.1957, Qupperneq 4
Brezkir gagnrýneednr harS nýju Chaplm-myn&asii - Segja gamla meistarann ot saran *f*'ll* m .an i a5 geta skapaS listaverk - ?%náin er heisken ekkiskei sfiUg Qg ¥el Eins og sagt var frá hér í blaðinu í fyrradag, var frum- sýning á nýju Chaplinmynd- inni — Kóngurinn í New York — í London á fimmtu- daginn. Hafði myndarinnar verið beðið með mikilli óþreyju. Aðalatriði efnisins voru kunn, list Chaplins þekktu aiiir, en hvernig mundi gamla meistaranum takast upp nú? Skyldi þessi mynd verða svanasöngur mannsins, sem hefir á langri ævi talað til tilfinninga mill- jónanna og hefir haft geysi- mikii áhrif á kvikmyndagerð og leiklist samtímans? I NOKKURT SVAR við spurning-, unum er að f á í viðbrögðum gagn- j rýnenda, sem séð hafa kvikmynd-! ina. Lundúnablöðin voru fu!l af greinum um þetta efni í gær. Þeg- ar á heildina er litið, sést, að gagn- rýr.endur eru harðhentir á Chapl-j in, telja honum hafa mistekizt' verulega að þessu sinni. Beiskjan í garð gamalla vina í Bandaríkjun- um hafi yfirskyggt listina, gamla manninum hafi þótt meira um vert a'ö reyna ao ná sér niðri en skapa sígilt listaverk. En þetla er aðeins álit rösulla gagnrýnenda, dómur almenningsálitsins sjálfs er eftir. Og nú mun myndin hefja göngu sína í mörgum löndum. Sárindin of áberandi GAGNRÝNENDUR telja yfir- lejtt, að sárindi Chaplins vit í amerísk stjórnarvöld eyðileggi myndina. Chaplin er brezkur að uppruna, en dvaldi í áratugi vest- an hafs. Þar vann hann sig upp til frægðar og frama. Hann lenti á kanti við óamerísku ncfndina svo- kölhiðUj og var salcaður um samúð með kommúnistum. En áður en þau mál kæmust á dagskrá opin- berra aðila, hvarf hann úr landi, ásamt konu og börnum, og settist að í Sviss. Þar hefir hann áít heima síðan. En að myndum sín-1 um vinnur hann í mörgum lönd- um. Áður en Chaplin hvarf að vestan, hafði hann lent í mjög leiðinlegum málaferlum út af barn eign, og gerði það mál áliti hans ekkert gott. Árás á amerískt þjóðlíf Brezku gagnrýnendurnir, sem ræða um myndina „Kóngurinn í New York“, segja, að í hcnni fel- ist heiftúðug árás á blöð, sjónvarp, auglýsingastarfsemi, uppeldismál og þjóðfélagsmál í heild í Banda- ríkjunum; ekki sízt á ,,the ameri- can way of life“, liraðann, sam- keppnina, hlaupin eftir veraldar- gæðum. Bretarnir segja, að víst séu í myndinni bráðskernmtilegar senur, einkum framan af, en brátt taki áróðursmaðurinn við af lista- manninum, noti hamarinn í stað sverðs skilmingamannsins, sem beitt er fimlega í eldri Chaplins- myndum. Hinn létti blær í upphafi er skammvinnur, brátt er á léreftinu sena, þar sem Chaplin er í háa- rifrildi við 11 ára dreng, dálítinn ofstækismann, upprunninn í fjöl- skyldu, sem hefir lent í kasti við óamerísku nefndina. Chaplin kemst ekki að, drengurinn lætur dæluna ganga: Það er ekkert frelsi í Bandaríkjunum, segir hann, þeir taka vegabréfið þitt, þú færð ekki að fara úr landi.. þú gætir eins set- ið í fangelsi. — Drengirin leikur Michael, sonur Chaplins og Oonu O’Neill, konu hans, en hún er dótt- ir leikritaskáldsins heimskunna, Eugene O’Neill. Drengurinn er síð an notaður sem málpípa til heift- úðugra árása á stjórnarfarið í vonbrigSum Bandaríkjunum. Chaplin lætur setja foreldra drengsins í fangelsi fyrir að neita að svara spurning- um þingnefndar, hann lætur dreng- inn sitja í löngum yfirheyrslum á lögreglustöð. Hann lætur hann að lokum brotna undan ofurþunga yfirvald- anna, teflir litlum veikbyggðum drengsnáða fram í móti risa ríkis- valdsins, leikurinn er ójafn, slegið er á strengi samúðar, en forsend- urnar eru vafasamar. Lundúnasenur kallaðar frá New York Er rétt og siðsamlegt að skyrpa óþverra á náungann í gegnum barnsmunn? Þannig spyr einn gagnrýnendanna í London, eftir að hafa séð frumsýninguna á Odeon- leikhúsinu. Hann svarar neitandi, og fordæmir aðferðina. Þessi gagn- rýnandi og margir köllegar hans, sem svipað líta á málið, viður- kenna þó, að víða í myndinni sleppi Chaplin pólitískri áróðurs- grímu fram af sér, og taki til að leika gamanhlutverk á gamlan máta, og af snilld, eins og honum einum er lagið. Það vakti athygli í Londop, að götusenur úr mynd- inni, sem áttu samkvæmt eðli málsins að vera frá New York, vofu augljóslega teknar í London. Chaplin hefir ekki komizt vestur síðan hann hvarf til Evrópu. • Gamla gerfið lagt á hilluna í viðtali, sem sum brezku blað- anna birta við Chaplin, í tilefni frumsýningarinnar, *egir hann, að T I MI N N, laugardaginn 14. september 1957« Fylgismesin komniéiiista ætluðn að steypa Nasserur stólií Egyptalandi segir saksóknari egypzka ríkisins. Sýrienzk öíl sökuð um samsæri, sem miðaÖi aí því a'ð myrða ríkisstjórn Iraks Beirut—NTB, 12. september. — Ólguna í M-Austurlönd- um lægöi nokkuð eftir þau ummæli Dullesar, utanríkisráð- herra Bandaríkjanna, að þróunin í Sýrlandi yrði sennilegá með friðsamlegum hætti. liann hafi nú algerlega lagt á hill- una gamla flökkumannsbúninginn, harða hattinn, stafinn og gömlu skóna. En þar með liefir hann snúið baki við því bezta, sem hann átti. Það var einmitt þetta mann- lega gerfi, sem gerði frægð hans og var bezti þátturinn í fari hans. Áróðursmaðurinn reynir að bvggja á gamalli frægð, en hann bætir engu við. Kóngurinn í New York er líklegur til að flýta hrapi af gömlum hefðarstalli. Talsmenn sýrlenzku stjórnarinn ar draga ekki dul á gleði sína yfir ummælum bandaríska utan- ríkisráðherrans, um leið og því er haldið fram af sömu aðilum, að Eandaríkjastjórn hafi sýnilega skipt um skoðun á atburðunum í Sýrlandi. Vilja Hcnderson til Sýrlands. Nokkrir talsmenn sýrlenzku stjórnarinnar hafa látið í ljósi þá von, að Loy Henderson komi aftur í heimsókn til M-Austur- landa og ræði þá við sýrlenzka ráðamenn. Enn er ekkert lát á árásarskrif unum um Bandaríkjastjórn í egypskum blöðum um leið og á það er lögð áherzla, að kommún- istaflokkurinn væri bannaður í landinu. Kommúnistasamsæri. Fréttamenn í Kairó vekja at- hygli á því, að liinn opinberi ákærandi gegn liðsforingjunum 13, sem sakaðir eru um að hafa undirbúið valdarán í Iandinu, lýsti yfir því í dag, að menn þess ir hefðu ekki ætlað að koma á fót stjórn, sem yrði vinsamleg Vesturveldunum, lieldur komm- únistískri stjórn. Fréttaskeyti frá Bagdad herma, að leyniþjónusta ríkisins hafi kom ið upp um samsæri, sem miðaði að því að myrða alla helztu leið- toga landsins og steypa stjórninni af stóli. Sýrlenzk öfl að verki. Skjöl hefðu fundizt, er sönnuðu að öfl, er styddu hinn „sterka mann Sýrlands" Hamid ofursta, hefðu staðið að baki þessu sam- særi. Forseti sýrlenzka herráðsins,' Afif Bizri, sagði í Kairó í dag, að sýrlenzka stjórnin og her hennar væru við öllu búin. Sýrlenzka þjóðin stæði sameinuð gegn heimg valdasinnum, en heimurinn stæði með henni. Bizri hélt til Dama- skus í dag, eftir að hafa rætt hernaðarsamstarf Egypta og Sýr- lendinga við Nasser í Kairó. r~ Israelsmenn óttast hernaðarátök í I M-Ansturlöndum WASHINGTON-NTB, 12. sept. - Abba Eban, ambassador fsraels i Bandaríkjunum gekk í dag á fund Jolin Fostcr Dulles í Was- hington og fór þess á leit við ráð herrann, að hann léti stjórn sína beita sér fyrir því með öllum ráð um, að komið yrði í veg fyrir á- rás í M-Austurlöndum. Eban bar fram kvartanir ísra« elsstjórnar yfir vopnasendingun- um til Jórdaníu og annarra Ar« abaríkja, sem Bandaríkin teldil sér vinveitt. SAS ætlar aS byggja hótel » Ráðstefna Nor- .. rænu félaganna Kaupmannahöfn, 8. 9. 1957. STARFSEMI SAS verður sífellt víðtækari. Vegna vaxandi ferða- mannastraums, sem er bein afleið- ing af auknum flugsamgöngum, hefir SAS hafizt handa við að byggja nýtt og stórkostlegt gisti-! hús í Kaupmannahöfn. Gistihúsið, sem er gríðarmikil húsasamstæða, sem er þegar farið að byggja, verður í grennd við skrifstofur Flugfélags íslands fyrir framan Hovedbanegaarden. Stjórn SAS hefir þegar ákveðið að þetta nýja hótel skuli heita Royal Hotel, en j það leiðir hugann aflur að „Royal Viking" þjónustu SAS. í þessari viku verður lokið við að stækka og fullkomna afgreiðslu salinn í Kasírup og þar með eru húsakynni Kaupmannahafnarflug-1 vallar orðin nýtízkulegust í álf- unni. í biðsalnum er komið fyrir nýrri skrifstofu, þar sem veittar eru upplýsingar og er sú starf- semi þegar hafin og senn er von á frekari framkvæmdum. Samfara flutningi upplýsingaþjónustunnar j var starfsemi liennar stórum auk-i m ms ’ Unnið er að uppsetn’igu r|ósmyndasýningar:nnar um mannkynið, sem Uppiýsingaþjónusta Bandarík,^ni.a efn- ir til í iðnskólahúsinu. Þetta er heimsfræg sýning og liefir víða farið. Margar Ijósmyndirnar eru listaverk. —< Myndin a3 ofan heitir: „Jörði.i er móðir, sem aldrei deyr". Hún er frá Persíu, fjárhirðir gæfir hjaroar sinnar í fjalliendi. Þessi mynd hefir fylgt mannkyninu í árjjúsundir og breytit lítið, þótt aldir renni. Myndina tók David Duncan, Life Magazine. in og forstöðumaður hennar hefir reynslu, sem fæst af svipaðri til- verið hækkaður í cign. FULLTItÚAR dómsvaldsins og innanríkismála í Danmörku, Finn- landi, Noregi og Svíþjóð ræddu á fundi í Stokkhólmi í gær tillögu frá Evrópuráðinu um að afnema vegabréi'askoðun í þeim 15 löndum, sem að ráöinu standa. Fundurinn lýsti sig fylgjandi tillögunni en | samþykkti liins vegar að bíða með frekari framkvæmdir þar til reynsla. væri fengin af þeirri til- högun að afnema vegabréfaskoðun miili Norðurlandanna sjálfra. Þar að auki á að taka tillit til þeirrar högun annarra landa í ráðinu. í GÆR LAUK fjögurra daga ráð- stefnu félagsins „Norden“ í Hinds- gaul. Á mótinu voru rædd mikil- væg atriði um starfsemi félagsins. Þar var upplýst, að meðlimatala þess var komin upp í 125.000 manns. Merkustu málin, sem rædd voru, má telja sameiginleg ínarkaðssvæði fyrir Norðurlönd og ennfremur um liliðstæða skipun á verzlunar- háttum allra Evrópulanda. Þá var rætt um samstarf Norðurlanda í dómsmálum, sem staðið hefir í 75 ár og er algerlega einstætt. Tillaga kom fram um sameiginlegan dóm- stól Norðurlanda í þeim málum, 1 er löggjöfin leyfði og ákveðið var 1 að athuga það mál rækilega. Þar að auki var rætt um mögu- I leika á opinberum styrk til skóla- J og námsferðalaga og að stuðlað yrði að gagnkvæmum vináttuheim | sóknum. Að lokum var um það rætt að tengja vináttuböndin við , ísland og fá því komið í fram- ; kvæmd, að sérstakur ferðamanna- ' gjaldeyrir stæði útlendingum til boða á fslandi. Næsta þing samtakanna verður haldið í Finnlandi að ári. —Aðils,

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.