Tíminn - 01.10.1957, Qupperneq 1
Slmar TÍMANS arus
KHifiórn og skrlfstofur
1 83 00
BltSamann eftlr kl. lti
16301 — 18302 — 18303 — 18304
41. árgangur.
f MaSinn ! dag m. a.: 1
Frá írlandi á bls. 4.
Fé3 kemur til rétta bls. 5.
Atburðirnir í Little Rock, bls. (5.
Litbrigð á rúðu, bls. 7.
218. blað.
s
Franska ríkisstjórnin féll í gærkvöldi
við atkvæðagreiðslu um Alsírmálið
Þessi mynd sýnir krýningu Hákonar VII Noregskonungs og Maud drottn
ingar h.ans. Skrúðinn var skrautlegur og kóróna Noregskonungs fögur.
Núna síðustu dagana hefir Jiessi kóróna verið við höfðagaflinn á lík-
börum konungs, og mun framvegis geymast í konungsdjásnsafni lands-
ins en ekki framar prýða konungshöfuð, því að ákveðið liefir verið,
að kommgur Noregs skuli ekki bera hana framar. Þegar Ólafur kon-
ungur verður „krýndur“ mun liann ekki bera kórónuna.
Forsetavaldið
í fjarveru forseta
Forsetáhjónin fóru í gær til Nor
egs til að verða við útför Hákonar
konungs.
Samkvæmt 8. gr. stjórnarskrár
innar fara forstæisráðherra, for-
seti sameinaðs Alþingis og forseti
Hæstaréttar með vald forseta ís-
lands í fjarveru hans.
Enn algjört aflaleysi
hjá síídarbátum
Enn liorfir mjög treglega um
afia hjá síldarbátiun við Reykja
nes. Nokkrir bátar létu reka suð
ur af Iteykjanesi í fyrrinótt, en
afli var yfirleitt sama og enginn.
Þannig liafði aflahæsti Grindavík
urbátui'inn aðeins 24 tiinnur.
* Virðist svo, sem hvergi sé nú síld
að fá á slóðum Faxaflóabáta jafn
vel þótt hagstætt veður sé til
veiða. Bátar halda þó yfirleitt
aliir áfram veiðum.
Taka mun mánuð að mynda starfhæfa rikis-
stjórn og mikil óvissa í landinu en öng-
þveiti yfirvofandi
NTB-París, 30. sept. — Þau tíðindi gerðust seint í kvöld,
að ríkisstjórn Bourges Maunoury féll við atkvæðagreiðslu um
heimastjórnarfrumvarp sitt til handa Alsírbúum. Var þó búiS
að spá því að frumvarpið myndi verða samþykkt, þótt rlkis-
stjórninni myndi engu að síður verða kollvarpað innan fárra
daga við atkvæðagreiðslur um stefnu hennar í efnahagsmál-
um.
Jacues Soustelle fyrrverandi land-
stjóri Frakka í Alsír.
Norska sendiráðið
iokað í dag
Hákon VII. Noregskonungur um það leyti sem liann tók við
konungdómi í Noregi.
Vegna útfarar hans hátignar Há-
konar konungs í dag munu skrif-
stofur norska sendiráðsins í
Reykjavík verða lokaðar.
(Frá norska sendiráðinu).
Utför Hákonar ¥11. Noregskoomigs
fer fram í dag með míkiili viðhöfn
NTB-Osló, 30. sept. — í dag er mikill undirbúningur og
annríki í Osló fyrir útför Hákonar konungs VII., sem verður
gerð á morgun. Er það í fyrsta sinn síðan 1380, að norskur
konungur er borinn til grafar í Noregi. í allan dag' streymdu
að erlendír þjóðhöfðingjar og fulltrúar þjóðhöfðingja og ríkis- (
stjórna hvaðanæva að úr heiminum, sem komnir voru til að
votta Hákoni konungi hinzta virðingarvot.t. Kemur glöggt í.
ljós við fráfall konungs, hvílíkrar virðingar og viðurkenningar1
hann naut, ekki aðeins í heimalandi sínu, þar sem hann var|
sannkelluð þjóðhetja, heldur einnig um gervallan heim.
Meðal þjóðhöfðingja, sem komu í1 fulltrúi Bretadrottningar, Fire-
dag var Knútur Danaprins, Júlí- stone sérlegur fulltrúi Eisenhow
ana Hoilandsdrottning og Bern-1 ers forseta, finnsku forsetahjón-
hard maður hennar, Bouduain! in og fjölmargir fleiri. Var Óiaf-
Belgíukonungur, Páll Grikkjakon-
ungur, Hertoginn af Glouchester
ur konungur V. og Harald ríkis-
arfi, svo og ráðherrar stöðugt úti
Félag ungra Framsóknarmanna
slofnað í Borgarf jarðarsýslu
Síðastliðinn sunnudag var stofnað Félag ungra Framsókn-
armanna í Borgarfjarðarsýslu norðan Skarðsheiðar. Var stofn-
fundurinn haldinn í Reykholti og gengu 28 manns í félagið
þegar á þessum fyrsta fundi.
idai. Ritari: Jóu Sigvaldason, Ausu,
Stjórnarkjör fór þannig: For- Andakílshreppi. Gjaldkeri: Jó-
maður: Einar E. Gíslason, ráðu-ihannes Gestsson, Giljum, Ilálsa-
á Fornebu-flugveili til að taka á
móti hinum tignu gestum. í fyrra
málið koma sænsku og dönsku
konungshjónin. Forsetahjónin ís-
ienzku fóru til Osloar í gær til að
vera viðstödd útför konungs.
252 skotum hleypt af.
Fjölmennur floti norskra og er-
lendra skipa hefir varpað akker
um í Osloarhöfn. Verður skotið frá
skipunum 252 skotum til heiðurs
hinum látna konungi. Fyrir slcip-
unum er brezka flugvélaskipið
Ocean og bandaríska beitiskipið
Boston. Þarna eru og herskip frá
Svíþjóð, Danmörku og Frakklandi
Fánar sex þjóðríka blakta í hálfa
stöng á hinni konunglegu bryggju
beint fyrir framan ráðhús borgar
innar. Snekkjan Noregur, sem
norska þjóðin gaf Hákoni á 75 ára
afmæli hans 1947, hefir varpað
(Framhald á 2. síðu).
Þetta fór þó á annan veg. At-
kvæði féllu þannig, að með frum-
varpinu voru aðeins 253 fulltrúar,
en 279 á móti. Ekki lágu fyrir upp-
lýsingar í kvöld um það, hvaða
flokkar hefðu greitt atkvæði með
ríkisstjórninni.
Tekur niánuð að mynda
ríkisstjórn.
Ilaft var eftir kunnugum í París
eftir að stjórnin hafði beðið ósig-
ur, að það myndi
taka að minnsta
kosti mánuð, unz
komið hefði verið
á laggirnar nýrri
ríkisstjórn í
Frakklandi, sem
gáeti lagt fram
nýjar tillögur í
Alsírmálinu. Má
raunar telja
erfiðlega gangi að
mynda stjórnina bæði með tilliti
til Alsírmálsins og efnahags-
ástandsins í landinu. -
Ilver verður forsætisráðherra?
Fréttaritarar voru strax farnir
að bollaleggja um lil hvers Coty
forseti myndi leita að mynda nýja
stjórn. Töldu þeir sennilegt, að
fyrir valinu yrði einhver áf for-
ingjum íhaldsmanna, þar eð þeir
hafa harðast gengið fram gegn
stefnu ríkisstjórnarinnar í Alsír-
málinu. Þá var einnig tilnefndur
Maunoury
sennilegt, að
Afneitað stefnu sinni.
Fyrir atkvæðagreiðsluna skoraði
Bourges-Maunoury á þingmenn að
samþykkja frumvarpið. Ef þeir
gerðu það ekki, væri það sama
og hrópa út um allan heini, að
Frakkar afneituðu þeim grundvelli
sem þeh- hafa opinberlega stöðugt
haldið fram, að væri forsendan fyr
ir því að þeir heyja nú stríð i Al-
sír. Það er að sgeja, að Aíslr væri
óaðskiljanlegur hluti Frakklands,
en þar skyldi innfæddum veitt svig
rúm til sjálfstjórnar og skiiyr'ði til
að byggja upp nýtízku þjóðfélag
með aðstoð Frakka.
55 fórust í járn-
brautarsíysi
NTB—Karachi, 30. sept. 55 manns
beið banna og 64 meiddust, er far
þegahraðlest rakst á flutningalest
í Norður-Pakistan aðfaranótt mánu
dags. Slys þetta var hið hroða-
legasta og segja sjónarvottar að
hræðilegt hafi verið um að litast
á slysstaðnum. Margir farþeganna
lokuðust inni í brennandi vögnun
uin og varð ekki bjargað. Þetta er
mesta járnbrautarslys í Pakistan
síðan 1954, en þá biðu 200 manns
bana í svipuðu slysi.
Mjólkurbú Flóamanna hefnr fram-
leiðslu nokkurra nýrra ostategunda
Mjólkurbú Flóanianna hefir
auglýst, að það liafi sent á mark
að sex nýjar tegundir af ostum
í smekkieguni og nýstárlegum
umbúðum. Eru ostategundir þess
ar franileiddar í nýjum vélunr,
sem búið hefir nýlega fengið og
liafa danskir sérfræðingar í osta
fiainleiðslu liaft umsjón með
framleiðslunni. Ostategundir
Þessar nefnast smurostur 45%,
smurostur (sterkur) grænn alpa
ostur, smurostur með hangikjöti,
rækjuosetur og tómatostnr. Þá
tilkynnir búið einnig, að i und
irbúningi sé framleiðsla þriggja
nýrra ostategunda til viðbótar,
sveppaosts, skinkuosts og kjarua
osts.
Nánar verður skýrt frá þessum
nýjungum í ostaframleiðslu inn
an fárra daga hér í blaðinu.
nautur, Hvanneyri. Ritari: Þor-
steinn Þorsteinsson, Skálpastöðum,
Lundarreykjadal. Gjaldkeri:
Bjarni Guðráðsson, Nesi, Reyk-
lioltsdal. — Varastjórn: Form.:
Jón Einarsson, Kletti, Reykholts-
sveit. Endurskoðendur voru kjörn-
ir þau Aðalheiður Helgadóttir,
Reykholti og Andrés Jóliannesson,
Stóra-Kroppi. — Formaður SUF,
Kristján Benediktsson, mætti á
fundinum.
Síbelíus jarð-
settur í gær
NTB-Helsinki, 30. sept. í dag fór
fram jarðarför finnska tónskálds
ins Jean Sibeliustar frá Stórkirkj
unni í Helsinki. Viðstatt jarðarför
ina var margt stórmenni bæði frá
Finnlandi og erlendis frá M. a.
voru þar finnsku forseta hjónin og
ríkisstjórn landsins. Hvarvetna
blöktu fánar í hálfa stöng.
Munið fund Framsókn-
arfélagsins í kvöld
Hann hefst i Tjarnarkaffi kl. 8,30. Eysteinn
Jónsson, fjármálará'Sherra, frummælandi
Framsóknarfélag Reykjavíkur heldur fyrsta fund sinn á þessu hausti
í Tjarnarkaffi (niðri) klukkan 8,30 í kvöld. Umræðuefni fundarius
verður stjóriiinálaviðhoifið í dag', og verður Eysteinn Jónsson, f jármála-
ráðlierra, frutnmælandi. Að lokinni framsöguræðu lians verða almenn-
ar umræður. — Framsókiiarmenn, fjölmennið á fundinn og hefjið vetr-
1 arstarf fclagsins tneð góðri fundarsókn.