Tíminn - 01.10.1957, Blaðsíða 8
B
T f MIN N, þriðjudaginn 1. okíóber 1957
Irar
(Framhald af 4. síðu).
fáu sálum sem enn eru mælandi
á hina fornu tungu, keltnesku.
Flóttinn er í algleymingi og mál-
ið er óðum að týnast.
Frjálsífsróttakeppni milli Norðurl.
og Balkanríkjama um næstu feelgi
Þrír Islendingar valtlir til keppni — Grein-
Kirkjan á móti
dansleikjum.
— En fólkið sem eftir er, hvern
ig unir það hag sínum?
— Yfirleitt giftast menn þar
seint en eiga mörg börn. Það er'
bábilja að flestir írar séu rauð-
hærðir, þeir eru þvertámóti dökk-1
hærðir en bláeygir. Cliesterton
segir einhversstaðar að írar séu
ólmir í stríði en daprir við söng.
Skemmtanir þeirra eru fábreytt-
ar, stundum kemur úngt fólk sam-
an í einhverju íbúðarhúsanna og
skemmtir sér við dans. Þá er spil-
að á harmoníku eða fiðlu. Það eru
sungin írsk lög, þau eru flest með
dapurlegum blæ, fjalla um ástar-
drauma sem ekki rættust. Annars
beitir kirkjan sér gegn þessum
dansiböllum og reynir að útrýma
þeim. Áður fyrr dönsuðu frar
kringum elda sem þeir kynntu
á fjöllum uppi eða á gatnamót-
um, nú hefir kirkjunni tekizt að
uppræta þann sið. Jón Indíafari
segir frá slíkum dansi í Reisu-
bók sinni.
Drykkjuskapur og
þjótSlög.
Drykkjuskapur er mikill á ír-
landi, karlmenn sitja löngum
stundum á ölstofum og krám og
þjóra óspart. Ég þekkti einn mæt-
an mann sem kunni ógrynnin öll
af gömlum þjóðlögum og kvæðum
og söng laglega. Hann hóf aldrei
upp raust sína í söng fyrr en
hann hafði drukkið rúmlega 8
lítra af sterku öli. En þá söng
hann allt sem hann kunni.
Vínkrárnar eru eins og mý á
mykjuskán, jafnt í sveitum sem
bæjum. Það er aldrei meira en
10 mínútna gangur milli kránna.
í einum bæ sem var á stærð við
hálfan Hafnarfjörð taldi ég 90
drykkjukrár. Allar þrifust vel og
voru þétt setnar.
Einu sinni spurði ég hvort
margt væri um lausaleikskrakka í
byggðinni. Ég fékk það svar að
enginn lausaleikskrakki hefði
fæðst síðan 1840. Það kom í ljós
að elztu menn höfðu ekki spurnir
lengra aftur.
— Ekki eru þó írar miður nátt
úraðir en aðrir menn?
— Nei. En kirkjan er þar vold
ug og siðavendni mikil. Klerkarnir
vaka yfir hverri hreyfingu fólks-
ins. Það fér í kirkju á hverjum
sunnudegi og hver sem ekki læt-
ur sjá sig við messu er sekur um
höfuðsynd. Kvölds og morgna kem
ur fjölskyldan saman^ og þylur
bænir eftir talnabandi. frska kirkj
an rekur risavaxið trúboð um
heim allan og hefir það reyndar
starfað frá því á 8. öld. Kirkjan
er nær einráð yfir hugum fólks-
ins og ríkir einnig á efnahagssvið-
inu. Ungur læknir komst nýlega
i ráðherrastól og beitti sér fyrir
almannatryggingum, ellistyrk og
örorkubótum. Kirkjuhöfðingjar
börðust hatramlega á móti þessu
og fengu því framgengt að ráð-
herrann varð að segja af sér. Err
þess ber að geta að kirkjan út-
býtir sjálf eftir geðþótta pening-
um til nauðstaddra. Þeir töldu ráð
ist inn á sitt verksvið.
Enn eru sagftar
þjóísögur.
— Hvað um almenna menntun?
— Allir ganga í barnasköla og
einstaka stundar framhaldsnám.
Um allt frland þar sem ekki er
töluð írska er hún skyldunáms-
grein í skólum. Stefna stjórnarinn-
ar er að koma á írsku jafnfætis
ensku. írska er óhemju erfitt og
flókið tungumál og fæstir læra
hana að nokkru gagni. Því fer
mestur tíminn í írskukennslu og
enginn tími aflögu til að kenna
önnur útlend tungumál en ensku.
Af því leiðir að írar eru enn ríg-
bundnir menningu hins enskumæl-
andi heims, einmitt þeirri menn-
ingu sem þeir leitast við að út-
rýma úr landi sínu til að koma á
stofn sjálfstæðri keltneskri menn-
Til vinstri er mynd af sænskum fjórmenningum, sem hlutu silfurverSlaun
í róSri, en til hægri er sænska sundkonan Kate Jobson, sem komst í und-
anúrslit í 100 m. skriðsundi.
Frábær, sænsk bók um Ólympíuleik-
ana í Melboume og Cortina
Blaðinu barst fyrir nokkru síðan Olympiaboken 1956, en
það er sænsk bók um Ólympíuleikana síðustu, bæði vetrar-
leikina í Cortina í Ítalíu og sumarleikina í Melbourne í Ástra-
líu, auk þess, sem þar er einnig frásögn og myndir frá
hestaíþróttum leikanna, sem að þessu sinni fóru fram í Stokk
hólmi.
— Olympiaboken er í einu orði
sagt mjög glæsileg bók — og frá-
bært heimildarrit um þessar miklu
íþróttahátíðir. — Þar er skýrt frá
í orðum og myndum öllum helztu
atburðum leikanna — birtar mynd
ir af úrslitum í einstökum grein-
um og af ýmsum sigurvegurum.
Grein Páls
Framhald af 5. siðu.
um burðinn. Ef þið gerið það, þá
farið þið vel með ykkar ær að
vori, því alls staðar vonar maður
nú að fóðrið verði nóg, þótt enn
sé úti mikið af heyjum sums stað-
ar á landinu. Af reynslunni eigum
við að læra, og bezt fæst hún af
eigin raun, eða eigin sjón. En
menn sj'á ekki alltaf það sarna,
einn tekur eftir því sem annar sér
ekki, og því bið ég ykkur að gæta
að þessu í haust, þá veit ég að þið
lærið af því, og hafið gott af þeim
lærdómi. Og svo að síðustu þetta
til ykkar bændur góðir: Þið hittið
marga félaga ykkar í haust. Spjall-
ið þá saman. Fáið að vita hvernig
þetta eða hitt hefir gengið hjá
þeim og segið þeim hvernig það
hefir gengið hjá ykkur. Berið sam-
an bækurnar. Af því lærið þið báð-
ir, og verðið betri bændur og betri
þjóðfélagsþegnar eftir.
23. september 1927.
Svíar hafa áður gefið út bækur
um Ólympíuleikana í London 1948 j
og Helsinki 1952 — en að þessu
sinni hafa þeir breytt útgáfunni
og gert hana meir norræna. Þann-
ig eru t. d. myndir af öllum þátt-
takendum Norðurlandaþjóðanna,
bæði í Cortína og Melbourne, og
skýrt frá árangri þeirra. Bók þessi
er því ekki aðeins nauðsynleg
Svíum, heldur öllum Norðurlanda
búum, sem láta sér þessi mál ein-
hverju skipta.
— Bókin hefst með frásögn af
vetrarleikjunum í Cortína, og tek-
ur sá kafli yfir um 70 síður. Þá
er grein um leikana í Stokkhólmi,
en aðalefni bókarinnar er svo
sumarleikarnir í Melbourne.Er þar
skýrt frá öllum greinum leik-
anna, frjálsíþróttum, sundi, fim-
leikum og svo framvegis, og getið
um úrslit í þeim öllum. Einnig er
greint frá öllum Ólympíumetun-
um í hinum ýmsu greinum og
hverjir hafa átt þau frá upphafi.
Kemur þar fram nafn eins ís-
lendings, Vilhjálms Einarssonar,
sem átti Ólympíumetið í þrístökki
í rúman klukkutíma.
— Olympiaboken er 260 blað-
síður í stóru broti, og prýða mörg
hundruð myndir bókina. Frágang-
ur allur og prentun er hinn vand-
aðist t. d. eru allar myndir mjög
skýrar. Bókina er hægt að panta
hér í bókaverzlunum og kostar
hún 140 krónur.
ingu. Þetta er hörmulegur víta-
hringur.
— Stendur alþýðumenntun á
háu stigi?
— Fólk les yfirleitt ekki bækur
á írsku því stafsetningin er svo
flókin og úrelt að almúginn kýs
frekar að lesa á ensku. Sem dæmi
um stafsetningu á keltnesku má
nefna það að írska nafnið á Dyfl-
inni er: Baile Atha Cliath en
framhurðurinn er blaklía. Það
þýðir borgin við Grindavað.
En flestir kunna þjóðsögur og
munnmæli sem varðveitzt hafa á
vörum alþýðunnar frá örófi alda.
Til eru feiknin öll af óskráðum
fróðleik, draugasögum, huldufólks
sögum og ljóðrænum ástarkvæð-
um. Enn í dag syngur alþýðan dap
urlega söngva um ástina sem brást
og landið sem var svikið.
Þannig fórust Helga Guðmunds-
syni orð um þessa gömlu frænd-
þjóð okkar íslendinga. Örlög þess-
arar merku menningarþjóðar eru
hörmuleg og vafamál hvort henni
takist að endurvekja og varðveita
hina fornu menningu. Hún hefir
átt við ofurefli að etja þar sem
voru erlendir kúgarar og innlend-
ir sundrungarmenn.
jlj.
*
A víðavangi
(Framhald af 7. síðu).
góða drætti hjá Morgunblaðmu
í rógsherferðinni gegn Eysteini
Jónssyni þegar bjánalegum skrif
um af þessu tagi er tyllt upp
með stórum fyrirsögnum í blað
inu. Greinin öll er móðgun við
heilbrigða skynsemi.
Hræðslan við útsvarsmálið
Ef menn vilja kynnast því,
hvernig íhaidinu er raunverulega
innanbrjósts núna út af útsvars-
málinu, þá skulu þeir leita að
greinum um það í Mbl. og Vísi
þessa síðustu daga. Það er nefni
lega allt í einu allt dottið í dúna
logn. Hætt að skrifa uin „árás-
ina“ á Reykjavík og annað I
þeim dúr. í þess stað er hamast
að Eysteini Jónssyni. Með þessari
taktik þykist íhaldið heizt geta
forðað sér á flóttanum. Mold
viðri og blekkingar um önnur
efni eiga að fela útsvarsmálið.
I Þetta eru ráð Bjarna. Vísiskálf
I nrinn fetar dyggilega slóðina.
argertS frá FRS:
Það eru nokkur ár síðan fyrst
var farið að ræða um möguleika
á keppni í frjálsum íþróttum
milli Balltanríkjanna annars veg-
ar og Norðurlanda liins vegar.
Þannig var haustið 1955 búiö að
ákveða keppnina þá um haustið
en pólitískar deiiur á Balkan
oliu því, að keppnin féll niður.
En viljinn hjá frjálsíþróttasam-
böiidum viðkomandi landa var
áfram fyrir hendi, og á ráð-
stefnu fulltrúa frjálsiþróttasam-
banda í Evrópu, er fram fór í
Lundúnum í janúar síðast liðn-
um var svo samið á ný um
keppnina. Er nú endaniega á-
kveðið að keppnin fari fram 4.
til 6. október n. k. á Panathéne-
en leikvanginum í Aþenu, hin-
um sama leikvangi og Olympíu-
leikarnir fóru fram á 1896.
Þrír keppendur frá hvorum
aðila keppa í öllum einstaklings-
greinum, en þær eru allar lands-
keppnisgreinar auk Maraþon-
hlaups, og ein sveit frá hvorum
aðila í boðhlaupum, en þau eru
4x100 m, 1000 m og 4x400 m.
Val Norðurlandaliðsins var
framkvæmt í Stokkhólmi 16. sept.
s.l. af fulltrúum frá Danmörku,
Finnlandi, Noregi og Svíþjóð. ís-
land taldi sér ekki kleift, bæði
fyrir hvað fyrirvari var stuttur og
auk þess hve kostnaðarsamt það
er, að senda fulltrúa til Stokk-
hólms til að taka þátt í þeim
fundi. Stjórn F.R.f. símsendi því
sínar tillögur til Stokkhólms. Var
lögð áherzla á Vilhjálm Einars-
son í þrístökki (15,92) og lang-
stökki (7,46), Hilmar Þorhjörns-
son í 100 m hlaup (10,3) og 200
m hlaup (21,3) og Valbjörn Þor-
láksson í stangarstökk (4,40), Pét-
ur Rögnvaldsson í 110 m grinda-
hlaup (14,6) og Hallgrím Jónsson
í kringlukast (52,56). Auk þess
var bent á sem mögulega keppend-
ur: f kúluvarpi Skúla Thoraren-
sen (16,00 m) og Gunnar Huseby
(15,95), í kringlukasti Þorstein
Löve (51,57 m) og Friðrik Guð-
mundsson (50,20).
Aðeins 3 af þessum mönnum
voru valdir, þeir Vilhjálmur Ein-
arsson í þrístökki, Hilmar Þor-
björnsson í 100 og 200 m hlaupi
og 4x100 m boöhlaupi Og Val-
björn Þorláksson í stangarstökki.
Stjórn •Frjálsíþróttasambands fs-
lands telur, að í þessu efni hafi
ísland verið hlunnfarið og hefir
þegar mótmælt þessu, sérstaklega
gagnvart 110 m grindahlaupinu og
kringlukastinu og kúluvarpinu.
Samtals voru valdir 56 keppend
ur í Norðurlandaliðið og skiptast
þeir þannig: 24 Finnar, 18 Svíar,
10 Norðmenn, 3 fslendingar og
einn Dani. Auk þess verður 9
manna fararsíjórn — 3 frá Sví-
þjóð, 3 frá Finnlandi, 2 frá Nor-
egi og einn frá íslandi — einn
læknir, 3 þjálfarar og einn nudd-
ari. Samtals eru þetta um 70
menn. Þess skal getið, til þess að
ekki valdi misskilningi, að áður
en lið Norðurlanda var valið,
hafði verið ákveðið af hinum Norð
urlöndunum að einn íslendingur
skyldi vera í fararstjórninni án
nokkurra skuldbindinga um hvort
nokkur íslenzkur keppandi yxði
valinn eða ekki.
Þriðjudaginn 1. okt. mun Norð-
urlandaliðið fara með flugvél frá
Norðurlöndum til Aþenu. En fs-
lendingarnir, að undanskildum Vil
hjálmi Einarssyni, sem staddur er
í Finnlandi, munu fara til Kaup-
mannahafnar 30. septemher og
sameinast þar liðinu. Frá Aþenu
er svo ráðgert að fara sömu leið
til baka heim þann 7. eða 8. okt.
Balkanríkin kosta ferðir liðsins
frá Stokkhólmi til Aþenu og til
baka og uppihald í Aþenu, en
ferðir innan Norðurlandanna
verða Norðurlöndin að greiða
sjálf.
Balkanríkin hafa nú þegar valið
lið sitt og er það skipa'ð 17 Júgó-
slöfum, 12 Búlgörum; 12 Rúmen-
um og 10 Grikkjum, eða samtals
51 keppandi á móti 56 keppend-
um frá Norðurlöndum.
ranBBiminimimmiiminmummminmmmminmmimnmimmmiiiiiimmimmiimiimDiæBí!
= Hafnarfjörður
Hafnarf jörður =
Opnum í dag
nýja bóka- og ritfangaverzlun í
STRANDGÖTU 39
Sími 5-00-45.
Oíiveró
3
£2
I BOKABUÐ
einó i
niiiiiiiiiiiiiiiiiiiiniiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiimmiiiiiiiimiimiiinimmmmmmi
<iiiiiiiiiii!iiiitiiiiiiiuiuiiiiiiiiiiiiiiiiiiiii!iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiii!i!iiiii!iiiiiiiiniiiiiiiiiiiiiiiiuiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiip.i(m
1 1
I Námsflokkar Reykjavíkur |
1 SíSasti innritunardagur er í dag (þriðjudag). Innritað 1
I er kl. 5—7 og 8—9 síðd. í Miðbæjarskólanum, gengið I
| inn um norðurdyr. Námsgreinar: íslenzka, enska, danska, 1
| þýzka, franska, spænska (esperanto og e. t. v. fleiri 1
1 tungumál verða kennd, ef þátttaka er nægileg), reikn- 1
I ingur, bókfærsla, vélritun, föndur, kjólasaumur, barna- |
1 fatasaumur, sniðteikning, útsaumur, upplestur, sálar- |
1 fræði. Byrjendaflokkar og framhaldsflokkar í öllum bók- g
1 legum greinum. Nýir framhaldsflokkar í íslenzku og I
| flatarmálsfræði fyrir gagnfræðinga. Talæfingar í ensku |
| og dönsku í efstu flokkunum. Hver námsgrein kennd 3 |
| kennslustundir á viku. Kennt er á kvöldin kl. 7,45— |
1 10,20. |
i Nánari upplýsingar við innritun. g
jiiiiiiiiiiiiiiiiiiniiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiuuiiiiiiiuiiiimiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiniiiiiiiiiiil
RAFMYNDIR hf. Lindarg. 9A Sími 10295
llllllllllillllllllllllllllllllllllllllllliiuillllliuilllllllllllllllllllllllllllllllliu'jlllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllilllllllll