Tíminn - 02.10.1957, Blaðsíða 1
ftfcntr TÍMANS trut
Rltstjórn og skrlfstofur
1 83 00
BlaBamann eftlr kl. lts
11301 — 18302 — 18303 — 18304
41. árgangur.
Reykjavík, íniðvikudaginn 2. október 1957.
Efni í blaðinu f dag:
Búskapurinn fyrr og nú, bls. 5
Fjórða síðan, bls. 4.
Fj'árhagsáætlun barnasjóðs S. þ.
24 millj. dollara bls. 6.
Engin list mun lifa ... bls. 7.
219. blað.
Núverandí stjórn hefir góð skilyrði
til að ieysa efnahagsvandamálin
Nó er þýðingarmest að staðið sé fast og vel
saman um nauðsynlegar ráðstafanir
Ur ræftu Eysteins Jónssonar, rátSherra, á fyrsta
fundi Framsóknarfélags Reykjavíkur í haust
Framsóknarfélag Reykjavíkur hóf vetrarstarf sitt í gær-
kveldi með fundi um stjórnmálaviðhorfið. Formaður félags-
ins, Hjörtur Hjartar, setti fundinn kl. 8,30, en fundarstjóri
var kjörinn Sigurvin Einarsson, alþingismaður, og fundar-
ritari Ragnar Ólafsson fulltrúi. Fjölmenni var á fundinum.
Frummælandi var Eysteinn Jónsson, fjármálaráðherra, og
flutti hann vfirlitsræðu um stjórnmálaviðhorfið. Var máli
hans afbragðsvel tekið og á eftir urðu fjörugar umræður.
Ráðherrann minnti fyrst á kosn-
ingabaróttuna síðustu og stofnun
umbótabandalagsins.
í kosningabaráttunni hefði verið
lögð áherzla á það aí talsmönnum
Framséknarflokksins, að barizt
væri fyrir því að fá hreinan meiri-
hluta. Það yrði ekki unnið með
Sjálfstæðismönnum eftir kosning-
ar, þar sem stjórnarsamvinnunni
við þá, hefði verið slitið með það
fyrir augum, að skapa ný viðhorf.
Tækist ekki að ná hreinum meiri-
hluta, yrði samt að leitast við að
mynda stjórn, sem hel'ði stuðning
frá semtökum hinna vinnandi
stétta.
Þegar það hefði svo komið í
ljós, að meirihluti á Alþingi náð-
ist efeki, þótt litlu munaði, þá
liefðm verið athugaðir möguleik-
ar á að mynda minnihlutastjórn
umfeétabandalagsins, og komið í
ljós, að slíkt var ekki hægt. Hefði
þá veiið samið við Alþýðubanda-
lagiiS um stjórnarmýndun, og
værl það í fullu samræmi við
þenœsn málflutning fyrir kosn-
ingar.
Sjálfstæðismenn kynnu því
meira en illa að hafa lent utan
stjórnar. Þeir bæru sig illa, en
við þvi hefðu þeir þó átt að búast.
Ráðherrann rakti liina marg-
víslegu nýju löggjöf, sem stjórn-
arflofekarnir hefðu beitt sér fyrir:
Um ræktun og nýbýli, um tog-
araksup, og sagði frá undirbún-
ingi þeirra kaupa, um kaup á
12 siórum fiskiskipum, banka-
löggjófina nýju, íbúðalánalög-
gjöfina nýju og Iöggjöfina lil
stuðmings framleiðslunni. Stjórn-
arflolkkarnir hefðu þegar á fyrsta
samsiarfsþingi komið fram mjög
umfangsmikilli og merkri lög-
gjöf. Væri mi unnið að fram-
kvæsnd þeirrar löggjafar, sem
sett hefði verið í svo miirgum
Þjóðvarnarliðið í Ar-
kansas tekur við
nyju
Nl!B-l,ittle Roek, 1. okióber. —
í dag létu fallhiífarmenn þeir, sem
sambandsstjórnin í Washington
sendi trl Little Rock, af hendi
gæzlu&törf við skólana þar í hend
ur þjöðvarnarliðinu úr fylkinu
sjálfu, iýtur það nú stjórn Eisen-
liovvers forseta. Þjóðvarnarliðinu
var áour skipað a£ fylkisstjóran-
um Faubus, að varna blökkubörn-
um inngöngu í gagnfræðaskóla
bæjarins. Það var m. a. af þeim
sökum, sem: Eisenhovver ókvað
loks að grípa í taumana og senda
fylki úr sambandshernum. Fallhlíf
arherdeildin mun þó ekki yfirgefa
Little Roek.
I þýðingarmikliun greinum.
! Þá ræddi ráðherrann ítarlega
( um framleiðslu og efnahagsmálin,
ráðstafanir þær, sem gerðar voru
'síðast liðinn vetur, og ástand
þeirra mála nú. Kvað hann mjög
I mikla erfiðleika framundan í þeim
efnum og þyrfti það engum að
koma á óvart, sem hefði fylgzt
með gangi framleiðslunnar á þessu
ári.
j Ráðherrann kvað tekjur ríkis-
sjóðs og Útflutningssjóðs bregðast
verulega það sem af væri árinu.í
og væri fyrirsjáanlegur greiðslu-
halli hjá ríkissjóði og útflutnings-
I sjóði, og gjaldeyrisskortur væri
mjög íilfinnanlegur.
| Með ráðslöfunum ríkisstjórnar-
innar s. 1. vetur liefði verið gert
betur við útflutningsframleiðsluna
en nokkru sinni áður í seinni tið.
Stærri fiskifloti hefði haldið til
þorskveiða og síldveiða en nokkru
sinn fyrr. Kostnaður því orðið
óvenjulega mikill og kæmi það
jafnt fram hjá framleiðslunni
: sjálfri og þjóðarbúinu í lieild. Afli
j hins vegar orðið mjög rýr bæði
á þorskveiðum og síldveiðum.
Þetta þýddi, að innflutningur
þeirra vara, sem gæfi mestar tekj-
ur í ríkissjóð og útflutningssjóð
hefði hrapað niður, en innflutning-
ur tollminni vara aukizt. Ráðstaf-
anir ríkisstjórnarinnar og þing-
meirihlutans í framleiðslumálum
hefðu örfað framleiðslustarfið, en
aflabrestur og stóraiikinn innflutn-
ingur höfuðnauðsynja orsakað
gjaldeyrisskort og greiðsluhalla-
rekstur.
Afleiðingar verðbólgustefnu
uiidaiifariiina ára væru þimgar í
skauti enn sem fyrr. Væri mikill
vandi fraimindan að finna réttar
leiðir í efnaliagsmáluiiiim. Núver-
andi stjórnarflokkar liefðu góð
skilyrði til þess að leysa þau mál
á varanlegan og heppilegan hátt
og væri nú þýðingarmest af öUu,
að þeir stæðu fast og vel saman
um nauðsynlegar ráðstafanir.
Þá rakti ráðherrann fjárfesting-
armálin og fjáröflun til fram-
kvæmda innanlands og utan. Gerði
grein fyrir stórfelldum framkvæmd
um í raforkumálum og mörgum
öðrum greinum. Fletti í sambandi
við lánamálin ofan af raupi og
blekkingum Sjálfstæðismanna, svo
sem hann hefir áður gert á Al-
þingi, og nýlega hefir verið rifjað
upp hér í blaðinu. Rakti hvernig
tókst að bjarga Sogsmálinu, sem
var algerlega strandað.
Ráðlierrann lýsti ítarlega þeirri
skoðun sinni, að það væri liöfuð-
nauðsyn að núverandi stjórnar-
| flokkar stæðu fast saman um leiðir
jí vandamálunum, sem tryggðu
i mikla og aukna framleiðslu, meira
ijafnvægi í efnahagsmálum, næga
j atvinnu og um leið þjóðinui meira
1 (Framhald á 2. síðu).
Öll norska þjóðin kvaddi Hákon kon-
ung með einlægri virðingu og þökk -
Otför konungs fór fram í gær í Osló aí viS-
stöddum gífurlegum mannfjölda
NTB-Osló, 1. okt. — Á hádegi 1 dag eftir norskum tíma var
kista Hákonar VII. Noregskonungs látin síga niður í marmara-
kistu í grafhýsi norsku konungsfjölskyldunnar 1 AkerMs-
kastala. Hlaut hinn ástsæli konungur þar hinztu hvíld við
hlið Maud drottningar og Mörtu prinsessu. Sungnir voru þjóð-
söngvar Rretlands og Noregs, en í fjarska heyrðust heiðurs-
skotin, sem hleypt var af frá miklum fjölda norskra og er-
lendra skipa.
ar mínútu þögn til virðingar við
Við athöfnina í Akerhúskapellu hinn látna konung. Svo var kirkju-
voru aðeins viðstaddir nánustu ætt- klukkum enn hringt og eftir það
ingjar og vinir hins látna, svo og hófst kirkjuathöfnin.
þjóðhöfðingjar og fulltrúar þeirra.
Athöfnin í hinni einföldu kapellu Boð fyrir 700 gesti.
EYSTEINN JONSSON
ráSherra
22 smáSestir af blýi
og zinki frá
Meistaravík
Frá l'réltaritara Tímans í Kaup-
manhahöfn. — Danska skipið
Kista Dan ér nýkomin lil Antwerp
en frá Meistaravík á Grænlandi.
Er þetta seinasla ferð skipsins á
þessu ári, en það hefir flutt blý
og zink-grýti frá námunum í Meist
aravík til Bejgiu og Vestur-Þýzka-
lands. Nemur þaö magn samfals
22400 smálestuin og verðmæti þess
í g'ialdeyri talið um 20 milljónir
danskra króna. Aðils.
Fulltrói Japans kjör-
inn í öryggisráðið
NTB-New York, 1. okt. Fulltrúi
Japans var í dag kjörinn í öryggis-
ráðið með 55 atkvæðum, en Tékkó
slóvakía, sem var sluckl af Sovét-
ríkjunum og fylgifiskum þess fékk
25 atkvæði. Auk þess voru fulltrú
ar Kanada og Panama lcjörnir í
ráðið með 72 og 74 atkvæðum. —
Þessir fulltrúar koma í stað full-
trúa Kúbu, Ástralíu og Filippseyja.
Sex af fulltrúum öryggisráðsins
eru kjörnir til tveggja ára í senn,
en hinir eru fastafulltrúar frá stór-
veldunum en alls eru meðlimir
ráðsins 11 að tölu. Kjör japanska
fulltrúans er talinn. mikill ósigur
■fyrir Sovétríkin, sem beillu sér
mjög gegn kjöri hans.
23. stjórnarkreppan
verður torleyst
París, 1. okt. — Cofy Frakklands
forseti hóf í dag' viðræður ýlð leið-
toga stjórnmálaflokkanna um
myndun nýrrar ríkisstjórnar i land
inu. Er þelta 23. stjórnarkreppan
í landinu á þrettán árum. Þykir lík
legt að erfiðlega muni ganga um
stjórnarmyndun. IJklega verður
Soustelle fyrrv. landsstjóra í Alsir
fyrst hoðið að mynda stjórn þar
eð hann réði mestu um andstöðu
hægri manna við frumvarpið. Ekki
er þó talið líklegt að lionum tak-
ist stjórnarmyndun því hann á ann
ars litlu fylgi að fagna. Eitt er tal
ið víst og það er að Pineau verði
ekki utanríkisráðherra í hinni nýju
ríkisstjórn. Hefir hann sætt vax-
andi gagnrýni undanfarið.
var áhrifarík eins og öll jarðarför-
in, sem fór fram af miklum glæsi-
brag og viðhöfn. Var það raunar
ekki óviðeigandi lokaþáttur við
ævilok þessa konungs, sem allt sitt
líf var óbrotinn í lífsháttum og
iiægjusamur.
Öll þjóðin syrgði.
Gífurlegur mannfjöldi var sam-
ankominn meðfram öllum götum,
þar sem iíkfylgdin fór. En um ger-
vallt landið fylgdust Norðmenn
með jarðarförinni í gegnum út-
varp. Fólkið tók ofan höfuðföt sín,
er líkvagninn nálgaðist og margir
grétu. Mikið var af fánum og var
þeim kastað fyrir líkvagninn. Jo-
hannes Smemo Oslóarbiskup flutti
útfararræðuna og jarðsöng, Ilann
lýsti skyldurækrii Hákonar kon-
ungs og' hvernig hann varð þjóð-
hetja Norðmanna á örlagastund.
f dómkirkjunni.
Dómkirkjan var fagurlega
skreytt og þar var eins margt fólk
og framast rúmaðist. Ólafur V.
konungur settist til hægri handar
við kistuna, en vinstra megin sátu
þjóðhöfðingjar með konungsnafn
og ríkisforsetar Finnlands og ís-
lands. Er ríkisstjórn landsins og
fulltrúar hinna mörgu starfsgreina
og stofnana í Noregi höfðu tekið
sér sæti, hljómaöi orgelspil, síðan
kváðu við þrjú slög frá kirkju-
klukkunum, en þar næst var einn-
Að lokinni jarðarförinni hafði
(Framhald á 2. síðu).
Látið athuga ljósin!
Á fyrsta degi hinna ókeypis ljósa
stillinga var komið með 397 bif-
reiðir á verkstæðin.
Af þeim reyndust 72 vera með
rétt ljós, 177 fengu ljós sín stillt
og 108 þurftu meiri viðgerð en
unnt var að framkvæma við það
tækifæri.
Þetta sýnir að full þörf er á
slíkri athugun, sem hér fer fram
og eru umráðamenn ökutækja
hvattir til þess að nota þetta tæki
færi.
Varðandi utanbæjarbíla ósk-
ar Umferðanefnd að taka fram að
þeir hafa aðgang að þessum stíll
ingum jafnt og bifreiðir skráðar
í Reykjavík. Þetta var ekki nægi-
lega tekið fram í upphafi.
Varð 101 árs í gær
í gær varð Guðmundur Jónsson
fyrrum baðvörður í Reykjauik,
luiiidrað og eins árs. Guðmundur
er til heimilis á Elliheimilinu
Grund og er Iiinn hressasti þrátt
fyrir þennan liáa aldur. Guðmund
ur hefir enn fótavist.
V erkamannaf lokkurinn brezki ætlar
að koma á hækkuðum ellitryggingum
Bevan endurkjörinn gjaldkeri flokksins
NTR-Brighton, 1. okt. — Á flokksþingi jafnaðarmanna í
Bretlandi var í dag mörkuð sú stefna, að ellilaun skyldu þeg-
ar í stað tvöfölduð frá því sem nú er og ennfremur að því
stefnt að allir, sem ná hámarksstarfsaldri skyldu fá greiddan
helming af Jaunum sínum við lok starfsævi sem ellilaun. Mun
þetta mál væntanlega verða eitt helzta kosningamál við næstu
þingkosningar. í áætlun, sem floltksþingið hefir samþykkt
um þetta mál, er gert ráð fyrir að launþegar og aðrir greiði í
ellilaunasjóð sem svarar 3% af launum sínum. ■
Ákvæðin um, að ellilaun ^kuli
svara til helmings af launum við
lok starfsaldurs takmarkast þó
þannig, að reglunni er ekki fylgt
eftir að launin eru komin yfir visst
hámark.
Nokkrir mótfallnir.
Allmargir af þingfulltrúum létu
í ljós andúð á áætlun þessari eins
og hún lá fyrir. Sögðu að hún væri
ekki í samræmi við sjónarmið jafn
aðarmanna, þar eð ellilaun yrðu
mishá. Með þessu væri einingu
verkalýðsins stefnt í voða og lík-
legt að mismunandi hagsmunahóp
ar mynduðust á þessum grund-
velli. Samþykkt var einróma áskor-
un um að ellilaun skyldu þegar í
stað. hækka um helming frá því
sem nú er.
Bevan gjaldkeri.
Kosið var í stjórn flokksins og
urðu á henni litlar breyitingar. Var
kjörið mjög friðsamlegt, sem er
nokkur nýlunda hin síðari árin. —
Virðist bilið milli hægri armsins
og Bevans manna fara minnkandi
og friður hafa skapazt. Ástæðan er
vafalaust sú, að Bevan hefir verið
tryggð utanríkisráðherrastaðan í
hugsanlegri stjórn Verkamanna-
flokksins. Hann var að þessu slnni
endurkjörinn gjaldkeri flokksins.
Það varð helzt til tíðinda, að Sid-
ney Silvermann náði ekki endur-
kjöri í stjórn flokksins, féll fyrir
fyrrv. gjaldkera James Gallagan.