Tíminn - 02.10.1957, Blaðsíða 4

Tíminn - 02.10.1957, Blaðsíða 4
4 T í MIN N, miðvikudaginn 2. október 1&57, Óvanalegur krankleiki - Þrjár undir samaskinni - Ákkur fyrir sálfræð- inga - Ahrifarík kvikmynd - Ný leik- kona - Leysti af á Broadway - John- son kemur í leikhúsið - Þér eruð ráðin Eftir Gunnar Leistikow GROÐUR OG GARÐAR INGOLFUR DAVIÐSSON LitbrigSi haustsins Fyrir nokkrum árum var vakin athygli á óvanalegu sjúkdómstilfelli í bandarísk- um blöðum. Það mun vera sjaldgæft, að skapgerð manna klofni þannig, að þeifj komi fram til skiptis sem ó- líkir einstaklingar með ólík-1 ar tilhneigingar, ólík áhuga- mál og venjur án þess að hvor hinna tveggja persónu- gerfinga hafi hugmynd um tilveru hins. Sjúklingurinn sem var lífsþreytt og útslitin húsmóðir, hagaði sér^ stundum eins og glettin og létt-' lynd stúlka og hugsaði þá aðeins um veizluhöld, klæðnað og daður, en síðar breyttist skapgerð henn- ar og kom hún þá fram sem al- varleg og hugsandi, en innst inni raunverulega hamingjusöm kona. Þessar þrjár skapgerðir, sem til að byrja með voru óvitandi hver um aðra, fóru nú að uppgötva sína þreföldu tilveru og berjast innbyrðis og gera hver annarri ýmsar skráveifur. Þessi þrílclofn- ingur var auðvitað hinn mesti akk- ur fyrir sálfræðinga, því þar komu fram hinar þrjár hliðar sálarlífs- ins, sem Freud talar um, skýrt af- markaðar hver frá annarri. En fyrir fjölskyldu konunnar olli þetta hinum mestu erfiðleikum. Litla dóttir hennar ætlaði varla að þekkja mömmu sína, þegar hún birtist í sínu léttúðuga gerfi og hljóp í burtu full örvæntingar. Læknarnir áttu í brösum með að fullvissa hinn einfalda mann kon- Joanne Woodward: Þrjár undir sama skinni. Joanne meS bókina ,The Thre Face of Eve" unnar um, að framkoma hennar væri ekki tómur leikur og að hún væri alvarlega veik. Þessi krankleiki konunnar var ekki aðeins einstæður sem slíkur. Hann var ekki síður einstætt sig- urtákn fyrir nútíma sálarfræði. Læknunum heppnaðist nefnilega að veita konunni bata. Það gerðist þannig, að bæði hin þunglynda og óstýriláta skapmynd hurfu og eft- ir varð hin heilbrigða móðir og eiginkona. Ný leikkona Læknar konunnar hafa ritað bók um þetta tilfelli og 20th Century- Fox hefir nú látið gera kvikmynd eftir sögunni. Kvikmyndin, „The Three Faces of Eve“, hefir enn ekki verið frumsýnd meðan þessar línur eru' ritaðar, en hefir verið sýnd blaða-! mönnum. Myndin er mjög áhrifa-| rík og 'saga sjúklingsins rakin greinilega. Þótt hún sé framleidd og sviðsett af þekktum kvikmynda tökustjóra, Nunnally Johnson, er hún eins og aðrar myndir sömu tegundar nökkuð gölluð, vegna þess hve erfitt er að samræma slikt efni hálfs annars tíma sýn- ingu í kvikmyndahúsi. Samt sem áður verður myndin að teljast á- hrifarík. Leikurinn í myndinni hvílir svo að segja allur á einni og sömu manneskju. Það er ung og til þessa óþekkt leikkona, sem fer með hlutverk sjúklingsins og sýn- ir hinar þrjár aðskiljanlegu skap- gerðir. Stórkostlegt er að sjá, þegar Joanne Woodward, til þessa óá- sjáleg, þreytt og veikluð húsmóðir stendur upp og breytist í ástleitið og tælandi stúlkubarn; ellegar þegar hún tekur á sig reisn og virðuleika hinnar þroskuðu konu. Klofnun skapgerðar, minnisleysi og annað af því tagi hefir áður verið tekið til meðferðar á tjald- inu. En það hefir gerzt með skreyitlist, grímum og öðrum með- ( ulum eins og t. d. í hinni sígildu | „Dr. Jekyll og Mr. Hyde“. Þar er klofnunin gerð sýnileg á táknræn- an hátt. Joanne Woodward notar ekki svo mikið sem varalit. Við sjáum hina óhamíngjusömu móð-, ur grafa andlitið í höndum sér. Augnabliki síðar, án þess að myndatakan liafi verið stöðvuð og án þess að hárgreiðslu- og snyrti- dömur hafi gripið inn í, sýnir hún allt aðra veru, sem lyftir and- litinu úr höndum sér. Svipbrigðin eru önnur, röddin og limaburður- inn frábrugðinn. Jafnvel kjóllinn, sem hékk eins og poki utan á hús-| móðurinni verður eins og falleg umgjörð utan um hið tælandi stúlkubarn. Leikurinn virðist byggður á næstum óhugnanlegum innlifunarhæfileikum. Leysti af á Broadv/ay Vert er að geta þess, hvernig Nunally Johnson fann þessa ó- þekktu stjörnu. Joanne varð ekki óbarin biskup. Varla er of djúpt tekið í árina að segja, að hún hafi fæðst inn á leiksviðið. Þriggja ára kom hún fyrst fram á leik- sviði. Meðan hún gekk í skóla var hún handviss um, að hún vildi gerast leikkona. Hún gekk í leik- listarskóla í New York og lauk þar almennu leiknámi. Hún kom fram í sjónvarpi áður en hún fékk starfa við leikhús og lék þá stund- um á móti Gregory Peck og Rob- ert Montgomery. — ii —iuii'i" iwmi i b— Þegar Joanne barst til eyrna, að óskað væri eftir leikkonu til að leysa af í hlutverkum systr- anna tveggja, hinnar friðu og hinn ar ófríðu, í lejkritinu ,,Picnic“ eftir William Inges, sem flutt var á Broadway við mikla aðsókn, gekk hún fyrjr leikstjórann, Josh Logan, í tilheyrandi búningi og Ias hlutverk systurinnar ófríðu. „Ágætt!“ hrópaði Logan. „Ef þér væruð nú bara svólítið flott- ari ... Við þurfum á leikkonu að halda, sem getur leyst af í báð- um hlutverkum". En Joanne varð ekki rekin á stampinn. Hún losaði um hárið, klæddi sig úr jakkanum og lapp- aði svolítið upp á snyrtinguna og var þá tilbúin að lesa hitt hlut- verkið. „Fyrirtak“! hrópaði Logan hrif- inn. „Og nú lítið þér fjandakornið vel út. Þér eruð ráðin.“ Joanne hafði heppnina með sér. Báðar leikkonurnar sem hún leysti af vorú einatt fjarverandi og lék hún bæði hlutverkin fimmtíu sinn- um. Einn leikstjóranna, sem sá Joanne í báðum hlutverkum var Nunally Johnson. Það var einmitt um það leyti sem hann var á hnot skóg eftir leikkonu til að taka að sér hlutverk hinnar geðbiluðu hús móður. Þegar hann hafði séð Jo- anne leika bæði hlutverkin var hann ekki lengur í vafa. Allir þekkja íífuna Ihvitu. Þegar líður á sumarið roðna blöð henn- ar og kallast rauðbreyskingur eða ihringabrok. Þau fara snemma í (haustbúninginn. Núna í septem- berlok skarta tré og runnar í haust litum sínum. Reyniberin eru orðin ifagurrauð og girnileg fyrir skóg- aiþrestina og ágæt í aldinmauk fyr ir mannfólkið. En meðan þau voru að þroskast voru þau ósjáleg og fæstir tóku eftir þeim. Lyngbrekk ur og skóglendi er nú furðu lit- skrúðugt. Ber mikið á rauðum, | torúnum og gulum litum. í görðun-| um eru rósalauf og reyniviðarblöð víða orðin rauð og brún — og víði- lauf gulnað. Lauf bjarkanna gul- brún, flekkótt og rauð, ribsið gul- grænt, sigurskúfurinn blóðrauður, Jivönnin fölhvit og ’hin stóru blöð. Alaska-asparinnar gulbleik og víða -með svarta jaðra. Innanum standa tré með algrænu laufi. Valda því jarðvegsskilyrði, éburður o. fl. Þaðj er blindur maour, sem ekki undr-! ast fegurð haustlitanna. „Aftan- sunna þegar þýð um þúsundlitan skógi‘nn“, kvað Steingrímur Thor-j steinsson. — Grasblettir og móari taka líka litaskiptum með haust-j inu. Sérhver árstíð á sinn fegurð- arljðma. Náttúran hefir „hamskipti“ á 'haustin. Grænu litirnir dofna, lauf- vindarnir blása. En fyrir lauffallið, skrýðist skógurinn og lyngið rauð- um, gulum og brúnum litum. Það er lauffallshátíð trjánna. Hvað veldur? Laufið springur ú>t á vor- in, fagurgrænt og frísklegt. Það gegnir hlutverki sínu að vinna kol- e/fii úr loftinu allt sumarið. Þá er jafnvægi í lí'fsstarfseminni. En þeg ar liður að hausti, og laufið tekur að eldast, verður breyting á. Nær- ingarstarfsemin minnkar, mikilvæg efni flytjast úr laufinu, án þess að jafnmikið sé unnið eða byggt upp í staðinn; haustlitirnir koma í Ijós. Venjulega ber mikið á rauðu haust litunum, áður en hinir gulu láta að sér kveða. Ekki myndast samt rauðu litarefnin í laufi allra trjáa, en allt lauf gulnar. Blaðlitirnir teljast til þriggja aðalflokka. Blað- grænan veldur hinum venjv.Iegu grænu litum, en í henni eru einn- ig tvö gul litarefni Xantofyl og kahótín. XantOfyl er líka í ýmsum gulum blómum, t. d. páskalíljum, en karótín einkum í gulrótum. Þgssi þrjú lilarefni leysast ekki upp í vatni. En rauð litarefni. upp leysanleg í vatni, eru í sumum plöntum, t. d. í rauðrófum. Sá efnaflokkur kallast anthocvaner og stendur í sambandi við mikinn syk ur í frumunum. Bláberjalyn.s verð ur einnig stundum rautt og rytju- legt vegna sveppaskemmda. Brún- ir haustlitir eru algengir. En ekki veldur þeim neitt litareíni, heldur orsakast þeir af efnabreytingum í dauðu laufi. Þetta er sams konar breyting og þegar sundurskorin kartafla eða epli dökknar vegna á- hrifa súrefnis loftsins. Oft eiga mörg litarefni þátt í litbrigðum laufsins á haustin. Haustlitirnir eru háðir flutningi mikilvægra ðfna frá laufinu.' Efnagreipingar sýna, að þatta byrjar venjulega á (Framh3ld á 8. síðu). Reyniviður og reyniber. Aðalfundur Verzlunarráðs íslands haldinn í síðastl. viku. Aðalfundur Verzlunarráðs ís- lands var haldinn í húsakynnum ráðsins í Reykjavík dagana 26. og 27. þ. m. f upphafi fundarins minntist Gunnar Guðjónsson, for- maður ráðsins, kaupsýslumanna, er látizt höfðu frá því að síðasti aðalfundur var haldinn, og vott- uðu fundarmenn hinum látnu virð- ingu sína með því að rísa úr sæt- um. Fundarstjórar voru kosnir þeir Árni Árnason og Hjörtur Ifjartar- son. Fundarritari var Sveinn Finns son. Formaður ráðsins, Gunnar Guð- jónsson, flutti ræðu um efnahags- mál þjóðarinnar. Þorvarður J. Júlíusson, fram- kvæmdastjóri ráðsins, flutti skýrslu um störf stjórnar ráðsins á starfsárinu. Ýmsar nefndir störfuðu á fund- inum, m. a. viðskipta- og verðlags- málanefnd og nokkrar ályktanir voru gerðar. KOSNINGAR. ^ Stjórn V. í. skipa nú eftirtaldir menn. Tilnefndir af félögum; Stefán Thorarensen, ísleifur Jóns- son, Gunnar Ásgeirsson, Júlíus Björnsson, Hans R. Þórðarson, Páll Þorgeirsson, Gunnar Guðjónsson, Egill Guttormsson, Björn Hall- grímsson og Gunnar Friðriksson. Kosnir; Hallgrímur Fr. Hall- grímsson, Þorvaldur Guðmundsson, Othar Ellingsen, Magnús J. Brynj- (Framhald á 9. síðu). Alaskaosp að hausti. I/ > .1. ðf ...Lií'Iv Þ fl . . .. . ..... Haustlitir í gulvíði og bjarkarlaufi.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.