Tíminn - 17.10.1957, Page 2

Tíminn - 17.10.1957, Page 2
z TÍMINN, fimmtudaginn 17. október 1957. Kirkjan haldi stefnu að taka beinan þátt SpjallatJ vitS dr. Hal Koch, sem hingati er kom-- inn til ati halda íyrirlestra og á ekki orð tii a"ð lýsa atJdáun sinni á Reykjavík Hér á iajidi.ec staddur dr. Hal Koch, prófessor í kirkjusögu við háskólann í Kaupmannahöfn og hefir hann þegar flutt þrjá fyrirlestra, tvo um Konstantínus mikla, en einn um þróun kirkjumála og menningarlífs í Danmörku á dögum Grundtvigs. Blaðama'ður frá Tímanum átti í gær stutt samtal við prófess- orinn, þar sem hann dvelur á Hótel Borg. — Hvað getið þér frætt mig um stöðu kirkjunnar í Danmörku um þessar mundir er almenn þátttaka í kirkjulífi? — Þetta er stór spurning og maetti svara henni með löngum fyrirlestri, svaraði dr. Koch bros- andi. Mér er óhætt að segja að kirkjan sé vinsæl og almúginn beri. virðingu fyrir henni, hún á enga hættulega andstæðinga, en aftur á móti er almenn kirkjusókn .fremur lítil. Friður í trúmálum. — Nokkrar áberandi stefnur inn an kirkjunnar sjálfrar? Deilumál meðal guðfræðinga? — Nei, þetta gengur allt ósköp rólega fyrir sig, engin stórtíðindi og friður ríkjandi mestanpart. Það er af sem áður þegar slagurinn stóð milli Grundtvigs og heimatrú boðsins, nú er það helzt prófessor Linhardt sem velcur deilur með kenningum sínum, en það er alitof flókið mál að útskýra það allt saman. Grundvigsinnar voru mun jákvæðari í baráttu sinni og stefna þeirra var frjálsiyndari, þeir tóku snaran þátt í menningarbaráttu af ýmslu tagi en einskorðuðu sig alls ekki við trúmál. Til dremis studdu þeir framgang samvinnu- stefnunnar af ráði og dáð. — Hvað um æskulýðin í Dan mörku? Beinist áhugi stúdentanna fremur að vísindalegum og tækni legum verkefnum en húmanistísk um fræðum. . — Síður en svo. Okkur vantar einmitt verkfrææðinga og tækni menntaða menn. Hins vegar eig- um við nóg af húmanistum og það er ekkert lát á þeim sem leggja fyrir sig þau fræði. — Guðfræðistúdentar? — Tala þeirra hefir heldur rýrn að á seinni árum. En samt sem áður eru nógir ungir menn sem vilja leggja fyrir sig prestskap og við þurfum síður en svo að ör- vænta. Kirkjan á ekki að taka þátt í stjórnmáluin. — Og viðhorf æskunnar gagn- vart trúmálum? — Það eru að vísu engir öflug ir straumar í þá átt en æskan virðist vera fremur jákvæð gagn vart kristindómnum. Lýðháskól- arnir láta einkum trúmál til sín taka og eru einna sterkastir í bar áttunni. En það er ekki eins mik ill hiti í þeim málum og áður. Það er komið á jafnvægi. Er nokkur munur á þeirri af stöðu sem hinir ýmsu stjórnmála flokkar taka til kristindómsins? — Það er í raun og veru ekki svo mikill munur á stefnu stjórn málaflokkanna í Danmörku, hjá okkur eru kommúnistar afar lítill flokur og því ekkert vandamál eins og hér á Islandi. Stjórnmála flokkarnir eru hlynntir kirkj- unni? Auðvitað, hvað annað? Stjórnmálaflokkar eru stjórn- málaflokkar. ,— Haldið þér að kirkjan geti beitt áhrifum sínum í stjórnmál um? — Það er ekki hiutverk kirkj unnar að taka þátt í stjórnmálum. Hún gæti þó reynt að bera klæði á Vopnin ef til ófriðar horfir. Virð ist yður líta friðvænlega út í heim inum? Gæti kirkjan ekki haft ein hver áhrif í þá átt að sætta austrið og vestrið? j \— Heima í-Danmörku á austrið lítil ítök og því ekki þörf á neinu! br§mbQfti, af kirkjunnar hálfu. j Én' á alþjóðavettvangi? Dr. Hal Koch er kvæntur kirkjumála ráðherra Dana, frú Bodil Koch. A5- spurður hvernig honum þaetti aS vera kvaentur ráðherra svaraði pró- fessorinn: „Det er hyggeligt". — Eg álít að kirkjan geri bezt í því að halda áfram starfsemi sinni eins og hún liefir gert um aldaraðir, ég efast um að nokkur hagur væri í því að hún færi að skipta sér beint af alþjóðapólitík en vissulega ber henni skylda til að hafa góð áhrif eftir því sem í hennar valdi stendur. Nú rís prófpssorinn _úr sæti, gengur þvert yfir herbergið og horfir út um gluggann á blómum skrýddan Austurvöll sem blasir við, ljómaður björtu sólskini milli skúra. Þótti mest konia til Reykjavíkur. — Eigum við ekki að tala um eitthvað skemmtilegra? Hvernig væri að spyrja mig hvernig mér litist á Reykjavík? — Það eru allir útlendingar spurðir um það, malda óg í móinn, þeir segja allir að þeim lítilst ó- sköp vel á allt, landið sé fagurt og fritt og fólkið stórgáfað og há menntað. — Eg varð mest hrifinn af Reykjavík og ég verð að taka það fram, segir prófessor Koch áfjáð ur. Eg er miklu hrifnari af Reykja vík en landslaginu og náttúrunni og hef þó komið á Þingvöll og í Skálholt. Eg verð að segja að þetta lók öllu fram sem ég hafði ímyndað mér. Eg bjóst við heldur fátæklegu og drungalegu plássi, en það segi ég satt að þetta er líflegasta borg sem ég hefi komið í. Hér er allt svo nýtt og það er auðséð að allt er gert til að fegra bæinn. Þó dáist ég mest af dirfsku stórhug þeirra sem skipuleggja bæinn og teikna húsin. Eg féll í stafi þegar ég sá Neskirkjuna, það var eins og hressandi andblær af himni að sjá hana. Og hringtorgin háskólahverfið og Þjóðminjasafn ið. Þetta er allt stórkostlégt. Það er eins og það sé stöðug hátíð í bænum. Allt nýtt og lifandi, margt í sköpun ennþá. Það er ósköp skiljanlegt að þið eigið i fjárhags örðugleikum, það kostar peninga að sýna þennan stórhug í verki. Eg á ekki orð til að lýsa aðráun minni. Þegar ég sá Þjóðminjasafn ið skildist mér hve réttmæt krafa ykkar um endurheimt handritanna er. Ef þið búið eins vel að hand ritunum og búið er að fornminj um þá er ekki mikið að óttast. — Já, vel á minnst, handritin. Þér eruð prófessor við Kaup- mannahafnarháskóla. Okkur Is- lendingum hefir fundist anda köldu á móti okkur þa'ðan. — Já, ég verð að játa að meiri hluti háskólakennara er mótfall inn afhendingu handritanna. Per sónulega er ég í'ylgjandi því að Islendingar fái handritin og það sem fyrst. En ég tel ólíklegt að úr-því verði í náinni framtíð. Það er ekki líklegt að handritunum verði skiláð. fyrr en sósíaldemó- kratar fái hreinan meirihluta á þingi. Starcke er harðsnúnasti andstæðingur Islendinga í þessu máli. — Jú, við höfum heyrt mannsins getið. —- En lýðháskólarnir hafa gert Isleningum ómetanlegt gagn með skrifum sínum. Eg get fullyrt að tímaritshefti þeirra af UDSYN sem helgað var handritamálinu hef ur haft geysileg áhrif. Það opnaði augu margra fyrir því óréttlæti sem Islendingar hafa verið beittir. Það þarf umfram allt að upplýsa lærða og leika í Danmörku hvað sé raunverulega um að ræða. Al- menningur veit næsta lítið um mál ið og sama má segja um marga á- hrifamenn meðal menntamanna og stjórnmálamanna. Þeir hafa fengið upplýsingar um málið úr rangri átt. En UDSYN gérði mik ið gagn og það þarf að halda bar áttunni slitlaust áfram. Það hlýt ur að koma sá dgur að handritin verði flutt heim til Islands. Prófessor Hal Kóch kveður okk ur með hlýlegu handtaki og breiðu brosi. Kritjsán DavíSsson opnar málverka- sýningn í Sýningarsahmm Kristján Davíðsson og eitt málverka hans í Sýningarsalnum Fjárlagaræðan (Framhald af 1. siðu). Loks svaraði fjármálaráðherra nokkrum firrum stjórnarandstöð- unnar og kvað þessar umræður hafa sýnt enn einu sinni, að hún ætti engin úrræði; fram að bera fremur en fyrr, Þar hefði ekki örl- að á neinum nýjum tillögum, og hefði ekki til slíkra tillagna frétzt síðan endemistillögur Ingólfs Jóns sonar gufuðu upp. Stjórnarandstað an hefði því sem fyrr brugðist skyldu sinni. Sjálfstæðismenn liefðu sem fyrr ekkert h.ift til landsmálanna að leggja. Ráðherrann hvatti að lokum alla landsmenn til þess að kynna sér sem bezt fjárlagafrumvarpið og upplýsingar fjárlagaræðunnar og minnti á, að fjárlagaafgreiðslan snerti hvert einasta mannsbarn í landinu. Starfsemin í Sýningarsalnum við Hverfisgötu heldur áfram. í gær opnaði Kristján Davíðsson mál- verkasýningu og stendur hún til 25. október. Kristján sýnir 24 mál verk og nokkrar teikningar. Allt ný Verk og-máluð á þessu ári. Kristján Davíðsson stundaði nám hjá Barnesstofnunni í Banda ríkjunum árin 1945—47 og hlaut hann náms- og skólastyrk frá stofn un þessari. Hann hélt einkasýningu í Inter national Student House í Fíla- delfíu árið 1946. Síðar fór hann námsferð til Fraklands og 1950 hélt hann einkasýningu í Lista mannaskálanum. Kristján hefir tekið þátt í öllum Norðurlandasýn ingunum nema þeirri fyrstu, svo og öðrum málverkasýningum á Norðurlöndum og í Brussel. í listiðnaðardeild Sýningarsalar ins kemur nú daglega á markað ný „batik“ eftir Sigrúnu Jónsdótt Bevan og Gaitskell ræSa vií> Macmillan London, 15, október:: Þeir Gait skell og Bevan gengu í dag á fund Macmillans forsætisráðherra í Downingstreet í London. Var fundur þessi haldinn samkvæmt beiðni Verkamannaflokksleiðtog- anna. Þeir ræddu einkum við for sætisráðherrann um málefni land anna fyrir botni Miðjarðarhafsins ekki sízt atburðina í Sýrlandi. Fundurinn stóð í 20 mínútur. Bjarni frægður í Morgunblaðinu í sama stíl og íslandsvinurinn Lúsoddi ur, einnig skartgripir eftir Sigríði Björnsdóttur og svisslendinginn diter rot. Fyriríestur um verka Sýðsmál í Tjarnarbfó Harold Atkin, verkaiýðsmálafull trúi brezka sendiráðsins í Helsinki, sem starfar jafnframt sem slíkur fulltrúi við sendiráðin hér og í Nor egi, mun flytja fyrirlestur í Tjarn- arbíói kl. 2 e. h. laugardaginr. 19. október. Fyrirlestur hans, sem nefnist „Verkalýðsfélög í nútíma þjóðfélagi“, verður fluttur á ensku og snúið á íslenzku jafnóðum. Að fyrirlestri loknum veröur sýnd kvikmyndin „Brezkt verkalýðsfé- lag.“ Öllum er heimill aðgangur meðan 'húsrúm leyfir. Innstæðuaukningin í fyrra og nú Eins og kunugt er hefir það verið eitt helzta árásarefni Sjálf stæðismanua á núverandi ríkis stjórn, að hún ætti ekki traust sparifjáreigenda og sparifjárinn stæður í bönkum og sparisjóðum myndu stórmiunka. Fclagsmálaráðherra gaf af þessu tilefni þær upplýsingar í gærkveldi í útvarpsumræðun- um, að fyrstu 7 mánuði ársins 1956 þ. e. síðustu mánuðina sem íhaldið var í stjórn, jukust inn stæðurnar um 98,9 millj. kr. en fyrstu sjö mánuði þessa árs juk ust þær um rúmlega 140 millj. Þannig eru staðreyndirnar uin þennan ár.óður Sjálfstæðismanna. S. 1. sunnudag birtist mjög merki leg grein í pistli Velvakanda í Mbl. Er þjóðinni þar bent á, hvílíkrar náðar hún verði aðnjótandi, þar sem hinn verðlaunaði snillingur Bjarni Benediktsson ritstýrir Morgunblaðinu. Er ekki vðihlítandi annað en menn fái 'að sjá grein þessa í lieilu líki, og fer hún því hér á eftir: Verðskulduð verðlaun. Nýlega hafa verið veitt verðlaun úr minningarsjóði Björns Jónsson- ar, Móðurmálssjóðnum. Verðlaun þessi eru, sem kunnugt er, veitt fyrir gott mál og góðan stíl. Að þessu sinni hefir aðalritstjóri Morg- unblaðsins, Bjarni Benediktsson, hlotið þessi verðlaun og þar með viðurkenningu okkar færustu manna. Skólar landsins útskrifa árlega mikinn fjölda æskufólks, sem að- eins hefir numið undirstöðuatriði móðurmálsins. Andlegur þroski þessára ungmenna og um leið næm leik þeirra fyrir fegurð málsins, fer að mestu leyti eftir því lesmáli, sem fyrir þeim verður. Dagblöðin eru það lesmál, sem mest er lesið og mest áhrif hefir á málsmeðferð þjóðarinnar, Þáð er því þýðingarmikið að dagblöðin séu vel skrifuð á góðu og fögru máli. Morgunblaðið er. stærsta og út- breiddasta dagblað landsins, er les- ið af svo að segja hverju manns- barni á landinu. Það er því ánægju- efni hverjum sönnum íslending að ! svo ritfær maður sem Bjarni Bene- diktsson er skuli stjórna því og þannig hjálpa til að móta og auka ' næmleik þess æskufólks, sem vex upp í byggðum landsins, fyrir þeim fegursta gimsteins, er þjóðin á, móðurmálinu. | Pétur Sturluson, Álaifossi. I Að loknum lestri þessarar hug- vekju vaknar að vonum forvitni manna um það, hvor hinn mjkli spámaður, Pétur Sturluson á Ála- fossi, sé. Má kynlegt kalla, að nafn | þess manns, er slík vísdómsorð mælir, skuli ekki þjóðkunnugt fyr- ir. Augljóst virðist að minnsta kosti að hér sé ekki minni maður á ferð en hinn kunni „íslandsvinur" Lús- oddi, sem Morgunblaðið gat að verðleikuro á sjötugsafmælinu, enda virðist þeim um margt .svipa saman. Virðist sú skylda hvíla ótví- rætt á Morgunblaðinu að kynna manninn nánar, helzt birta mynd af honum. Gæti Moggi þá haft snilligreinina um Lúsodda til fyrir- myndar. Að því loknu væri vel til fallið, að Bjarni tæki Sturluson í móðurmálstíma, og mundi hann vafalaust geta aukið nokkuð „næm- leik“ hans á móðurmálinu, svo að hann gæti frægt Litla-Nóbel á Mogga enn betur í næstu grein. Gæti Bjarni þá um leið gefið Pétri smávegis leiðbeiningu um það, hvernig menn „komast til fjár og frama“, eins óg Eggert. Allir f jallvegir færir á Austurlandi Frá fréttaritara Tímans á Reyðarfirði. Einstök haustveðrátta er búin að vera hér um slóðir að undan förnu og ekki hægt að segja að snjóföl hafi sést, nema til fjalla í fjarlægð. Ekki liafa komið nema þrjár frostnætur í haust. Þessi góða veðrátta hefir líka komið sér vel, við slátrun og aðrar haustannir og flutninga. Vegir aliir eru færir og einnig hæstu fjallvegir á Austurlandi um Fjarð arheiði til Seyðisfjarðar, Odd- skarð til Neskaupsstaðar og Fagri dalur milli Reyðarfjarðar og Hér aðs. Slátrun er senn að ljúka hjá Kaupfélagi Héraðsbúa.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.