Tíminn - 17.10.1957, Blaðsíða 3

Tíminn - 17.10.1957, Blaðsíða 3
T í M I N N, finuutudaginn 17. október 1957. 3 Hin eilífa hringrás. GROÐUR OG GARÐAR INGOLFUR DAViÐSSON Sólin skín ©g grasiS grær Gróðurinn er undirstaða lífsins á jörðinni. Hann hagnýtir orku frá sólinni til að vinna kolefni úr loftinu, en slíkt geta dýrin ekki. Sérhver jurt er furðuleg efnaverk- smiðja, sem breytir kolefninu úr loítinu og vatni með steinefnum, sem rótin sýgur úr jarðveginum, í lífræn efnasambönd. Menn og dýr liía á gróðrinum, bæði beiniínis og óbeinlínis. FLskseiðin o. fl. smá- dýr í sjónúm lifa á örsmáum jurt- um, sem berast fyrir straumnum og kallast rek eða svif. Rándýrin eru líka alveg fiáð gróðrinurn, því að þau lifa á grasbítum og aldin- ætum. Myndin sýnir þetta glöggt: Sólin skín, maísjurtin notar orku sólargeislanna til vaxtar. Músin gæðir sér á hinum gildu, matar- miklu maísöxum í geymslunní og útifyrir bíður kötturinn albúinn að 'hremma músina. Orku sína, fjað- urmagn og mýkt 'þiggur kötturinn í raun og veru frá sólinni og gróðr inum. — — Mestur hluti mann- kynsins lifir beinlínis á jurtafæðu aðallega. Margs konar gróður er notaður til iðnaðar, krydds, lækn- islyfja, skrauts o. s. frv. Flestar al- gengar matjurtir iliafa verið rækt- aðar u>m afarlangan aldur, sumar í margar þúsundir ára. Þær hafa smám saman tekið miklum breyt- ingum, svo oft reynist ógerlegt að vita með vissu ilivaðan þær eru upprunnar og til íhvaða viliijurta þær eiga kyn sitt að rekja. Fjöl- mörg afbrigði íhafa myndast m,eð úrvali og kynbótum. Eru afkvæm- in oft furðu frábrugðin fornum forfeðrum sínum. Berið t. d. stóra ofkrýnda gróðurihúsarós saman við villtu íslenzku þyrnirósina, eða stjúpublómin saman við villifjólur, hvítkál og blómkál saman við villi- bál eða akurkál o. s. frv. Sama sól- in skín á þetta allt saman. En flest ar „tilbúnar“ tegundir þurfa frjó- saman jarðveg og góða umhirðu, ef þær eiga að halda yfirburðum sínum og uppskerugæðum. Ella Vaxa villijurtirnar þeim yfir höf- uð, því að þær eru oftast nægju- samari. Margar nytjajurtir eru komnar frá hinum gömlu menningarlönd- um við austanvert Miðjarðarhaf, t. d. salat, spínat, rauðrófur, hreðk ur, fíkjur, kirsuber o. fl. Austan úr Asíu eru lika gúrkur, tejurtirnar, ýmsir matarlaukar og blómlaukar, appelsínur, sítrónur, bananar, hinn í'orni og frægi vínviður o. fl. (en vínviðurinn hefir síðar verið kyn- bættur með amerískum vínvið). Afríka hefir lagt til olíupálmann, döðlupálmann, pelagóníurnar, sem við ræktum til skrauts í gluggum o. fl. Frá Suður-Ameríku eru kar- töflurnar, tómatarnir, tóbaksjurt- in, kakó, maís o. fl. Vestanverð Evrópa er heimkynni káls og rófna, gulrótanna, ribsrunna, stik- ilsberja o. fl. Alaskaösp og sitka- greni höfum við nýlega flutt inn frá Alaska o. s. frv. Af sumum teg- undum ræktum við afbrigði frá Asíu eða austanverðri Evrópu, en önnur frá Vesturheimi. Má segja, að í görðurn, gróðurhúsum og stof' um, séu ræktaðar tegundir frá flestum löndum heims, en fátt ís- lenzkra jurta eða trjáa. í hlaðvörp unum lifa margar jurtir, sem hafa , borizt til landsins með mönnum I og varningi á landnámsöld og síð- ■ ar, og þeim fer enn fjölgandi. Á 1 gömlu túnunum. vaxa íslenzkar '' grastegundir, en í nýrækt mest úí- I lendar tegundir, eða erlendir í stofnar aí hinum innlendu. En ut- an túns, í holtum, hlíðum, mýr- lendi o. s. frv. heldur hinn „upp- runalegi“ gróður landsins enn velli. Skógarnir eru ennþá birki- skógar „skreyltir reynitrj'ám“ og víðirunnum. Samt hafa útlend skóg artré bætzt í hópinn. Austur á Hallormsstað er t. d. að vaxa upp lerkiskógur í skjóli gömlu íslenzku bjarkanna. Þannig mun þróunin víðar verða. Nú er laufið að miklu leyti fok- ið af trjánum, enda komið fram um miðjan október. Enn skarta fjölmörg blóm í görðum víða um land. Á Austurvelli t. d. eru flest- ar tegundir sumarblóma enn með blómum. Garðanálarbreiðurnar (Alyssum) eru snjóhvítar af blóm- um og rósir blómgast enn. Gull- toppur stendur bæði með blómum og aldinum. Einnig blómgast enn kornblóm, ilmskúfur (Levkoj), ljónsmunnur, morgunfrú, stjúpur, friggjarbrá (Ghrysanthemum), dvergfíflar, miðdegisblóm (Mesam- fryanthemum), apablóm o. fl. o. fl. Strandbrúðurin (Cineraria mari- time) setur skemmtilegan svip á blómabeðin með hinum silfurgráu blöðum sínum, en ekki hefir hún blómgast. Hinn sumargræni skraut kollur (Kochia) er kominn í rauð- an haustbúning líkt og lauf trjánna. — Nafnspjöld eru sett hjá blómunum á Austurvelli. Á Hafliði ræktunarráðunautur þakkir skilið fyrir. Ætti að letra nöfn blóm- anna í öllum skrúðg'örðum. Fólk er fegið leiðbeiningunum og lærir betur að njóta gróðursins en eila. Ýmsar íslenzkar villijurtir blómg- ast dálítið enn, t. d. túnfífillinn, varpaveifgrasið, einstaka sóley, krossfífill o. fl. Hefir baustið að þessu sinni farið mildilega með - gróðurinn. | Nú blása haustvindar. Lauf j fýkur fyrir glugga og liggur í i hrönnum í görðunum. En á upp- vaxtarárum roskinna Reykvíkinga var lauffall nær óþekkt fyrirbrigði í Reykjavík. Trén voru ekki til. í úthverfum Reykjavíkur, t. d. í Kringlumýri, Sogamýri og Bústaða hverfi, sést nú víða lagðprútt sauð fé á beit. Hirðumenn í hópi sauð- fjáreigenda halda fénu í traustum girðingum eins og vera ber. En sums staðar er iítt skevtt um vörzlu fjárins; því miður. Er laus- gangandi fé mesti vágestur í görð- um bæjarbúa, bæði kálgörðum og trjágörðum. Sauðfjárhald er alltaf ! hæpið í borg eins og Reykjavík og því aðeins verjandi að fénu sé haldið innan öruggra girðinga. Einn eða tveir vörziumenn ráða ekki við að verja garða bæjarbúa j fyrir sauðfé og hrossum að öðrum kosti. Úr Tungnaréttum Tungnamenn taka gjarnan lagiö þegar tækifæri gefst og ekki sízt í rétt- unum. Hér er söngur í algleymingi og Þorsteinn á Vatnsleysu stjórnar. — Biskupstungnamenn fengu í haust um 22 þúsund fjár af fjalli. Á miöri myndinni er Egill bóndi á Króki og til hægri ingvar á Hvítárbakka, sem búinn er aö fara nær 60 sinnum á fjall, norður yfir Kjöl. Fjailkóngar úr fjórum hreppum. Frá vinsfri: Jóhann á Kamarsheiði, fjall kóngur á Gnúpverjaafrétti, Einar í Holtakotum, fjallkóngur á Biskups- tungnaafrétti, Magnús í Fiögu, kóngur á Fióamannaafrétfi og Gestur á Seli, fjallkóngur á Hrunamannahreppsafréfti. — Þessir kóngar eru enn allir við vötd. V.V.V.V.V.V.V.'.V.V v.v I II I I II I M !D H I B R I D GE Tímarit um bridge. Kemur út 8 sinnum á ári, 36 síður hverju sinni. Árgangur til áskrifenda 60 krónur. Flytur innlendar og erlendar bridgefréttir, greinar og kennslu- þætti. Undirritaður óskar að gerast áskrifandi að BRfDGE. Kafn ............................................. Heimili .......................................... Póststöð ......................................... BRIDGE, Sörlaskjóli 12, Reykjavík. 1? i VWAUVWW.VVAVSV.VWW.VA^W.V.VAVVWIV'A

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.