Tíminn - 17.10.1957, Blaðsíða 4

Tíminn - 17.10.1957, Blaðsíða 4
4 TÍMINN, fimmtudagian 17. október 1953* Eysteinn Jónsson íluttí í járlagaræðuna á Alþingi í gær: Stórfröðíegt yfirlit um staðreyndir efnahagslífsins Háttvirtir alþingismenn hafa haft meS höndum ríkis- reikninginn 1956, aðalreikn-1 inginn, og get ég því verið stuttorður um afkomu ríkis- sjóðs það ár, en vil þó sam- kvæmt venju drepa á nokk- ur aðalatriði. Afkoma ríkissjóðs varð nokkru betri en fjárlög gerðu ráð fyrir. Tekjur fóru fram úr áætlun. Út- gjöld fóru einnig talsvert fram úr, en þó minna en tekjurnar. Fyrri Muti ræðuimar birtist í iblaðinu í dag - fjallar einknm nm þróan efnahagsmála og ríkisbúskapar síS- nstu tvö árin - í seinni Mntamm, sem birtist á morgnn, er rætt um fjárlagafrumvarpið nýja og þær staðreyndir, sem bað birtir Aíkoman 1956 Útgjöld á rekstrarreikningi urðu 57 milljónum krónum hærri en fjárlög gerðu ráð fyrir. Þessar umframgreiðslur nema um 9Yz% og eru það heldur minni umfram- greiðslur en verið hafa yfirleitt. Tekjuafgangur á rekstrarreikn- ingnum varð 98 milljónir króna og greiðsluafgangur rúml. 13 millj- ónir króna, og er það heldur betri útkoma en gert var ráð fyrir í bráðabirgðayfirliti, sem gert var urn þessi efni á síðast liðnum vetri. Kemur hér til að meira inn- heimtist af sköttum áður en reikn- ingum ársins var lokið en inn- heimtumenn áætluðu þegar gert Var upp til bráðabirgða. Helztu ásfæður fyrir um- framgreiðslum eru þessar: Kaupgjaldsvísitala ársins varð nokkru hærri en gert var ráð fyrir í fjárlögum, og mun það valda um 4 millj. ki’óna um- framgreiðslum. Hin nýju launalög munu hafa valdið nokkrum milljónum meiri útgjaldaauka fyrir ríkis- sjóð en áætlað var, þegar þau voru sett. Landhelgisgæzlukostnaður varð 2 milljónum 325 þúsund- um hærri en ráðgert hafði ver- ið. Sérstaklega varð' rekstur varðskipsins Þór óhagstæðari en ráðgert var og munaði þar urn 1 milljón króna. Kostnaður við vegamál fór verulega fram úr áætlun. Vega- viðhaldið um 4 millj. 365 þús-1 und og brúargerðir um 5 millj- j ónir 826 þúsundir krónur. Var sú umframgreiðsla ákveðin í samráði viö ijárveitinganefnd síðast liðið haust. i Þá fór strandferðakostnaður fram yfir áætlun um 3 millj- ónir 256 þúsund krónur. Veld- ur þar mestu stóraukinn rekst- urshalli á Esju vegna mikillar vélarbilunar, sem skipið varð fyrir og kostað hefir stórfé að Iagfæra.^ ! Langmestar eru þó umfram- greiðslurnar í kennslumálum, eða raunverulega rúmar 8 millj- ónir. Hluti ríkissjóðs af rekst- urskostnaði barnaskóla og gagn fræðaskóla hefir t. d. farið 3 milljónir króna fram úr áætlun. Útgjöld ríkissjóðs vegna nið- urborgunar á verðlagi innan- lands, hafa farið 9 millj. 612 þúsund fram úr áætlun. Neyzlu aukning hefir orðið meiri en gert var ráð fyrir, en aðallega stafar þessi hækkun af því, að síðast liðið haust, 1956, var á- kveðið að greiða niður þá verð hækkun, sem átti að verða á landbúnaðarafurðum. Var það í sambandi við þær almennu ráðstafanir, sem þá voru gerð- ar, til þess að stöðva hækkun á kaupgjaldi og verðlagi. Af greiðslum samkvæmt heimildarlögum er helzt að nefna útgjöld vegna óþurrk- anna á Suðurlandi 1955, 1 millj. og 50 þúsund kr., og eru það eftirstöðvar. RíkisábyrgfSir Af 20. greinar útgjöldum um- fram fjárlög er rétt að nefna: Greiðslur vegna ríkisábyrgðarlána í vanskilum, sem voru áætlaðar i 12- milljónir, en reyndust 18.313.! EYSTEINN JÓNSSON fjármálaráðherra. þús. kr. Eru þessi útgjöld ríkis sjoðs vegna ríkisábyrgða enn sí- vaxandi, enda beinlínis teknar rík- isábyrgðir fyrir mörg byggðarlög og fyrirtæki þeim til stuðnings, þólt, vitað sé að ekki muni Verða staðið í skilum um greiðslurnar. Gerði ég ýtarlega grein fyrir þess um málum í fyrravetur um leið og ég lagði til, að 18 milljónir yrðu veittar á fjárlögum yfir- standandi árs í þessu skyni. Er Það raunar ljóst, að þær 18 millj. muni ekki einu sinni duga til þess að standa undir þessum töpum á yfírstandandi ári. Hvers vegna umframgreiíteliír ? Við samanburð á umframgreiðsl- um nú síðari ár við þær, sem áð- ur voru, kemur í ljós, að umfram- greiðslur hafa minnkað verulega að tiltölu. Eigi að síður er full á- stæða lil að gera sér grein fyrir því, að umframgreiðslur eru enn of miklar. Kemur þar ýmislegt til og ætti að vera hægt að ráða bót á sumum að minnsta kosti. Svo að segja allur útgjaldabálk- ur fjárlaganna er framkvæmdur á vegum útgjaldaráðuneytanna, ef svo mætti að orði kveða, og þeim stofnunum, sem undir þau heyra. Þessi ráðuneyti og þessar stofn- anir eiga að skila fjármálaráðu- neytinu áætlunum og tillögum um útgjöldin, þegar fjárlög eru sam- in. Mestur hluti útgjaldanna er lögboðinn eða fyrirsjáanlega óhjá- kvæmilegur, til þess að halda rekstri stofnananna gangandi eða þjónustunni uppi. Allt veltur á því, að áætlanir um slík útgjöld, lögboðin eða af öðrum ástæðum óhjákvæmileg, séu rétt gerðar. En ■ á því liefir verið stórfelldur mis- brestur hjá mörgum stofnunum, sem gengið hefir mjög illa að fá , úr bætt, þrátt fyrir harða eftir- 1 gangsmuni íjármálaráðuneytisins 'ár eftir ár. I Það nær auðvitað engri átt, að (ekki skuli vera áætluð nokkurn veginn rétt fyrirsjáanleg útgjöld, ' og vil ég skjóta því til háttvirtr- ar fjárveitinganefndar Alþingis, að liún koini fjármálaráðuneytinu liér til hjálpar og veiti aðhald í þess- um efnum. Hér verður einnig að geta þesg, að lengi var sá siður á hafður af Alþingi og ríkisstjórn að skera niður útgjaldaáætlanir til þess að iveita aðhald — oft án þess að mögulegt væri að komast af með það sem veitt var. Þessi stefna varð því aðeins til að auka um- framgreiðslur og draga úr for- stöðumönnum að vanda áætlanir sínar og standa við þær í frarn- kvæmd. Þessum handahófsniður- skurði á áætlunum er hætt að mestu, en mér leikur grunur á að enn eimi eftir af áhrifum þeim, sem hann hafði. Þá er önnur ástæða fyrir um- framgreiðslum sú að forstöðumönn um ýnisra starfsgreina gengur illa að átta sig á því, að þeir mega ekki fara fram úr áætlun fjárlaga og ekki gera óvarlegar ráðstaf- anir, sem hafa umframgreiðslur í för með sér. Eru menn þó sí- fellt af hendi fjármálaráðuneytis- ins brýndir til þess að gæta sín í þessum efnum. | Þá kemur hér til, að Alþingi og ríkisstjórnir hafa mikla tilhneig ingu til að falla fyrir þeirri freist- ingu að ákveða útgjöld eftir að fjárlög hafa verið samþykkt, sér- staklega hefir þetta verið áber- andi síðan uppbótar-, styrkja- og vísitölukerfið var upp tekið í þjóð- arbúskap íslendinga. Það leiðir af þessu búskapar- lagi, að sífellt er að koma fram allskonar ósamræmi í uppbótar- og styrkjakerfinu og sífelld viður- eign á sér stað við verðlagið í landinu, sem ævinlega leitar upp á við. Verðhækkanir hér, kaup- hækkanir þar og verðhækkanir hér, sem metnar eru óhjákvæmi- legar og í því sambandi sífelld pressa í þá átt, að komið sé í veg fyrir verðhækkanir í búðun- um með fjárframlögum úr ríkis- sjóði, hvað sem fjárveitingum Iíður. Oruggar áætlanir Allt þetta kemur til og raun- verulega margt fleira í sambandi við framkvæmd fjárlaganna og bar- átíuna við að halda ríkisútgjöld- unum innan ramma fjárlaganna. En það gefur að skilja, að ó- hugsandi er að fjárlögin standist ef fjármálaráðuneytið getur ekki byggt þaú á öruggum og vönduð- um áætlunum, og þá ekki heldur ef forstöðumenn í ríkisrekstrinum gera skuldbindandi ráðstafanir, sem ekki samrýmast fjárlögum, en fjármálaráðuneytið neyðist síðan til þess að borga, svo forðað verði vanskilum og hneisu. Hefir þetta ósjaldan skeð á undanförnum árum, en þeim dæm- um fer nú fækkandi. Þrátt fyrir allt hefir bilið á milli fjárlaga og ríkisreiknings farið minnkandi og stefnir það í rétta átt, en því fer þó fjarri, að ástandið sé orðið eins og það þyrfti að vera í þessum efnum. Auðvitað mundi fjármálaráðu- neytið geta bætt áætlanirnar og komið í veg fyrir sumt af um- I framgreiðslum einstakra stofnana, | ef það hefði heilum her manna á að skipa, sem þekkti í einstök- um atriðum allar greinar ríkisbú- skaparins og gæti verið með nef- in niðri í svo að segja öllum ráð- stöfunum, sem gerðar væru í öll- um skrfstofum og stofnunum jafn- óðum og þær kæmu til greina. En hvort tveggja er, að fjár- málaráðuneytið hefir viljað kom- ast hjá því að fiölga starfsliði og að það gæti heldur aldrei bless- azt, að fjármálaráðuneytið ætti að i taka að sér allan ríkisreksturinn. jSlíkt væri ekki framkvæmanlegt ! og þess vegna verður að treysta á , útgjaldaráðuneytin í þessum efn- ,um og forstöðumenn starfsgreina og skrifstofa ásamt því takmark- aða aðhaldi, sem hægt er að veita af hendi fjármálaráðuneytisins og Alþingis. Ríkistekjur breg'Sast Áður en ég vík að frumvarpi því til fjárlaga, sem hér er til 1. umræðu, vil ég koma nokkuð að horfunum í efnahagsmálum landsins á þessu ári, þar sem þess ar horfur setja að sjálfsögðu sinn svip á fjárlagafrumvarpið og verð- ur að hafa þær í huga, þegar frum- varpið er skoðað. Það, sem einkennir mest ríkis- búskapinn það sem af er þessu ári, er fyrst og fremst stórkostleg lækk un ríkisteknanna frá því í fyrra og frá því sem gert var ráð fyrir, þegar fjárlög voru sett. | Þegar gengið var frá fjárlögun- i im í vetur á Alþingi lét ég svo um mælt um tekjuáætlun fjár* laganna: j „Annars er þessi tekjuáætÞ un byggð á reynslu yfirstand- andi árs og því miðuð við að influtningur á næsta ári verði svipaður því, sem hann er { ár. Má það í rauninni telja furðu djarfa áætlun að gera ráð fyrir slíku eins og ástatt er um gjaldeyrismálin. Það er sem sé augljóst, að það er flutt inn meira en hægt er að borga og þess vegna þarf aukna fram- leiðslu og auknar þjóðartekj- ur til þess að þetta fjárlaga- frumvarp standist í framkvæmd inni.“ Stjórnarandstæðingar litu á hinni bóginn þannig á, að tekjur væru of lágt áætlaðar og fluttu tillögur um að hækka tekjuáætlunina. Enda þótt ég héldi, að tekju- áætlunin væri mjög teygð, varð þó ofan á að miða hana við reynslu áranna 1955 og 1956 og var það gert með það í huga, að verið var að gera ráðstafanir í framleiðslumálum, sem gera varð ráð fyrir, að mundu hafa í för með sér aukna framleiðslu og aukn ar þjóðartekjur frá því, sem áður hafði verið. Við höfum nú fyrirliggjandi "fir- lit um tekjur og gjöld rikissjóðs til ágústloka. Kemur þá í ljós, eins og ég sagði, að tekjur hafa brugð- izt verúlega á þessu tímabili og útlit miög alvarlegt að þessu Icyti. Verðtoilstekjur eru t. d. um 31 milljón kr. lægri en þær voru árið áður og hluti ríkissjóðs af tekjum útflutningssjóðs er að- eins 50 milljónir kr. til 1. sept- ember. en átti að verða 108 millj- ónir nllt árið. Er raunar nú besar fyrirsjáan- legt. að greiðsluhalli verður hjá ríkissjóði á bessu ári og sömuleiðis hjá útflutningssjóði, bví að tekj- ur hans hafa einnij* brugðizt. AfSabrestur Þá kemur spurninsin. Hvers vesna lækka ríkistekjurnar og tekjur útflut.ningssjóðs? Þegar ráðstafanir voru gerðar vesna framleiðslunnar á siðast liðmun vetri, var hlutur útflutn- iugsf*-amleiðslunnar gerður betrl eu áður hafði verið um skeið. Á hessu leikur enginn vafi. Ætl- unin var að sjálfsögðu sú að jafna skakka, sem þarna hafði verið. og að stuðla að aukn'nga framleiðslunnar. Þetta náði til- ganffi sínum á þann hátt, að fram leiðslan hefir sjaldan verið sótt af meira kanni en einmitt nú. Ó- venju stórum flota var haldið úti til þorskveiða síðast liðinn vetiir og t'I síldveiða f sumar. En unnskeran varð ekki að sama skani. Vertíðin varð léleg a. m. k. miðað við undanfarin ár o<? sfld- veiðin varð léleg og sérstak'ega varð þeildarverðmæti sfldarfram- leiðsiunnar ódrjúgt. vegna hess hvað sfldin var framúrskar-'ndi rnögur og afurðarýr til viðbótar aflabrestinum. Betur sést hvað hér hefir gerzt, ef athugaður er annars vegar fjöldi þeirra skipa, sem haldið hefir verið til veiðanna og úthaldsdagar þeirra og hins vegar aflaverðmætið á þessu ári og undanfarið. Hefi ég látið áætla þetta og getur ekki skakkað að ráði. Kemur þá í ljós, að ef miðað er við fjölda skipa og úthaldsdaga á vetrarvertíð ann- ars vegar 1955 og hins vegar síð- ast liðinn vetur, að aflaverðmæti nú á vertíðinni tr raunverulega um 29% minna en 1955 miðað við framlagið fil veiðanna. Og ef við tökum á sama hátt meðaltal ár- anna 1954 til 1956 og berum sam- an við vertíðina í vetur, þá kemur í ljós, að aflinn í vetur er um 22% minni að magni en meðalafli þessara ára miðað við úthaldsdaga og bátafjölda. Ef við svo lítum á síldveiðarnar þá kemur í ljós, að í sumar stund- (Framhald á 5. síðu).

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.