Tíminn - 14.11.1957, Page 5

Tíminn - 14.11.1957, Page 5
TÍMINN, fimmtudaginn 14. nóvember 1957, 5 Málgagn S. U. F óri: Áskeil Einarsson Mikið hefir verið rætt og ritað að undanförnu um jafnvægi í byggð landsins. Ég vil nú í þess- ari grein minni, lesendur góðir, bregða upp ofurlítilli mynd af við- horfi okkar til jafnvægisfrum- varps ríkisstjórnarinnar. Nú eru annir miklar hér í Norður-Þing- eyjarsýslu, því senn hefst síldar- vertíðin. Eins og ykkur er kunn- ugt, hefir á undanförnum árum verið mjög mikið að gera hér í sýslunni um síldveiðitímann. Auk hinna mörgu söltunar- stöðva, sem starfað hafa á Raufar- höfn undanfarin sumur, er senn fullgerð ný söltunarstöð, sem Kaupfélag Norður-Þingeyinga á stóran hlut í. Er mjög gleðilegt til að vita, að kaupfélagið, ásamt öðr um félögum, skuli taka svo virkan þátt í uppbyggingu athafnalífs á starfssvæði sínu. t Tilfinnanlegt hefir verið, hve hafnarskilyrði eru slæm hér í sýslunni. Hafa farið fram mjög nákvæmar athuganir á hafnar- stæðum í þrem aðalverzlunar- stöðum sýslunnar, þ. e. Kópaskeri, Raufarhöfn og Þórshöfn. Er svo komið að Raufarhöfn býr nú við mjög viðunanleg hafnarskilyrði. Á Kópaskeri er nú unnið að hafnar- gerð í sumar. Verður það mann- virki upp á um 2 millj. króna. Er ákaflega ánægjulegt til að vita að þessi merki verzlunarstaður og samvinnuslagæð byggðarlagsins vestan heiðar, eigi í vændum á næstu árum að fá mjög góða höfn. Verður það mikil lyftistöng fyrir byggðarlagið í heild. I Um hafnargerð á Þórshöfn mun ég nú skíra frá nokkru nánar. Fyrstu liafnarframkvæmdir hóf- ' ust hér árið 1937. Var þá byggður hér um 100 m. langur brimbrjót- ur, sem kom að mjög góðu gagn.i tmeðan hans naut við. En sökum þess hve öldurnar eru stórar hér í miklum brimum, þá fóru fljótt að brotna skörð í varnargarðinn. Er nú svo komið að hafist er handa um að gera mjög miklar breytingar á honum. Mun ég víkja nánar að því síðar. Árið 1938 hófst bygging hafnar- bryggju. Var það sumar unnið að uppfyllingu fyrir ofan sjálfa bryggjuna og síðan sökkt einu keri fyrir framan. Næsta sumar var bætt við bryggj una tveim körum, en hún var full- smíðuð 1943 þá 105 m. löng með landgangi. Síðan var svo dýpkun- arskipið Grettir látið grafa út rennu inn að hafnarbryggjunni. Geta nú skip eins og Herðubreið, Jökulfell, iJísarfell og Tungufoss lagzt að bryggju. Er það ómetan- legt fyrir þorpið og héraðið. Næstu ár var ekki unnið neitt að hafnarbótum. Á þeim árum risu upp raddir meðal útgerðar- manna staðarins að óviðunanlegt væri að hafa ekki minni bryggju til að auka athafnapláss smábáta útgerðarinnar. Það kom í ljós, að yfir síldveiðitímann gátu smábát- arnir ekki athafnað sig við bryggj- una á sama tíma og verið var að landa síld. j Var því hafizt handa um smíði nýrrar bryggju. Hófst sú smiði sumarið 1956 og er nú lokið. Er sú bryggja 45 m. löng. 1956 var einn- ig lögð botnkeðja í höfnina til að skapa betra viðlegupláss fyrir báta. Nú er hafinn síðasti og stærsti áfanginn í hafnarbótum hér. Er það endurbygging brim- brjótsins sem 'byggður var 1937. Nú á þessu ári eru veittar rétt um 700 þúsund krónur til endurbygg-j ingar þessarar. Hinn nýji hafnargarður verður um 260 metra langur og er kostn- aðaráætlun hans kringum 5 millj. króna. Yfirsmiður þessa mann- virkis er Sveinn Jónsson úr Rvík. Skipulag allra hafnarfram- réttir og annað úr Norö ur-Þingeyjarsýsíu Aðaísteinn Karlsson formaður F U F í Norður-Þingeyjarsýsfu, austan heiðar, tók saman fyrir Vettvanginn kvæmda hér á staðnum hefir Þor- lákur Helgason, verkfræðingur, annast. Á hann skilið mikið lof fyrir dugnað sinn í þessum mál- um. Þórshöfn er, eins og öllum er kunnugt, mjög vel staðsett sem út- gerðarstaður. Eru í Þistilfirðinum og í kringum Melrakkasléttu, eins í kringum Langanesið, einhverj- ir allra fiskauðugustu staðir við N-Austurland. Smábátaútgerð er mikil héðan. um sumartímann. Gerðir eru út héðan nú 15 bátar. Það hefir verið leitt til að vita, að margir duglegir sjómenn hafa á undanförnum árum þurft að fara héðan burtu yfir vetrartímann í atvinnuleit til Suðvesturlands og Vestmannaeyja, vegna þess, að ekki hafa verið hér fyrir Norður- landi gerðir að ráði út bátar yfir þann tíma ársins. Síðastliðinn vet- ur var gerð tilraun með að gera út um 60 tonna bát, auk smærri báta hér fyrir norðan. Gafst sú tilraun mjög vel að kalla má og gefur góða von um áframhaldandi vetrarvertíðir hér. Atvinnutækjanefnd rikisins gerði í vetur ályktun til ríkis- stjórnarinnar um kaup á 15 nýjum togurum, 200—250 tonna. Einn eða tveir þessara nýju tog ara verða staðsettir á svæðinu frá Raufarhöfn til Vopnafjarðar. Skap ast með þessu sá, möguleiki, að menn þurfi ekki að leita burtu í atvinnuleit. Er þetta einn liður af mörgum til að auka jafnvægi í byggð landsins. En sá maður, sem hefir verið manna ötulaslur í starfi að þessum málum, er Gísli Guðmundsson, þingmaður Norður- Þingeyjarsýslu, en hann er for- maður atvinnutækjanefndar rikis- ins. Samvinnufélögin Fólki í dreifbýlinu er óðum að skiljast að samvinnugrundvöllur- inn er traustasti grunnurinn undir velmegun þess sjálfs. Það er þess vegna sem það sameinast í héruð- um landsins utan um sitt kaupfé- lag, því það sér og veit, að öflugt kaupfélag er lyftistöng hvers byggðarlags. Kaupfélögin cru fé- lög þeirra sjálfra, þau gæta bezt hagsmuna þeirra. Ég mun nú víkja! nokkrum orðum að uppvexti og gangi Kaupfélags Langnesinga á Þórshöfn. Kaupfélag Langnesinga er stofn að árið 1911. Fyrsti framkvæmda-j stjóri þess var Guðmundur Vil-' hjálmsson, þá bóndi að Jaðri við Þórshöfn, síðar bóndi á Syðra-' Lóni í Þórshöfn. Á þessum fyrstu árum var mjög erfitt fyrir starfsemi kaupfélags- ins, lítið húspláss, lélegar sam- göngur og ennþá óvild og ótrú ríkj andi út í samvinnufélög. En Guð- mundur hafði óbilandi trú á þessu nýja verzlunar- og menningar-| skipulagi og með elju og dugnaði, tókst honum að drífa upp öflugti kaupfélag. Guðmundur var fram- kvæmdastjóri félagsins um 18 ára. skeið. Næsti framkvæmdastjóri varj Karl Hjálmarsson frá Ljótsstöðum ! í Laxárdal í S.-Þing. Karl var j framkvæmdastjóri í 18 ár. Karl var ötull og duglegur mað- ur, unni sínu félagi og félags-j mönnixm. Gerði hann sér mjög far, um að greiða götu þeirra. I En 1 kringum árið 1947 var byrj að á nýju slátur- og frystihúsi Vegna aukinnar útgerðar var hafð ur í þessu nýja húsi stór fiskmót- tökusalur ásamt vinnusal og hrað- frystitækjum. Þetta nýja hús var fullsmíðað um 1950. Er hraðfrystingin og vinna við fiskverkun ein af lyfti- stöngum atvinnulífsins hér á staðnum. Við af Karli tók Sigfús Jónsson, er gegndi þeim störfum til 1955. Árið 1953 réðst kaupfélagið í byggingu fiskimjölsverksmiðju, er vinnur fiskúrgang frá hraðfrysti- húsinu. Núverandi framkvæmdastjóri félagsins er Jóhann Jónsson, ung- ur og bráðduglegur maður. Óhætt er að fullyrða, að allir fé- lagsmenn unna mjög sínu félagi sem og eðlilegt er. Hvet ég þá ein- dregið til að viðhalda trú sinni á starfsemina og láta ekki annarleg- an áróður illgjarnra afla hafa á- hrif á sig. Hafið ætíð hugfast að kaupfélagið er ykkar félag. Ungmennafélagsstarf- semin kljög mikilsvert atriði er hverju byggðarlagi að leggja rækt við ungmennafélögin eða ungmenna- félag síns staðar. Því miður verð ég að viður- kenna, að mikið átak verður að gera til að koma á betur skipu- lagðri ungmennafélagsstarfsemi hér austan Öxarfjarðarheiðar. Tvö félög eru starfandi hér á svæðinu, en því er verr, að starfsemi þeirra er í mjög miklum öldudal sem stendur. Ungmennafélagið í Þistilfirði hefir sæmilega aðstöðu til starf- semi sinnar. Það byggði félags- heimili fyrir nokkuð mörgum ár- um, sem nú er orðið of lítið og stendur til stækkun þess núna á næstunni, sem mjög nauðsynlegt er og ber að stefna ákveðið að. Þeir stefna einnig að því að koma sér upp iþróttasvæði í nágrenni hins nýja félagsheimilis; er það og mark, sem verður að ná á næstu árum. Það er ákaflega mikið félagslegt atriði að koma upp íþróttasvæði, þar sem félagar geta komið saman á sunnudögum og á kvöldin í góðu veðri yfír sumartímann og leikið knattspyrnu, handbolta svo og hlaupið og stökkvið. Eykur það mjög samstarf félags- manna og hefir einnig heilsusam- leg áhrif á þá. Á Þórshöfn er ungmennafélag starfandi. Er eins ástatt með það og Þistilfjarðar-félagið, að það er alllof lítið starfandi, standa samt vonir til að úr rætist. Sundlaug er hér á Þórshöfn. Er hún opin yfir sumartimann og þá iðkað og kennt sund. Mjög vandað félagsheimili er í smíðum hér. Verður það óefað eitt með glæsi- legri félagsheimilum á landinu. Með komu hins nýja félagsheim- ilis verða vonandi þáttaskil í öllu félagslífi staðarins, en húsleysi hefir verið einn aðalþröskuldur allrar slíkrar starfsemi hér. Fyrir nokkrum árum var á staðnum allgott samkomuhús, en það brann haustið 1954. Siðan hefir ekki verið neitt samkomuhús hér. I Knattspyrnuáhugi er mikill hér í Þórshöfn og er alltaf að aukast. Um þessar mundir er verið að at- I huga um íþróttasvæði hér í þorp- j inu, en það hefir ekki verið í- | þróttasvæði á staðnum í nokkur ár. Nú þurfa áhugamenn knattspyrn ! unnar að fara á bilum um 7—8 km ■ leið til að leika sér að bolta. Fr i alls ekki von, að almennur áhugi vaxi til muna við slík skilyrði. Fyrir innan Öxarfjarðarheiði eru nokkur velstarfandi ung-j mennafélög. Félagasamtök í Kelduliverfi hafa sýnt mikinn dugnað í félags-1 heimilismáli sínu. Er svo komið,1 að félagsheimilið er fullbyggt, en eftir er að fullgera skóla, sem er áfastur við það. Keldhverfingum hefir tekizt mjög vel til um nafn á hinu nýja, félagsheimili sínu, en það heitir Skúlagarður. Stendur það nafn í sambandi við Skúla fógeta Magnús J son, sem var fæddur í Keldu- • hverfi. Önnur íélög innan heiðar hafa i ékki hafizt handa um byggingu i félagsheimila enn. Enn vil ég drepa á nokkur at- riði, sem ég vona að ungmennafé- lög í sýslunni taki til nákvæmrar athugunar og vinni að á næstunni. Stofnið deildir innan félaga ykkar fyrir börn á aldrinum 7—12 ára. Verið ötulir að halda með þeim fundi og kenna þeim félags- störf. Kjósið 3—4 börn á hverjum fundi, sem eiga að sjá um næsta fund. Bezt álít ég sé að lofa börn- unum að velja skémmtiefnið sjálf. Börn á þessum aldri eru ófeimn ust og sé byrjað að þjálfa þau í góðum félagsanda, er víst, að í framtíðinni munu þessir kraftar verða máttarstoðir ungmennafélag anna. Næsta aldursdeild þarf að vera með unglingum á aldrinum 13— 16 ára. Þessi aldur er dálítið hættulegur, sé ekki farið rétt að. Unglingar eru oft á þessu tíma- bili feminir og hlédrægir. Er því nauðsynlegt að kenna þeim að koma fram. T. d. með því að halda málfundi, þar sem rædd eru fé- Íagsmál og . áhugamál þeirra sjálfra. Einnig væri nauðsynlegt þar sem aðstaða leyfir, að koma saman einu sinni í viku eða einu sinni á hálfum mánuði, til að leika knattspyrnu eða handbolta. En umfram allt, leggið mun meiri áherzlu á meðferð vngstu meðlima félaga yk'kar en þið hafið gert að undanförnu. Bókmenntakymiing ! Á eina leið vil ég benda cldri félögum ungmennafélaganna. Sú leið er vel framkvæmanleg og er menningarauki fyrir hvert félag. | Komið á lijá ykkur framsóknar-: vist hálfsmán.lega yfir vetrartím-; ann. Fáið einhvern heppilegan' mann til þess að kynna islenzkt skáld, verk þess og æviágrip. Veit- ið svo í verðlaun bók eftir þann höfund, sem kynntur er hverju sinni. | Þetta er mjög heppileg leið tilj að kynna okkar ágætu skáld, svo J og viðhalda félagslífinu með sem ] beztum árangri um veu artímann.' Þróttmikil íorusta Framsóknarmanna í sýslunni Norður-Þingeyjarsýsla er ein af þeim sýslum landsins, þar sem Framsóknarmenn eru í miklum meirihluta og er það mjög vel far- ið. Það er mjög mikilsvert fyrir fólk, bæði í sveitum og þorpum dreifbýlisins, að vera samhuga. Þetta fólk á margra sameiginlegra hagsmuna að gæta og verður að vinna saman að sínum málefnum. Enginn íslenzkur stjórnmálaflokk- ur berst meira og betur fyrir mál- efnum okkar en Framsóknarflokk- urinn. Hann er eini flokkurinn, sem þið getið öll staðið saman um. Margir andstæðingar Framsókn- arflokksins hafa haldið því fram í áróðri sínum gegn honum, að í sýslum, eins og Noröur-Þingeyjar- sýslu sé Fvamsóknarflokkurinn alltof sterkur. Hann sé svo sterk- ur, að hagsmunir fólksins og fram- kvæmdir séu látnar sitja á hakan- um með fjárveitmgor, þær séu frekar veittar til staða, þar sem tvísýnna er i pólitísku baráttunni, þessi áróður er hrein fjarstæða. Ég mun nú tiltaka nokkur dæmi úr N.-Þing. til að þið getið betur gert ykkur ljóst, hve þessi lævísa aðferð er staðlaus. Á síðastliðnum 20 árum hafa verið þyggð eða eru í smíðum í N.-Þing. 32 býli. Er á- reiðanlegt, að tala býla hefir ör- ugglega ekki lækkað á þessu tíma- bili. Ötullega hefir verið að unnið um símalagningu á sem flesta bæi. Eru aðeins örfáir, sem ekki eru koihnir í samband. Vegabætur eru stórkostlegar hér á svæðinu; unn- ið er að nýjum vegi frá Axarfirði til Hólsf jalla. Einnig á nýjum vegi frá Raufarhöfn til Þistilfjarð- ar. í sumar er verið að endurbæta veginn frá Þórshöfn inn Þistil- fjörð. Nú í haust verður fullgerð ný brú á Jökulsá í Öxarfirði. Er sú brú mikið og glæsilegt mann- virki. Hin nýja brú stendur við hlið þeirrar gömlu. í fyrrasumar var fullsmíðuð ný brú á Ormalóns- á á Sléttu. Er sú brú tenging á hin um nýja vegi f’-á Raufarhöfn til Þistilfjarðar. Nú er nýhafin smíði brúar á Lónsá á Langanesi. Einn- ig er ráðgert að smíða brú á Laxá i Þistilfirði. Allar þessar framkvæmdir ber fyrst og fremst að þakka okkar mjög góða og ötula þingmanni Gísla Guðmundssyni. Hefir Gísli unnið ómetanlegt starf í þágu síns kjördæmis, starf, sem kjós- endur hans og velvildarmenn munu seint gleyma. Tvö Framsóknarfélög eru nú starfandi í sýslunni, annað austan heiðar en hitt vestan. Formaður félagsins austan heiðar er Jóhann- es Árnason, bóndi á Gunnarsstöð- um í Þistilfirði. En formaður fé- lagsins vestan heiðar, er Þórhall- ur Björnsson, kaupfélagsstjóri á Kópaskeri. Nú í sulnar er ákveðið að stofna ný samtök ungra Framsóknar- manna í sýslunni. Er ráðgert að stofna eina deild austan heiðar, aðra vestan heiðar. Er það eindregin von mín, að sem allra flest ungt fólk í sýsi- unni, gerist virkir þátttakendur í hinum nýju samtökum okkar . Þórshöfn, í júlí 1957. Aðalsteinn Karlsson, Þórshöfn. Munið Uappdrætti S.U.F. DregiS 21. desember.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.