Tíminn - 17.11.1957, Qupperneq 3

Tíminn - 17.11.1957, Qupperneq 3
T í iVI I N N, suimudaginn 17. nóvember 1957. 3 Sexliigur: LýSnr Guðmundsson, hreppsljóri í Sandvík Eins og á'öur er sagt, hafa nú fimm ættliðir bætt og prýtt Litlu Sandvíkina, en undrið skeði í tíð Lýðs, á seinni búskaparárum föð- ur hans og sérstaklega nú síðustu 20 árin, eftir að Lýður tók við búforráðum. Hann Lýður í Sandvík verður sextugur þann 18. þessa mánaðar! Þegar mér var sagt þetta, varð ég undrandi og trúði því álíka vei, og þegar því er haldið fram við mig stundum á vorin fýrir kross- messu, að krían sé komin. Nei, náttúrlega hefur Lýður elst eins og við öll, og þó að hann, að hætti unglinga, sé ennþá að vaxa af verkum sínum og manngildi, þá verður hann samt sextugur á morg- unn. Nú lít ég að vísu ekki á sex- tugsafmælið sem nein tímamót í lífi manna, en hitt er þó víst, að leið þeirra afmælisbarna, sem halda upp á sextugsafmælið sitt, er orðin það löng, að stefnan er ráðin, og margir hafa þá þegar skilað æfistarfi, sem umtals er vert. Lýður í Sandvík er fæddur 18. dag nóvembermánaðar árið 1897 að Litlu Sandvík í Flóa, sonur hjónanna Guðmundar Þorvarðs- sonar, hreppsitjóra og bónda í Litlu Sandvík og Sigríðar Lýðs- dóttur hreppstjóra í Hlíð í Gnúp- verjahreppi. Hér verður ekki rak- in ætt hans frekar, en geta má þess, að hann er fimmti maður í beinan karllegg, sem býr í Litlu Sandvík. Allir voru þeir feðgar búhöldar góðir, og allir liafa þeir lagt alúð við bóndastarfið, en fyrsta boðorð þess er að gera næsta ættlið starf- ið auðveldara aneð því að bæta jörð og bú. Þorvarður Guðmundsson, hrepp stjóri í Litlu Sandvik var aðsóps- niikill bóndi og höfðingi. Hann átti margar jarðir og aniklar eign- ir og miklar skuldir, er Guðmund ur sonur hans tók við þessu öllu s^man á/rið 1895. Var ýjmissa manna álit, að Guðmundur myndi ekki valda því, að koma öllu í örugga höfn, en hann reyndist þeim vanda vaxinn. Þarf ekki að orðlengja það, að Guðmundur reyndist hinn mesti búhöldur, fé- sýslumaður mikill og framfara- sinnaður bóndi. Árið 1904 keypti Guðmundur hálfa Stóru Sandvík og lagði hana undir Litlu Sandvíkina. Með þess- um jarðakaupum hafði Guðmund- ur gert jörð' sína að höfuðbóli, og er hún það jafnan síðan. Árið 1933 kvongaðist Lýður fræhku sinni, Aldísi Pálsdóttur frá Illíð í Gnúpverjahreppi, en við búsforráðum tóku þau hjón ekki fyrr en árið 1937. Þá slóð Lýður á fertugu og hafði alla tíð starfað heima að búsýslu með föður sín- um. Svo gott var samstarf þeirra feðga, að því er Lýður hefur sagt, að hann hafi varla orðið var við það, að hann tók við búinu. Breytingin var svo lítil. Og þannig gengur það, þar sem gæfan og tryggðin við jörðina haldast í hendur, að faðirinn leiðir soninn til þroskaáranna, síðan styður son urinn föður sinn, og að lokum veitir honum skjól og hvdld síðustu fótmálin. Hvaða undur? Fullkominn húsa kynni eins og bezt gerast með menningarþjóðunum, reisuldg og vinnuspör fénaðarhús, yfir 2000 hesta véltækt tún, nútíma véltækni notuð við flest búverk og tvö höf- uð á búsmala öllum. Þetta undur hefur að vísu gerzt víðar en í Litlu Sandvík og er það vel. Ég hefi spurt Lýð í hvaða röð framfarirnar hefðu orðið í Litlu Sandvík og get ég þess hér til fróðleiks: Þaksléttan, umferða- plægingar, sláttuvélin, Flóaáveit- an, jarðræktarlögin, mjólkurbúið, afurðasölulögin, tiibúinn áburður, ræktunin með stórvirkum vélum, nýjar heyverkunaraðferðir og rækt aður búsmali fóðraður til afurða. Þegar Selfosshreppur var stoín aður árið 1946 og klofinn frá hin- um gamla Sandvíkurhreppi, lögð- ust flest opinber störf í Sandvíkur hreppi á Lýt í Sandvík. Hefur hann verið þar hreppstjóri, oddviti og sýslunefndarmaður, og stjórnað öllum þeim málum af ráðdeild og stjórnkænsku. Hann hefir auk þess starfáð að ýmsum málum fyrir héraðið og skal aðeins nefnt eitt, sem ég þekki bezt til, en hann hefur verið formaður naut- gripasambands Árnessýslu frá því það var stofnað fyrir 15 árum. Hef ég í sambandi við það og ýmis önnur félagsstörf kynnst Lýð sem einlægum félagshyggjumanni, sem trúir á mátt samtakanna til lausn ar hinna margríslegu vandamála bændastéttarinnar. Þekki ég fáa menn jafn öfundarlausa, sem starfa að málefnum almennings, eins og Lýð í Sandvík. Lýður hefir verið gæfumaðiu. Hann á góða og gáfaða konu, sem hefir gefið honum aðlaðandi heim ili með glæsibrag. Þar er gott að koma, og þar er gott að dvelja. Þau hjónin eiga fjögur mannvæn- =l!llllllll[||||lllll!lflllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllillllllllll||||||!ll!l!llll||||||l!llllllllllllll!l!i|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||llllllllllllir.! Sextugur, Torfi Magnússon, hrepp- stjóri, Hvammi í Hvítársíðu Ein af fegustu sveitum Borgar- fjarðar er Hvítársíða. Hún liggur sunnan undir Síðufjalli, allt að bökkum hinnar fögru Ilvítár og nær fram til hrauns og jökla. — Fjallasýn er með afbrigðum fög- ur. Innan þessarar sveitar eru Hraunsfossarnir, „Lindirnar, sem aldrei frjósa“, eins og skáldið Guð- mundur Böðvarsson orðaði það. í Hvítársíðu er búskapur góður, índa landkostir miklir. Hyggnir leg börn, öll komin af bernsku- skeiði. Lýður hefir verið trúr bónda- .starfinu og hefir þegar skilað miklu æfistarfi, bæði að búi sínu í Litlu Sandvík og í félagsmálum fyrir sveit sína og hérað, og þakka ég honum fyrir það. Að lokum óska ég honum þess á sextugsafmælinu, að honum end- ist heilsa og aldur til þess að feta lengra á sinni heillabraut, unz nýjir kvistir af hans eigin stofni, taka við, þegar hann fer að þreytast. Hjalti Gestsson frá Hæli. menn eru þar við stýri, og valinn maður í hverju rúmi. Einn af for- svarsmönnum Hvítsíðunga, Torfi Magnússon, hreppstjóri í Hvammi er sextugur í dag. Torfi er fæddur að Dýrastöðum í Norðurárdai í Mýrasýslu 17. nóv. 1897. Foreldr- ar hans voru hjónin Magnús Er- lingsson, bóndi að Dýrastöðum, og kona hans, Ágústína Torfadótt- ir. Torfi fór í fóstur til föður- systur sinnar að Þorv’aldsstöðum í Hvítársíðu, kornungur, og hefir því dvalið í Hvítársíðu að heita má alla ævi. Veturinn 1917—19 stundaði hann nám í Hvítárbakka hjá Sigurði Þórólfssyni. Reyndist hann hinn ágætasti námsmaður og naut vel handleiðslu þessa á- gæta skólamanns, enda fór þar saman hæfileikar kennara og nem- anda. Torfi er einn af þeim mönn- um, sem ávallt. hefir notið trausts samferðamanna sinna. Á ungri ár- um var hann forustumaður í Ung mennafélagi sveitar sinnar, en í hreppsfélaginu eftir að hann gerð- ist fulltíða maður. í hreppsnefnd Hvítársíðu hefir hann setið síðan 1935 og verið hreppstjóri síðan 1943. Auk þess hefir hann verið sýslunefndarmaður Hvítársíðunga um 20 ára skeið. Öll þau s-törf, sem Torfi hefur verið trúað fyrir, hafa verið ræktt af einstæðri al- úð og vandvirkni, og er nákvæmni hans og samvizkusemi við brugð- ið. Þá ber eigi síður að geta at- orku hans í fclagsmálum. Hefir hann sem sýslunefndarmaður beitt sér mjög fyrir vegamálum Hvítár- síðunga og komið þar miklum umbótum til leiðar. Torfi hóf búskap sinn í Hvammi 1927 og hefir því búið samfleytt í þrjá áratugi. Þegar hann hóf búskap, var Hvammur rýrðarkot og fjárhagur Torfa þröngur. Fyrir dugnað hans og konu hans er Hvammur nú góð og vel setin (Framhald á 8. síðu.) I NÝLENDUVÖRUR * Avextir Súpur Kex Grænmeti Búðingar margar tegundir Austurstræti LLT I M EINUM ATIN STA N Ð Bökunarvörur Á kvöldborðið Kjötvörur Hveiti Qsrdufi Sykur Bökunardropar Krydd og margt fleira Salöt, 6 teg. Reykfur lax Álegg, margar teg. Ostar, 16 teg. Lifrarkæfa Kæfa Nýreykt dilkakjöt Svínakóteíettur Hamborgarhryggur Folatdakjöt nýtt—saltað—reykt Nautakjöt buff—gullask-hakkað wiiiiiiiiiiiiiiiniiiiiiiiniiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiLuiiiiiiiiiiiiiiiiimmiiiiniiiiuiiiiiimnwi ■mmniiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimimiiiiiitiiiiiiiiiiiinuinuiniiniiiiniiniimmiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiumnw

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.