Tíminn - 21.11.1957, Blaðsíða 5
T í MIN N, fimmtudaginn 21. nóvember 1957,
5
Reynir Þórðarson
ráðinn starfsmað-
ur happdrættis
S.U.F. í Rvík
Stjórn FUF í Reykjavík
og sölunefnd hefir rátiiS
sérstakan sölustjói a
Starf sölunefndarinnar í Reykja-
vik gengur vel. Nefndin er
jafnan til viðtafs í skrifstofu full-
trúaráðs Framsóknarfélaganna í
Edduhúsinu kl. 5—7 virka daga.
Starfið hefir reynzt svo viðamikið,
að ekki hefir verið auðið að anna
því í hjáverkum. Það hefir því
ráðizt, að Reynir Þórðarson stúd-
ent hefir tekið að sér að vera
starfsmaður nefndarinnar fram að
drætti. Hann mun hafa bækistöð
sína í skrifstofu flokksins, símar
15564, 19285. Þeir sem hafa miða
til sölu frá happdrættinu í Reykja-
vik, eru beðnir að gera full skil
sem fyrst. Hafið samband við skrif-
stofu fulltrúaráðsins hið fyrsta.
Uppgjör verða sótt til þeirra, sem
þess óska. Hringið í síma 19285 og
tilkynnið hvenær þið óskið að gera
skil á miðum ykkar. Næstu daga
munu starfsmenn sölunefndarinn-
ar hafa símasamband við þá, sem
hafa ekki gert skil. Vinsamlegast
veitið greið svör og gerið upp mið-
ana við fyrsta tækifæri. Sölunefnd-
in skorar á alla FUF-félaga að að-
stoða við sölustarfið. Komið eða.
tilkynnið aðstoð ylckar til starfs-
manns sölunefndarinnar, Reynis
Þórðarsonar, eða einhvers nefndar
manna. Sölunefnd happdrættis
S.U.F. í Reykjavík skipa: Einar
Birnir, form., Jón Arnþórsson, vara
form., Arnór Valgeirsson, ritari,
Elisabet Hauksdóttir gjaldkeri og
Hörður Helgason meðstjórnandi.
Hafið það hugfast, að 20% af
andvirði seldra miða í Reykjavík
rennur til félagsins. Þess vegna er
mikið í húfi, að góður árangur ná-
ist. Hér er um að ræða stærsta'
fækifæri í sögu félagsins til fjár-
afla. i
Stjórnmálanám-
skeið FUF í
VETTVAN
AR- í Degi
MÁLGAGN S. U. F.
Ritsfjóri: Áskell Einarsson
Magnús Gíslason, Frosta-
stöðum, leiðbeinir
Eins og getið var um í frásögn
af aðalfundi FUF í Skagafirði fyr-
ir skömmu, var áformað, að félagið
beitti sér fyrir stuttu stjórnmála-
námskeiði. Þá var ekki séð, hvort
framkvæmanlegt væri að koma á
fót námskeiði á heppilegum tíma,
en nú hefir rætzt úr þessu og hófst
námskeiðið s. 1. þriðjudagskvöld.
Fundir eru haldnir í félagsheimil-
inu Bifröst á Sauðárkróki á hverju
'kvöldi þessa viku. Á fyrsta fundi
heldur framsöguerindi Magnús
Gíslason, bóndi á Frostastöðum,
fyrrv. formaður FUF í Skagafirði,
og Kristján Karlsson, skólastjóri á
Hólum. Stjórnmálanámskeiðinu
lýkur með skemmtun í Bifröst n. k.
laugardagskvöld. Mikill áhugi er
meðal ungra Framsóknarmanna í
Skagafirði. Nánar verður sagt frá
stjórnmálanámskeiðinu síðar í
Vettvangnum.
F. U. F. á Ákureyri hefur átgáfu á æskuIýSssíðu
Fyrir atbeina Ingvars Gíslasonar. - Ritnefnd skipa þrír mennta-
skólanemar. - Kemur hálfsmánaðarSega í Degi
Fyrsti Yettvangnrinn birtist 13. nóv. s. S.
Fjöfbreytt vetrarstarf F.U.F. á Akureyri
MiSvjlrudaginn 13. nóvember s. 1. kom í blaðinu Dagur á
Akureyri „Vettvangur æskunnar“, æskulýðssíða ungra Fram-
sóknarmanna á Norðurlandi. Ætlunin er að ,,Vettvangurinn“
1 Degi komi reglulega út hálfsmánaöarlega í vetur til að byrja
með, en stefnt mun að því.að hann verði fastur liður í blað-
inu framvegis. Ritnefnd skipa þeir Bragi Ingólfsson, Hjörtur
Pálsson og Jón Einarsson. Allir nemendur í Menntaskólanum
á Akureyri.
Atidragandi og
undirbúningur
Fyrir nokkrum árum var gcrð
tilraun með sérstaka æskulýðssíðu
í Degi undir forustu Tómasar
Árnasonar, þáverandi erindreka
Framsóknarflokksins á Akureyri.
Sú tilraun vákti athygli og var
mjög vinsæl nyrðra. Vegna brott-
farar Tómasar Árnasonar frá Ak-
ureyri sofnaði Vettvangurinn út af
að þessu sinni. Nú hefir þráðurinn
verið tekinn upp að nýju fyrir at-
beina erindreka Framsóknarflokks-
ins á Akureyri, Ingvars Gíslasonar,
lögfræðings. Ingvar er kunnur sem
blaðamaður, bæði við dagblöð og
tímarit. Hann átti sem kunnugt er
sæti í ritstjórn Vettvangsins í
Tímanum um ársskeið og lesend-
um hans að góðu kunnur. Ingvar
Gíslason mun starfa með hinni
nýju ritnefnd á Akureyri.
Fyrir atbeina FUF á
Ákureyri
í ávarpi ritnefndar Vettvangsins
í Degi er greint frá því, að FUF á
Akureyri hafi samþykkt á fundi
sínum 23. okt. s. 1., að kjósa þriggja
manna ritnefnd, er sæi um útgáfu
sérstakrar æskulýðssíðu, er koma
ætti háffsmánaðarlega í Degi í vet-
ur. Greinilega kemur fram í Vett-
vangnum í Degi, að hér er um að
ræða aðeins einn þátt í starfi FUF
á Akureyri og mun síðar vikið að
öðrum liðum félagsstarfsins. Rit-
nefndin segir orðrétt í ávarpi:
„Ritnefndin væntir þess fast-
lega, að ungir Framsóknarmenn
á Norðurlandi sýni þessari við-
leitni góðan skilning og geri sitt
til að Vettvangurinn verði fróð-
Iegur og skemmtilegur. — Góðar
undirtektir Iesenda ráða miklu
um framhald þessara þátta og
hvernig tiltekst um útgáfuna að
öðru leyti.
Hér með er skorað á Framsókn-
armenn að efla hinn nýja „Vett-
vang“ sem mest með greinum og
margvíslegri aðstoð, t. d. með því
að gerast áskrifendur að Degi. For-
dæmi ungra Framsóknarmanna á
Akureyri vekur þá spurningu,
hvort ekki sé tímabært að hleypa
af stokkunum sérstökum dálkum
frá ungum Framsóknarmönnum í
biöðurn flokksins í Vestmannaeyj-
um, ísafirði, Siglufirði og Norð-
firði. Vonandi taka ungir Fram-
sóknarmenn á þessum stöðum for-
dæmi Akureyringa til eftirbreytni.
Þessi mál voru rædd á síðasta aðal-
fundi stjórnar S.U.F. og komu
fram mjög eindregnar raddir um,
að ungir Framsóknarmenn kæmu
upp sérstökum æskulýðsdálkum í
öllum héraðablöðum flokksins.
Sambandsstjórn er mjög umhugað
að hrinda þessu máli í framkvæmd
og rnun efla hverja þá viðleitni,
sem sambandsfélögin sýna í þá átt.
Mikilvægur áfangi
í útbreiíslustarfi
samtakanna
Nýmæli Akureyringa á ekki hlið
stæðu í starfi annarra stjórnmála-
samtaka ungra manna hér á landi.
Samtök ungra Framsóknarmanna
eru fyrstu stjórnmálasamtökin hér
á iandi, sem hafa haft styrk til að
halda uppi æskulýðssiðum í tveim
blöðum í senn. Þetta eiga samtök-
in að þakká dugnaði og framtaki
sambandsfélagsins á Akureyri.
Ritstjóri Vettvangsins vill fyrir
hönd Samband'sstjórnar bakka Ak-
| ureyringum framtaK þeirra og jafn
framt vænta þess, að bráðlega
ingvar Gíslason
erindreki Framsóknarflokksins
á Akureyri
verði hægt að segja frá liliðstæð-
um árangri annarra sambandsfé-
laga.
Margfisett starfa ungra
Framsóknarmanna
á Akureyri
Um vetrarstarf FUF á Akureyri
segir í Vettvangnum í Degi, að á
fundi félagsins 23. okt. s. 1. hafi
verið kosin sérstök nefnd, er
ásamt stjórninni annist fræðslu- og
I skemmtistarf félagsins í vetur.
Nefndina skipa þeir Már Péturs-
son, Tryggvi Gíslason og Jón Rögn-
valdsson. Segir orðrétt í Degi um
þennan þátt félagsstarfsins.
„Fundurinn samþykkti enn-
fremur að halda reglulega
fræðsiu- og umræðufundi í vetur,
þannig að á öðrum hverjum fundi
a. m. k. yrði feitginn þekktur fyr-
irlesari til þess að halda fyrir-
lestra um eitthvert það mál, sem
hefir þjóðfélagslegt gildi eða á
annan hátt menningargildi. Um-
ræðufundir eru hins vegar liugs-
a'ðir sem venjulegir málfuiidir,
þar sem flutt yrði framsöguræða
um afmarkað efni og síðan yrðu
almennar umræður.
Rétt er að geta þess, að fyrsti
fundurinn var haldinn s. 1. sunnu-
dag og var Ingvar Gíslason máls-
hefjandi. Umræðaefni var stjórn-
málaviðhorfið. Þegar hafa verið
lögð drög að því að fá fyrirlesara
til þess að flytja erindi um sérhætfð
efni.
Mikill áhugi ríkir á Akureyri
fyrir starfi ungra Framsóknar-
manna. Starf FUF á Akureyri er
óVenju þróttmikið og færist félag-
ið mikið í fang. Formaður er Bald-
ur Ágústsson, deildarstjóri hj'á
KEA á Akureyri. Erindreki Fram-
sóknarflokksins ó Akureyri, Ingvar
Gíslason, leiðbeinir um starfið.
Undir handleiðslu hans mun verða
haldið stjórnmálanámskeið síðar í
vetur á Akureyri.
17 •<%> /
Kaupio mioa i
reiðinni í Banka-
stræti
GúSgeir Ágústsson og
Bruno Hjalíested sjá um
söluna í happdrættisbií-
reiíinni í Bankastræti
Hin glæsilega happdrættisbif-
reið SUF vekur mikla athygli veg-
farenda í Bankastræti. Gerðin Opel
Kapitan er mjög vinsæl á markaðn-
um nú og óvenju eftirsótt. Látið
ékki happ úr hendi sleppa. Kaupið
miða þegar þér eigið leið um
Bankastræti. Miðinn kostar 20 kr.
Dregið verður 21. desember n. k.
Aðalfundur FUF
í A-Húnavatns-
sýslu
Áformað er að aðalfundur FUF
í A-Húnavatnssýslu verði haldinn í
þessum mánuði. Fundardagur eða
fundarstaður hefir enn ekki verið
fastákveðinn. Nánar verður skýrt
frá aðalfundarstörfum síðar í Vett-
vangnum.
Vetrarstarf F. U. F.:
Fastir íræðslu- og málíundir og
útgáía æskulýðsslðu í Degi
.RITNEF.N1>:
BRAGl ÍNC.ÓLFSSON
HJÖRTini PÁI SSON
JÓN EINARSSON
Sala happdrætíis-
miða S.U.F. geng-
ur vel
Fjögur héruð ná 100%
sölu í þessum ménuði
DregiiS 21. desember
Söluhorfur í happdrætti S.U.F.
virðast góðar. Þær fregnir, sem
happdrættisnefndinni hafa borizt
frá Sambandsfélögunum, benda til
þess, að viðunandi árangur náist.
Mörg héruð miunu selja upp og
flest fara langdrægt í það. Þeir,
sem hafa miða til sölu frá aðalum-
boðsmönnum og hafa enn ekki gert
full skil, eru áminntir um að herða
söluna og gera sem fyrst skil.
Eins og áður er kunnugt, muu
um 20% af andvirði seldra rniða í
hverju liéraði renna til viðkomandi
FUF-félags. Hér er um nýmæli að
ræða, sem mun verða verulegur
tekjuauki fyrir flokksstarfið í
hverju héraði. Au'k þessa mun
SUF verja ágóðanum til víðtæks
erindreksturs og annars útbreiðslu
starfs um iand allt. Vinningar í
happdrætti SUF eru Opel Kapitan
bifreið og hnattferð með skemmti-
ferðaskipinu „Southern Cross“.
Verð miðans er kr. 20.00.
A v a r p
Fclng ungra Framsóknnr-
mannn n Akureyri snmþykkti
Frá Vettvangnum
Ungir Framsóknarmcnn, send-
ið Vettvangnum greinar. For-
menn Sambandsfélaga eru
áminntir um að senda Vett-
vangnum fréttir af félagsstarf-
inu.