Tíminn - 05.12.1957, Blaðsíða 2
2
TÍMINN, fimmtudaginn 5. desember 1951,
2B. þiRg S.B.S,:
Vilja eíla blaSaútgáfu sambandsins
og leita til skólanna eftir efni
ÞingitS heitir á hvern æskumann a(S gefa gaum
aí5 staíreyndum um áhrif áfengis- og tóbaks-
nauínar
26. þing Sambands Bindindisfélaga í skólum var haldiS
í GagníræSaskólanum viS Vonarstræti dagana 30. nóv. og
1. des. ÞaS hófst klukkan 5 síSdegis á laugardag. var þá
flutt skýrsla stjórnar, lesnir reikningar og bornar fram til-
lögur, sem vísaS var til nefnda.
Blaðaútgáfa lá niðri á árinu,
mest vegna fjárskorts. Vilhjálmur
Einarsson fer'ðaðist milli skóla á
vegum sambandsins og flutti er-
iridi um bindindismál og sýndi kvik
myndir. Hann heimsótti 31 fram-
haldsákóla og hélt 48 fundi. Hvar-
vetna var honum vel tekið og komu
fram óskir um að þessu starfi yrði
haldið áfram.
Fyrirlestrar.
Sambandið sá um klukkusutnd-
ardagskrá í útvarpinu að venju 1.
fcbrúar. Einnig voru sendir menn
í ýmsa skóla í Reykjavík til fyrir-
lestrahalds þennan sama dag.
Minnst var 25 ára afmælis sam-
bandsins og athugaðir möguleikar
á stofnun bindindisfélaga í fleiri
skólum.
Tillögur.
Sambandið naut um kr. 20 þús.
styrks frá Áfengisvarnarráði til
starfseminnar. Á sunnudag hófst
þing kl. 2. Voru þá tekin fyrir
mál frá nefndum og ræddar og
samþykktar m. a. eftirfarandi til-
lögur:
1. Um að efla blaðaútgáfu sam-
handsins og leita til skólanna um
efnisútvegun til að gera efni blaðs-
ins sem fjölbreyttast og skemmti-
legast.
2. 26. þing S.B.S. heitir á Alþingi
að samþvkkja framkomna tillögu
um afnám áfengisveitinga á veg-
um þess opinbera og stofnana þess.
3. 26. þing S.B.S. lýsir ánægju
sinni yfir starfsemi Æskulýðsráðs
Reykjavíkur og fagnar því tóm-
I stundastarfi, sem hafið er á veg-
um þess. Þingið telur að hér sé
um að ræða mjög jákvætt spor í
uppeldismálum þjóðarinnar.
I Einnig var lýst ánægju yfir nýj-
! um þætti í starfsemi Góðtemplara-
reglunnar, ungtemplarastarfsem-
inni.
4. 2C. þing S.B.S. skorar á önn-
ur æskulýðssamtök í landinu, eink-
anlega ungmenna- og íþróttahreyf-
inguna, að sjá um að á vegum fé-
lagssamtakanna verði öflug
fræðsla um bindindismál.
5. 26. þing S.B.S. skorar á ís-
lenzka æsku að fylgja því einu,
sem fegurst er og eftirbreytni-
verðast í fordæmi hinna eldri.
Einnig heitir þingið á hvern æsku-
mann að gefa gaum að staðreynd-
um um áhrif áfengis- og tóbaks-
nautnar á einstaklinga og þjóðfé-
lög og stuðla að algerri útrýmingu
þessara nautna.
Stjórnarkjör.
Þingforseti var Vilhjálmur Ein-
arsson og sýndi hann í lokin kvik-
mvnd frá ferðum sínum milli skól
anna. Björn Magnússon .og Bryn-
leiftir Tobíasson mættu á þinginu
og ávörpuðu þingheim. Sambandið
bauð þingfulltrúum á fullveldis-
fagnað kennaranema í Kennara-
skólanum. Að lokum var gengið
til kosninga: Formaður, Hörður
Gunnarsson (endurkj.), aðrir í
stjórn: Þórður B. Árelíusson, Unn-
ur Jensdóttir, Guðm. Guðbrands-
son og Aðalbjörn Gunnlaugsson.
Eftirlitsmaður: Ásgeir Sigurgeirs-
son kennari.
Samnmgar haínir nm heimfktniog
hollenzkra þegna frá Indonesío
Verkamenn slá óátalið eign sinni á fyrirtæki
Holiendinga og draga upp rauSa fána
NTB—Djakarta, 4. des. — Verkamenn í höfuðborg Indó-
nesíu, Djakarta, héldu í dag áfram að slá eignarhaldi á verk-
smiðjur og fyrirtæki hollenzkra manna í borginni. Drógu
þeir upp hinn rauða fána kommúnista á byggingunum. Ekki
virðist þó sem komið hafi til blóðsúthellinga í þessum átök-
um og sagt er, að hollenzkir eigendur og starfsfólk þess-
ara fyrirtækja, hafi verið látið óáreitt á skrifstofum sínum,
enda haldi það enn áfram venjulegum störfum.
Af hálfu hcllenzkra stjórnar-
valda hefir verið gefið í skyn, að
innan skamms verði hafinn brott-
flutningur hollenzkra þegna frá
Indónesiu. Handtekin hafa verið
um 20 manns, sem játað hafa á
sig aðidd að banatilræðinu við
Sukarno forseta, en höfuðpaurarn
ir hafa ekki fundizt.
Stefnt gegn hoUenzku
stjórninni.
Stjórn Indónesíu hefir opinber
lega lýst yfir, að aðgerðir þessar
bæði þar sem beinlínis hafa verið
fyrirskipaðar af stjórn Indónesíu
eða framikvæimdar af verkamönn-
um með beinum eða óbeinum
stuðningi stjórnarvaldanna, séu
til þess gerðar að árétta kröfuna
um hollenzku Nýju Guienu. For-
sætisráðherra Indónesíu liefur á-
varpað þjóðina ,agt, að þess
Fræíslukvöld
(Framhald af li'. siöu),
dregið hvattif iil að sækja þenn
an fræðslufund, en hann hefst
klukkan 8,30 í kvöld að Tjarnar-
götu 20
Stjórn Fulltrúaráðsins skipaði á
SJl. hausti sérstaka fræðslunefnd,
sem sjá mun um fræðslustarfsemi
á vegum þess, en hana skipa: Guð
mundur J. Guðmundsson, Eggert
G. Þorsteinsson og Sigurður Guð
geirsson.
verði stanglega gætt, að engin
ofbeldisverk verði framin á Holl-
lendingum né skemmdarverk á
eignum þeirra. í höfuðborginni er
fjöknennt lögreglulið og herlið á
ferð um borgina.
Stjórnmálasambandið rofið?
Utanríkisráðherra Indónesíu,
sem er á leið heim frá New York,
sagði í París í dag, a'ð ef vill yrði
óhjákvæmilegt að slíta stjórnmála
saimbanai við Holland. Það hefði
þó aldrei verið bein ætlun Indó-
nesiustjórnar að stíga slíkt skref,
en afstaða Hollendinga til kröfu
Indónesa um yfirráð hollenzku
Nýju Guienu liefðu gert róttækar
ráðstafanir nauðsynlegar.
Eisenhower vinnur
WASHINGTON, 4. des. — Eisen
hower forseti situr á stöðugum
ráðistefnum með ráðgjöfum sínum
bæði um innanlands og utanríkis
mál. í morgun sat hann ráðuneyt
isfund í tvo tíma og síðar átti
hann fund með flokksforingjum
Republikana. Síðdegis sat hann
á fundi með þingleiðtogum, sem
voru að. kynna sór innanlandsmál
og stefnu stjórnarinnar í þeim.
Ekki sat hann þó allan þennan
fund. Heldur hélt til annarra
starfa. Er sagt, a'ð heilsa hans
fari batnandi.
Áfengismál
(Framhald af 12. síðu).
verið gert myndarlegt átak. Bar-
áttuna gegn áfengisbölinu yrði
líka að efla.
. I
Væri þá ekki áhrifaríkara að
koma á áfengisbanni?
j Bernharð Stefánsson tók til
máls og sagðist álíta að þessi til-
laga boðaði ekki nógu raunhæfar
aðgerðir í þessum málum. Algjört
vínbann væri hins vegar helzta
leiðin til að draga úr áfengisneyzl-
! unni. Vitanlega yrði þá miklu
Ismyglað, en engu að síður yrði
Jslíkt bann til þess að draga úr
1 áfengisneyzlu. Sagði hann að sér
þætti einkennilegt að ekki skyldi
þá vera borin fram tilLaga um vín-
bann.
Vill láta upplýsa æskufóhk
um lióflega notkun víns.
Jón Páimason, Magnús Jónsson
i og Bernharð Stefánsson töiuðu
allir tvisvar og svöruðu einkum at-
hugasemdum í seinni ræðum sín-
um. Jón Pálmason lagði þó áherzlu
á það, að rangt væri að álíta á-
fengi einungis til bölvunar, það
væri að vísu vandi að fara með
það, en menn yrðu þá að læra
a'ð umgangast þau gæði lífsins í
hófi og taldi hann að skólar, heim-
ili og kirkjuhöfðingjar ættu að
. hafa forgöngu um þá uppfræðslu.
ÍJónas Hallgrímsson hefði haldið
því fram með réttu að þegar guða-
íveigar lífga sál, hafi það góð á-
hrif á hugsjónir og listir. Hins
! vegar ættu nautnirnar að vera
þrælar manna, en ekki öfugt.
Leifturbækur
(Framhald af 12. síðu).
ingstelpum nýkomnar út. Önnur
nefnist Matta Maja í dansskólan-
um eftir Björgu Gazelle. Hún er
198 blaðsíður að stærð, fjörleg og
spennandi unglingasaga. Hin er
Hanna í hættú eftir Brittu Munk.
Hún er framhald af Hönnu-bókun-
um, sem Leiftur hefir gefið út og
hafa orðið vinsælc- teÍDubækur.
JOLAGETRAUN TÍMANS
Efnt til námskeiðs fyrir leiSseinendur
í þjoðdönsum úti á landi
Þjóðdansafélag Reykjavíkur hóf
vetrarstarf sitt í október s. I. og
h-efir starfað með líku sniði og að
undanförnu.
Haldin hafa verið námskeið í
gömlu dönsunum og þjóðdönsum,
bæði fyrir fullorðna og börn.
Kennsla fyrir fullorðna í gömlu
dönsunum og þjóðdönsunum fer
fram á sunnudagskvöld í Skáta
heimilin og einnig á miðvikudags
kvöldum í Edduhúsinu.
Barnafiokkum er kennt siðdegis
á miðvikudögum í Skátaheimilinu.
Þá hefir sýningarflofekur félagsins
haldið uppi æfingum og mun
halda fyrstu sýningu sína á þess
um vetri á föstudagskvöldið lcem
ur fyrir Íslenzk-ameríska félagið.
Félagið hefir nú tekið upp þá
nýbreytni í starfsemi sína, að efna
til námskeiös fyrir leiðbeinendur
í islenzkum dönsum.
F0RÐ heínr íramleiðsln á
nýrri tegund dráttarvéla
Um þessar munir eru FORD-
verksmiðjurnar i Englandi að
hefja framleiðslu á nýrri tegund
dráttarvéla, sem liafa hlotið nafn
ið Fordson Dexta.
Dráttarvél þessi er nokkru
minni en Fordson Major, sem hef
ir 40,5 hestafla nótor og er 2.200
kg. að þyngd með öllum útbúnaði.
Hin nýja Dexta er með 32 hest
afla mötor og vegur um 1.350 kg.
Þessi nýja dráttarvél er einmitt
hentugasta stærðin við heyvinnu
og aðra léttari landbúnaðarvinnu
hérlendis meðan Fordson Major er
í sínu fulla gildi til ræktunar-
starfanna og annara erfiðari verka.
Fordverksmiðjurnair öil hugsan-
leg tæfei til þeirra hluta er hæfa
við haixa.
Einna mesta athygli vekur, að
Dexta er mun ódýrari en nokkur
sambæriieg dráttarvél á markaðin
um í dag.
Afli Vestfjarðabáta
í nóvember
ÍSAFIRÐI í gær. — Aíli eftirtal-
inna báta var í nóveniber sem hér
segir: ísafjar'ðarbátar: Gu'ðbjörg
110 lestir i 20 róðrum; Gunnvör
88 lestir í 17 róðrum; Ásúlfur 65
lestir í 13 róðrum og Bár 62 lest-
ir í 13 róðrum.
Hnífsdalur: Páll Pálsson 97 lest
ir í 18 róðrum og Muninn 72 lest
ir í 16 róðruim.
Bolungarvik: Einar Hálfdáns
122 lestir í 21 róðri; Hugrún 110
lestir í 22 róðrum og Þorlákur
107 lestir í 21 róðri.
Súðavíik: Trausti 40 lestir í 10
róðrum og Sæfari 37 lestir I 9
róðruan.
Afli þessi hefir verið sóttur
ýmist í Drangál austan Horns eða
til beggja handa við Djúpálinn.
Meíí jólasveinmum á ýmsum öldum
Eins og þi5 siái5 á myndinni, þá hetV! T»ias»-e»--:i!nn verið m.** ;hinni frœgu för Hz.*s,7azr$, þegar hann fór
yfir Alpana á fiium. En hvað er það í teikningunr.i, sem alis ekki gat átí sér stað?
HÉR ER ÞRIÐJA MYMDÍN í GETRAUNINNI. Sendið öll svörin í einu til Tímans, Edduhúsinu, Lindargötu 9A,
Reykjavík fyrir 21. des., en þá verður dregið úr réttum svörum, og 12 verðlaun veitt, sem eru barna- og ungl
ingabækur frá bókaúfgáfunni NORÐA.