Tíminn - 05.12.1957, Side 5

Tíminn - 05.12.1957, Side 5
t f MI N N, f immtudaginn 5. desember 1957, Fjölsótt stjórnmálanámskeið F. U. F. í Skagafirði Eitt glæsilegasta námskeið ungra Framsoknarmanna - Attatíu manns sóttu námskeiðið - Magnús Gíslason leiðbeindi - Fjögurra daga námskeið á Sauðárkróki 19.-23. nóv. síðastliðinn Geysilegur áhugi fundarmamia Fyrir skömmu lauk einu myndarlegasta stjórnmálanám- skeiði á vegum ungra Framsóknarmanna til þessa. Ungir Framsóknarmenn 1 Skagafirði beittu sér fyrir stjórnmálanám- skeiði dagana 19.—23. nóvember s. 1. í félagsheimilinu Bifröst á Sauðárkróki. Aðalfundur FUF í Skagafirði, sem haldinn var fyrir skömmu, kaus þá Gísla Felixson, Björgvin Skaftason og Konráð Gíslason 1 nefnd, er undirbyggi stjórnmálanámskeið, ásamt stjórn félagsins. Nefndin hóf þegar undirbúning og tókst að tryggja sér Magnús Gíslason, bónda á Frostastöðum, sem leiðbeinanda. Undirbúningstími var skammur og því ekki hægt að tryggja fyrirfram mikla aðsókn. Aðsókn fór langt fram úr björtustu vonum. Afburða aðsókn EINS OG að framan segir sóttu námskeiðið, þegar flest var, 80 manns, sem telja má einstaka að- sókn og sérstaklega þegar tillit er tekið til þess að margir fundar- manna þurftu að fara um 40 km leið á fundarstað og sóttu þó alla fundina. Þetta sýnir og sannar Kristján Magnús Gíslason leiðbeindi á námskeiðinu bezt, hve gífurlegur áhugi er með- al unga fólksins á málefnum Fram sóknarflokksins. — Talið er að lengstu vegalengdir milli þátttak- enda hafi verið um 120 km og sannar þetta hve dreif aðsóknin aðsóknin hefir verið um héraðið. Stjórnmálanámsbeið FUF er fjölsóttasta námskeiðið, sem hald- ið hefir verið á vegum sarntak- anna utan Reykjavíkur. Þýðingarmikill sigur í flokks- | stsrfinu í Skagafirði j STJÓRNMÁLAnámskeiðið var sett í Félagsheimiiinu Bifröst á Sauðárkróki, þriðjudaginn 19. nóv. !kl. 8,30. Fundinn sóttu fimmtíu ungir menn víðsvegar að úr hér- aðinu, enda þótt aðeins 10—15 manns hafi boðað fyrirfram þátt- töku. Þetta sýnir glögglega áhug- ann. 1 Fundarstjóri var kjörinn Magn-j ús H. Sigurjónsson varaformaður, F U F í Skagafirði, en fundarritari Bjarni Gíslason, Eyhildarholti. — Framsöguræður fyrsta fundarins héldu Kristján Karlsson skóla- stjóri að Hólum og Magnús Gísla- son. Kristján Karlsson ræddi um landbúnaðar- má'L Rakti hann þróun þeirra mála og afskipti Franisóknarfl. af þeim. Dró hann upp fyrir fundar- mönnum skýra mynd af þróun landbúnaðarins í ræðu sinni. — Lagði hann áherzlu á þá miku að- stoð, sem Framsóknarfiokkurinn hafi veitt þændastéttinni með bar- áttu sinni fyrir hagsmunamálum 'lan'd'búnaðarins um áraraðir á Al- þingi og í ríkisstjórn. Magnús Gíslason ræddi um sam- vinnumál. Ræða hans var stórfróð leg og rösklega flutt. Hann rakti uppruna sam- vinnuhreyfingar- innar og gerði glögga grein fyr- ir samvinnustefn unni, sem þjóðfé- lagsstefnu. Saga samvinnustefn- unnar á íslandi er samofin bar- áttu þjóðarinnar til aukinnar hag- sældar og efna- hagslegs sjálfstæðis. Magnús lagði ríka áherzlu á áhrif samvinnu- starfsins á þjóðlífið og henti með Gunnar skýrum rökum á þau miklu grettis- tök, sem sa'mvinnumenn hefðu lyft með starfi sínu, þjóðinni til betra lífs. Námskeiðið hélt áfram á mið- vikudagskvöld og fimmtudags- kvöld. Framsöguræður fluttu þá: Gunnar Oddsson, ráðunautur, Kon ráð Gíslason, Frostastöðum og Björn Gunnlaugsson, Bi’imnesi. Gerður var góður rómur að ræð- um þeirra. Innanhéraðsmál voru mikið rædd. Þó einkum hafnarmál Sauðárkróks, sem er mál málanna í Skagafirði. Án góðrar hafnar get ur enginn atvinnuvegur hér verið samkeppnisfær við atvinnurekstur á öðrum stöðum. Hafnarskilyrði eru ónóg á Sauðárkróki og stendur það framförum í Skagafirði fyrir þrifum. Milli- landaskipin geta ekki komist inn í höfnina og þarf því að umskipa mégninu af vör- um Skagfirðxnga í Reykjavik, með ærnum aukakostn aði. Fundarmönn- um var Ijóst að hér fer saman brýnt hagsmuná- mál jafnt fyrir sveitirnar og bæi. Rætt var um eflingu iðnaðar í hér aðinu og iðnstöðvar í sveitum. Töldu fundarmenn að léleg hafnar skilyrði í héraðinu væri skagfirzk- um iðnaði fjötur um fót. Útgerðar mál báru mjög á góma og kom fram áhugi fyrir samvinnuútgerð. Mikil vakning ríkti á fundunum í málum héraðsins. Greinilega kom í ijós, að unga fólkið í Skagafirði er einráðið í því að helga héraðinu krafta sina og skapa því sambæri- lega stöðu í þjóðarbúskapnum við byggðir Eyjafjarðar. Einhugur um stjórnar- samstarfið LOKAFUNDUR stjórnmálanám- skeiðsins var á föstudagskvöldið 23. nóvember. Fundinn sóttu átta- tíu manns. Gestir námskeiðsins á lokafundinum voru Steingrimur Steinþórsson, þingmáður kjördæm KonráS MALGAGN S. U. F. Ritstjóri: Áskell Einarsson isins og Ólafur Jó hannesson pró- j fessor.Fluttu þeir fróðleg yfirlitser- indi um stjórn- málin. Skýrðu þeir fyrir fundar mönnum stjórn- málaviðfaorfið og hvað væri fram- undan í stjóm- málunum. Gerðu fundarmenn góð- an róm að máli þeirra. Uræður voru íjórugar iangt fram eftir kvöldi. Fundarmenn voru einhuga í stuðningi sínum við núverandi stjórnarsamstarf. Það var almenn Steingrímur an þátt félagsstarfsins í Skaga- firði. Fastir málfundir í undir- búningi STJÓRN FUF í Skagafirði hef- ir í undirbúningi að koma á ein- um eða fleiri málfundum mánað- arlega á veturnar. Stjórnmálanám- skeiðið gaf svo góða raun að lík- legt er að fastir málfundir gætu orðið f jölsóttir. Raddir hafa kom- ið frá félagsL mönnum að kom ið verði á slíkum fundum með svip uðu sniði og stjórnmálanám- skeiðið. Vonandi tekst stjórninni að hrinda þessu á- formi í framkvæmd. Rcgnvatdur 100% sala happdræítis SUF tryggS í Skagafirði HAPPDRÆTTISnefnd SUS hafa borizt þær fregnir frá sölustjór- anum í Skagafirði, Magnúsi Sigur- jónssyni, að húið sé að tryggja sölu á öllum happdrættxsmiðum SUF í héraðinu. Sannar þessi ár- angur, að í Skagafirði er óvenju gott starf unnið í þágu flokksins og samtakanna. h$Zl í ræðuslól er Björn Gunnlaugsson, Brimnesi. Viö borðiö sitja i röð frá ræöustól fundarstjóri Magnús H. Sigurjóns'son og Bjarni Gísiason fundar- ritari. Nokkrir fundargesta á stjórnmálanámskeiði FUF í Skagafirði. skoðun, að flokk um. þeim, sem standa að ríkis- stjórninni væri bezt trúandi til þess að leysa að- steðjandi vandaL mál að skapi vinnandi fólks til sjávar og sveita. Skoruðu fundar- menn á stjórn- málaflokkana að standa fast saman í samstarfinu. Meðal ræðumanna voru Stefán Gestsson, Arnar- stöðum, Rögn- vald’ur Gíslason, Djúpadal _ og Guttormur Ósk- arsson, fulltrúi á Sauðárkróki. Hlutu ræður manna mjög góð ar undirtektir fundarmanna og lau'k fundi seint. Stefón um kvöldið eins og fyrr er frá sagt. Framsóknarvist á laugardagskvöld LAUGARDAGSkvöldið 24. nóv. gekkst F U F í Skagafirði fyrir skemmtisamkomu í Bifröst á Sauð árkróki. Spiluð var Framsóknar- vist á 38 borðum. Spilaverðlatm voru mj.ög glæsileg, um 1300 kr. virði. Spenningur var mikill í spilamennskunni. Skemmti fólk sér hið bezta. Svo var stiginn dans fram eftir nóttu. Skemmtunin var fjölsótt og fór hið bezta fram. Skemmtanir sem þessi eru nú fa-st ur liður í starfi F U F í Skaga- firði. Hyggst fé- lagið hafa sam- vinnu við félög eldri Framsókn- manna um þenn- Guttormur Bréf til Vettvangsms i Eg samgleðst ykkur, ungu menn, yfir vaknandi og vaxandi lífi og fjöri í starfsemi ykkar. Það er gleði- efrii fyrir okkur hina eldri, að sjá, hve „Síöan“ ykkar í Tímanum er nú miklu lifmeiri, heldur en oftast áður. Og það er ekki sízt ánægju- legt að sjá þar nokkuð mörg andlit þeirra ungu manna, víðs vegar úti á landi, sem nú eru í fararbroddi þar í féiagsskap æskumanna, er keppa til meira og betra félagslífs, sem oft hefir verið og vonandi verð ur ekki síður nú til aukinnar ham- ingju og dáða fyrir sjálfa þá og okk ar litla þjóðfélag, heldur en Ung- mennafélögin voru okkur eldri kyn- slóðinni á æskuárunum. Einnig fagna ég tímariti ykkar, „Dagskrá“. Það ber líka vott um fjölbreytni í vilja og góðu starfi. Þegar ég lét Samband ungra Fram I sdknarmanna hafa tímarit mitt Dvöl | vegna þrábeiðni þáverandi foringja SUF, gerði ég það í þeirri von og trú, að það yrði bæði til góðs ritinu og félagsskap ungu mannanna. Þá var Dvöl orðin vinsælt tímarit. En þrátt fyrir nokkur vonbrigði mín á þeirri útgáfu SUF, er mér sér- stök ánægja að samtökin fara nú aftur af stað með tímarit, sem verð- ur vonandi til menningarauka fyrir unga menn og fleiri. Nú eru margir orðnir þjóðkunnir efriismenn, sem Dvöl flutti fyrstu orðin frá á prenti. Vona ég, að sú saga endurtaki sig hjá Dagskrá. Það eru einmitt svona tímarit áþekk og hún, sem ungir menn þurfa að iðka kraftana á aö efla. Þegar ég gaf Dvöl út, var orðin mikil ásókn í að koma >nn í hana ýmsu, sem henni var ekki fengur að — ekki sízt einhverjum hálfgerðum leirburði í bundnu máli. En aðstand- endur Dvalar stóðu á móti slíku. Ilvernig efnisvalið hefir tekizt um að taka helzt það, sem eitthvert gildi hafði, býst ég við að sé sæmi- legt vitni um þær vinsældir, sem (Framhald á 8. síðu.)

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.