Tíminn - 05.12.1957, Blaðsíða 12

Tíminn - 05.12.1957, Blaðsíða 12
Veðurútlit fyrir Faxaflóa: Allhvass suðvestan, skúrir eða slydduél. Nýtt og stóraukið guðfræðingatal komið út hjá Leiftri - útgáfu- bækumar um 30 Einnig eru nýkomnar á vegum forlagsins ræ<Su- safn séra Eiríks Albertssonar, ljóíabók eftir Ing- ólf Kristjánsson og feríabók eftir Axel Thor- steinsson Gunnar Einarsson, forstjóri bókaútgáfunnar Leifturs skýrði fréttamönnum 1 fyrradag frá útgáfubókum forlagsins á þessu ári, einkum þeim, sem út eru að koma þessa dag- ana, en það eru 10 bækur. Alls gefur Leiftur út um 30 bækur á árinu, og eru aðeins tvær þeirra ókomnar á mark- aðinn en væntanlegar næstu daga. Eru það ljóðabók séra Sigurðar Einarssonar Yfir blikandi höf og þýdd bók er nefnist Sýnir á dánarbeði. presta og að nýjum nöfnum. í Bækur þær, sem nýkomnar eru þessu riti eru taldir allir þeir, sem út hjá Leiftri, eru þessar: Guð- lokið hafa guðfræðiprófi. Þar eru fræðingatal 1847—1957, tekið ýtarlegar upplýsingar um uppruna saman af séra Birni Magnússyni, og nám og störf og einnig getið prófessor. Guðfræðingatal kom út barna presta. Ritaskráin er sér- á aidarafmæli Prestaskóla íslands íega nákvæm. í viðaukum eru tald 1947, en nú talið mjög aukið, bæði jr kandidatar frá Höfn. og „prest- að upplýsingum um einstaka vigðir menn, er tóku ekki guð- fræðipróf. Nafnaskrá er aftast í bókinni. Hún er mjög vönduð að útgáfu og hin bezta heimild. Prédikanir séra Eiríks. Önnur bókin er úrval predikana eftir séra Eirík V. Albertsson og nefnist í hendi g'uðs. Séra Eiríkur er sem kunnugt er hálærður mað- ur 1 guðfræði og var í prestsskap sínum annálaður ræðuskörungur. Bókina helgar höfundur ömmu sinni, Bergþóru Andrésdóttur. Ljóðabók Ingólfs. Þriðja bókin er ný Ijóðabók eft- ir Ingólf Kristjánsson, ritstjóra. Nefnist hún Og jörðin snýst. Þar eru 38 ljóð. Ingólfur hefir gefið út nökkrar bækur áður, aðallega smásögur og Ijóð. Efnið í þessum Ijóðum er dregið víða að, flest eru þau rímuð, en einnig lausrímuð eða óbundin að mestu. Þetta er þriðja ljóðabók Ingólfs og að efni og formi töluvert ólík hinum fyrri. Flugeldar Péturs. Þá gefur Leiftur út ritgerðasafn Péturs Jaköbssonar fasteignasala og nefnist Flugeldar I og gefur náfnið von um framhald. Þetta eru aðallega blaðagreinar frá síð- ari árum um ýrnis dægurmál, og sést þar eins og raunar var vitað, að Pétur lætur sér ekkert mann- legt óviðkomandi,. Larsen efstur eftir þrjár umferðir Þegar blaðið fór í prentun í gærkveldi höfðu engar fregnir borizt af fjórðu umferðinni á skákniótinu í Dallas, en úrslit úr biðskákum vorn kunn. Larsen hafði unnið biðskák sína við Yanovvski og liefir því ZV-> vinn- ing eftir þrjár uniferðir og er efstur á inótinu. Næstir koma Szabo og Evvans nieð 2 vinninga, Yanovvski með l'á vinning og Friðrik með 1 vinning. f fjórðu umferðinni í gær átti Friðrik að tefla við Najdorf. Samkvæmt síðustu fréttum liefir skák þeirra Friðriks og Najdorfs farið í bið. Þá er Resh- evsky orðin jafn þeim Evans og Szabo með tvo vinninga. Silíurhófura, fallegt rússneskt ævintýri Jakob Hafstein hefir þýtt fall- egt rússneskt ævintýri, sem heitir „Silfurhófur“, eftir P. Bazho, og Lithoprent gefið út. í ævintýrinu Hitinn kl. 18. Kaupm.li. 8 st., Osló 7 st„ Lond* on 2 st., París 1 st„ ÞórshSfn 8 st Nevv York -4-1 st, R.vík 5 sí. Fimmtudagur 5. desember 1957. Skiptar skoðanir um áfengismál við umræour á Alþingi í gær Eftir umræður í jþrjá þingfundartíma varS enn ati fresta umræoum, er fundartími var úti Á Alþingi urðu enn í gær allsnarpar umræður um á- fengismál. Til umræðu var í sameinuðu þingi tillaga til þings- ályktunar um afnám áfengisveitinga á kostnað ríkisins. En flutningsmenn hennar eru eins og áður hefir verið skýrt frá þeir Alfreð Gíslason, Sigurvin Einarsson og Pétur Otte- sen. Hefir fundartími þriggja daga í Sameinuðu þingi verið svo til fullnýttur til umræðna um þetta mál eitt og' ekki lokið, þar sem menn voru enn á mæiendaskrá er fundartími v'ar úti í gær og þingforseti tók málið út af dagskrá og' frestaði því við þingfundarslit. að sér að fórna jafn litlu fyrir SILFURKOrUR eru ljómandi fallegar litprentað- ar myndir, sem gert hefir rússn- esk listakona og er bókin útgefin hér með leyfi rússneska útgáfu- fyrirtækisins, en hún hefir áður komið út á fleiri tungumálum, m.a. ensku. Útgáfa Lithoprents er vönduð, og þessi litla barnabók IMeg til vinsælda hjá yngstu les- endunum. Fræðslukvöld full- Fyrstur tók til máils í gær Al- freð Gíslason og flntti alllanga ræðu. Gerði hann þar frekari grein fyrir sjónarmiðum þeirra, er afnerna vilja vínveitingar og svar- aði einstökum athugasemdum, sem fram höfðu komið við umræður. Lauk liann máli sínu með því að leggja áherzlu á að með samþykkt tillögunnar yrði gefið hollt for- dæmi, þar sem þess er mikil þörf, og að eftir slíku fordæmi af hálfu hins opinbera yrði tekið. Breytingartillögur og breytingar- tillögui- við breytingartillögur. Jón Pálmason tók næstur til máls og gerði grein fyrir brejdinga tiilögu, sem hann hefir flutt, þar sem lagt er til að dregið verði úr veizlum hins opinbera og tekið fyrir skemmtiferðalög starfsfólks ríkisstofnana á kostnað ríkis. Þing- maöurinn sagðist taka dæmi sin fi-á atvikum, sem skeð hefðu fyrir daga núverandi ríkisstjórnar og sagðist oft hafa mótmælt þessum atriðum við endurskoðun ríkis- reikninga. En af þeim kynnum, er haun hefði haft af þessum málum mai'g undanfarin ár sagðist hann telja að fækka mætti árlegum veizlum ríkisins úr 200 í 100 eða færri. Þá taldi hann nauðsynlegt að taka alveg fyrir slcemmtiferða- lög starfsfólks ríkisstofnana, en margar ríkisstofnanir hefðu fyrir vana að fara árlega í slíkar ferðir og láta ríkið greiða kostnaðinn. Næstur tók til máls Magnús Jónsson, sem hefir flutt breytinga- tillSgu við breytingatillögu Jóns Pálmasonar. Taldi hann fjarstæðu þá fullyrðingu Jóns Pálmasonar að ekki væri hægt að halda veizlu án vínfanga. Hafði Jón talað sér- staklega um hina árlegu þing- mannaveizlu, sem lítt hugsanlega án vinfanga og taldi Magnús frá- leitt að þingmenn gætu eklci hugs- þetta mál og því að hafa þing- veizluna vínlausa. Hins vegar tók hann undir þau ummæli Jóns að Alþingismenn væru a'llir hófs- menn í þessum efnum. Sagði Jón að i mörg ár hefði hann aldrei vitað til þess að alþingismaður væri undir áhrifum áfengis á þingfundi, en það sagði hann að hefði aftur á móti verið algengt hér fyrr á árum. Leita verður lirræða í bar- áttunni gegn áfengisbölimi. Sigurvin Einarsson tók næstur til máls og færði fram mörg rölc fyrir þvi að samþykkja bæri til- löguna. Sagðist taka undir það að ástæða væri til þess að stuðla að aúknum sparnaði með því að fækka veizlum hins opinbera, en taldi spilla fyrir þessari tillögu að blanda því máli við hana. Hins vegar sagðist hann álíta að víða væri þó frekari þörf að byrja en stuttum skemmtiferðum, sem sum ríkisfyrirtæki bjóða starfsfólkinu í einu sinni á ári. Sigurvin tólc undir þau ummæli Bernharðs Stefánssonar á éögun- um, að nauðsynlegt væri að gefa uppeldismálum æskunnar meiri gaum, ekki sízt með tilliti til strangara eftirlits með óhollum kviikmyndum. Lagði Sigurvin á- herzlu á það að grípa þyrfti til raunhæfra aðgerða í baráttunni gegn áfengisbölinu og þessi tillaga væri spor í þá átt, þó það væri kannske ekki eins stórt spor og þyrfti að stíga. Ræðumaður sagði að á einum tíma hefði beúklaveikin verið mik- ið böl á íslandi, en þetta hefði nú breytzt þannig tO betra, að barátta íslendinga gegn berkla- veikinni hefði orðið öðruna þjóð- um til fyrirmyndar. Svipað væri að segja um slysavarnir, þar hefði (Framhald á 2. síðu). félaganna frlandsbók Axels. Þá hefir Leiftur sent frá sér . , r*. bók eftir Axel Thorsteinsson, rit- tfliaraOS VerKalyÖS- höfund, og nefnist hún Eyjan græna. Eru þetta ferðaþættir frá frlandi. Axel hefir ferðazt um ír- land bæði fyiT og síðar og dvalið. þar nokkuð og er allkunnugur! landsháttum þar. Kaflaheitin í þessari bók gefa nokkra hugmynd um efni hennar. Þau eru: Um ír- land og írlendinga, Ferðaþættir frá Norður-írlandi, Dagur í Dyfl- inni og Þar sem ástin átti efekert griðland. Nokkrai’ myndir frá ír- landi eru í bókinni. ■’ A- r \ Ingólfur Kristjánsson Margar barnabækur. Leiftur gefur út margar barna- bækur. Þær, sem koma út þessa dagana, eru þessar: Gulltárin, þrettán barnasögur eftir Guðrúnu Jakobsen, með myndum eftir Hal'l dór Pétursson og eru þær í litum. Þetta er allstór og falleg barna- bók. Þá er smábarnábók, sem nefnist Blómálfabókin í þýðingu Freysteins Gunnarssonar skóla- stjóra. Er hún með mörgum og stórum myndum en litlu lesmáli, falleg bók í stóru broti. Þá eru tvær bækur ætlaðar ungl (Framhald á 2. síðu). I kvöld hefst fræðslustarfsemi á vegum Fulltrúaráðs verkalýðs- fólaganna í Reykjavík. Fundurinn í kvöld er haldinn fyrir trúnaðar menn á vinnustöðvum og stjórnar eftirtalinna félaga: Verkamanna- félagið Dagsbrún, Verkakvenna- félagið Framsókn, Iðju, félag verk smiðjufólks, Félag járniðnaðar- manna og Félag blikbsmiða. — Hinsvegar er fvrirhugað að halda fleiri slíka fræðslufundi á vegum Fulltrúaráðsins og imun næsti fundur verða fyrir trúnaðarmenn og stjórnir annara verðalýðsfélaga en þeirra, sem getið er hér að framan. Á fræðslufundinum í kvöld flyt ur Þórður Iíunólfsson, öryggis- málastjóri, erindi um öryggi á vinnustöðvum, og mun hann jafn fremt sýna myndir í því sam- bandi. Eru trúnaðarmenn og stjórnir fyrrgreindra verkalýðsfélaga ein- (Framhald á 2. síðu). Fyrirsparn til borgarstjérans: Hvenær verður Faxi gerður upp og gengio að Kveldúlfi? íhaldið vill alls ekki heildaárætlun um verklegar framkvæmdir REYKJAVÍKURBÆR rekur margs konar starfsenii eins og eðlileg't er í svo stórum bæ. Segja má, að bæjarstofnunin sé í rauninni fyrirtæki, sem borgaiainir eiga og reka, en fela bæj- arstjórn franikvæiiid málanna ínilli kosninga. í öllum nútíma stórfyrirtækjum er reynt að skipuleggja starfið sein mest. Þess er gætt, að það, sem einn liluti fyrirtækisins framkvæmii’, rek- ist ekki á starfssvið annars. Með slíku liáttalagi er fyrirtækinu gert Iiið mesta mein og lélegt skipulag grefur undan fraintíðar- horfum þess. Það er kunnara en frá þurfi að greina, hversu skipulagslaust allt starf bæjarfyrirtækisins er í liöndum ílialdsins. Eitt rekur sig á annars horn og borgararnir greiða mistökin úr eigin vös- um. Framsóknarmeiin hafa löngum bent á nauðsyn þess, að framkvæmdir Reykjavíkurbæjar yrðu betur skipulagðar, en íhaldinu liefir ekki þótt ástæða til að bregða við og betrum- bæta ástandið. Þórður Björnsson, bæjarfulltrúi, hefir marg- sinnis borið fram tillögur um þetta mál, og fer liún hér ú eftir: Bæjarstjói'n ályktar að fela bæjarráði að semja rökstudda heildaráætlun um verklegar franikvæindir bæjarins og stofn- ana hans næstu 4 ár og er tillögur til bæjarstjórnar iim hvernig framkvæmdirnar verði bezt saniræmdar innbyrðis, þannig að endir verði biuidinn á það háttalag, að ein starfs- grein i bæjarrekstriniim eyðileggi verk, sem önnur starfs- grein er að vinna eða hefir nýlokið við. Þessari tillögu liefir ílialdið slungið undir stól, eins og fleiri unibótatillöguin Framsóknarmaima. Gerðum íhaldsins ræður ekki það sjónarmið, að fyrst og fremst eigi íeksturinii að vera liagkvæmur fyrir borgarana, heldur hitt, að liaiin sé hagkvæuiur fyrir íhaldsgæðingana, þeirra velferð er liæst metin.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.