Tíminn - 10.12.1957, Page 2
T f M I N N, þriðjudaginn 10. desember 1957«
Skemmtileg bók um Álbert GuS-
mundsson eftir Jónas frá Hrifk
i
Þ;ir er greint frá knattspyrnuferli Alberts í
frægustu Iiíium Evrópu, Rangers, Arsenal,
Milan og Racing Club
Nýlega er komin út bók um Albert Guðmundsson, hinn
kunna knattspyrnusnilling, rituð af Jónaá Jónssyni frá Hriflu.
í bókinni er knattspyrnuferill Alberts rakinn á skemmtilegan
og f jörlegan hátt, allt frá því að hann hóf að leika knattspyrnu
hér heima og þar til hann kom heim aftur eftir að hafa leikið
sem atvinnumaður með mörgum frægustu knattspyrnuliðum
Evrópu um árabil og hlotið viðurkenningu sem einn snjallasti
knattspvrnumaður Evrópu.
í formáila gerir hclfundurinn,
Jónas Jónason, grein fyrir útgáfu
bókarinnar og þar segir m.a.:
„Tvær ástæður valda því, að ég
tók að mér að rekja á prenti
ntíkkra þætti úr útferðarsögu
Ailberts Guðmundssonar, knatt-
spyrnumanns. Bar þar fyrst til, að
mér þótti saga hans merkilegur
þáttur í framþróun íþróttalífs á
íslandi. Enginn vafi er á því, að
um no.kkurra ára skeið var Albert
Guðmundisson í allra fremstu röð
knatt'spyrnumanna á Vesturlönd-
um. Ef sá siður hefði verið tekin
upp í knattspyrnumálum, að velja
árlega, til fyllistu viðurkenningar,
einhvern knattspyrnumann, sem
hafi hlotið mesta alþjóðlega frægð
þá Tnynd'i Albert á þessu tímabi'li
hafa hlotið þann heiður. Sá mað-
ur, sem aflar sér slíkrar frægðar,
varpar líka ljóma yifir land sitt
og þjóð“.
Hin röksemd höfundar er „að
útferðarsaga Alberts og hekn-
koma, séu þess eðlis, að þúsundir
ungra manna hér á landi, sem
stunda knattspyrnu sér tii heiisu-
bóta og ánægju, geti af þessari
frásögn numið nokkur þau sann-
indi, sem þeiim er mest þörf á
að þekkja“.
Se'gja má, að höfundi hafi tekizt
liér imjög vd, og bókin á tvímæla
laust erindi til allra, ungra manna,
sem íþróttir stunda. Með dugnaði
og þrautsegju geta ungir menn
smáþjóðar náð jafn langt á íþrótta
brautinni og mestu afreksmenn
stórþjóðanna, og saga Alberts er
| Hafnarframkvæmdir
á Akrasiesl
(Framhald ax 12. slðu).
í 5,5 m. til viðbótar. Byggingar-
efni var sótt á Ferju II. að Höfn
í Leirársveit.
Viðlegurúm fyrir skip í höfn-
inni eykst um 465 m., en þaS
var áður 410 m., svo það meir
en tvöfaldast.
Heildarkostnaður við hafnar-
framkvæmdirnar er rúmlega kr.
20 milljónir. Stærsti hluti þess
er fenginn að láni frá firmanu
Habag í Diisseldorf, eu Akranes-
kaupstafur hefir greitt til fram
kvæindanna kr. 4 millj. á tveimur
árum og ríkissjóður kr. 1,2 millj.
i Ú tflutningsverðmæti, sem fóru
í gegn uin Akraneshöfn á síð-
asta ári voru um kr. 65 millj.
Nú gleðjast allir góðir menn.
Daníel Agústínusson bæjarstj.
Aibert Gudmundsson
einn frægasti knattspyrnum. Evrópu.
einmitt táknrænt dæmi um það.
Útgefandi bókarinnar er Gunnar'
Þorleifsson og hefir. hann ekki.
látið sinn hlut eftir liggja. Bókin !
er hátt á annað hundrað blaðsíð-
ur og yfir 70 myndir prýða liana,
flestar taknar erlendis, frá knatt-
spyrnifleikjum Alberts, og auka
þær mjög á gildi bókarinnar.
Fiskiþingi lauk í gær, afgreiddi
41 mál, 435 ræður voru fluttar
Fiskiþingi lauk í gærdag og fóru kosningar fram á síðasta
þingfundinum. Davíð Ólafsson var endurkjörinn fiskimála-
stjóri til næstu fjögurra ára. Vara-fiskimálastjóri var kosinn
Hafsteinn Bergþórsson.
mál, og 435 ræður voru haldnar.
Að löknu fiskiþingi var borð-
hald í Tjarnárcafé. Þegar borð-
haldinu laulk fóru flestir fulltrúa
og ntíkrir gestir aðrir í hraðfrysti
húsið ísbjröninn h.f. í boði Ingv-
ars Vilhjálmssonar. Var verið að
vinna í húsinu, svo menn gátu
skoðað fiölkunarvélar og annan út-
búnað. Dáðu menn framtalk og
myndarskap. Þegar skoðun var
lokið, settust menn að glæsilegum
veitingum í kaiffis&l hraðfrystihúss
ins.
Kýpurmálið
á þingi S. þ.
New York-Nicosia, NTB, 9. des.
Vara-utanríkisráð'herra Breta, Alan
Nobel, sagðist vera þess fullviss
að ná mætti samkomulagi í Kýpur
málinu, er umræður hófust um
málið í stjórnmálanefnd S. þ. 'í
dag. Hann sagði, að brezka sendi-
nefndin væri fús til að ræða við
aðra aðila, sem hlut ættu að þessu
máli í þeim tilgangi að semja á-
lyktunartillögu, sem aðgengileg
væri bæði fyrir grísku og tyrkn-
esku rikisstjórnina og íbúana á
Kýpur. Noble kvað Kýpur-málið
ekki vera neitt venjulegt nýlendu
vandamál svipað þeim, sem brezka
stjórnin hefir oft átt við að glíma,
heldur alþjóðlegt vandamál, sem
varðaði sambúð Bretlands, Grikk-
lands og Tyrklands.
Út af þessum umræðum S. þ.
hafa orðið allmiklar óeirðir á
Kýpur í dag, viðts vegar um eyna.
Brezkir hermenn hafa beitt bæði
skotvopnum og táragasi til þesis að
stxLla ti-1 friðar. — Mikill fjöldi
manna hefir særzt í óeirðunum.
Við sólarupprás í morgun var boð
að ,til aímenns verkfalls í 24 klst.
með því að hringja í- senn öllum
kirkjuklukkium á eynni. Um 900
Kýpurbúar sitja nú í fangelsi grun
aðir um hermdarverkastarfsemi.
Umræðufundur um
réttarstöðu
í stjófn Fiskifélagsins til næstu
fjögurra ára voru kjörnir: Pétur
Ottesen, Ingvar Vilhjálmsson, Em-
II Jónssón og Margeir Jónsson.
í varastjórn: Jón Axel Pétursson,
Þorvarður 'Björnsson, Einar Guð-
finnsson og Karvel Ögniundsson.
Endurskoðandi var kjörinn Gutt-
ormur Erlendsson og til vara Ólaf
ur B. Björnsson.
Kósin var miiiiþinganefjid til
að endurskoða lögin um hluta-
'tryggingásjóð. Kosningu hlutu:
Einar Guðfinnsson, Margeir Jóns-
son, Magnús Gamalíesson, Ingvar
Vilhjál'msison, Sveinn Benedikts-
son og Helgi Benónýsson. Formað-
ur nefndarinnar verður Már Elías
ison, fuiliLtrúi í Fiskifélaginu. Vara
menn í nefndina voru kjörnir:
Guðfinnur Einarsson, Magnús
Magnússon, Egiíl Júlíusson, Níels
Ingvarsson, Jóhann Sigfússon, Haf
steinn Báldvinsson.
í milliiþingan-efnd til að endur-
skoða vátryggingarreglur vélbáta,
var kjörinn einn maður: Ingvar
Vilhjálm'Sson.
Fiskiþingið afgreiddi alls 41
Grænlands
Flokaglíma
Reykjavíkur
Flokkaglíima Reykjavíkur fór
fram að Hálogalandi s.l. sunnudag.
Keppt var í tveim þyngdarflokk-
um fullorðinna og drengjaflckki.
Gísdi Halldór.'son formaðitr íþrótta
bandalags Reyikjavíkur setti giímu
mótið. í fyrsta þyngdarficfcki sigr
aði Armann J. Lár.usson með 2
vinnir.guim og næstur varð
I kvöld kl. 8,30 gengst Stúd-
entafélag Reykjavíkur fyrir al-
mennum félagsfundi um réttar-
stöðu Grænlands. Fundurinn
verður í Sjálfstæðishúsimi. —
Framsögumaður er dr. Jón Dúa- j
son, sem kynnt hefir sér þessi
mál allra manna bezt og barizt
ötullega fyrir landnáms- og
byggðarétti fsiendinga á Græn-
landi. Ýmsum Grænlandsáhuga-
mönnum hefir verið boðið á
fundinn.
Kristján Heimir Lárusson með 1
vinning, báðir úr UMFR. í öðrum
filoi'kki sigraði Hilmar Bjarnason j
með 3 vinningum, naestur varð j
Ólafur Bjarnason með 2 vinninga, j
báðir úr UMFR, og þriðji Kristján
Andrésson úr Ármanni með 1 v. j
í drengjaflptoki sigraði Kristján j
Grétar Tryggvaspn úr Ármanni
með 4 vinningum, næstur Guð- j
mundur G. Þórarinsson úr UMFR .
með 3 vinninga c-g þriðji Sigurjón’
Krktjánsscn úr Ármanni með 2
vinninga. i
Hermann Guðmundsscn fram- j
kvæmdastjóri ÍSÍ afhenti verðlaun
cg sleit mótinu.
lauk ræðu sinni með þessum orð
um:
,,Eg vona og bið, að liöfnin
megi verða öruggur-hvíldar og
griðarstaður þeirra sem af liafi
koma. Eg vona að sjómennirnir
okkar, sem
„flytja þjóðinni auð,
sækja barninu brauð,
færa björgin í grunn
undir framtíðarhöll“
megi hér finna það glöggt, að
þeir eru komnir I höfn og þurfi
engu að kvíða, þegar langri og
oft erfiðri sjóferð er lokið. Að
þeir geti sofið áhyggjulausir yf-
ir því að báturinn þeirra verði
ekki brotinn að inorgni. Hættur
hafsins eru nægilegar, þó ekki
bætist við óvissa um atvinnutæk
in, þegar í land er komið. Yfir
þessum framföruin gleðjast allir
góðir menn. Og því er fagnaðar-
og þakkarstuud, þegar miklum
áranga er náð. Því segi ég enn
og aftur. Innilegar þakkir til
allra sem stutt hafa þessi mál
á einhvern hátt og unnið þeim
gagn.
Megi Akraneshöfn um alla fram
tíð verða grundvöllur að blómiegu
atvinmilífi bæjarins og þannig
efla hagsæld, velmegun og n.enn
ingu fóiksins, sem byggir þennan
bæ“.
Að -lokinni ræðu bæjarstjórans
þakkaði Vclland verbfræðingur
Akurnesingum samveruna fyrir
hönd Þjóðverjanna, sem þar hafa
unnið nú í nær tvö ár, þeir sem
lengst hafa verið þar. Þá var flutt
kvæði til hafnarinnar eftir Ragnar
Jóhannesson skólastjóra.
Eysteinn Jónsson fjármálaráð-
herra tók þvínæst til máls. Ræddi
hann fyrst um hafnarm-álin al-
ir.^nnt og taldi að landsmienn
hefðu -snemma byrjað á einskonar
liafnai'gerð í landi sínu. Hann
benti á að víðá væri enn ófull-
nægjandi aðstæður í þeim efnum,
en hins vegar hefði líka mikið á
unnizt í þeim málum. Fagna bæri
þessum miklu framförum í hafnar
málum Akurnesinga, því þar væri
höfnin beinlínis undirstaða sjó-
sóknar.
Ráðherra drap síðan á það, að
margt væri nú í takinu varðandi
hafnarbyggingar landsmanna, en
tvö stærstu verkefnin, sem verið
væri að vinna að væru Þorláks-
hcfn og Rif. Myndu þessar tvær
hafnir opna nýja möguleika til
sjósóknar.
Góð Iiöfn mikið fagnaðarefni.
Eysteinn Jónsson fjármálaráð-
herra gerði síðan að u-mtalsefni
þá mi-klu þýðingu, sem hinar nýju
liafnarframkvæmdir hafa fyrir
Akranes. Hann sagði að góð höfn
sé aldrei of-metin. Menn geta bú-
ist við baráttu á sjónum og mið
unum, en steininn tekur þá fyrst
úr, þegar hættulegasti áfanginn
er landtakan sjálf, og þegar berj-
ast þarf við hafið við iandsteinana
En þannig hefir þetta verið frá
fyrstu tí'ð á Akranesi. Þess vegna
skiljum við svo vel fögnuð manna
í þessum sjósó-knarbæ, þegar þess
um stórkost'lega áfanga er náð.
Ráðherra lagði síðan áherzlu
á það, að ekki hefði verið unnt
að koma þessum miklu liafnar-
manmirkjum á Akranesi upp nú
á svo skömmum tíma, ef bæjar-
búar hefðu ekki sjálfir lagt mik
ið af mörkum og sýnt samtaka-
mátt. Ráðherra sagði að undir-
staða þessara framkvæmda væri
að fjármálum bæjarins hefð-i ver-
ið komið í lieilbrigt horf.
Völdu sér góðan formann
bæjarmála.
Eysteinn Jónsson, fjármálaráð
herra sagði: ,,að Akurnesingar
hefðu borið gæfu til að velja
sér formann fyrir bæjarmál sín,
sem sótt hefir málefni bæjarins
af hliðstæðu kappi og forsjá,
sem beztu formenn þeirra á sjón
um, og er þá mikið sagt, en
ekkert ofsagt að mínum dómi“.
Að lokinni ræðu Eystelns Jóns-
sonar fjiármáiaráðherra, sem jafn-
frarr.t er ráðherra hafnarm-ála,
tók ti-1 máls Emffl Jónsson banka-
stjóri, Dr. Hirschfeld sendiherra
Þjóðverja á íslandi, Þórhallur
Sæmundsson bæjarfógeti og Jón
Sigmundsson framkvæmdastjóri.
Karlakór Akraness söng undir
stjórn Geirlaugs Árnasonar. Var
hó£ þetta í alia staði hið ánægju-
legasta og fór vel fram.
Breytingar á kosnlnga-
lögum
(Framhald af 1. síðu).
Reynt að koma í veg fyrir
óviðkunnanleg afskipti.
Eysteinn Jónsson ráðherra svar-
aði þessum þingmanni fáeinum orð
um og sagði raunar, að ræða hans
væri naumast svaraverð. Væri
engu líkar en maðurinn hefði feng-
ið óráð eða talað upp úr svéfni.
Vitanlega miðaði frumvarpið að
því að auka á lýðræðislegri hætti
kosninganna, gera þær friðsam-
legri og virðulegri og reyna að
koma í veg fýrir að einstakir flokk
ar geti skipt sér af því, hvort menn
kjósa eða ekki. Koma í veg fyrir
það að fólk sé dregið í dilka á kjör-
stað í fara-rtækjum merktum flokk
um. Jón hefði ekki getað fundið
neitt að frumvarpinu í einstökum
atriðum annað en það, að honum
þætti að kjörfundur hefði ekki
staðið nógu lengi klukkan ellefu
að kvöldi. Endurtólc ráðherra fyrri
ummæli sín um það, að vorkunn-
arlaust væri að ljúka kosningu
fyrir þann tíma.
Eysteinn Jónsson spurði, hvern
ig menn gætu talið það gagnstæit.
lýðræði að banna afskipti af
kosningum, sem meðal annars
eru fólgin í því að óviðkomandi
aðilar eru að grennslast fyrir um
það á kjörstað, hvort rnenn hafi
neytt kosningaréttar síns eða
ekki. Þá mundu fáir sakna þeirra
vinnubragða, þegar verið er að
brjótast um á heimilum manna
fram á nætur að afloknum kjör-
degi í þeim tilgangi að vita, livort
menn vilji ekki kjósa. Þetta væru
allt saman afskipti af kosningum,
sem ekki væru viðkunnanleg eða
viðeigandi, þar sem fullt kosn-
ingafrelsi á að ríkja, og einstakl-
ingar eiga að vera einir um það,
hvort þeir nota kósningarétt sinn
eða ekki.
Frumvarpinu var að umræðum
loknum vísað til allsherjarnefndar
með 11 samhljóða atkvæðum.
KVIKMYNDIR
Fyrirspurn fii borgarsijórans:
Er forstjóri Innkaupastofimnaar Rvíkur ekki jafnframt
heildsali, og er heildsala hans ekki í húsakynnum
stofnunarinnar?
Koss dauðans
Bandarísk kvikmynd. Aðalhlut
verk: Kobert Wagner. Sýningar-
staður: Trípolibíó.
MYND ÞESSI er mjög vel tekin
og aðalhlutverkin í höndum
ágætra leikara. Þá er í lienni
mikill hraði og spenna og oft
er ko-mið á óvart með ýmsurn
smáatriðum. Mynd þessi er því
góður reyfari og ágæt hvíld að
horfa á liana.
UNG STÚLKA verður ófrísk, en
barnsfaðirinn er ekiki ýkja hrif
inn af að náttúrulögmálið skuli
taka þannig fram fyrir hend-
urnar á honum. Hann er við
nám og jafnframt ber þessa
ódétt-u efcki rétt að. Hann ótt-
ast að faðir stúlkunnar, sem
er milljónamæringur, og því
girnilegur engdafaðir, kunni að
reka dóttur sína að heiman, af
því að hann hafði gleymt að
kynna sig fyrir hónum áður
en náttúrulögmálið varð svona
aðgangshart.
ÞEGAR pilturinn hefir bundið
endi á þessi vandamál sín, hefir
hann að nýju freistað náttúru-
lögmálsins með aðstoð hinnar
dóttur milljónamæringsins. —
En örlögin, sem stundum eru
öllum lögmálum yfirsterkari,
vaða að piltinum í mynd malar
bíls og Ijúka öilum frekari
frama hans innan fjölskyldunn
ar. Myndin er byggð á sögu
eftir Ira Levin, sem komið hef-
ir sem framhaldssaga í Morgun
blaðinu. I.G.Þ.