Tíminn - 10.12.1957, Page 7

Tíminn - 10.12.1957, Page 7
TIMIN N, þriðjudaginn 10. desember 1957. 'ESrT Bœkur oq bofunbat Frá Sumarengjum Guðmundar Frímanns Guömundur Frtmann Haustið 1951 -kom út ljóðabók Guðmundar Svört verða sólskin. Skömimi eftir útkomu þeirrar bók ar skrifaði ég allrækilega um hana í Tímann og 'lxfcti höfundinum við fjallgöngulnann, -sem kominn væri hátt í Míð, um því líka framför bæri bókin vott, miðað við fyrri baðkur skáldsins. Ég óskaði því þess, að það bæri gæfu til að klífa hærri hjalla. Og nú hefir mér orð ið að þeirri ósk. Þessi nýja bók ekáldsins bekur áreiðanlega þeirri síðustu fram, sem nú mun sýnt verða. Bölsýni þeirrar og lífstrega, er Svört sólskin voru myrkvuð af, gætir míklu minna i Söngvum frá Sumarengjum. Skáldið sættir sig betur við vonbrigði og sársauka en áður, Iítur á gildi glataðra verð mæta öðrum og bjartari augum. Aður var sem þx' sæ..; yi ir eilíf sannindi orðanna: ,,Eitt er sífelld eign: hið missta.“ Það var eins og Guðmundi skáldi úr Langadal gleymdist sú staðreynd eða hann vildi ekki viðurkenna hana, að heimasveitin, áin, bakkar hennar stargresið — — ailt þetta var hon um meira virði, af því að hann hafði yfirgefið það. Nýja bókin hans Guðmundar sýnir hvernig lífs viðhorf hans hefir breytzt til góðs fyrir hann sjálfan og ljóðin. Farsælt lífsviðhorf er að vísu alls ekki nægjanlegt, til þess að skapist góð kvæði. Enn þá síður er hamingja eða velgengni skilyrði slíks. „Dýpsta sæla og soi-gin þunga“ geta báðar orðið kveikir jafngóðra kvæða í listrænu tilliti. Mest er komið undir eldinum helga og þar næst, hvernig hamr að er, fægt og sorfið. Guðmundur Frímann hefir fengið góða einkunn fyrir vinnubrögð sín. Ég geri hér enga athugasemd við þau, enda ástæðulaust. Yrkisefni hans eru reyndar einhæf. Ég kysi þau fjöl- þættari. Um það tjáir ekki að sak ast. „Hver fugl syngur með sínu nefi“, og á að þakka þeirn, sem sönginn gaf, en vera ekki með neitt nöldur um, að öðruvísi eigi að syngja. Skáldi verður aldrei sagt fyrir verkurn. I þessum nýju Söngvum Guð- mundar er, að mínum dómi, bezta kvæðið, sem ég hef lesið eftir hann. Og af því að það sýnir líka einkar vel þá breytingu á viðhorfi skáldsins, sem ég gat um, skal þetta kvæði að lokum birt í heilu lagi. Þóroddur Guðmundsson. Spjallað í bók Við, sem byggðum þessa borg, leftir Viihjiálm S. Vilhjálmsson; endurminning ar átta Reykvíkinga. — Útgefandi: Setberg. Vilhjálmur S. Vilhjálmsson er löngu kunnur að liðleik isínum í prentuðmn samtölum. í fyrra kom út eftir hann bók með ofan- greindu nafni. Hún vakti tcluverða I athygli. Þar var sagt frá níu öldn! um Reyikvíikingum. Þættirnir | voru byggðir sem viðtöl, nánast blaðaviðtöl, og það kom í ljós, að höfundur kunni afbragðsvel að láta bregða fyrir sem í sjónhend- ingu langri ævi, mikilli lífs- reynslu og margháttuðum störf- um.Bókin er séi-lega læsileg. Nú heldur Vilhjálmur áfram. Nýlega hefir hann sent frá scr EFTIR HELGINA DON QUIJOTE SKRIFARu Úr hafvillu áranna Úr haXvillu áranna flý ég enn á þinn fund, þú fagnar mér, sveit mín, sem gömhun elskhuga þínum, sem þrátt fyrir heitrofin sáru unni þér alla stund og Mdrei gat fjarlægt þig draumum og ljóðum sínum. Um da’linn fer golan ástljúf og hásumarhlý, og hhninninn sólroðinn speglast í tjörn og flæði. Hér lieyri ég hvarvetna nafnið mitt kaliað á ný, hér niðar í eyrum mér blómstef og liljukvæði. í mýi-inni sóleyjan kinkar kollinum dátt, hún klæðist í tilefni dagsins ljósgula sumarkjólnum. O, drottinn minn góður, hve dýragrasið er blátt, sem dafnar í lautinni sunnan í bæjarhólnum. öffi sólvermda hlíðina lækurinn launstigu fer og jcitar sem forðum mislitra óskasteina. Frá döggvotum bakkanum dúnurtin bi-osir við mér með dmnbrauða húfu á kollinum tandurhreina. Hér leggur, guð veri lofaður, æ'skunnar ilm fyrir vit frá enginu sumargræna, frá humli og smára. Og blærinn strýkst heitur um flæðin mín fagurlit og fyllir mig sólbjartri gleði — horfinna ára. Hér þekki ég aftur hvert laufblað, hvert stai’arstrá, er stígur sinn vordans um mýrina sólskinsbjarta. — Hér gæti ég kveöið mig sáttan við sorg mína og þrá og sungið mig inn í dauðann með vor í hjarta. . Sumargestir eítir Gunvor Fossum Nýlega er útkomin unglingasag- an Sumargestir eftir hina vinsælu norsku skáldkonu Gunvor Fossum. Bókin er gefin út af Bókaforlagi Æskunnar en það hefir um langt skeið verið einn helzti og vinsæl- asti útgefandi barnabóka. Gunvor Fossum er norskur kven rithöfundur er hefir getið sér miklar vmsældir í heimalandi sínu og á Norðurlöndum fyrir sögur sínar er þykja séi-staklega vel við hæfi barna og unglinga og hafa bækur hennar verið mikið þýddar. Er þessi bók hin sjötta í röðinni af bókum hennar, er Æskan hefir gefið út. Fyrst er að geta um Stellubækurnar, þrjár í röð, þá er Glóbrún, Stella og Óli og nú hin hin síðasta, Sumargestir. Auk þess hefir Norðri gefið út tvær af bók- um hennar Dóttur lögreglustjórans og Fíu. — AUar þessar bækur eru með hinum sömu einkennum, létt og hröð frásögn er lýsir lífi og störfum heilbrigðrar nútímaæsku, andstreymi og vonbrigðum, baráttu og sigrum. Þetta eru jákvæðar bók menntir, öfgalausar og sannar, hollar hvei-ju barni og unglingi, spi-ottnar upp úr umhverfi sem er okkur náið, en þó nægilega ólíkt til þess að það auki fremur á á- hrif sögunnar lil skemmtunar. Þýð- ingin er gerð af Sigurði Gunnars- syni skólastjóra, sem kunnur er af þýðingUm sínum á mörgum ung lingabókum. Stíllinn er lipur og málfar óþvingað og hispurslaust. í þeim sæg af bókum er út koma fyrir yngri kynslóðina má vera að meira beri á sumum en þessai-i — en Sumargestir er bók sem ó- hikað má mæla með fyrir ung- lingana ekki síður en hinar fyrri bækur þessa vinsæla höf. G.K. Vilhjálmur S. Vilhjálmsson. annað bindi af „Við sem byggðum þessa borg“, og eru þar þættir af átta Reykvíkingum. Höfundur ber niður á ýmsum miðum, svo að hópurinn er ekki iíkur að yfir- bragði. Þarna eru háskólaborgari og embættismaður, kaupmaður, iðnaðarmaður, sjómaður, bifreiða stjóri, verkamaður, stórkaupmað ur og iðjuhöldur. En þegar nánar er að gætt ieru þeir líkari en í fljótu bragði virðist; lífsviðhoi-f- in harla iík, þegar litið er yfir farinn veg af sjónarhóli eíri ára. Þeir eru aliir hörn sinnar aldar, sem hefir anótað þá að nokkru í sinni mynd. Fyrsti þátturinn í bókinni og einn hinn lengsti nefnist: Ævi- starf við sjúkrabeð, og ræðir höf- undur þar við Guðmund Thor- oddsen, yfirlækni og pi’ófessor. Þetta er bezti kafli bókarinnar, og má vera, að höfundur njóti að nokkru góðs sögumanns. — Mai-gir þekicja til ævistarfs Guð- mundar Thoroddsens, vita að hann er afbui’ðagóður læknir og var bezt menntaður til þess starfa allra lækna á sinni tíð. Læknis- stax-f hans er ærið söguefni, og af nafni þáttarins virðist mega ráða, að höfundur liafi aðallega ætlað að segja frá því, en að lestri loknurn finnur maður, að í raun og veru hefir annað orðið uppi á teníngnum, glaðar æskuminn- ingar, liinn stei-ki pei-sónuleiki mannsins og heillandi lífsskoðun. Guðmundur er ekki margorður um störf sín, og rekur ekki afrekin. Hann segir aðeins: „Bezt man óg það, sem illa hefir tekizt“. Það er ekki raupið í bænuim þeim. Höfundurinn lætur hann halda stefnunni, hlýðir á og spyr endrum og eins og tekst að fá skínandi frásögn, þótt ekki sé gengið að skurðarborðinu. I þáttarlok er svo birt gamankvæði eftir Guð- mund um læknisstarfið, og sýnir það iandsfólkinu nýja hlið á hon- um, því að læknirinn segist ekki flíka slíku nema í kunningjahóp. Þjóðin vissi þó að hann var mál- hagur með afbrigðum og frásögu snjall; það var ljóst af hinum vin- sælu útvai-pserindum hans og greinum. Næst er þáttur, sem heitir: „Eiufari í mergðinni", og er þar sögð á hressilegan hátt saga Hann esar Jónssonar, er var. kaupmaður við Laugaveginn, en lifði brösótta ævi og bugaðist aldrei. Næst kem- ur „Manni strokið um vanga“, og ;mætti hann eins heita: „Rakarinn 1 nunn sagði“, ein." og í Speglmun., Nokkurt þref hefir verið á Alþingi að undanförnu um neyzlu áfengis. Þar hefir margt markvert komið fram til huggun- ar báðum aðilum; þeim sem og þeim sem ekki drekka. Að líkind- um hefir Jón Pálmason komið með skynsamlegustu tillöguna í málinu. Það á að skýra fyrir fólki hvernig eigi að drekka. Kannski hengd verði upp spjöld í öllum vínstúkum bæjai-ins, þar sem kveðið vei-ður á um það í tíu lið- um hvernig neyta skuli áfengis. VÍTAMÍNIÐ B 12 f Bandaríkjunum er nú að ljúka rannsóknum á áhrif- um vítamínsins B-12 á áfengissjúk- linga. Hefir sýnt sig, að þetta víta- mín hefir sömu áhrif á áfengis- sjúklinga og insúlín á s.ykui-sjúk- linga. Þarf stöðugt að gefa það, til að það komi að gagni, engu síður en insúlínið. Það hefir löngum verið vitað, að áfengissýki stafaði af efnaskorti. Nú er fyrii-sjáanlegt, að „efnaskorturinn“ flytzt yfir á þá, sem hafa lifað undanfarna ára- tugi á efnaskorti áfengissjúklinga. SKRAUTKONUR Allt fi-ant undir síðustu alda- mót gáfu útlendingar hroða- legar lýsingar á verkakonum í Reykjavík. Þeim þótti þær illa Hæddax-, fnykmiklar og vinna hin ótrúlegustu erfiðisstörf. Margt hefir breytzt síðan og við erum ekki það kotríki lengur, að útlend- ingar þurfi að hneykslast á útliti kvenna vorra. — Nýlega tapaði hefðarfrú öðrunt eyrnalokk sínum í veitingahúsi hér í bænum. Húsið tryggir gesti fyrir töpuni. Kon- an gerði fimmtán þúsund króna kröfu á hendur húsinu vegna taps ins. Hún gat fært sönnur á að það væri rétt verðmæti lokksins. Öllum létti, þegar lokkurinn fannst. Þá tapaði önnur kona arm- bandi í öðru húsi. Hún gerði sjö þúsund króna kröfu. Armbandið hefir ekki fundizt og veitingahúsið borgar. Það er ntikill munur á saltfiskkerlingu og skrautkerlingu. EITURMARTRÖÐ Loftur Guðmundsson hefir skrifað bók, sem hann nefn- ir Jónsmessunæturmartröð á íjall- inu helga. Nýlega talaði ltann í útvarpið um eitrað áfengi. Þeiin er hlustuðu létti, er þeirri eitur- martröð lauk. , HVAÐ KÓL? Tímaritið Satt flytur alltaf ágæta þætti um innlent :cólk Nú var að ljúka þætti af Skáld- Rósu. Sá þáttur ber fyrirsögnina Þó að kali heitur ltver. Þetta ntún: eiga að vera upphaf á vísu, efitir Rósu. Vér teljum, að vísa þessi sé eftir Sigurð Bjarnason yngri og byrji svona: Þó að kali heitan hver. í þessu santbandi má geta þess, áð í næsta innlenda þætti Satts kelur engan. Þar er þíðan slík, að börn eru getin af tómri manngæzku. ÁFRAM PAPAR A þessum tímum geintfara og gametíkur þykja það' engin undur, þótt aðskotaverur utan úr himingeimnum haldi mönn um á málskrafi nteð þýzkum hreim. Enn er deilt unt líf á öðrum hnött- únt, en fyrst nú hefir verið sánnað, að Papar hafi orðið fyrstir til ís- lands og síðan fundið Ameríku á undan öðrum Vesturlandabúum, er trúlegt að þeir hafi orðið fyrstir til tunglsins, þó að þeir hafi Mdrei verið staðnir að því að tala nteð þýzkum hreim. KAPÚT-NIK Hryllileg var andlátssaga sii af Vanguard skeytinu, sem lesin var upp í útvai-pið á dögunr um. Fyrst kom stuna, síðan lagðist það á hliðina og svo varð spreng- ing. Sagt er, að einn fréttamanna útvarpsins hafi skírt líkið kapút- nik. Kvennamunur - áður óprentuð skáldsaga Jóns Mýrdals komin út m Bókaútgáfan Fjölnir í Reykjavík hefir gefið út skáldsögu eftir Jón Mýrdal, og nefnist hún Kvennamunur. Þetta er löng skáldsaga, sem Jón skildi eftir sig í handriti. Halldór Pétursson hefh- teiknað allmargar myndir í bókina. Bókaútgáfan Fjölnir hefir und- anfarin ár gefið út tvær bækur, er legið hafa í handriti eftir höf- unda frá öldinni sent leið’, eða komu út fyrir aldamót og hafa ver- ið ófáanlegar um áratugi. Fyrii nokkru gaf Fjölnir út skáldsöguna Aðalstein og fleiri gömul rit hefir hann gefið út. Nú hefir Fjölnir ráðizt í að gefa út skáldsöguna Kvennantun eftir Jón Mýrdal. Höfundurimt fæcldist í Hvantmi í Mýrdal 1325. Hann ritaði margt, sögur, ljóð og leik- rit og var fæst af því gefið út. Skáldsagan Mannamunur var þó gefin út á öldinni scnt leið, og hlaut slikar vinsældir, að hún er enn í dag í minni manna, og hefir verið lesin nteð ánægju í nýjum útgáfum fram á þennan dag. Skáldsagan Kvennamunur er ntjög svipuð að gerð, og ntun ekki vera mikill munur á gæðutn þeirra. Hún er spennandi og fjör- lega rituð, þótt kannske dæmist hún ekki miklar bókmenntir nú á dögum. Þó rná fullyrða að enn komi út hér á landi margt sem miklu verr er ritað. Það er því hiklaust fengur að þessari vönd- uðu útgáfu. Kvennamumir er á sjötta hundr- að blaðsíður að stærð og er prent uð nákvæmlega að orðfæri eins og hún er í handriti Jóns Mýrdal í Landsbókasafni, en aðeins færð til nútíma stafsetningar. Myndir Halldórs eru bráðskemmtilegar. Miklar líkur eru til að Kvenna- munur verði vinsæll til skemmti- lestrar, og mörgum ntun Ieika foi-- vitni á að kynnast þessari sögu Jóns Mýrdal, sent á heima við hlið- ina á Mannamun. Sérlega sntekk- leg kápa er um bókina. því að sögumaðurinn er Sigurður Ólafsson rakai-i. í fjórða kaflamint rabbar Vil- hjáknur við Ólaf G. Einarsson, og nefnir kaflann „Lífsstríð í sulti og seyru“, sjómann, sem nú bifreiða- stjóri. Og þar næst bregður hann á léttara hjal með Erlendi Ó. Pét- urssyni og eru brennipunktar þar að vonuni KR og Sameinaða. Þátt urinn heitir: ,,Ég hefi aldrei hætt að leika ntér“, og lokaboðorð Er- 'lendar er, að menn eigi að halda áfram að leika sér fram i rauðan dauðann. Næst bregður Vilhjálntur sér í e*'C“>ðj'una og ber forvitni sína í mál við Egil Vilhjiálmsson, stóx’- kaupmann og bifreiðasala. Nefnist kaflinn: „Frá roðskónum til bif- reiffianna *. Er .þar m.a. sagt frá fyrstu áætlunarferðum milli Hafn arfjarðar og Reykjavíkur. Loks eru svo tveir þættir af verkamönnum í Reykjavík, hinn fyrri viðtal við Sesselíus Sænt- undsson og heitir hann ,,Hér stentl ég og get ekki annað“. Síðasti þátturinn heitir: „Gaman ög al- vara í gráuni leik“, viðtal við Hannes Kristinsson. Öll eru þessi viðtöl mjög lipur- lega rituð og á fjörlegu máli, sem (Framhald á 8. síðu.)

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.